Morgunblaðið - 24.11.2002, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 24.11.2002, Qupperneq 64
LEIKRITIÐ Englabörn eftir Hávar Sigurjónsson verður flutt í sviðsettum leiklestri á alþjóðlegri leiklistarhátíð sem eitt þekktasta leikhús Evr- ópu, Schaubühne í Berl- ín, stendur fyrir í janúar næstkomandi. Leikhúsið keypti nýverið sýningar- rétt á verkinu. Að sögn Maja Zade, dramatúrgs hjá Schaubühne-leikhúsinu, eru á hátíðinni sýndar gestaleiksýningar frá ýmsum leik- húsum í Evrópu en megintilgangur hennar er að kynna það nýjasta og athyglisverðasta í leikritun í álfunni og „gefa leikurum okkar og leikstjórum tækifæri til að vinna með leikrit nýrra höfunda og kynna þá fyrir áhorfendum okkar“, segir Zade. Englabörn flutt í Berlín  Heiður/29 HÁTT á fjórða þúsund bíla er endurunnið á ári hjá fyrirtækinu Hringrás í Klettagörð- um í Reykjavík, þar sem þessi mynd er tek- in. Öllum spilliefnum er þá dælt af bílunum og þeir pressaðir saman þannig að þeir verða á stærð við ferðatösku. Bílflökin eru síðan flutt út, flest til Englands, þar sem bróðurpartur bílfllaksins er endurnýttur. Einar Guttormsson, fjármálastjóri Hring- rásar, segir að 10–15% aukning hafi verið á umsvifum hjá fyrirtækinu síðustu ár, um- hverfisvitund fólks sé alltaf að aukast. Auk Hringrásar vinnur fyrirtækið Fura ehf. í Hafnarfirði að endurvinnslu bíla, þar eru bílarnir tættir niður og flokkaðir. Einar á von á því að enn fleiri bílar verði endurnýttir í framtíðinni, en frumvarp ligg- ur fyrir Alþingi sem felur í sér að skila- gjald verði lagt á bíla sem fólk fái end- urgreitt þegar bíllinn hefur þjónað hlut- verki sínu. Heilu fjölskyldurnar horfa á eftir bílnum í pressuna Aðspurður segir hann að fólk eigi oft erf- itt með að sjá á eftir bílnum sínum í press- una. „Það kemur fyrir að menn taki þetta mjög nærri sér, það er einstaklingsbundið. Það hafa komið hingað heilu fjölskyldurnar og það hefur verið eins og athöfn, hálfgerð jarðarför, þegar fólk kemur og kveður gamla fjölskyldubílinn sem hefur þjónað fjölskyldunni í gegnum árin,“ segir Einar.Morgunblaðið/RAX Bíða end- urnýjunar lífdaga MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. SVONEFND MFS-þjónusta á fæðingardeild Landspítala – háskólasjúkrahúss, sem er sam- felld þjónusta ljósmóður við verðandi foreldra á meðgöngu, við fæðingu og á sængurlegu, annar langt því frá eftirspurn og liggur við að vísa þurfi jafnmörgum frá og komast að, að sögn Rósu Bragadóttur, deildarstjóra í Hreiðrinu, deildinni, sem býður upp á þessa þjónustu. MFS-þjónustunni var komið á laggirnar fyrir átta árum og önnuðust sex ljósmæður þjón- ustuna. Fyrir tveimur árum var bætt við öðru sex ljósmæðra teymi, en ljósmæðrunum fækkar um þrjár 1. febrúar. Rósa Bragadóttir segir að þessi samfellda þjónusta hafi alla tíð notið mikilla vin- sælda, en hver ljósmóðir geti séð um þrjár til fjórar fæðingar á mánuði. Þegar kona sem sé komin átta til níu vikur á leið komi í mæðraskoð- un sé hins vegar upppantað í MFS. „Það er allt fullt hjá okkur út júlí,“ segir hún og bætir við að ekki sé hægt að panta pláss fram í tímann. Sem fyrr segir felur þjónustan í sér þjónustu ljósmóður frá meðgöngu og þar til barnið er orðið vikugamalt og er sama ljósmóðirin með verðandi foreldrum allan tímann nema hugsanlega ekki í fæðingunni sjálfri vegna vaktaskipta. Rósa bendir á að konur, sem óska eftir heima- þjónustu, liggi einnig á deildinni og fari líka heim sólarhring eftir fæðingu, en ljósmæður þeirra fylgi þeim. Í slíkum tilfellum sé um að ræða sjálf- stæðar ljósmæður, sem séu á samningi við Tryggingastofnun, og geti allar verðandi mæður fengið slíka þjónustu, en þá fari þær í mæðra- skoðun hjá ljósmóður í miðstöð mæðranefndar eða í sinni heilsuverndarstöð. „Meira en 50% kvenna sem fæða eðlilega á Landspítalanum fá heimaþjónustu og allar konur sem vilja komast í heimaþjónustu fá hana,“ segir Rósa. „Það er mjög erfitt að þurfa að neita konum um okkar þjónustu en við önnum bara ekki eftirspurn.