Morgunblaðið - 13.06.2003, Síða 16
LÍ fylgir Kaupþingi
Búnaðarbanka
útibúasviðs Íslandsbanka, segir að
Kaupþing Búnaðarbanki sé nú
kominn með svipaða vexti og Ís-
landsbanki eftir að hafa lækkað
vexti verðtryggðra inn- og útlána
úr 6,75% í 6,60%, en vextirnir hjá
Íslandsbanka séu 6,65%. Íslands-
banki hafi síðast lækkað vexti um
mánaðamótin febrúar-mars með
það fyrir augum að þróunin á
markaði með t.d. spariskírteini
yrði sú sem síðan hafi orðið. Aðrir
hafi ekki séð ástæðu til að lækka
vextina þegar Íslandsbanki hafi
gert það fyrir nokkrum mánuðum
og bankinn sjái ekki tilefni nú til
að gera frekari breytingar. Eft-
irspurnin skipti líka máli og ágæt
spurn hafi verið eftir lánum hjá Ís-
landsbanka.
SPRON
ruddi brautina
Kaupþing Búnaðarbanki vakti
athygli á því í byrjun vikunnar að
bankinn hefði ákveðið að bjóða
upp á sumarhúsalán. Guðmundur
Hauksson segir að SPRON hafi
rutt brautina í þessu efni og hafi
kynnt þessa þjónustu mjög ítar-
lega á undanförnum vikum.
Jón Þórisson segir að Íslands-
banki hafi árum saman veitt lán
með veðum í sumarhúsum eins og í
flestu öðru sem hafi skilgreint
markaðssvið og hægt sé að fylgj-
LANDSBANKI Íslands hefur
ákveðið að lækka vexti verð-
tryggðra inn- og útlána eins og
Kaupþing Búnaðarbanki tilkynnti
um í byrjun vikunnar. Vextir af
verðtryggðum inn- og útlánum
Landsbankans munu lækka um
0,20% frá og með 21. júní næst-
komandi, en við það lækka verð-
tryggðir kjörvextir af útlánum
bankans, sem bera breytilega
vexti, úr 6,65% í 6,45%.
Kaupþing Búnaðarbanki hafði
áður tilkynnt um lækkun vaxta
verðtryggðra inn- og útlána, sem
bera breytilega vexti, um 0,15%
frá og með 11. júní. Þá lækkuðu
kjörvextir verðtryggðra útlána
bankans úr 6,75% í 6,60%.
Kjörvextir af skuldabréfalánum
eru lægstu vextir sem í boði eru
en ofan á leggst alla jafna álag,
mishátt eftir aðstæðum hvers og
eins skuldara.
Aðrar fjármálastofnanir hafa
ekki tilkynnt um vaxtabreytingar í
þessari viku. Samkvæmt upplýs-
ingum frá SPRON hefur sparisjóð-
urinn lækkað vexti jafnt og þétt í
samræmi við það sem hefur gerst
á markaði. Íslandsbanki lækkaði
síðast vexti um mánaðamótin febr-
úar-mars.
Samkvæmt tilkynningu frá
Landsbankanum, sem send var í
tilefni af vaxtalækkuninni nú, er
það mat bankans að ólíklegt sé að
verðtryggðir vextir á markaði
hækki á næstunni.
Fylgst með
vaxtamarkaði
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON, segir að
SPRON fylgist ávallt mjög náið
með vaxtamarkaði og hafi lækkað
vexti jafnt og þétt í samræmi við
það sem hafi gerst á markaði.
Ákvörðun Kaupþings Búnaðar-
banka um að lækka vexti verð-
tryggðra útlána og innlána fyrr í
þessari viku um 0,15% hafi engin
áhrif á þetta vinnulag.
Jón Þórisson, framkvæmdastjóri
ast með. Því sé ekki mikið nýtt í
tilkynningum um sumarhúsalán.
Vaxtakjör Kaupþings Búnaðar-
banka vegna sumarhúsalána eru
6,95–8,25% en 6,95–8,50% hjá
SPRON og 6,45–7,35% hjá Ís-
landsbanka.
Yfirdráttar-
lán hæst
Í meðfylgjandi töflu eru sýnd
vaxtakjör fjármálastofnana á
þremur algengum útlánum og
tveimur algengum innlánum. Við-
mælendur Morgunblaðsins hjá
stofnununum leggja sérstaka
áherslu á að vextir af yfirdráttar-
lánum einstaklinga séu hæstu
vextir. Algengt sé að þessir vextir
séu lægri, en það ráðist af því í
hvernig viðskiptum viðkomandi er
við sína fjármálastofnun. Þá eigi
svipað einnig við um vexti af deb-
etkortareikningum. Í töflunni séu
lægstu vextir af þeim, en algengt
sé að viðskiptavinirnir fái hærri
vexti á reikningum sínum.
