Morgunblaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 20
MINNINGAR
20 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ RóshildurSveinsdóttir
fæddist að Ásum í
Skaftártungu 21.
febrúar 1911. Hún
lést í Landspítala –
háskólasjúkrahúsi
Fossvogi 16. maí
2003. Foreldrar
hennar voru Sveinn
Sveinsson bóndi, f. 5.
desember 1875 að
Hörgslandi á Síðu, d.
14. janúar 1965, og
Jóhanna Sigurðar-
dóttir, f. 21. október
1879 á Breiðabólstað
á Síðu, d. 2. júní 1968. Framan af
bjuggu þau að Ásum í Skaftár-
tungu, en fluttust að Norður-
Fossi í Mýrdal 1923. Börn þeirra
urðu 15 og 12 þeirra komust á
legg. Eftirlifandi eru þau Ingunn
og Gísli, en látin eru Sigursveinn,
Gyðríður, Guðríður, Runólfur,
Sveinn, Páll, Kjartan, Guðmundur
og Sigríður.
Róshildur giftist Benedikt Guð-
jónssyni kennara, f. 3. mars 1909
að Auðsholti í Biskupstungum, d.
2. apríl 1982 í Reykjavík. Foreldr-
ar hans voru Guðjón Jónsson
bóndi frá Syðra-Seli, f. 10. apríl
1875, d. 31. jan. 1955, og kona
hans Kristjana Jónsdóttir frá
Stokkseyri, f. 1. maí 1872, d. 15.
sept. 1922. Benedikt og Róshildur
hófu sinn búskap að Reyni í Mýr-
dal, en Benedikt var eini barna-
kennarinn í báðum skólum sveit-
arinnar í út-Mýrdal og Reynis-
hverfi í tæp 10 ár. Róshildur
aðstoðaði hann við kennslu. Þau
fluttu til Reykjavík-
ur 1944 og bjuggu
lengst af á Hofteigi
44. Benedikt var
kennari við Mela-
skólann þar til hann
lauk störfum vegna
aldurs.
Börn þeirra eru:
1) Sveinbjörn, f. 1.
janúar 1933, d. 2.
febrúar 1997,
kvæntur Auði Jóns-
dóttur; dóttir þeirra
er Hlín, gift Hávari
Sigurjónssyni, börn
þeirra eru Hrólfur
Þeyr, Auður og Sveinbjörn. 2)
Brynja Kristjana, f. 20. febrúar
1938, gift Erlingi Gíslasyni, sonur
þeirra er Benedikt, í sambúð með
Charlotte Böving, dóttir þeirra er
Anna Róshildur. 3) Jóhanna
Gréta, f. 17. apríl 1941, gift Erni
H. Bjarnasyni, þau skildu; dóttir
þeirra er Ásta Júlía, í sambúð með
Grétari Skúlasyni; börn þeirra
eru Jóhanna Margrét og Rúnar
Örn. 4) Ingunn Ósk, f. 15. janúar
1944, gift Högna Óskarssyni; börn
þeirra eru a) Guðrún, gift Kristni
Tryggva Gunnarssyni; börn
þeirra eru Kristjana Ósk og Ing-
unn Anna. b) Þorbergur.
Þegar börn Benedikts og Rós-
hildar voru vaxin úr grasi lagði
hún stund á yogafræði og shiatsu
nudd. Var hún einn af stofnendum
Yogastöðvarinnar Heilsubót og
kenndi yoga um árabil.
Útför Róshildar verður gerð
frá Fosvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Við Róshildur kvöddumst nokkr-
um dögum fyrir andlát hennar. Það
var friður yfir henni, stutt í bros og
hlátur, þó hún væri tekin að þreyt-
ast af langri lífsgöngu. Fyrsta fund
okkar áttum við fyrir um 40 árum;
við eldhúsborð, ýsusporð og kart-
öflur. Ingunn, yngsta dóttir Rós-
hildar og Benedikts, var tilefni
heimsóknar minnar. Sama brosið,
stutt í hlátur. Sólarstrokur og Nam-
asta-kveðja að hætti yogaiðkenda
komu seinna. Og svona hefur þetta
verið árin á milli þessara funda, með
ýmsum tilbrigðum að sjálfsögðu.
