Morgunblaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 28
DAGBÓK 28 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Smolensk, Bremer Uranus og Vigri koma í dag. Selfoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Selfoss og Arklow Dust koma til Straumsvíkur í dag. Fernanda, Orlik og Enniberg koma í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Vinnu- stofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10, vinustofa kl. 13, söngstund á morgun kl. 14. Árskógar 4. Kl. 9–12 opin handavinnustofa, kl. 11 boccia, kl. 13– 16.30 opin smíðastofa/ útskurður, opin handa- vinnustofa, kl. 13.30 fé- lagsvist, kl. 16 mynd- list. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–16 handavinna, kl. 9– 17 fótaaðgerð, kl. 10– 11.30 samverustund. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fótaaðgerð frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin kl. 16.30–18, s. 554 1226. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð og mynd- list, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarfið Dal- braut 18–20. Kl. 10, leikfimi, kl. 13 brids. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 9–16 opin handavinnustofa, kl. 9– 12 myndlist, kl. 13–16 körfugerð, kl. 11–11.30 leikfimi, kl. 13–16 spil- að, kl. 10–13 verslunin opin. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Bað kl. 9– 12, handavinna kl. 9– 16.30, félagsvist kl. 14, kl. 9–14 hárgreiðsla. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Starf- semin fellur niður í dag vegna handa- vinnusýningar sem stendur yfir. Önnur starfsemi fellur niður. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13.15 dans. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, kl. 9.30 gler- og postulínsmálun. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9–17, heitt á könnunni, Fé- lagsvist kl. 20.30. Hraunbær 105. Kl. 9 perlusaumur og fóta- aðgerð, kl. 10 bæna- stund, kl. 13.30 sögu- stund og spjall, kl. 13 postlínsmálun og hár- greiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 föndur, kl. 9 og 10 jóga, kl. 13 spilað. Fótaaðgerðir. Norðurbrún 1. Kl. 10– 11 ganga, kl. 9–15 fóta- aðgerð, kl. 9–12 mynd- list, kl. 13–16.45 opin handavinnustofa. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 postulínsmálun, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.30–10.30 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl. 12.15–13.15 dans- kennsla, kl. 13–16 kór- æfing. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband, búta- saumur og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerð og boccia, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla og spilað, kl. 15.30 jóga. Gullsmárabrids. Brids í Gullsmára. Skráning kl. 12.45, spil hefst kl. 13. Minningarkort KFUM og KFUK og Sambands íslenskra kristniboða. Minning- arkort félaganna eru afgreidd á skrifstof- unni, Holtavegi 28, í s. 588 8899 milli kl. 10 og 17 alla virka daga. Gíró- og kred- itkortaþjónusta. Minningarkort Graf- arvogskirkju. Minningarkort Graf- arvogskirkju eru til sölu í kirkjunni í síma 587 9070 eða 587 9080. Einnig er hægt að nálgast kortin í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, Reykjavík. Líknarsjóður Dóm- kirkjunnar, minning- arspjöld seld hjá kirkjuverði. Minningarkort Kven- félags Neskirkju fást hjá kirkjuverði Nes- kirkju, í Úlfarsfelli, Hagamel 67 og í Kirkjuhúsinu v/ Kirkjutorg. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn s. 555 0104 og hjá Ernu s. 565 0152 (gíróþjónusta). Minningarkort ABC- hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC-hjálparstarfs í Sóltúni 3, Reykjavík, í síma 561 6117. Minn- ingargjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslukorti. Allur ágóði fer til hjálpar nauðstöddum börnum. Í dag er mánudagur 26. maí, 146. dagur ársins 2003. Gangdagur. Orð dagsins: En sæl eru augu yðar, að þau sjá, og eyru yðar, að þau heyra. (Matt. 13, 16.)     