Morgunblaðið - 26.05.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SAMÞYKKTU VEGVÍSINN
Ríkisstjórn Ísraels samþykkti í
gær svonefndan Vegvísi til friðar.
Ekki ríkti þó einhugur um málið og
greiddu sjö ráðherrar atkvæði gegn
því að Vegvísirinn yrði samþykktur
en tólf voru því hlynntir. Fjórir sátu
hjá. Þetta er í fyrsta skipti sem ísr-
aelsk ríkisstjórn hefur með form-
legum hætti viðurkennt rétt Palest-
ínumanna til eigin ríkis.
Játar á sig fjárdrátt
Fyrrum aðalgjaldkeri Landssím-
ans hefur játað á sig stórfelldan fjár-
drátt hjá félaginu. Talið er að und-
anskotin sem um ræðir nemi um 150
milljónum króna. Tveir menn, sem
grunaðir eru um aðild í brotunum,
bera því við að þeir hafi tekið við
meginhluta fjárins sem lánsfé í nafni
fyrirtækis sem þeir áttu.
Birgitta ánægð
Framlag Íslendinga til Evrópu-
söngvakeppninnar, sem fór fram í
Ríga í Lettlandi í fyrrakvöld, lenti í
níunda sæti. Birgitta Haukdal, sem
söng lagið Open your heart, kveðst
afar ánægð með árangurinn. Tyrkir
báru sigur úr býtum í keppninni.
Sterk staða Aznars
Þjóðarflokkur Jose Maria Aznars,
forsætisráðherra Spánar, vann
varnarsigur í bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningum sem fóru fram í
gær. Reiknað hafði verið með að
flokkurinn tapaði talsverðu fylgi en
sú ákvörðun Aznars að styðja vel við
Bandaríkjastjórn í Íraksstríðinu
mæltist illa fyrir á Spáni. Þegar
næstum öll atkvæði höfðu verið talin
hafði Þjóðarflokkurinn þó fengið
33,8% fylgi en Sósíalistaflokkurinn
fékk ögn meira, eða 34,9%.
Á heimleið
Íslenska alþjóðlega björg-
unarsveitin, sem send var til Alsír á
laugardag í þeirri von að sérþekking
hennar nýttist við að finna fólk á lífi í
húsarústum eftir jarðskjálftann sem
reið yfir landið á miðvikudag, fann
engan á lífi og er nú á heimleið.
Fundist hafa 2.162 látnir og tæplega
níu þúsund manns slösuðust.
Hátíð lokið í Cannes
Myndin Fíll eða Elephant hlaut
Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í
Cannes sem lauk í gær. Bandaríkja-
maðurinn Gus van Sant fékk annan
Gullpálma fyrir leikstjórn myndar-
innar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 26
Viðskipti 12/13 Dagbók 28/29
Erlent 14 Þjónusta 29
Listir 15 Leikhús 30
Umræðan 16/17 Fólk 30/33
Kirkjustarf 20 Bíó 30/33
Forystugrein 18 Ljósvakar 34
Minningar 20/25 Veður 35
* * *
2003 MÁNUDAGUR 26. MAÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VALLARMET OG FYRSTI SIGUR HEIÐARS / B12
Þetta var síðasti leikur Essen ídeildinni í vetur og síðasti leik-
ur Patreks með liðinu en hann hefur
gert samning við Bidasoa á Spáni og
leikur þar næsta vetur. Hvort vænt-
anlegt keppnisbann Patreks setur
strik í reikninginn varðandi það er
ekki ljóst enn sem komið er og ekki
heldur hvort bannið muni ná til
væntanlegra landsleikja.
„Þetta er alveg ferlegt og ég er í
raun miður mín vegna þessa,“ sagði
Patrekur þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær. „Ég reiddist
mjög þegar dómarinn dæmdi ein-
hverja bölvaða vitleysu. Ég hrækti
á gólfið í átt að dómaranum í ein-
hverju æðiskasti og hann útilokaði
mig frá leiknum, sagði að ég hefði
hrækt á hann. Það er ekki rétt, ég
viðurkenni að ég hrækti í átt að
honum til að sýna vanþóknun mína
á því sem hann var að dæma, en
ekki á hann. Auðvitað átti ég ekki að
gera þetta, en þetta er ekkert óal-
gengt í handboltanum og ég átti í
raun von á tveggja mínútna brott-
vísun eða í versta falli rauðu spjaldi
en ekki útilokun,“ sagði Patrekur.
Þetta gerðist þegar leikurinn
hafði staðið í um tíu mínútur og
urðu heimamenn því að leika einum
færri það sem eftir var leiks. „Ég
hefði svo sannarlega kosið að kveðja
Essen með öðrum hætti en þessum,
en því miður varð það ekki,“ sagði
Patrekur.
Umboðsmaður hans var í gær að
skoða málið frá öllum hliðum en
Patrekur sagði að þýskir fjölmiðlar
virtust ganga út frá því að það væri
sjálfkrafa hálfs árs bann ef menn
væru útilokaðir frá leik.