Róshildur var þeirrar kynslóðar,
sem á einni mannsævi upplifði þús-
und ára þróun. Fædd í torfbæ, alin
upp við þröngan kost og forna bú-
skaparhætti, ein af 12 systkinum,
sem komust á legg. Öll smituð af
ferðalöngun Sveins föður þeirra,
sem var ferðamönnum traustur
fylgdarmaður yfir stórfljót og Mýr-
dalssanda. Fróðleiksfús voru systk-
inin með afbrigðum.
Þessir eiginleikar komu fram með
meiri þunga þegar samferðamenn
Róshildar og Benedikts fóru að
hægja á sér. Róshildur tók bílpróf
og ein af hennar fyrstu ökuferðum
lá hringinn í kringum Ísland. Hún
fylltist óþreyju og ferðahug á vorin;
ferðirnar urðu margar, enda skaft-
fellskir vatnamenn og ferðagarpar
langt fram í ættir. Lét hún sér ekki
nægja að kynnast Íslandi; heims-
álfur þrjár lagði hún undir fót og
hús átti hún á Spáni í tæp 20 ár.
Ung giftist Róshildur Benedikt
Guðjónssyni kennara. Leiddu þær
samvistir til skondinnar blöndu
fornrar bændamenningar og
bóhemsks lífsstíls; húsbóndinn gat
setið ótruflaður yfir skákþraut, með
óviðgerðan karbúrator innan seil-
ingar, meðan Róshildur spilaði á
munnhörpu og söng með eldri börn-
unum meðan sú yngsta æfði ball-
ettspor úti í horni. Börnin voru fjög-
ur og hafa sem og barnabörnin
haslað sér völl á hinum ýmsu svið-
um þjóðlífsins; öll elsk að móður og
ömmu.
Benedikt lést um aldur fram
1982. Sorg Róshildar vék smám
saman fyrir athafnaþrá, bæði innan-
lands og utan; lét ekki staðar numið
fyrr en í Kína og á Filippseyjum,
með vetursetum á Spáni. Hún eign-
aðist seinna náin vin í Páli Briem.
Var það heilt ævintýri að fylgjast
með þeim í hestastússi og við neta-
veiðar, bæði komin fast að níræðu.
Eftir andlát hans 1990 var sem
þróttur Róshildar tæki að þverra,
en stoltinu skaftfellska hélt hún þó
til síðasta dags.
Ekki verður punktur settur við
þessa samþjöppuðu lýsingu á lífs-
hlaupi Róshildar án þess að minnst
verði á þann þátt í lífi hennar, sem
flestir þekktu hana af. Fyrir um 35
árum hóf hún að leggja stund á
yoga og shiatsu nudd. Var hún einn
af stofnendum Yogastöðvarinnar
Heilsubót og kenndi yoga um árabil,
um leið og hún innprentaði læri-
sveinum og -meyjum, og reyndar
öllum sem komust í kallfæri við
hana, austurlenskan lífsstíl og
speki. Beitti hún kunnáttu sinni til
að rétta úr bognum bökum, mýkja
hnýtta vöðva og sefa órólegan hug.
Einu af lífsins ævintýrum er lok-
ið. Það lifir áfram í minningunni.
Þökk fyrir samfylgdina.
Högni Óskarsson.
Elskuleg amma mín, Róshildur,
er lögð af stað í sitt síðasta ferðalag.
Hún var mér mikil fyrirmynd í líf-
inu. Hún kenndi mér margt en fyrst
og fremst kenndi hún mér hve mik-
ilvægt er að njóta lífsins meðan
hægt er. Ferðast og fara í útilegur,
klæða sig skemmtilega og að hafa
alltaf eitthvað til að hlakka til.