Ólíklegt að verðtryggðir vextir hækki á næstunni
! "!
!
!
! # $% !
&'( )!
*
!
+,-./
" 12! # !!
3
4 3
#
"
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
# $
" %
!
&
#$
" &
#$
"
"'
(
"'
& &
$
! &
)*
+
&
(
&
+,-*.*-
,-*.% &
/
( , 0 &
,)--0'&
!
(" , 0 &
1 "'
2 .. ,)--0 &
& &
3
'
(
4
'
&
!
"
"
# $
%
!
&'(
&
'
)
*
++
,-++
LANDSBANKI Íslands hf. seldi í
gær helmingshlut sinn í Líftrygg-
ingafélagi Íslands (Lífís) til Vátrygg-
ingafélags Íslands hf. (VÍS). Eftir
viðskiptin er heildarhlutur VÍS 75%
en VÍS átti áður 25% hlut í Lífís.
Fjórðung hlutafjár í Lífís á Eignar-
haldsfélagið Andvaka.
Landsbanki Íslands hf. hefur enn-
fremur samið við enska trygginga-
félagið Swiss Life um einkarétt
bankans á sölu líf- og sjúkdóma-
trygginga félagsins hér á landi en
Búnaðarbanki Íslands var áður með
samning við Swiss Life.
Í tilkynningu frá Landsbankanum
segir að með sölu á hlut bankans í
Lífís og samningi við Swiss Life sé
samstarfi við VÍS um tryggingamál,
sem hófst með kaupum Landsbank-
ans á helmingshlut í VÍS og Lífís
vorið 1997, lokið. Landsbankinn
seldi hlut sinn í VÍS á síðasta ári.
„Upphafið að þessum viðskiptum
má rekja til þeirra miklu eignabreyt-
inga sem orðið hafa á fjármálamark-
aði að undanförnu. Þegar ljóst varð
síðastliðið haust að VÍS var í hópi
fyrirtækja sem keyptu sig inn í Bún-
aðarbankann lá fyrir að breytingar
yrðu á samstarfi Landsbankans og
VÍS. Í framhaldi af þeim breytingum
seldi Landsbankinn allan hlut sinn í
VÍS. Núna þegar VÍS er orðið meðal
kjölfestufjárfesta í sameinuðum
Kaupþingi-Búnaðarbanka þá töldu
Landsbankinn og VÍS rétt að taka
upp umræður um eignarhaldið á Líf-
ís því eftir sameininguna átti Kaup-
þing-Búnaðarbanki og VÍS aðild að
þremur fyrirtækjum, þ.e. Alþjóðlega
líftryggingafélaginu, Lífís og Swiss
Life. Niðurstaðan varð sú að við vild-
um selja allan okkar hlut í Lífís,“
segir Halldór J. Kristjánsson banka-
stjóri Landsbanka Íslands.
Eðlilegt að Búnaðarbanki hætti
samstarfi við Swiss Life
Hann segir fullkomlega eðlilegt
fyrir Búnaðarbanka að hætta sam-
starfi við Swiss Life því eftir samein-
inguna hafi Kaupþing Búnaðarbanki
í raun verið kominn með þrjár líf-
trygginaafurðir. „Það reyndist einn-
ig afar áhugavert fyrir Landsbank-
ann að semja við öflugt alþjóðlegt
líftryggingafélag eins og Swiss Life
um líftryggingar. Okkur líst vel á
þjónustuframboðið og teljum það
fela í sér mjög góða vernd fyrir okk-
ar viðskiptavini. VÍS eignast með
þessu 75% hlut í Lífís. Ég held að
það sé rökrétt framhald að Lífís verð
beint dótturfélag VÍS.“
Að sögn Halldórs hefur Lands-
bankinn verið með mesta hlutdeild á
markaði með líftrygginar og lífeyr-
issparnað. „Við munum vera með
heildstætt framboð og þjónusta við
líftryggingar, sjúkdómatrygginar og
lífeyrissparnað verður alfarið á veg-
um Landsbankans. Trygginga-
verndin sem boðið er upp á í þessu
samstarfi er mjög víðtæk og hag-
kvæm. Það hefur verið hornsteinn í
okkar starfsemi að veita alla fjár-
málaþjónustu svo viðskiptavinir
þurfi ekki að leita annað. Það tryggj-
um það með þessu samstarfi við
Swiss Life,“ segir Halldór.
