Morgunblaðið - 22.04.2003, Síða 38
HINN 20. maí næstkom-andi mun danski arki-tektinn og höfundurSidney-óperuhússins,
Jörn Utzon, hljóta Pritzker-
verðlaunin 2003, en þau eru æðstu
verðlaun sem arkitekt getur hlotið
fyrir lífsstarf sitt í þágu bygging-
arlistarinnar.
Konungur Spánar, Juan Carlos I,
mun afhenda verðlaunin í Kon-
unglegu listaakademíunni San
Fernando í Madrid, sem er eitt
virtasta grafíksafn Spánverja og
geymir m.a. upprunalegar kop-
arplötur Goya.
Saga Pritzker-verðlaunanna
Pritzker-verðlaunin voru fyrstveitt árið 1979 og eru þaukennd við Pritzker-
fjölskylduna í Chicago í Bandaríkj-
unum, borg skýjakljúfanna sem
einnig státar af byggingum Lous
Sullivan, Frank Lloyd Wright og
Mies van der Rohe.
Fjölskyldan hafði ávallt haft
geysilegan áhuga á byggingum og
tók virkan þátt í hönnun Hyatts
hótela sinna út um allan heim. Hug-
myndin að verðlaununum var líka
hugsuð og metin til jafnvægis við
Nóbelsverðlaunin.
Árlega skipuleggur Hyatt-stofn-
unin verðlaunaafhendinguna á ólík-
um stöðum í heiminum, í þekktum
og sögulegum byggingum sem og
byggingum eftir fyrrum verðlauna-
hafa Pritzker-verðlaunanna. Má
nefna dæmi, Palazzo Grassi í Fen-
eyjum, Búddahof í Japan og Metro-
politan listasafnið í New York.
Verðlaunin,
sem nú er að
upphæð $
100.000, gegna
því hlutverki að
viðurkenna ævi-
starf lifandi arki-
tekts sem hefur
sýnt með verkum
sínum á metn-
aðarfullan hátt,
hæfileika, framtíðarsýn og ábyrgð-
artilfinningu og þannig stuðlað að
mikilvægu framlagi í þágu mann-
kyns og hins byggða umhverfis.
Tekið er við tilnefningum hvaðan að
úr heiminum og meta nefndarmenn
að jafnaði hundruð arkitekta.
Meðal verðlaunahafanna 20, frá
14 ríkjum, eru margir þeirra kunnir
lesendum fasteignablaðs Morg-
unblaðsins: Frank Gehry hlaut
verðlaunin árið 1989, Robert Vent-
uri árið 1991, Alvaro Siza árið 1992,
Rafael Moneo árið 1996 og Rem
Koolhaas árið 2000. Jörn Utzon er
líka lesendum Morgunblaðsins að
góðu kunnur en hér í blaðinu var
fjallað um hús hans á Mallorka
þann 13. 3. 2001 og undirrituð tók
viðtal við hann sem birtist í Lesbók
Morgunblaðsins 3. 11. 2001.
Vinningshafinn 2003
Íumfjöllun dómnefndar lýstihún Jörn Utzon sem arkitekter ætti sér rætur í sögunni
með því að vísa í menningu Maya,
Kína, Japans, íslams sem og í hefð-
ir Norðurlanda. Hann sameinaði
aldagamla siði við sínar eigin öguðu
vinnuaðferðir, sýndi næmi fyrir
arkitektúr sem listgrein og fyrir líf-
rænu fyrirkomulagi tengda stað-
bundnum aðstæðum.
Þetta næmi kemur víða fram,
ekki síst í þinghúsinu í Kúveit sem
síðar var lagt í rúst af hermönnum
Íraks árið 1991 en nú er gert ráð
fyrir að endurbyggja fyrir 70 millj.
dollara, íranska þjóðarbankanum í
Teheran, kirkju í Bagsværd fyrir
utan Kaupmannahöfn og íbúð-
arþyrpingum i Helsingör og Fred-
ensborg.
Ein frægasta bygging í heimi er
einnig eftir Utzon, nefnilega Sidn-
ey-óperuhúsið, bygging sem höf-
undur hennar hefur aldrei séð full-
gerða. Hún er orðin að þjóðlegu
tákni með alþjóðlegt vægi. Utzon
vann alþjóðlega samkeppni árið
1957, þar sem fram komu 230 til-
lögur frá 30 löndum. Byggingin var
Lausn sem notuð var í þaki Sidney-óperuhússins.
