Morgunblaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Birgir Antonssonrafvirkjameistari fæddist á Akureyri 9. nóvember 1940. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu í Kópavogi 2. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Anton Ólason, f. 9. júní 1919 í Reykjavík, d. í Reykjavík 13. jan- úar 1998, og Krist- jana Valdemarsdótt- ir, f. 30. nóvember 1916 í Veisuseli í Fnjóskadal, d. í Reykjavík 7. ágúst 2000. Systkini Birgis eru Valborg, f. 11. janúar 1946, d. 13. mars 2001, og Óli, f. 17. júní 1947. Birgir var kvæntur Guðrúnu Emilíu Guðnadóttur, f, 2. nóvem- ber 1942 í Reykjavík. Þau skildu. Barn þeirra er 1) Halldóra, f. 4. desember 1961 og á hún tvö börn, tvíburana Sigrúnu Leu og Guð- rúnu Emilíu, f. 22. maí 1991. Á Þórshöfn kynntist Birgir Krist- rúnu Baldursdóttur ljósmóður, f. 8. nóvember 1938 í Garði í Þist- ilfirði, d. 5. maí 1989 á Akureyri, og hófu þau þar sinn búskap. Birgir og Kristrún eignuðust fjög- ur börn. Þau eru: 2) Baldur Óli, f. 2. maí 1965, d. 13. september 1972. 3) Börkur, f. 23. ágúst 1966, sambýliskona hans er Hrafnhild- ur Óladóttir. Börn þeirra eru: a) Bryndís Björk, f. 3. nóvember 1986, unn- usti hennar er Jó- hann Helgason, f. 19. apríl 1984. b) Krist- rún Ösp, f. 3. júní 1990. c) Baldur Óli, f. 27. desember 1994. 4) Hlynur, f. 22. jan- úar 1968, eiginkona hans er Inga Huld Pálsdóttir. Börn þeirra eru: a) Laufey Elísa, f. 29. ágúst 1993. b) Lillý Rut, f. 18. janúar 1997. c) Birgir Ómar, f. 17. apríl 2001. 5) Kristjana Ösp, f. 13. mars 1973, eiginmaður hennar er Áskell Þór Gíslason og barn þeirra er Hilma Ösp, f. 11. febrúar 2000. Sambýliskona Birgis síðustu tólf ár var Jóna Fjalldal hjúkrun- arfræðingur f. 28. september 1943. Jóna á þrjá uppkomna syni og sex barnabörn. Birgir var rafvirkjameistari og starfaði við þá iðn alla sína starfs- ævi. Hann var verktaki um árabil og einn af stofnendum Norður- ljósa á Akureyri. Undanfarin ár hefur hann séð um uppsetningu og viðhald á veðurathugunar- stöðvum á þjóðvegum landsins fyrir Vegagerð ríkisins. Útför Birgis fer fram frá Gler- árkirkju á Akureyri í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi. Það sem berst um í brjósti mér núna þessa dagana eru ekki tilfinningar sem auðvelt er að koma frá sér á blað. Það var ekki auðvelt að alast upp aðskilin frá þér stóran part æsku minnar og í raun ekki þekkja þig, pabbi minn, en það samband sem við vorum búin að þróa með okkur hin síðari ár var mér allt. Þú varst yndislegur og góður pabbi og afi stelpnanna minna. Og það að þú sért nú horfinn úr lífi mínu aftur er eins og að gefa litlu barni ís og taka hann svo af því aftur. En það sem er mér kærast í minningunni eru bréfin sem þú skrifaðir mér allt- af þegar ég var krakki, þau geymi ég vel. Stelpunum þótti líka ákaflega vænt um þig og elskuðu það þegar þú komst í heimsókn til okkar vestur og/eða þegar við hittumst fyrir sunn- an. Þegar þú komst til okkar fyrir stuttu grunaði okkur ekki að það væri í síðasta sinn sem við sæjum þig. Andlát þitt bar brátt að og að kveðja þig núna er ógerlegt því að í huga okkar ertu hér ennþá. Megi góður guð blessa okkur öll. Elsku pabbi, takk fyrir allt og allt, við elsk- um þig. Halldóra, Guðrún Emilía og Sigrún Lea. Birgir Antonsson var hraust- menni, vinnuþjarkur sem aldrei kenndi sér meins, og því kom andlát hans í opna skjöldu. Kynni okkar hófust fyrir rúmum 12 árum er hann hóf samband við móður okkar. Með okkur tókst strax mikil vinátta, enda sáum við fljótt að þar var á ferð einstaklega traustur maður sem jafnframt var mikið ljúf- menni. Traust handtak var eitt af að- alsmerkjum Birgis. Birgir var ekki mikið fyrir að ræða málin, en verk hans töluðu þeim mun meira. Hann reyndist okkur bræðrum og fjöl- skyldum okkar afar vel. Hann var hugulsamur og ávallt reiðubúinn að rétta fram