Morgunblaðið - 13.06.2003, Page 18

Morgunblaðið - 13.06.2003, Page 18
ERLENT 18 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ DONALD Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi stjórnvöld í Belgíu mjög harkalega í gær vegna laga þar í landi, sem leyfa málsókn gegn útlending- um, sem sakaðir eru um stríðs- glæpi. Sagði hann, að Bandaríkja- stjórn myndi ekki leggja fram fé til nýrra höfuð- stöðva NATO í landinu fyrr en lögin hefðu verið af- numin. „Þessi lög eru fáránleg,“ sagði Rumsfeld en meðal þeirra, sem hafa verið bornir sökum fyrir belgískum dómstólum, er yfirmaður bandaríska herliðsins í Íraksstríðinu. Belgísku lögin, sem eru frá árinu 1993, leyfa dómstólum að dæma í málum manna, sem sakaðir eru um stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð, án tillits til þjóðernis þeirra eða þess hvar glæpirnir eiga að vera framdir. „Belgíustjórn verður að átta sig á, að þetta getur haft ýmsar afleiðing- ar,“ sagði Rumsfeld við fréttamenn en hann situr nú fund varnarmálaráð- herra NATO-ríkjanna. „Við Banda- ríkjamenn munum taka það til athug- unar hvort við leyfum bandarískum borgurum og hermönnum að koma til Belgíu og þar til úr þessu hefur verið leyst munum við ekki leggja fram meira fé til uppbyggingar nýrra að- alstöðva NATO í Brussel.“ Stefnt er að því að hefjast handa við byggingu nýju aðalstöðvanna fyr- ir lok þessa áratugar. Rumsfeld varar Belgíu- stjórn við Brussel. AFP. Donald Rumsfeld HERMENN úr röðum Sambands föðurlandsvina Kongó (UPC) á ferð um Bunia, höfuðborg Ituri-héraðs í norðausturhluta Lýðveldisins Kongó. Sex ættbálkaherir sem bor- ist hafa á banaspjót í Ituri lýstu því yfir í gær að náðst hefði sam- komulag um að leitast yrði við að halda á ný vopnahlé sem samið var um fyrir þrem mánuðum. Brot á vopnahléssamningnum hefur kost- að mörg hundruð mannslíf. Fulltrúar stríðandi fylkinga Hema- og Lendu-ættbálkanna, sem berjast um yfirráð í Ituri, hittust í fyrradag að tilstuðlan frið- argæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Kongó (MONUC) og samþykktu að hittast aftur til viðræðna eftir hálf- an mánuð, „hafi ekki komið til frekari átaka“, eins og einn fulltrú- anna orðaði það. Fjölþjóðlegt lið á vegum Evrópu- sambandsins og undir forystu Frakka er nú að koma sér fyrir í Bunia til verndar íbúunum. Um 400 voru komnir til borgarinnar í gær, en alls er von á 1.500 mönnum, þ. á m. 900 Frökkum. Fjölþjóðaliðinu er ætlað að vera í Bunia þar til í ágúst, þegar friðargæsluliðar SÞ frá Bangladesh eiga að taka við af því. Tugir þúsunda hafa fallið vegna átaka Hema og Lendu í Ituri síðan 1998. Algjör glundroði hefur ríkt í héraðinu síðan 6.000 manna herlið frá Úganda hvarf á brott þaðan í síðasta mánuði og ættbálkaherirnir hófu að berjast um yfrráðin. Hafa bardagarnir verið harðastir í Bunia. Brottför Úgandamannanna var liður í samkomulagi um enda- lok áralangs borgarastríðs í Kongó. EPA Leitast verði við að virða vopnahléð BANDARÍSK herþyrla var skotin niður í vesturhluta Íraks í gær en tveggja manna áhöfn var bjargað, að sögn talsmanna Bandaríkja- hers. Til átaka kom í fyrrinótt í vesturhluta Íraks en þá gerðu Bandaríkjamenn áhlaup gegn þjálfunarbúðum hryðjuverka- manna um 150 km norðvestur af Bagdad, auk þess sem ráðist var gegn aðilum sem eru sagðir halda fullri tryggð við Baath-flokk Sadd- ams Husseins, fyrrverandi forseta Íraks. Fram kom í yfirlýsingum tals- manna Bandaríkjahers að nokkrir hefðu fallið í átökunum í fyrrinótt. Um fjögur hundruð meintir stuðn- ingsmenn Baath-flokksins voru handteknir í aðgerðum Banda- ríkjamanna en þær koma í kjölfar fjölda árása gegn bandarískum hermönnum í Mið- og Vestur-Írak undanfarnar vikur. Hafa um fjöru- tíu bandarískir hermenn fallið í slíkum árásum síðan 1. maí; en þann dag lýsti George W. Bush Bandaríkjaforseti því yfir að öllum meiri háttar hernaðaraðgerðum væri lokið í Írak. Háttsettir Írakar handteknir Þúsundir bandarískra hermanna