Plöturnar geisla af krafti og undir-
strika ólíka efniseiginleika.
Danski arkitektinn Jörn Utzon
hlýtur Pritzker-verðlaunin 2003
Jörn Utzon
38 B ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Landsbyggðin
KIRKJUVEGUR - VESTMANNAEYJAR Glæsi-
legt 192 fm timburhús sem er kjallari, hæð og ris.
Íbúðin er þannig að á 1. hæðinni er stofa og
borðstofa með útgangi út á sólpall, vandað eld-
hús með stórri sérsmíðaðri kisuberjainnréttingu,
eitt svefnherbergi og baðherberb. Í risi er 24 fm
fjölskyldurými, þrjú svefnherb. eitt með útgangi út
á rúmgóðar svalir og baðherb. Í kjallara er flísa-
lagt þvottahús, baðherberb., þar er einnig ca 65
fm rými sem er í dag notað sem smíðaaðstaða.
Parket og flísar á gólfum. Skipti möguleg á 4ra
herb. íbúð með bílskúr á stór-Reykjavíkursv. Áhv.
6,0 m. byggsj. og húsbréf. Verð 15,0 m. ATH. 22
ljósmyndir af eigninni á netinu.
RÉTTARHOLT - BORGARNES Gott stein-
steypt 140 fm einbýlishús á einni hæð ásamt
48,5 fm bílskúr eða samtals 185,5 fm. Húsið
stendur á fallegum skjólgóðum stað undir
klettavegg. 3 góð svefnherb., falleg stofa
með mikilli lofthæð og útgang út í garð, sjón-
varpsherb., mjög rúmgott eldhús með
þvottaherb. og geymslu inn af, baðherbergi,
gestasnyrting og forstofu-herbergi. Stór
skjólgóður garður með sólpalli og heitum
potti. Áhv. 8,6 m. V. 15,6 m.
www.fasteignamidlun.is - brynjar@fasteignamidlun.is
Nýbyggingar
Einbýlishús
BÆJARGIL - GARÐABÆR Glæsilegt 207
fm einbýlishús sem er hæð og ris með inn-
byggðum bílskúr. Íbúðin er stofa, borðstofa,
arinstofa, vandað eldhús með sérsmíðaðri
massífri innréttingu, þrjú svefnherb. flísalagt
baðherb. o.fl. Vönduð gólfefni. Húsið stendur
á hornlóð og er teiknað af Pálmari Krist-
mundssyni. Garður teiknaður af Stanislav
Bohic. Afgirtur sólpallur. Verð 29,9 m.
MIÐSALIR - EINBÝLISH. Í SMÍÐUM Ein-
býlishús á einni hæð með bílskúr, samtals
165 fm. Húsið afhendist fokhelt í mars-apríl,
frágengið að utan með gluggum og útihurð-
um. Húsið verður múrað og málað að utan. Á
þaki verður litað bárujárn. Útihurðir með
skrám og sparkjárnum. Bílskúrshurð verður
með járnabúnaði og sjálfvirkum opnara. V.
18,5 millj. Hægt er að fá húsið lengra komið
eða fullbúið.
ÖLDUGATA - HAFNARFIRÐI 87 fm einbýlishús
á þessum vinsæla stað í gamla bænum í Hafnar-
firði. Húsið er stofa, borðstofa, eldhús, nýlegt
baðherb. þrjú svefnherb. o.fl. Áhv. 6,2 m. húsbréf.
Verð 13,0 m.
Sérhæðir
4ra herbergja
BARÐASTAÐIR Falleg 4ra herb. endaíbúð á 2.
h. í litlu fjölbýli í Grafarvoginum. Íbúðin skiptist í
þrjú rúmgóð parketlögð herb. með skápum, flísa-
lagt baðherb. með baðkari, sturtuklefa og glugga,
rúmgóð stofa með vestursvölum út af, eldhús
með fallegri innréttingu úr kirsuberjarvið og góð-
um tækjum. Þvottaherb. í íbúð og geymsla í kjall-
ara. Áhv. 9,1 m. Verð 14,9 m.