Hún amma mín var svo sannar-
lega á undan sinni samtíð með
margt.
Fyrst og fremst þó að fylgja sinni
sannfæringu. Skilaboðin voru þau
að það er allt í lagi að vera maður
sjálfur, hafa skoðanir á hlutunum og
skammast sín bara ekkert fyrir það.
Unga kynslóðin í dag ætti að læra af
henni og njóta þess að vera til.
Ótal minningar um ömmu koma
upp í hugann þegar kveðjustundin
rennur upp.
Jólaboðin þegar ég var lítil stelpa
og amma spilaði jólalögin á munn-
hörpuna sína og allir dönsuðu
syngjandi í kringum jólatréð eru
yndislegar bernskuminningar.
Í mínum huga er ekki slæm til-
hugsun að eldast með ömmu mína
Róshildi sem fyrirmynd í lífinu. Á
sextugsaldri fór hún að stunda jóga
og yngdist á sál og líkama og öðl-
aðist nýtt sjálfstæði. Frelsi til ferða-
laga óháð öðrum öðlaðist hún á sjö-
tugsaldri með því að taka bílpróf.
Þegar hún varð ekkja á áttræð-
isaldri lét hún aldeilis ekki deigan
síga heldur keypti sér hús á Spáni
sem hún dvaldi í á hverju ári upp frá
því. Á níræðisaldri endurnýjaði hún
kynni sín af hestamennskunni og
stundaði hana daglega um nokkurra
ára skeið með vini sínum Páli
Briem.
Við amma áttum gott samtal rétt
áður en hún dó. Við ræddum trú-
mál. Við vorum sannfærðar um að
góður Guð myndi taka við okkur
þegar jarðneska lífinu lyki. Þó að
söknuður og minningar sæki á hug-
ann, veit ég að það er ekki slæmt að
líta til baka á ævikvöldinu og sjá að
góðu og skemmtilegu dagsverki er
lokið.
Guð geymi þig, amma mín.
Hlín Sveinbjörnsdóttir.
Mér fannst amma mín Róshildur
Sveinsdóttir ekki alltaf vera venju-
leg.
Hún breytti lífi sínu um sextugt
frá því að vera reykjandi heima-
vinnandi húsmóðir í það að verða
jóga-kennari, heilsupostuli og
heimshornaflakkari. Stundum var
ekki hægt að komast inn til hennar
vegna þess að hún stóð á haus upp
við útidyrahurðina og maður þurfti
að bíða meðan hún lét blóðið jafna
sig áður en hún gat staðið upp og
opnað.
Hún var fædd 19 11 að Ásum í
Skaftártungu ein af 12 systkinum
sem komust á legg og urðu nær öll
fjörgömul og heilsuhraust. Þó var
ekkert af þeim á móðurbrjósti.
Móðurmjólkin var of dýr lúxus í
þeirri sveit. Börnin 12 voru því fljótt
vanin á kúamjólk svo hægt væri að
koma móðurinni að verki.
Nokkrar gamlar konur á heim-
ilinu sinntu svo hver um sitt korna-
barn til fjögurra ára aldurs. Barna-
þrælkun og basl einkenndu uppvöxt
ömmu og hef ég fáar manneskjur
heyrt tala jafn illa um sveitina og
sveitalífið í gamla daga.
Amma var næstum því búin að
ræna mér úr vinnumennsku einu
sinni þegar ég var 13 ára. Ég var
eitthvað aumur og slæptur þennan
dag þegar hún kom í stutta heim-
sókn í miðjum heyskap og hún brást
svo hart við að ég þurfti að grát-
biðja hana að fara nú bara og skilja
mig eftir. Skömmu fyrir andlát sitt
sagði hún mér samt að hún harmaði
það mest varðandi mig að hafa ekki
rænt mér úr sveitinni þarna um ár-
ið.