„Ég hef bara ekki hugmynd um
hvort þetta er rétt eða ekki. Eins
veit ég ekki hvort þetta hefur ein-
hver áhrif á hvenær ég get byrjað
að spila með Bidasoa og það sama á
í raun við um þátttöku mína í lands-
leikjum, ég veit ekki hvort þetta
bann, hversu langt sem það nú verð-
ur, nær til landsleikja. Það verður
að koma í ljós og gerir það vonandi
strax í vikunni,“ sagði Patrekur.
Patrekur á yfir höfði
sér langt keppnisbann
PATREKUR Jóhannesson, fyrirliði handknattleiksliðs Essen í
Þýskalandi, á yfir höfði sér keppnisbann í Þýskalandi eftir að hann
var útilokaður snemma leiks frá frekari þátttöku í leik Essen og
Flensburg-Handewitt á laugardaginn.
Morgunblaðið/Arnaldur
Ágúst Gylfason, fyrirliði Fram, tryggði liðinu 1:1 jafntefli gegn KR í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld er hann skoraði undir
lok leiksins. Bjarki Gunnlaugsson, sem hér fylgist með, lagði upp mark KR-inga. Sjá nánar um deildina á B2, B3, B4, B5, B6 og B7.
ÍSLENSKA alþjóðlega björg-
unarsveitin, sem send var til
Alsír á laugardag í þeirri von að
sérþekking hennar nýttist við
að finna fólk á lífi í húsarústum
eftir jarðskjálftann sem reið yf-
ir landið á miðvikudag, fann
engan á lífi og er nú á heimleið.
Fundist hafa 2.162 látnir og
tæplega níu þúsund manns
slösuðust. Vonir um að finna
fólk á lífi eru orðnar mjög veik-
ar.
Íslenska sveitin var við leit í
leikskóla sem hrundi í borginni
Bourmerdes, 80 km austur af
Algeirsborg, á laugardag.
Sveitin kom sér fyrir á knatt-
spyrnuvelli í borginni ásamt
fleiri alþjóðlegum björgunar-
sveitum og var brottför hennar
frá landinu fyrirhuguð í dag,
mánudag. Er hún væntanleg til
Parísar á morgun og heim til
Íslands á miðvikudag.
17 manns eru í sveitinni, einn
læknir, tveir bráðatæknar og
14 björgunarsveitarmenn.
Íslenska
björgunar-
sveitin á
heimleið
ALÞINGI Íslendinga, 129. löggjaf-
arþing, verður sett í dag. Skv. heim-
ildum Morgunblaðsins er áætlað að
þingið verði stutt, standi yfir í tvo til
þrjá daga.
Þingsetningin í dag hefst með
guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl.
13.30. Að henni lokinni setur forseti
Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
þingið í alþingishúsinu. Þar á eftir
tekur starfsaldursforseti Alþingis,
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra, við fundarstjórn. Á þingsetn-
ingarfundinum verða kjörbréf af-
greidd, kosinn forseti Alþingis og
varaforsetar og kosið í fastanefndir
Alþingis og alþjóðanefndir. Að síð-
ustu verður hlutað um sæti þing-
manna, annarra en ráðherra og for-
seta Alþingis.
Alþingi sett í dag
Gert ráð
fyrir stuttu
þingi
MAÐUR slasaðist í Gríms-
fjöllum á Vatnajökli á laug-
ardag er drifskaft á jeppa,
sem hann var að gera við, féll
ofan á hann. Maðurinn var
staddur ásamt fleiri jeppa-
mönnum við skála Jöklarann-
sóknarfélagsins. Stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar barst
tilkynning um slysið kl. 18.12
og var lækni í áhöfn TF-SIF
þegar gefið samband við aðila
á staðnum til að meta ástand
hins slasaða.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð út kl. 18.18 og fór
hún í loftið kl. 18.44. Björg-
unarsveitir á Vík og Höfn í
Hornafirði voru einnig kall-
aðar út. TF-SIF var komin á
slysstað rétt fyrir kl. 20 og
voru björgunarsveitir aftur-
kallaðar skömmu síðar. Þyrl-
an lenti við Landspítala há-
skólasjúkrahús rétt fyrir kl.
21.
Samkvæmt upplýsingum
frá Landspítala háskóla-
sjúkrahúsi í gær var maður-
inn útskrifaður af gjörgæslu
og var á batavegi.
Slasaðist í
Grímsfjöllum
BÖRN og fullorðnir tóku þátt í
sandkastalakeppni dagskrárdeild-
ar Arkitektafélags Íslands, sem
haldin var á ylströndinni í Naut-
hólsvík á laugardag. Að sögn
Höllu Hamar arkitekts tóku sex
hópar þátt í keppninni. Feðgarnir
Ásbjörn Ólafsson og Óðinn Ás-
bjarnarson urðu í fyrsta sæti en
að sögn Höllu þótti kastalinn
þeirra afskaplega skemmtilega
upp byggður. Auk þess var búið
að koma Strumpum fyrir í kast-
alanum sem sýndi notagildi hans. Í
verðlaun fengu feðgarnir skíða-
kort frá Íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur. Halla segir að
keppnin hafi ekki síst verið haldin
í þeim tilgangi að koma þeim
skilaboðum áleiðis að bygging-
arlist sé fyrir alla.