Vefþjóðviljinn segir:„Forystumenn laun- þegasamtakanna hafa einhverja allt aðra hags- muni í huga en hagsmuni launamanna. Efist ein- hver um þessa fullyrð- ingu þarf hann ekki ann- að en hlusta á viðbrögð þeirra við áformum rík- isstjórnarinnar um skattalækkanir, en fram- kvæmdastjóri Alþýðu- sambands Íslands og for- maður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hafa deilt hart á rík- isstjórnina fyrir að voga sér að ætla að lækka skatta á almenning í landinu. Báðir fara geyst í málflutningi sínum, tala um „slys“ og láta eins og um sé að ræða einhverja mestu atlögu að launa- fólki sem um getur. Hvert er svo „slysið“ sem ríkisstjórnin boðar? Jú, hún ætlar að leyfa sér að lækka tekjuskatt, virð- isaukaskatt og erfða- fjárskatt. Og ósvífnin er slík að hún ætlar að fella niður eignarskatt. Ja, hún er ekki lítil, ógæfan sem launamenn í landinu standa frammi fyrir.     En hvernig skyldi nústanda á því að tals- menn launamanna láta út úr sér orð eins og „slys“ þegar verið er að lækka álögur á launamenn, bæði beinar álögur og óbeinar? Getur verið að ástæðan sé sú að talsmenn launa- manna, verkalýðsrekend- urnir, þurfi ekkert að líta til hagsmuna launamanna og geti farið sínu fram án tillits til skoðana umbjóð- enda sinna? Það skyldi þó ekki vera? Alkunna er að verkalýðshreyfingin er þannig upp byggð að al- mennir launamenn hafa lítið um það að segja hverjir veljast í forystu fyrir þá. Lýðræði er með öðrum orðum afskaplega lítið virkt í verkalýðs- hreyfingunni og þar stjórna frekar klíkur en félagsmenn. Þetta er önn- ur ástæðan fyrir því að verkalýðsrekendur kom- ast upp með að tala gegn skattalækkunum á al- menning.     Hin ástæðan fyrir þvíað verkalýðsrek- endur hugsa ekki um hagsmuni félagsmanna sinna er að félagsmenn- irnir geta ekki hætt þátt- töku í félaginu. Launa- menn eru neyddir til að greiða til verkalýðsfélaga hvort sem þeir telja að þau gæti hagsmuna þeirra eða ekki. Raunar er það svo að fyrir launa- menn er greiðslan til verkalýðsfélagsins ekk- ert annað en verkalýðs- félagsskattur. Þeir greiða til félagsins hvort sem þeim líkar betur eða verr og hvort sem þeir telja félagið eða forystu þess standa sig vel eða illa. Verkalýðsrekendur eru sér vel meðvitandi um þetta og vita vel að þeir taka enga áhættu með því að misnota stöðu sína til að berjast fyrir pólitískri sannfæringu sinni í stað þess að vinna að hagsmunum félags- manna.“ STAKSTEINAR Er „slys“ að lækka álögur? Víkverji skrifar... VÍKVERJI lét nýlega hátt í tutt-ugu ára gamlan draum rætast þegar hann brá sér til Englands og sá þar tónleika með snillingnum Pet- er Gabriel. Er óhætt að segja að sú ferð hafi ekki valdið vonbrigðum. Gabriel er kominn á sextugsald- urinn og langt er síðan lög hans tylltu sér áreynslulaust í efstu sæti vin- sældalistanna. Hann hefur þó haldið sínu striki og framleiðir jafnan magn- aða tónlist sem ber þess gjarnan merki, að listamaðurinn hefur orðið fyrir áhrifum frá tónlistarhefðum framandi þjóða. Gabriel gaf síðast frá sér plötu í fyrra og var efni hennar megin- uppistaða tónleikanna sem Víkverji sá í Manchester-borg í Englandi. Hann blandaði þó saman nýju og gömlu efni þannig að úr varð hinn besti kokkteill og auðvitað vakti það sérstaka ánægju viðstaddra er Gabr- iel tók sígilda smelli eins og lögin Solsbury Hill og Sledgehammer. x x x JAFNVEL þeir sem ekki þekkjatónlist Gabriels skemmtu sér vel á tónleikunum í Manchester enda nóg um að vera á sviðinu meðan á þeim stóð og flutningur laga auk þess framúrskarandi. Meðan á flutningi Solsbury Hill stóð hjólaði Gabriel hring eftir hring á sviðinu (líklega til að undirstrika frelsisþema lagsins), hann kom sér fyrir inni í risavaxinni plastkúlu og skrönglaðist um sviðið í laginu Growing Up (líkt og hamstur í stigmyllu eða kannski rímaði efni lagsins við mann sem enn hagar sér eins og barn í móðurkviði, en þyrfti að fara að þrosk- ast) og í Downside Up lét Gabriel (og dóttir hans Melanie, sem söng bak- raddir) hengja sig á hvolfi í