hjálparhönd. Birgir var börnum okkar sem afi, enda kölluðu þau hann afa Bigga. Hans rólega og yfirvegaða fram- koma heillaði þau og laðaði að hon- um. Hann undi sér afar vel með þeim og veitti þeim ást og hlýju. Hann lék sér með þeim og horfði á teikni- myndir með þeim, og mátti þá ekki á milli sjá hvort hann eða börnin skemmtu sér betur. Í starfi sínu var Birgir á sífelldu ferðalagi um landið. Hann þekkti landið því vel og hafði gaman af úti- veru og öllu sem tengdist nátt- úrunni. Jeppaferðir um óbyggðir landsins var vaxandi áhugamál. Þar, sem og í öðrum ferðum, var hann góður ferðafélagi og miðlaði þekk- ingu sinni á skemmtilegan máta. Hann var vel lesinn, einn af þeim sem ávallt eru að lesa sér til fróð- leiks, ýmist til gagns eða gamans. Hann var líka húmoristi, með lúmsk- an húmor, sem hann fékk reglulega útrás fyrir, t.d. með árlegum lestri Góða dátans Svejk. Sælureitur hans var sumarbústað- urinn Miðbær í Hvalfirði. Þar dvaldi hann eins oft og hann mögulega gat. Í Miðbæ var hann á heimavelli, í nán- um tengslum við náttúruna. Þar ræktaði hann sitt land af miklum myndarskap og gjörþekkti hverja þúfu. Hann hélt nákvæmt bókhald um vöxt og viðgang gróðursins. Hann þekkti vel fuglalífið á svæðinu og hafði áunnið sér traust nokkurra fuglapara sem hann þekkti orðið eins og vini sína. Við viljum þakka Birgi allt sem hann gerði fyrir okkur, og ekki síst viljum við þakka honum fyrir allt sem hann gerði fyrir móður okkar. Birgir var móður okkar hinn full- komni félagi. Hann var henni ein- staklega góður og studdi hana og styrkti í þau tólf ár sem þau áttu samleið. Við vottum móður okkar, börnum Birgis og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau á þessum erfiðu tímamótum. Halldór, Birgir Örn, Þorvaldur Örn og fjölskyldur. Þegar þessi orð eru skrifuð sitjum við hér saman í Miðbæ, sumarbústað fjölskyldunnar, og minnumst yndis- legs tengdaföður, Birgis Antonsson- ar. Það var einmitt hér sem honum leið best og hafði fest rætur. Oft heyrðum við hann tala um að hann þyrfti að komast í Miðbæ til að hvíla sig og komast í kyrrðina. Einhvern veginn efumst við um að hann hafi setið lengi með tærnar upp í loftið því að hann var alltaf að dytta að bú- staðnum og gróðursetja plöntur svo að eitthvað sé nefnt. Já, bústaðurinn í Hvalfirðinum var hans unaðsreitur. Það átti einstaklega vel við Birgi að dveljast hér enda hægur og rólyndur maður og kunni því vel að hvíla sig á skarkala höfuðborgarinnar. Þau orð sem koma upp í huga okkar og lýsa Birgi eru hlýja, ósérhlífni, dugnaður og styrkur en hann var fyrst og fremst sannkallaður öðlingur. Hann hafði ekki hátt en sýndi hug sinn í verki. Við stöllur sem þetta skrifum komum inn í fjölskylduna með stuttu millibili eða fyrir u.þ.b. átján árum. Okkur var tekið opnum örmum af þeim Birgi og Lillý heitinni, konu hans, og urðum strax hluti af fjöl- skyldunni. Því miður nutum við ekki lengi samvista við Lillý því að hún lést úr krabbameini langt um aldur fram aðeins fimmtíu ára gömul. Það var með ólíkindum hve vel Birgir studdi konu sína og hjúkraði í veik- indunum og var hjá henni nótt sem dag þar til yfir lauk. Okkur hinum vildi hann hlífa og bar ekki tilfinn- ingar sínar á torg. Andlát Lillýjar var okkur öllum mikið áfall eins og hans er núna. Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem sorgin knúði dyra því að Birgir og Lillý misstu frumburð sinn, hann Baldur Óla, aðeins sjö ára gamlan. Það eru margar sögurnar sem við höfum heyrt af þeim bræðr- um Baldri, Berki og Hlyn og prins- essunni Kristjönu. Það var greini- lega enginn lognmolla á heimilinu og löggu- og bófaleikir oft teknir full al- varlega. Þau systkini fengu líka stundum Dóru hálfsystur sína í heimsókn og ekki minnkaði fjörið við það. Samband Birgis við börnin sín, tengdabörn og barnabörn var ein- lægt og gott. Þar bar aldrei skugga á. Oft höfum við óskað þess að Lillý heitin hefði fengið tækifæri til að kynnast barnabörnum sínum líka. Hún fékk aðeins að upplifa fæðingu þess elsta sem er Bryndís Björk. Birgir vissi að hann gat ekki fyllt skarð Lillýjar en hann gerði sitt besta og vildi allt fyrir barnabörnin gera. Þau hændust öll að honum og það var hvergi betra að vera en í fanginu hans afa. Það var líka alltaf mikil spenna að sjá hvað var í jóla- pakkanum frá afa og síðar afa og Jónu. Nokkru eftir andlát Lillýjar var Birgir svo heppinn að kynnast ynd- islegri konu, Jónu Fjalldal, sem varð hans sáluhjálpari og vinur. Vináttan þróaðist síðan í einlæga ást og um- hyggju og erum við í fjölskyldunni Jónu afar þakklát fyrir árin hennar með Birgi. Jóna á þrjá mjög vel gerða syni; Halldór, Birgi og Þor- vald sem Birgi þótti sérlega vænt um sem og fjölskyldur þeirra. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með þeim bræðrum á þessum sorgartím- um. Jóna hefur fengið mikinn styrk frá þeim öllum því að þeir halda svo sannarlega þétt utan um móður sína. Þær voru ófáar stundirnar sem Birg- ir eyddi með Jónu og strákunum bæði utan lands sem innan. Við met- um ykkur öll mikils. Sorgin hefur allt of oft knúið dyra hjá Birgi. Á síðustu fjórum árum missti hann föður sinn, móður sína og systur. Hann reyndist þeim öllum einstaklega vel í veikindum þeirra eins og hans var von og vísa. Við ef- umst ekki um að þau hafi ásamt Lillý og Baldri Óla tekið vel á móti honum. Kæri Birgir, við þökkum allt sem þú hefur gert fyrir okkur og börnin BIRGIR ANTONSSON Hjartans þakkir fyrir sýnda vináttu og samúð við fráfall og útför AXELS Ó. LÁRUSSONAR áður kaupmanns í Vestmannaeyjum, Suðurtúni 9, Bessastaðahreppi. Þökkum innilega félögum í Akóges. Einari Val Bjarnasyni lækni áralanga tryggð og hjálp. Læknum og hjúkrunarfólki Sjúkrahúss Vestmannaeyja og Kristjáni Eyjólfssyni lækni. Guð blessi ykkur öll. Sigurbjörg Axelsdóttir, Sigrún Óskarsdóttir, Ársæll Sveinsson, Óskar Axel Óskarsson, Sigríður Sigurðardóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Adolf Óskarsson, Heiða Guðrún Ragnarsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ILSE W. ÁRNASON, Oddgeirshólum, Hraungerðishrepp, verður jarðsungin frá Hraungerðiskirkju mánu- daginn 16. júní kl. 14.00. Guðmundur Árnason, Angelika Guðmundsdóttir, Ásgeir Gunnarsson, Árni O. Guðmundsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Steinþór Guðmundsson, Þuríður Einarsdóttir, Magnús Guðmundsson og fjölskyldur. Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GÍSLÍÖNU B. BJARNADÓTTUR fyrrum húsmóðir á Gautlöndum, Mývatnssveit, Hrafnistu, Hafnarfirði, fer fram frá Skútustaðakirkju laugardaginn 14. júní kl. 13.00. Sólveig Pétursdóttir, Bjarni Pétursson, Þórunn Kristinsdóttir, Kristín Pétursdóttir, Steingrímur Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, bróður og mágs, dr. GUÐMUNDAR GÍSLA BJARNASONAR eðlisfræðings, Gullsmára 5, Kópavogi. Hrafn Guðmundsson, Elinborg Björk Harðardóttir, Ósk Guðmundsdóttir, Valur Páll Kárason, Bjarni Guðmundsson, Margrét B. Richter, Sigurður H. Richter, Sigríður Bjarnadóttir, Róbert Jónsson, Sigrún Ósk Bjarnadóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS KRISTINS BJÖRNSSONAR vélaverkfræðings, Brekkuseli 33. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkr- unarfólki á krabbameinsdeild Landspítalans fyrir frábæra umönnun. Margrét Dannheim, Magnús Kristinn Jónsson, Hulda Björg Jónsdóttir, Björn Brynjar Jónsson, Erna Kristjánsdóttir, Sólveig Katrín Jónsdóttir, Patrekur Maron Magnússon, Þormar Leví Magnússon. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Ekki er tekið við hand- skrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Frágangur afmælis- og minningar- greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.