Morgunblaðið/Sverrir
Kastalakeppni í Nauthólsvík
SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn vinnur
nú að skipulagningu fyrsta alþjóðlega
skákmótsins sem nokkru sinni hefur
verið haldið á Grænlandi í samvinnu
við félagið Skák í norðri. Efnt verður
til skákhátíðar í Qaqortoq á Suður-
Grænlandi hinn 24. júní til 4. júlí nk.,
en að sögn Hrafns Jökulssonar, for-
seta Skákfélagsins Hróksins, er há-
punktur hátíðarinnar alþjóðlegt at-
skákmót dagana 28. til 30. júní með
10.000 bandaríkjadali í verðlaun. Þeg-
ar eru skráðir til leiks margir sterkir
meistarar á borð við Ivan Sokolov, Jó-
hann Hjartarson og Luke McShane.
Hrafn kveðst vonast til þess að
skákmótið verði til þess að auka
áhuga á skák á Grænlandi. Undir það
tekur Benedikte Thorsteinsson, fyrr-
verandi ráðherra í grænlensku lands-
stjórninni og framkvæmdastjóri
verkefnisins.
Hrafn segir hugmyndina að skák-
mótinu hafa komið upp hjá Skák-
félaginu Hróknum þegar rann upp
fyrir mönnum að okkar næsta ná-
grannaland, Grænland, væri því sem
næst skáklaust. „Þar hefur ekki verið
neitt skipulagt skáklíf og fyrir vikið er
ekki mikið um að Grænlendingar
þekki þessa göfugu listgrein. Okkur
þótti því við hæfi að bregða okkur
austur yfir sundið milli landanna með
skákina í farteskinu. Þessu framtaki
okkar var líka ákaflega vel tekið og
þarna er að vakna mikill áhugi á skák,
ekki síst á Suður-Grænlandi sem
verður vettvangur þessarar hátíðar.“
Gjöf Íslendinga í minningu Fiske
Að sögn Hrafns er skákmótið hugs-
að sem gjöf Íslendinga til að minnast
Daniels W. Fiske (1831 til 1904), eins
mesta velgerðamanns Íslands. „Fiske
kom á sínum tíma og gaf Íslendingum
stórgjafir. Meðal annars stóð hann
fyrir skákvæðingu á Íslandi undir lok
19. aldar. Okkur fannst að við ættum
að taka brot af þessari gjöf og gefa
hana áfram þeim sem þurfa á að
halda. Og Grænlendingar þurfa auð-
vitað skák eins og aðrir.“
Í tilefni skákmótsins mun Skák-
félagið Hrókurinn gefa út tímarit um
skák, sem verður á grænlensku og
dönsku. Tímaritið verður prentað í
um 9.000 eintökum og aðallega dreift
á Grænlandi. „Hrókurinn hefur síð-
asta árið staðið í mjög líflegri tíma-
ritaútgáfu en þetta er í fyrsta skipti
sem við gefum út blað á öðru tungu-
máli en íslensku.“ Hrafn segir að
tímaritið verði sögulegt vegna þess að
í því verði í fyrsta skipti fjallað um
skák á grænlensku svo vitað sé. „Það
lá t.d. alls ekki fyrir þegar ég var á
ferð á Grænlandi nýlega hvað ætti að
kalla taflmennina á grænlensku. En
nú hefur verið sett á laggirnar mál-
farsnefnd sem er að finna viðeigandi
nöfn.“ Benedikte Thorsteinsson segir
skákmótið á Grænlandi mjög gott
framtak. Hún segir skákina hugar-
leikfimi sem sé góð fyrir alla og að slík
leikfimi sé ekki síður góð en líkamleg
leikfimi. „Það er engin spurning að
skákmótið hefur þegar vakið áhuga á
skák á Grænlandi,“ segir hún.
Alþjóðlegt skákmót haldið í fyrsta sinn á Grænlandi
Leita grænlenskra
heita á taflmönnum
MAÐUR féll átta metra fram
af klettabelti og hafnaði í
fjöruborðinu skammt frá
Fjöruhúsinu á Hellnum á
Snæfellsnesi í fyrrinótt. Mað-
urinn slapp með skrámur og
þykir mikil mildi að ekki fór
verr.
Lögreglan í Ólafsvík fékk
tilkynningu um slysið um
hálftvöleytið en þegar hún
kom á staðinn hafði maðurinn
verið færður inn í hús. Læknir
var kallaður á staðinn og gert
var að sárum mannsins.
Að sögn lögreglu hafði ann-
ar maður farið niður í bjarg að
sækja sér egg á meðan hinn
beið á brúninni. Ekki vildi
betur til en að sá sem beið
datt fram fyrir sig og hafnaði
á syllu fjórum metrum neðar,
og þaðan féll hann fjóra metra
niður í fjöruborðið.
Féll 8 metra
fram af
klettabrún