Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 1, 3, 5, 7, 9 og 11. Mán 3, 5, 7, 9 og 11. Vit 461 Stundum er það sem að þú leitar að.. þar sem þú skildir það eftir. Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur fengið frábærar viðtökur og er nú þegar orðin vinsælasta mynd Reese Witherspoon frá upphafi vestanhafs. KRINGLA  Kvikmyndir.is Sýnd kl. 1, 3, 5, 7, 9 og 11. Mán 3, 5, 7, 9 og 11. Vit 468 E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P 1/2  Roger Ebert 1/2 Kvikmyndir.is  DV Sýnd kl. 4 og 10.20. Mán kl. 10.20. 8 Eddu verðlaun Sýnd kl. 4. B.i. 12.Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16. Sýnd kl. 6. Yfir 51.000 áhorfendur Sýnd kl. 3, 5.45 með enskum texta 8 og 10.10. Mán. 5.45, 8 og 10.10. B.i. 12. Sýnd sd. kl. 1.50 og 4 Sýnd sd. kl. 2. WITH ENGLIS H SUBTIT LES AT 5.4 5  HL. MBL  SK RadíóX  HK DV Sýnd kl. 8. Ísl. texti. B.i. 16. Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10. Mán 5, 6, 8 og 10. „VIÐ ætluðum í plötu með nýju efni,“ útskýrir Jón Ólafsson, píanóleikari Nýdanskrar. „Við ætluðum alltaf að gera kántríplötu en svo þegar við fórum að horfa í kringum okkur fannst okk- ur eins og allir væru að gera kántrí. Svo var mikið hark í kringum plötuna sem við gáfum út í fyrra (Pólfarir) og við vorum langt frameftir þessu ári að moka okkur út úr því. Þannig að orkan að leggja út í ný lög var einfaldlega ekki til staðar. Við ákváðum því að gera eitthvað smá til að minna á okkur, höfðum enda tilefni til þess vegna afmælisins. Við gerðum því tvö ný lög og veltum því fyrir okkur hvernig við ættum að leysa þetta. Upprunalega langaði mig til að gera svona „b-sides“ plötu, þar sem einungis væru lög sem aldrei hefðu náð hylli en okkur þættu aftur á móti flott. En við fundum fljótlega fyrir því að menn voru ekkert of spenntir fyrir því að gefa út einhver lög sem höfðu aldrei orðið vin- sæl (hlær).“ Lendingin á þessu máli varð því Freistingar. „Freistingar er plata með lögum sem okkur þykir sérstaklega vænt um,“ útskýrir Jón, „og við höldum jafnvel að fólk hafi gaman að heyra í nýjum útsetningum. Sumum þeirra klúðruðum við kannski á sínum tíma og náðum ekki að gera úr þeim það sem þau áttu skilið. Svo eru líka vinsæl lög þarna, en sá flötur er á þeim að þau eru öll í gjörbreyttu formi. Þetta eru því allt lög sem okkur fannst spennandi og gaman að vinna með á nýjan leik.“ 1. Fagurt fés „Þetta er nýtt lag eftir Daníel. Við vildum auðvitað hafa hann með á plötunni og hann játti. Upprunalega var þetta með ansi víruðum undir- leik eftir Daníel sjálfan sem við hentum svo út. Daníel er ansi seigur lagahöfundur og mér finnst þetta alveg ofsalega flott lag.“ 2. Á sama tíma að ári „Þetta er upprunalega sungið af Birni og Margréti Vilhjálmsdóttur fyrir samnefnt leikrit. Það kom hins vegar aldrei út. Við reyndum að fara einhverja óhefðbundna leið hér og datt í hug að hringja í Svanhildi Jakobsdóttur. Og hún sagði bara ókei!“ 3. Horfðu til himins „Þetta var nú krafa frá útgefandanum. Ég sagði að ef við finndum einhverja leið til að gera þetta, sem okkur þætti skemmtileg, þá mynd- um við halda því inni. Björn bjargaði málinu með frábærum bassafrasa og Danni var alveg gáttaður þegar hann heyrði nýju útgáfuna.