loftið, til að geta gengið eft- ir sérútbúinni göngubraut – á hvolfi! x x x KANNSKI hljómar þettaallt sem einhver fífla- skapur en viðstaddir voru sammála (dómar í The Tim- es, The Guardian og á heimasíðu BBC gefa slíkt alla vega til kynna) um að þetta „show“ hefði verið frá- bærlega vel heppnað. Víkverji fær stundum yfir sig háðsglósur frá poppskríbentum Morgunblaðsins fyrir að leggja sig ekki meira eftir því „nýjasta“ og „ferskasta“ í tónlistinni, finnst þeim víst púkó að menn haldi tryggð við þá, sem eru eldri en tvæ- vetur í tónlistinni. Slíkt bítur auðvit- að ekkert á Víkverja sem sér ekki eftir aurunum sem fóru í það að láta gamlan draum rætast. Peter Gabriel hefur verið lengi að. Kannast þú við fólkið? FÓLKIÐ á þessum mynd- um er líklega ættað úr Dalasýslu, e.t.v. er það af Ormsætt. Myndirnar eru frá ljósmyndastofu Ól. Oddsson, Reykjavík og H. Einarsson, Akureyri. Þeir sem kunna að þekkja fólkið eru beðnir um að hafa sam- band við Björgu Gunnars- dóttur í síma 557 4302 eða 866 6101 Forvörn sem dugar Í ORÐI Guðs, Biblíunni, Sálmi 119:9 standa þessi orð: „Með hverju getur ungur maður (kona) haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.“ Nú spyr kannski ein- hver, er það virkilega þann- ig að þetta sé svona einfalt? Já, vissulega, og það er vegna þess að máttugur og góður Guð stendur á bak við þessi orð, eins og öll önnur orð í Biblíunni. „Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýg- ur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugs- anir og hugrenningar hjartans. Enginn skapaður hlutur er honum hulinn, allt er bert og öndvert augum hans. Honum eigum vér reikningsskil að gjöra.“ Hebreabréfið 4:12-13. Í Sálmi 119:98-104 stend- ur: „Boð þín hafa gjört mig vitrari en óvinir mínir eru, því að ég íhuga reglur þín- ar. Ég er skynsamari en öldungar því að ég held fyr- irmæli þín. Ég held fæti mínum frá hverjum vond- um vegi til þess að gæta orðs þíns. Frá ákvæðum þínum hefi ég eigi vikið, því að þú hefur frætt mig. Hversu sæt eru fyrirheit þín gómi mínum, hunangi betri munni mínum. Af fyr- irmælum þínu er ég skyn- samur orðinn, fyrir því hata ég sérhvern lygaveg.“ Guði séu þakkir fyrir miskunn sína og mátt, að hann vill hjálpa sérhverjum sem leitar hans af öllu hjarta. „Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.“ Sálmur 37:5. Kveðjur og blessunar- óskir. Sóley Jónsdóttir. Íhaldssteinar GAMAN að sjá stefnu- breytingu Morgunblaðsins í efnisliðnum Staksteinum. Aldeilis er búið að hressa upp á dálkinn, og gefa hon- um ferskari blæ. Minnir mann á gömlu góðu tímana, þegar Morgunblaðið var undir stjórn Sjálfstæðis- flokksins og var málgagn hans. Nú er ekki lengur verið að lepja upp malbik vinstri manna, heldur haft það sem betur hljómar í eyrum íhaldsmanna. Einar Einarsson. Tapað/fundið Rúskinnsjakki týndist SVARTUR rúskinnsjakki með glansandi slönguáferð hefur glatast. Þeir sem geta gefið upplýsingar um það hvar jakkinn er niður- kominn eru beðnir um að hafa samband í síma 895 5357. Dýrahald Barngóðir kettlingar FALLEGIR og einstak- lega gæfir kettlingar fást gefins. Þeir eru kassavanir og eru vanir börnum. Upp- lýsingar í síma 565 3422 eða 660 6509. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 stafla, 4 skjóta af byssu, 7 stundar, 8 bárur, 9 krot, 11 forar, 13 ein- þykkur, 14 djöfulgangur, 15 sleipur, 17 blíð, 20 eitthvað þungt, 22 starf- ið, 23 tréð, 24 ákveð, 25 bola. LÓÐRÉTT 1 nefnast, 2 ávinningur, 3 deila, 4 líf, 5 lýkur, 6 hin- ar, 10 þor, 12 hnöttur, 13 skilveggur, 15 hviða, 16 léleg spil, 18 ísstykki, 19 hitta, 20 lögun, 21 framkvæmt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 mjúkmálar, 8 gegna, 9 Andri, 10 kös, 11 torga, 13 asnan, 15 skúrs, 18 urtur, 21 var, 22 leifi, 23 gígja, 24 glundroði. Lóðrétt: 2 júgur, 3 kraka, 4 álasa, 5 aldin, 6 ágæt, 7 vinn, 12 ger, 14 sér, 15 soll, 16 úrill, 17 svinn, 18 urgur, 19 togið, 20 róar. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.