DÚFNAHÓLAR - ÚTSÝNI - BÍLSKÚR Góð 4ra
herb. íbúð á 3ju hæð (efstu) ásamt bílskúr. Íbúðin
skiptist í þrjú svefnherb., austursvalir, rúmgóð
stofa með frábæru útsýni og útgang út á vestur-
svalir, eldhús með borðplássi og baðherb. með
flísum á gólfi og tengingu fyrir þvottavél. Bílskúr
er innbyggður í húsið, hann er 24 fm og er í hon-
um vatn, rafm. og gluggi. Áhv. 7,8 m. V. 11,9 m.
LAUFBREKKA - SÉRBÝLI - AUKAÍBÚÐ
192,20 fm sérbýli sem er hæð og ris ásamt
24,40 fm stúdíó-íbúð eða samtals 216,60 fm.
Húsið er klætt að utan með Steni-klæðningu.
Stærri íbúðin skiptist m.a. í stofu, borðstofu,
sjónvarpshol, 5 svefnherb. tvö baðherb. o.fl.
Minni íbúðin er stúdíó-íbúð og skiptist í and-
dyri, stofu/svefnherbergi, eldhúskrók og
flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, tengi fyrir
þvottavél og þurrkara. Eigninni fylgja tvö
hellulögð bílastæði með sjóbræðslu. Verð
21,9 m.
FÍFUSEL - BÍLGEYMSLA Í einkasölu 4ra her-
bergja 98,20 fm íbúð á 3. hæð ásamt 10,30 fm
íbúðarherbergi í kjallara sem er með aðgangi að
sameiginlegu baðherbergi með sturtuklefa, auk
7,50 fm geymslu í kjallara eða samtals 116,0 fm.
Íbúðinni fylgir stæði í lokuðu bílageymsluhúsi.
Íbúðin skiptist m.a. í stofu, borðstofu með útg. út
á rúmgóðar suðursv., rúmgott nýlegt eldhús, þrjú
svefherb., baðherb. o.fl. Þvherb. í íbúð. Húsið er
allt Steni-klætt að utan og sameign tekin í gegn
2000. Áhv. 6,8 m. húsbr. og 1,2 m. lífsj. Verð 12,7
m.
GRÝTUBAKKI Falleg 100 fm íbúð á 2. h. Íbúðin
skiptist í parketlagt hol, þrjú rúmgóð parketlögð
herb. með skápum, flísalagt baðherb. með teng-
ingu fyrir þvottavél, parketlögð stofa og borð-
stofa með skjólgóðum suðursvölum út af og eld-
hús með snyrtilegri innréttingu. Góð eign á vin-
sælum stað. Áhv. 6,6 m. V. 11,3 m.
GULLSMÁRI Falleg 86 fm íbúð á 3. h. (efstu)
ásamt um 7 fm geymslu eða samtals 93 fm eign.
Íbúðin skiptist í þrjú góð svefnherb. með skápum,
stofu með stórum suðursvölum út af, flísalagt
baðherbergi með tengingu fyrir þvottavél og
þurrkara, eldhús með góðri innréttingu og tækj-
um og búri inn af. Þetta er góð eign á vinsælum
stað. V. 12,9 m.
GAUTAVÍK - BÍLSKÚR Mjög falleg 4ra
herb. íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli. Sérinn-
gangur og gott aðgengi fyrir fatlaða. Íbúðin
skiptist í flísalagða forstofu, rúmgóða flísa-
lagða stofu með útgang út í sérgarð, 3 rúm-
góð svefnherb., eldhús með fallegri og rúm-
góðri innréttingu og góðum tækjum, flísalagt
baðherb. með glugga og þvottaherb. í íbúð.
Bílskúr er 32 fm og er í honum geymsla. Hús
byggt 1999. V. 18,9 m.
FANNAFOLD - SÉRINNGANGUR 4ra
herb. 113 fm íbúð á 2. hæð með sérinngangi
ásamt bílskúrsplötu í 2ja hæða fjölbýli. Íbúð-
in er stofa, borðstofa með útg. út á vestur-
svalir, þjrú rúmgóð svefnherb., eldhús, flísa-
lagt baðherb. o.fl. Þvherb. í íbúð. Verð 13,9
m.
EFSTIHJALLI 103 fm 4ra herb. endaíbúð á
sléttri jarðhæð með sérinngangi í litlu fjöl-
býli. Íbúðin skiptist m.a. í stofu, sjónvarpshol,
þrjú svefnherb., rúmgott eldhús, flísalagt bað
o.fl. Parket og flísar á gólfum. Hús nýviðgert
og málað að utan. Áhv. 6,7 m. húsbréf. Verð
11,9 m.