Hún kvað oft fast að orði og oft
voru predikanir hennar ansi magn-
aðar, sérstaklega þegar kom að allri
óhollustu. Það var ekki samvisku-
laust sem maður lét salt eða sykur
inn fyrir sínar varir í hennar návist.
Þegar amma varð jógi ákvað hún
líka að læra á bíl. Afi Benedikt
kenndi henni og æfði hana fyrir
prófið. Amma var nefnilega sígauni
í fyrra lífi og ferðagleðin og útþráin
henni í blóð borin.
Ég ferðaðist mikið með þeim um
landið sem barn á bílnum hennar,
„Gulu hættunni“ og alltaf var það
amma sem sat undir stýri. Þá var
farið um Suðurland og afi sagði
„beygja“ í miðjum beygjum og
amma fussaði og sveiaði og svo var
tjaldað í Leyni-hvamminum nálægt
Ásum eða bara skotist austur á Sel-
foss í Þóristún og ég fékk pulsu með
öllu í hverri einustu sjoppu á leið-
inni.
Eftir afa dag héldu henni engin
bönd og þá voru það Filippseyjar og
Taíland og Kína og svo að lokum
Spánn en þar keypti hún sér sum-
arhús, þá 75 ára gömul, og vingaðist
við sígaunana og glæpadrottning-
arnar á svæðinu.
Amma var „híler“ eins og það er
kallað. Hún nuddaði fólk eða réttara
sagt gekk á því og smurði svo með
„Geirlaugarolíu“ sem að stofni til er
mest steinolía með úthrærðum
eggjarauðum. Amma trúði á lækn-
ingarmátt steinolíunnar bæði út-
vortist og innvortis. Ég held að eng-
um hafi orðið meint af yfir-
halningum hennar. Fólk var oft að
koma með kökur eða smjörstykki
eða frosna kjúklinga til að launa
henni fyrir heilsubótina því ekki
vildi hún peninga fyrir yfirhaln-
inguna. Þessi smjörstykki eða
frosnu kjúklingar birtust svo stund-
um á tröppunum heima hjá okkur.
Þannig gaukaði hún yfirleitt ein-
hverju góðu til sinna og svo fékk
maður sólarstroku í kaupbæti.
Amma mín Róshildur og Sigga syst-
ir hennar gáfu manni alltaf sólar-
stroku.
Það er þétt faðmlag á sama tíma
og bakið er strokið sólarganginn
þétt og innilega. Þetta var verkleg
hreinsun sálarinnar, svo kyssti mað-
ur ömmu alltaf þrisvar, fyrst tveir
kossar á sitthvora kinn og svo einn í
viðbót „til að loka“.
Eftir að amma hafði setið í ekkju-
dómi í nokkur ár var dinglað á bjöll-
unni hjá henni. Úti fyrir stóð virðu-
legur herra með blóm í hendi og
spurði hvort hún vildi koma í bíltúr.
Þetta var Páll heitinn Briem og
hann varð kærastinn hennar ömmu
og fyrirmynd mín og lærimeistari í
hestamennskunni. Amma gekk í
endurnýjun lífdaga við það að hitta
hann og það gekk svo mikið á að
manni óaði við. Fyrir utan allar
ferðirnar austur í Traðarholt að
leggja net og girða þá var hver laus
stund nýtt til útreiða. Enda var Páll
með 20 hesta á járnum. Snjóavet-
urinn mikla 2000–2001 riðu þau út á
hverjum einasta degi í kuldagöllun-
um sínum, bæði komin fast að ní-
ræðu.
Amma var bæði hugrökk og
ákveðin svo stundum stappaði nærri
þrjósku. Hún þurfti líka að hafa full
not af þessum eiginleikum sínum í
harðri lífsbaráttu. Enda mættust í
henni tveir heimar: Stolt en frum-
stæð íslensk sveitamenning og aust-
ræn heilsu-dulspeki. Það þarf skap-
festu til að koma þessu öllu heim og
saman og það hafði hún. Ég veit að
þegar við sem eftir stöndum mæt-
um henni á ný þá bíður okkur sólar-
stroka og þrír kossar á kinn og svo
verður maður líklega að sætta sig
við Geirlaugarolíu og ofaná-labb.