“ 4. Eplatré „Þetta er af fyrstu plötunni. Mér fannst þetta alltaf flott lag og þarna erum við aðeins að daðra við kántríið. Ljúft gítarplokk í anda Brimklóar.“ 5. Freistingar „Þetta er lag sem við vorum alltaf mjög hrifn- ir af. Þegar við vorum úti í Bretlandi að taka upp Himnasendingu þá sendum við heim mynd- band af okkur að spila þetta lag í Battersea Park. Það var notað á einhverjum Coca-Cola tónleikum og látið líta út eins og um einhverja gervihnattaútsendingu væri að ræða (hlær).“ 6. Holur innan hausinn „Þetta lag er af Húsmæðragarðinum (sem Jón segir bestu plötu sveitarinnar á eftir De- luxe). Björn heillaði okkur upp úr skónum með laginu þegar hann spilaði þetta fyrir okkur hina. Okkur fannst þetta hins vegar aldrei nógu gott í hljóðverinu þannig að nú fékk Björn tækifæri til að gera það rétt.“ 7. Flugvélar „Ég hef aldrei fundið mig sem einhvern aðal- söngvara í hljómsveitinni. Lagið er af Pólförum og varð nokkuð vinsælt. Svona var þetta lag samið, bara ég og píanóið. Þetta er 10 ára gam- alt lag og hefur þurft að bíða lengi eftir að koma út.“ 8. Tíminn „Okkur fannst þetta mjög grípandi lag en það klúðraðist gersamlega á Regnbogalandi. Núna gerðum við það upp á nýtt, fækkuðum hljómum og bættum við brassi. Nú á það loksins mögu- leika á að verða vinsælt!“ 9. Frelsið „Það vantaði smell á Regnbogaland og Björn var vinsamlega beðinn um að semja þetta snilld- arlag. Þessi útgáfa er að mínu viti miklu flottari en upprunalega lagið.“ 10. Þú ert svo „Þetta er gríðarlega flott lag eftir Björn og kom fyrst út á Húsmæðragarðinum og var út- sett upp í topp þar. Þetta er dæmi um að góð lög geta virkað við hvaða aðstæður sem er. Hér er þetta bara með einu píanói og útgáfurnar eru því eins og svart og hvítt.“ 11. Mjallhvít „Lag af Hunangi og þetta átti að vera aðal slagarinn þar enda lag númer eitt á plötunni. Útsetningin var hins vegar ekki vænleg til vin- sælda og því hröðuðum við á því hér og lagið lifnaði við!“ 12. Stúlka „Þetta er af Regnbogalandi. Textann væri hægt að birta í Lesbókinni – ég skil ekki helm- inginn af orðunum. „Hornbandaskreyttar ær???“ 13. Hugarflug „Lag eftir Stebba. Falleg ballaða en þessi plata endar á miklum rólegheitum. Stebbi hefur ekki átt mörg lög á ferli sveitarinnar og því fannst okkur gaman að hafa hérna eitt eftir hann.“ 14. Allt „Lag sem er á Regnbogalandi. Það eina sem við gerðum við lagið var að við skiptum út píanóinu og settum kassagítar í staðinn. Það hljómar samt einhvern veginn allt öðruvísi.“ 15. Faldar hendur „Við endum þetta á nýju lagi. Það stóð til að það færi á plötuna í fyrra en mér fannst það svo leiðinlegt. Ég samdi það nú reyndar sjálfur. Við bara nenntum ekki að hafa svona lag á þeirri plötu, enda meiri gleðiplata. En nú var það við hæfi. Ég er búinn að semja milljón svona lög, ein- hverjar svona sárar ballöður. Þetta er bara þannig lag.“ Morgunblaðið/Kristinn Svanhildur Jakobsdóttir tróð upp með Nýdönskum á útgáfutónleikum Freistinga. Freistingar – afmælisplata Nýdanskrar „Með höfuðið hátt“ Jón Ólafsson og Arnar Eggert Thoroddsen fóru yfir sögu laganna sem prýða Freistingar. arnart@mbl.is Platan Freistingar er komin í verslanir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.