LAUFENGI Falleg 4ra herb. 111 fm íbúð á 2. h. í
litlu fjölbýli. Íbúðin skiptist í þrjú rúmgóð parket-
lögð herbergi, flísalagða forstofu með skápum,
parketlagða stofu með suð-vestursvölum út af,
eldhús með fallegri innréttingu og borðplássi og
baðherb. með baðkari og sturtuklefa. Geymsla og
þvottaherb. í íbúð. V. 13,9 m.
3ja herbergja
SKÚLAGATA Góð 3ja herb. 59 fm íbúð, lítið nið-
urgrafin. Íbúðin skiptist í flísalagt hol með skáp-
um, 2 parketlögð herb., rúmgóða parketlagða
stofu, nýlega uppgert eldhús með flísum á gólfi
og góða innréttingu og flísalagt baðherb. Sér-
geymsla og sam. þvotta- og þurrkherb. á hæð-
inni. V. 8,1 m.
EFSTASUND - SÉRINNGANGUR Mikið endur-
nýjuð 3ja herb. 91 fm íbúð á jarðhæð/kjallara, þ.e.
íbúðin er kjallari garðmegin en jarðhæð inn-
gangsmegin. Íbúðinni fylgir 18 fm íbúðarherbergi
í geymsluskúr sem er með snyrtingu en er notað
sem geymsla í dag. Íbúðin er m.a. stofa, borð-
stofa, nýtt eldhús, nýtt flísalagt baðherb. tvö
svefnherb. o.fl. Þvottaaðstaða í íbúð. Parket og
flísar á gólfum. Búið er að endurnýja allar lagnir,
þ.e. skólplagnir, frárennslislagnir, raflagnir og
rafmagnstöflu. Gler og gluggafög eru endurnýjuð.
Hús nýviðgert og málað að utan. Íbúðinni fylgir
sérbílastæði á lóð. Áhv. 7,0 m. Verð 13,3 m.
STELKSHÓLAR Góð 101 fm 3-4ra herb.
endaíbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli. Íbúðin
skiptist í rúmgott parketlagt hol, stórt eldhús
með borðplássi, búr/geymslu, tvö svefnherb.
með skápum, rúmgóða parketlagða stofu,
borðstofu sem má breyta í þriðja herbergið
og flísalagt baðherb. með baðkari og glugga.
Hús sprunguviðgert og málað 2002. Áhv. 9,5
m. V. 11,8 m.
ARNARSMÁRI - KÓP 3ja herb. 78 fm íbúð
á 3. hæð (efsta hæð) í nýlegu fjölbýlishúsi á
þessum vinsæla stað í Kópavogi. Íbúðin er
m.a. stofa með suðursvölum, eldhús, tvö
svefnherb., flísalagt baðherb. o.fl. Þvotta-
herb. í íbúð. Áhv. 5,3 m. húsbréf og 1,5 m.
viðbótarlán. Verð 11,6 m.
KRUMMAHÓLAR - LYFTUHÚS 4ra herb.
113 fm endaíbúð á 2. hæð í lyftuhúsi. Húsið
er allt klætt að utan. Íbúðin er stofa, borð-
stofa, 3 svefnherb., eldhús, baðherb. o.fl. Yf-
irbyggðar suðursvalir. Sameiginlegt þvotta-
herb. á sömu hæð. Áhv. 4,3 m. byggsj. og
húsbréf. Verð 11,5 m.
575 8500
Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasali
Brynjar Baldursson
sölumaður
sími 698 6919.
Erla Waage
ritari
sölumaður.
Jón Ellert Lárusson
viðskiptafræðingur
sölumaður
lögg. fasteignasali.
Sverrir Kristjánsson
lögg. fasteignasali
sölumaður
sími 896 4489.
Þór Þorgeirsson
lögg. fasteignasali
sölumaður
sími 866 2020.
Brynjar Fransson
sölumaður
samn./skjalagerð
sími 575 8503.
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18
OG LAUGARDAGA FRÁ KL. 13-15
SAMTENGD SÖLUSKRÁ FJÖGURRA FASTEIGNASALA - EIN SKRÁNING - MINNI KOSTNAÐUR - MARGFALDUR ÁRANGUR