Benedikt Erlingsson.
Amma mín Róshildur er látin, 92
ára að aldri. Annars var aldur af-
stætt hugtak í hennar heimi og í
stað þess að óska til hamingju með
afmæli þá óskaði hún fólki gleðilegs
nýs árs! Hver áfangi var upphaf
nýrrar upplifunar í hennar huga.
Hún snerti líf fjölmargra með
sterkri nærveru sinni, lífsgleði og
innri sem ytri fegurð. Hún bjó yfir
líknarkrafti sem hún deildi með
stórum sem smáum í gegnum jóga-
kennslu, shiatsu nudd, og með vel
völdum hvatningarorðum, skilningi
og hlýju.
Amma lifði tímanna tvenna og
gætti þess að við lærðum að meta
það mikilvægasta í hverju augna-
bliki. Hún naut þess að segja okkur
barnabörnunum frá uppeldisárun-
um sínum góðu að Ásum, sagði okk-
ur með stolti frá byggingarbrölti á
eftirstríðsárunum og deildi með
okkur framandi sögum af lifnaðar-
háttum íslenskra frumbyggja úr
húsinu sínu í Las Mimosas á Spáni.
Hún var ólík öllum ömmum – í
stað þess að lauma til okkar súkku-
laðimola gaf hún okkur sælgæti á
borð við möndlur, rúsínur og grænt
te. Í stað þess að prjóna á okkur
hosur kenndi hún okkur að standa á
haus og gera sólaræfinguna. Í stað
þess að lesa fyrir okkur bækur
sagði hún okkur af ævintýrum
þeirra afa á mótorhjóli í Mýrdalnum
á fjórða áratugnum og uppeldisár-
um með ellefu systkinum sínum í
Skaftafellssýslu. Þegar flestar jafn-
öldrur hennar voru að hægja á sér
og njóta efri áranna heima fyrir,
ákvað amma að taka bílpróf á sjö-
tugsaldri, keypti sér sjálf nýjan bíl
og brunaði um borg og bý á „gulu
hættunni“ – hvert sem hjartað bar
hana. Hún hafði skoðanir á mörgum
hlutum og hikaði ekki við að deila
þeim með hverjum sem var. Hlátur
hennar bergmálar enn á Hofteign-
um og lyktin af „Geirlaugarnudd-
olíunni“, sem hún blandaði sjálf eft-
ir uppskrift formæðra sinna, mun
ávallt tengjast minningu hennar.
Þrátt fyrir sérstöðu sína vissi hún
alltaf hvað skipti mestu máli í lífinu
– t.d. var skál af óviðjafnanlegum
grjónagrauti allra meina bót, ekkert
bauð mann jafn velkominn heim eft-
ir langa veru erlendis eins og ís-
lenskur lambahryggur matreiddur
að hennar hætti, og góð „sólar-
stroka“ milli herðablaðanna er
besta ráðið við orkuleysi.
Amma var mörgum sterk fyrir-
mynd. Hún kenndi okkur að ekkert
verkefni væri of flókið hvort sem
það voru útreiðarferðir á tíræðis-
aldri eða erfitt nám erlendis. Hún
kenndi okkur að engar ákvarðanir
eru teknar fyrir mann – það eru for-
réttindi að hafa skoðanir, fylgja
þeim eftir og bera ábyrgð á afleið-
ingunum. Hún sýndi okkur að það
er í lagi að fylgja hjartanu – allt er
mögulegt ef maður bara á sér
draum. Hún kenndi okkur að það er
ekki álit annarra sem skiptir höf-
uðmáli, það er skoðun þín sem veg-
ur ávallt þyngst. Hún kenndi okkur
að hika ekki. Hún kenndi okkur að
njóta lífsins, náttúrunnar og fegurð-
arinnar og með hrósi sínu og hvatn-
ingu gerði hún okkur stolt og örugg.