“ Samfelld þjónusta hjá ljósmæðrum á Landspítalanum mjög vinsæl Færri komast að en vilja „ÉG tel það skipta miklu máli varð- andi öll veikindi að hægt sé að ræða þau opinskátt og ég vona að það geti hjálpað öðrum,“ segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í samtali við Morgunblaðið í dag. Í samtalinu ræðir Halldór um starf sitt, stjórnmálin og þau alvarlegu veikindi sem hann hefur glímt við. Halldór gekkst undir aðgerð 15. október sl. eftir að hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli. Aðgerðin gekk vel og meinið var fjarlægt. Eftir aðgerðina hefur Halldór hvílst og safnað kröftum en er nú kominn til starfa á ný. Sjúkdómurinn greindist fyrir til- viljun í gegnum blóðsýni við reglu- bundið eftirlit. „Það sýnir að karl- menn á mínum aldri þurfa að láta fylgjast með þessum hlutum,“ seg- ir Halldór. „Ef blóðsýnið hefði ekki verið tekið hefði þetta alveg eins getað dregist í nokkur ár. Þá kann að vera að það hefði verið of seint.“ Frábær umönnun Halldór segir að umönnun sem hann hefur fengið hjá læknum og hjúkrunarfólki hafi verið frábær og hann sé afskaplega þakklátur öllu því fólki sem komið hafi að veik- indum hans. Halldór segir að hann hafi fengið góðan stuðning víða að og fjöl- skyldan staðið þétt með honum. Þá hafi hann fengið þakkir frá fólki, sem einnig hefur glímt við krabba- mein í blöðruhálskirtli, fyrir að fjalla um veikindi sín opinberlega. Það geri öðrum sem standi í sömu sporum auðveldara fyrir. „Auðvitað byrjar maður að hugsa um ýmislegt á annan hátt,“ segir Halldór. „Maður gerir sér betur grein fyrir því að lífið er ekki endalaust og hættan á sjúkdómum er fyrir hendi, eins og hjá öðru fólki. Þá lærir maður ennþá betur að meta gott heilbrigðiskerfi og vináttu og styrk þeirra sem manni þykir vænst um.“ „Mikilvægt að hægt sé að ræða veikindi opinskátt“ Halldór Ásgrímsson til starfa á ný eftir alvarleg veikindi  Aldrei vanist/B1 ÍSLENDINGUR fékk nýlega 100 þúsund króna sekt fyrir meint smygl á harð- fiski til Færeyja. Maðurinn kom sjóleiðina til Færeyja og uppgötvuðu tollverðir í Þórshöfn að hann hafði 60 kg af harðfiski í fórum sínum. Samkvæmt upplýsingum frá færeyskum tollyfirvöldum er slíkur innflutn- ingur bannaður vegna samnings Færeyja við ESB, sem kveður á um að allur fiskur innfluttur frá þriðja landi skuli gangast undir gæðaskoðun. Skoða þarf vöruna og votta í efitrliti í Kollafirð, sem mun ekki hafa verið gert í þessu tilviki. Því var maðurinn sektaður og harðfiskurinn sendur til Íslands. Smyglaði harðfiski RÁÐIST verður í um- fangsmiklar fram- kvæmdir við Geysi í Haukadal, væntanlega strax næsta vor. Í tillögum er m.a. gert ráð fyrir að spor- öskjulaga torg myndi hjarta hverasvæðisins og í göngum sem leggja á undir þjóðveginn er áformað að vera með sýningu um hvera- svæðið sem fólk getur skoðað á leiðinni að hverunum. Sýning í göng- um við Geysi  Grafa/B8 ÍSLANDSMEISTARAR KR í karlaflokki mæta nýliðum Þróttar á Valbjarnarvelli í fyrstu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu næsta sumar. Dregið var í töfluröð í gær og aðrir leikir í þeirri umferð eru Fylkir – Fram, Grindavík – Valur, ÍBV – KA og FH – ÍA. Hjá konunum mæta meistarar KR einnig nýliðum Þróttar úr Reykjavík á Valbjarnar- velli en aðrir leikir umferðarinnar eru ÍBV – Stjarnan, Valur – FH og Breiðablik – Þór/ KA/KS. Meistarar mæta nýliðum ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.