Samkomulagið um sölu hlutarins í
Lífís er háð samþykki bankaráðs
Landsbanka Íslands hf., stjórnar
Vátryggingafélags Íslands og
stjórnar Eignarhaldsfélagsins And-
vöku hf. og er stefnt að undirritun
endanlegs kaupsamnings 26. júní
nk., segir í tilkynningunni.
Samstarfi Landsbanka og
VÍS um tryggingar lokið
VÍS hefur keypt allan hlut Landsbankans í Lífís.
Landsbankinn fær einkarétt á Swiss Life-tryggingum
VÍSITALA neysluverðs í júní 2003
hækkaði um 0,06% frá fyrra mán-
uði og er 226,8 stig (maí
1988=100). Hækkunin er í takt við
spár fjármálafyrirtækja en þær
gerðu ráð fyrir 0,08% hækkun að
meðaltali. Markaðsverð húsnæðis
hækkaði um 0,5% milli mánaða og
hefur mest áhrif á vísitöluna, eða
um 0,05% til hækkunar. Tólf mán-
aða hækkun vísitölu neysluverðs
mælist 1,8% og hefur lækkað um
0,4% frá því í maí.
Vísitala neysluverðs án húsnæð-
is hélst óbreytt frá maí, 222,6 stig,
að því er fram kemur í tilkynningu
frá Hagstofu Íslands. Síðastliðna
tólf mánuði hefur vísitala neyslu-
verðs hækkað um 1,8% og vísitala
neysluverðs án húsnæðis um 0,4%.
Undanfarna þrjá mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
0,04% sem jafngildir 0,2% verð-
bólgu á ári.
Greiningardeild Landsbankans
spáði 0,1% aukningu milli mánaða.
Í Markaðsyfirliti deildarinnar í
gærmorgun kemur fram að hús-
næðisliður vísitölunnar sé lá liður
sem „er að drífa verðbólguna
áfram“.
Í Morgunkorni Greiningar ÍSB
kemur fram að verðbólgan er lág
og nokkuð undir 2,5% markmiði
Seðlabanka Íslands. „Greining ÍSB
væntir þess að verðbólgan hækki
nokkuð á næstu mánuðum og spáir
því að hún verði 2,5% yfir þetta ár
og 2,8% yfir árið 2004.“
Fram kemur í Morgunkorni að
íbúðarhúsnæði hefur hækkað um
4,2% frá upphafi árs „á sama tíma
og vísitala neysluverðs án húsnæð-
is hefur hækkað um 0,4%. Raun-
verð íbúðarhúsnæðis hefur sam-
kvæmt þessu hækkað um 3,8%.
Reikna má með því að þessum
hækkunum fylgi nokkur eigna-
verðsáhrif, þ.e.a.s. þær lyfti undir
neyslu en neysla fer vaxandi um
þessar mundir. Verðhækkun á
húsnæðisverði skýrir nú rúmlega
helming af verðbólgunni og reikn-
ar Greining ÍSB með því að hús-
næðisverðið haldi svipuðu hlutfalli
af verðbólgunni á næstu mánuð-
um.“
Pakkaferðir hækka í verði
Annar þáttur sem hækkar vísi-
töluna er verð á pakkaferðum. Í
Morgunkorni kemur fram að
pakkaferðir hækka nú um 3,3% á
milli mánaða og hafa 0,10% áhrif
til hækkunar verðbólgu. „Ástæða
hækkunarinnar er hækkun á
pakkaferðum utanlands en þær
hækka um 2,95%. Má rekja hækk-
unina til þess að í fyrra var mikið
um tilboð á þessum markaði sem
ekki hafa endurtekið sig í ár.
Hækkunin nú er uppsöfnuð
tveggja ára verðhækkun,“ segir
Greining ÍSB.
Verð á bensíni og olíum lækkaði
milli mánaða um 2,8% og hafði
0,11% áhrif á vísitölu. Bendir
lækkunin til þess að lækkun á
heimsmarkaðsverði á olíu hafi skil-
að sér til neytenda á Íslandi.
Vísitala neysluverðs í júní 2003,
sem er 226,8 stig, gildir til verð-
tryggingar í júlí 2003. Vísitala fyr-
ir eldri fjárskuldbindingar, sem
breytast eftir lánskjaravísitölu, er
4.478 stig fyrir júlí 2003, að því er
fram kemur í tilkynningu frá Hag-
stofu Íslands.
Vísitala neysluverðs hækkar lítið
Hærra húsnæðis-
verð hefur mest
áhrif á verðbólgu