Morgunblaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 45
DEJAN Savicevic, þjálfari liðs
Serbíu og Svartfjallalands, hefur
sagt starfi sínu lausu. Lið hans tap-
aði í fyrrakvöld fyrir Azerbaijan,
2:1. Við tapið varð ljóst að lið Serbíu
og Svartfjallalands kemst ekki í úr-
slitakeppni Evrópumóts landsliða
sem fram fer í Portúgal sumarið
2004.
OTTO Rehhagel, þýski þjálfarinn,
er hinsvegar þjóðhetja í Grikklandi
eftir frækna sigra, fyrst 1:0 á Spáni
og síðan 1:0 heima gegn Úkraínu í
fyrrakvöld. Grikkir standa nú vel að
vígi og komast í lokakeppni HM sem
sigurvegarar í 6. riðli ef þeir vinna
Armeníu og Norður-Írland.
REHHAGEL sagði eftir sigurinn á
Úkraínu að sínir menn hefðu sýnt að
þeir gætu staðist álagið í mikilvæg-
ustu leikjunum. „Gríska liðið hefur
oft verið gagnrýnt fyrir að brotna
niður þegar mest liggur við og við
einbeittum okkur að þeim þætti í
undirbúningnum fyrir þessa leiki,“
sagði Rehhagel.
INAKI Sáez, þjálfari Spánverja,
sætir mikilli gagnrýni eftir tvo
markalausa leiki, 0:1 ósigur gegn
Grikkjum heima og 0:0 gegn Norð-
ur-Írum í Belfast í fyrrakvöld. „Ég
þarf að velja leikmenn sem eru til-
búnir til að gefa eitthvað af sér og nú
fer ég að leita að þeim,“ sagði Sáez.
TOBIAS Rau, miðjumaðurinn
ungi frá Wolfsburg, verður ekki með
þýska landsliðinu gegn Íslandi á
Laugardalsvellinum 6. september.
Hann tekur út leikbann því hann
fékk sitt annað gula spjald í Evr-
ópukeppninni þegar Þjóðverjar
unnu Færeyinga naumlega í fyrra-
kvöld, 2:0, með mörkum á lokamín-
útunum.
FREDI Bobic, sóknarmaður
Þýskalands, sagðist hafa verið búinn
að gefa upp vonina um að þýska lið-
inu tækist að skora gegn Færeyjum
í Þórshöfn þegar Miroslav Klose
náði loks að rjúfa varnarmúr heima-
manna á 88. mínútu. Bobic bætti síð-
an sjálfur við marki áður en flautað
var til leiksloka.
RUDI Völler, þjálfari Þjóðverja,
sagði að hann hefði getað sleppt því
að nota markvörð í seinni hálfleikn-
um í Færeyjum, slík var einstefnan á
mark heimamanna. Jákup Mikkel-
sen varði mark Færeyja af snilld.
„Þeir voru með engil í markinu hjá
sér,“ sagði Christian Wörns, leik-
maður Þýskalands.
EVRÓPSKA knattspyrnusam-
bandið rannsakar nú hegðun tyrk-
neskra áhorfenda eftir leik Tyrkja
við Makedóníu í Istanbúl á miðviku-
dagskvöld. Tyrkneskir áhorfendur
fleygðu smámynt í leikmenn Make-
dóníu. Leikmenn Makedóníu gátu á
tímabili í leiknum ekki tekið horn-
spyrnur og aukaspyrnur sem voru í
„kastfæri“ fyrir áhorfendur.
FÓLK
JÚLÍUS Jónasson, þjálfari ÍR í
handknattleik, hefur skrifað und-
ir nýjan tveggja ára samning við
félagið. Júlíus hefur stýrt liðinu
undanfarin tvö keppnistímabil og
í fyrra náði félagið mjög góðum
árangri þegar liðið komst alla leið
í úrslit Íslandsmótsins.
Júlíus hefur samhliða þjálfun
liðsins spilað varnarleikinn með
ÍR og mun gera það áfram að
sögn Hólmgeirs Einarssonar for-
manns handknattleiksdeildar ÍR.
Hannes Jón til ÍR
Stórskyttan Hannes Jón Jóns-
son hefur ákveðið að ganga til
liðs við ÍR frá spænska liðinu Nar-
anco. Hannes lék bróðurpart síð-
astliðins veturs með Selfossi en
hélt síðan í víking til Spánar.
Hannes Jón gerði tveggja ára
samning við ÍR.
Hins vegar er hugsanlegt að ÍR-
ingar séu að missa tvo leikmenn –
hornamaðurinn Ragnar Már
Helgason og miðjumaðurinn
Kristinn Björgúlfsson eru báðir
samningslausir við ÍR og hafa
verið að hugsa sér til hreyfings
og breyta til. Júlíus Jónasson
Júlíus Jónasson
áfram með ÍR-liðið
SKOTAR telja að úrslit leikjanna í 5. riðli undankeppni Evr-
ópumóts landsliða í fyrrakvöld hafi verið þau verstu sem þeir
hefðu getað hugsað sér. Dagblaðið The Scotsman sagði í gær að
nú væri staða Íslands góð, stigi á undan Skotum þegar báðar
þjóðir væru búnar með fimm leiki.
„Ísland fer til Færeyja hinn 20. ágúst á meðan Skotland er í
fríi og getur náð fjögurra stiga forskoti í baráttunni um annað
sætið. Það sem hins vegar getur komið Skotlandi til bjargar er
að þá á Ísland aðeins eftir tvo leiki sem báðir eru gegn Þýska-
landi.
Ef Skotland vinnur Færeyjar heima ætti sigur á Litháum á
Hampden Park í október að koma Skotlandi upp fyrir Ísland í
lokaumferðinni – þó aðeins ef Ísland kemur ekki á óvart í öðr-
um hvorum leiknum gegn Þýskalandi,“ segir í umfjöllun The
Scotsman.
Verstu úrslit
fyrir Skotland