Með smitandi hlátri sínum minnti
okkur á gildi gleðinnar, með reynslu
sinni kenndi okkur þrautseigju og
með tilvist sinni gaf hún okkur
framtíð.
Gleðilega nýja tilveru, elsku
amma Róshildur. Namasta.
Guðrún Högnadóttir.
Lífið er þannig að stundum kynn-
ist maður fólki, sem fær mann til að
doka við. Sumir einstaklingar eru
nefnilega þannig úr garði gerðir, að
þeir skapa sér fastan sess í tilveru
manns. Amma Róshildur var þann-
ig, það varð mér ljóst barnungum.
Amma var um margt merkileg
kona. Það er löng leið frá Ásum í
Skaftártungu til Reykjavíkur. Það
var ekki á færi allra að skapa sér
sess í síbreytilegu samfélagi, sem
Ísland var á síðustu öld. Amma
Rósa sá til þess, að börnin hennar
og afa Benedikts yrðu að skapandi
og gefandi einstaklingum. Hún sá til
þess að hún gæti, komin á sjötugs-
aldur þegar hún tók bílpróf, flakkað
hjálparlaust um sveitir og óbyggðir
landsins á „Gulu hættunni“; hún
framkallaði innri sálarró hjá vinum
og vandamönnum með svæðanuddi
og sálgæslu fram yfir nírætt. Og
sýndi það á síðustu árum sínum að
hún væri ekki eftirbátur þeirra
yngri í fjölskyldunni þegar kom að
hestamennsku og útreiðartúrum.
Mikilvægast er, að amma Rósa sá
til þess, að snáðinn litli frá Banda-
ríkjunum kynntist Íslandi og Ís-
lendingum í sinni hreinustu mynd;
að strákhvolpurinn tæki upp ís-
lenska siði, svo hann yrði einhvern
tímann að manni. Að hann gæti
mætt ögrunum lífsins af jafnaðar-
geði og æðruleysi. Í hnotskurn lýsir
eftirfarandi atburður þessu. Við
vorum í Húsafelli á áttunda ára-
tugnum, stórfjölskyldan öll mætt.
Ég ákvað eitt kvöldið að viðra kett-
linginn hans Benna frænda. Kett-
lingurinn hætti fljótlega að vilja láta
viðra sig og varð eitthvað druslu-
legur. Ég dró hann inn og spurði
hvað væri eiginlega að honum?
Amma Róshildur var ekki lengi að
koma kettinum til aðstoðar, og los-
aði snærisspottann sem ég hafði
bundið um hálsinn á honum. Kett-
lingurinn hljóp í fangið á Benna
frænda og vildi lítið af mér vita eftir
þessa lífshættu sína. Og mér, fimm
ára snáðanum, brá og bjóst við
skömmum. „Svona nú, Þorbergur
minn, hættu nú að gráta,“ sagði
amma, „hann jafnar sig. Þú bindur
kannske bandið ekki svona fast um
kettlinginn ef þú viðrar hann aftur á
morgun.“ Þakka þér fyrir jákvæða
leiðsögn.
Namasta.
Þorbergur.
Amma Róshildur.
Nú ert þú farin til Guðs og þar á
þér eftir að líða vel.
Það sem ég á eftir lifað verður án
þín. Aðeins smáhluti af æskunni var
með þér. Níu ár. En hitt verður án
þín. Mér brá svo þegar ég sá þig allt
í einu svo hreyfingarlausa. Mér
hefði þótt betra að þú værir hjá mér
þegar ég grét þín vegna. Þú varst
góð og þó að þú sért ekki lengur
sýnileg verðurðu alltaf hjá mér.
Sveinbjörn.
RÓSHILDUR
SVEINSDÓTTIR