tóku þátt í aðgerðunum í fyrrinótt; þeim umfangsmestu frá lokum stríðsins. Mikið magn vopna og skotfæra fannst í aðgerðunum, að sögn Bandaríkjamanna. Nú er búið að handsama þrjátíu af þeim 55 embættismönnum Saddam-stjórnarinnar sem Banda- ríkjamenn lögðu upphaflega mesta áherslu á að handtaka. Tveir voru handsamaðir í fyrrakvöld, Lati Nusayyif al-Jasim al-Dulaymi, fyrrverandi upplýsingamálaráð- herra, og Husayn al-Awadi hers- höfðingi. Sá fyrrnefndi var númer 18 á lista Bandaríkjamanna en al- Awadi númer 53. Bandaríkjamenn réðust til atlögu gegn Baath-liðum Umfangsmestu hernaðarað- gerðir í Írak frá lokum stríðsins Bagdad, Washington. AFP. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (SÞ), varaði öryggisráðið við því í gær að veita bandarískum friðargæsluliðum ítrekað undanþágu frá því að verða sóttir til saka af Alþjóðasakamála- dómstólnum. Annan ávarpaði ráðið áður en at- kvæði voru greidd um framleng- ingu eins árs undanþágu sem Bandaríkin höfðu krafist, og sagði að ráðið græfi undan eigin forræði ef það yrði „árlegur viðburður“ að Bandaríkjamönnum væri veitt þessi undanþága. Framlengingin var samþykkt, en þrjár þjóðir sátu hjá, þ. á m. Frakk- ar og Þjóðverjar. Varar við ítrekuðum undanþágum Sameinuðu þjóðunum. AFP. um málefni leyniþjónustunnar, til- kynnti hins vegar í fyrrakvöld að þingmeirihlutinn hygðist ekki sam- þykkja kröfu demókrata um sér- staka rannsókn á málinu. Ekki tímabært Sagði Roberts að nefnd sín myndi áfram sinna því starfi sínu að fara yf- ir leyniþjónustugögn um þetta til- tekna mál og þeim yrðu gerð góð skil í lokuðum yfirheyrslum sem eiga að hefjast í næstu viku. Sagðist hann ekki ætla að leyfa að nefnd sín yrði notuð í pólitískum tilgangi í aðdrag- síðan ríkisstjórn Saddams Husseins var vikið frá völdum í Írak en enn hafa engin gereyðingarvopn – sem m.a. voru notuð til að réttlæta árás á Írak – fundist í landinu. Hafa nokkr- ir starfsmenn CIA sagt í samtölum við blaðamenn að embættismenn Bush-stjórnarinnar hafi beitt leyni- þjónustuna þrýstingi svo að hún legði fram gögn sem væru til þess fallin að sýna fram á að jafn mikil hætta stafaði af Írak og ráðamenn í Washington héldu fram. Repúblikaninn Pat Roberts, for- maður nefndar öldungadeildarinnar MEIRIHLUTI repúblikana í öld- ungadeild Bandaríkjaþings hefur hafnað kröfum demókrata um að sett verði á laggirnar sérstök nefnd til að rannsaka ásakanir um að bandarískir ráðamenn hafi átt við skýrslur bandarísku leyniþjónust- unnar (CIA) þannig að þær mætti nota til að réttlæta hernaðarárás á Írak. Segja repúblikanar að það eft- irlit með starfsemi leyniþjónustunn- ar sem fastanefndir þingsins hafa með höndum sé fyllilega fullnægj- andi á þessu stigi málsins. Meira en átta vikur eru nú liðnar anda forsetakosninganna haustið 2004. „Hvað varðar þá kröfu að framkvæmd verði opinber rannsókn á vegum þingnefndanna þá er hún afar ótímabær,“ sagði Roberts. Sagði hann að gagnrýni á banda- rísku leyniþjónustuna væri til þess fallin að skapa „sundrungu“ milli leyniþjónustumálanefndar Banda- ríkjaþings og varnarmálaráðuneyt- isins og að áður en nokkur opinber rannsókn yrði ákveðin myndu fasta- nefndir þingsins rannsaka málið og halda vitnaleiðslur. „Þegar nefnd mín telur það tímabært munum við gera opinberar hverjar þær upplýs- ingar [sem fram koma við vitna- leiðslur] sem við teljum þörf á.“ Greint var frá því í gær í dag- blaðinu The Washington Post að CIA hefði látið hjá líða að setja þær upplýsingar í skýrslu, sem unnin var fyrir Hvíta húsið snemma árs 2002, að ásakanir um að Írakar hefðu reynt að kaupa úran frá Afríkuríkinu Níger væru ósannar. Bush tiltók þessar meintu tilraunir Íraka til að kaupa úran [sem notað hefði verið til gerðar kjarnorkusprengju] í stefnu- ræðu sinni seint í janúar í fyrra. Repúblikanar mótfallnir rannsókn Meint gereyðingarvopnabúr Íraka í brennidepli í Bandaríkjunum Washington. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.