Morgunblaðið - 13.06.2003, Page 39

Morgunblaðið - 13.06.2003, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 39 R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu miðborgin 1. 400 fm mjög gott skrifstofuhúsnæði í góðu húsi í miðborginni. Lyfta. 2. 100 fm skrifstofuhúsnæði í Kvosinni nálægt Alþingi. 3. Kópavogur, 230 fm mjög gott verslunar- og þjónustuhúsnæði. Vel staðsett. Malbikuð bílastæði og stór sérlóð. Upplýsingar gefur Karl í síma 892 0160. KENNSLA Orkubrautir og vöðvaáhrif 16., 18., 19. og 20. júní. Upplýsingar í síma 557 5000, 557 9736 og 691 3736. Nuddskólinn í Reykjavík. TIL SÖLU Til sölu — Eskifjörður Ferðamálasjóður auglýsir til sölu Hólsveg 4 (Hótel Öskju) á Eskifirði. Húsið er skráð 331,5 m² gistihús, kjallari og tvær hæðir með veit- ingaaðstöðu, byggt úr timbri 1905. Lóðin er skráð 543 m². Frekari upplýsingar eru veittar hjá Ferðamála- sjóði, Borgartúni 21 í Reykjavík, eða í síma 540 7510. Ferðamálasjóður. TILKYNNINGAR Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi og á aðalskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 18. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að breytingum á deiliskipulagsáætlunum og aðalskipulagi í Reykjavík: Reykjanesbraut/Stekkjarbakki, Smiðjuvegur, mislæg göngutenging (göngubrú). Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Reykjanesbrautar við Mjódd og Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001- 2024. Tillögurnar gera ráð fyrir að í stað þess að göngutenging liggi um gatnamótin verði byggð aðskilin göngubrú yfir Reykjanesbraut, norðan fyrirhugaðra gatnamóta. Breytingin er gerð þar sem hæðarlega tengingarinnar verður betri auk þess sem umferð óvarinna vegfarenda er aðskilin frá bílaumferð. Nánar um tillögurnar vísast til kynningargagna. Nauthólsvík, breyting á deiliskipulagi. Tillaga lýtur að breytingum á deiliskipulagi Nauthólsvíkur. Tillagan gerir m.a., ráð fyrir að afmörkuð verði lóð og byggingarreitur fyrir veitingahús þar sem núverandi veitingahús stendur (Nauthóll). Við það verður hluti af bílastæðum, sem áður voru almenn stæði, hluti af lóð veitingahússins. Þá gerir tillagan ráð fyrir að byggingarreitur fyrir biðskýli verði minnkaður, almenn bílastæði, næst baðhúsi, breytist í stæði fyrir fatlaða og 40 hjólastæði, lóð fyrir bátanaust er skilgreind og skilmálum breytt. Einnig gerir tillagan ráð fyrir að stígar, lagnir og sjóvarnargarður séu færðir inn á skipulagið í samræmi við framkvæmdir auk þess sem byggingarreitur á svæði D, sem áður var fyrir veitingahús, falli niður og breytist á ný í svæði fyrir leikvöll. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Skildinganes, endurskoðað deiliskipulag. Tillaga lýtur að endurskoðun á deiliskipulagi Skildinganess sem afmarkast af Einarsnesi, Skildinganesi, Skeljanesi og útivistarsvæði með strandlengju. Um er að ræða tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir svæðið sem byggir á eldra skipulagi og þeim húsum og byggðamynstri á svæðinu. Tillagan gerir þó ráð fyrir nokkrum breytingum m.a. á skilmálum svæðisins, m.t.t. fenginnar reynslu, en markmið hennar er að gera þá skilmála skýrari. Þá gerir tillagan jafnframt ráð fyrir breytingum á byggingarreitum og skilmálum nokkurra óbyggðra lóða m.t.t. óska, ábendinga og athugasemda þar um. Tillagan gerir ráð fyrir að lokun á milli Skildingatanga og Skeljatanga haldist auk þess sem unnið hefur verið með gönguleiðir á svæðinu svo eitthvað sé nefnt. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting á skilgeiningum miðsvæða M5, M6, M8 og skilgreiningu athafnasvæða. Tillagan lýtur að breytingum á skilgreiningum á miðsvæðum M5, M6, M8 og skilgreiningu athafnasvæða, varðandi heimildir til reksturs matvöruverslana á þessum svæðum. Þá gerir tillagan ráð fyrir leiðréttingu á orðalagi varðandi miðsvæði M8. Varðandi miðsvæði M6 gerir tillagan ráð fyrir að sérstaklega verði kveðið á um bann við rekstri matvöruverslana á M6 svæðinu norðvestan Grafarholts, milli Vesturlandsvegar og Grafarholts. Varðandi miðsvæði M5 gerir tillagan ráð fyrir að óheimilt verði að reka matvöruverslanir á þeim svæðum nema það sé sérstaklega leyft í deiliskipulagi. Til að taka af allan vafa um rekstur matvöruverslana á athafnasvæðum, s.s. á athafnasvæðunum í Hálsahverfi, Hádegismóum, Smálöndum og á Gylfaflöt, gerir tillagan ráð fyrir að tekið verði fram í skilgreiningu um athafnasvæði að óheimilt sé að veita leyfi til rekstar nýrra matvöruverslana á þeim. Þá gerir tillagan ráð fyrir að leiðrétt verði villa í skilgreiningu miðsvæðisins M8. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.15, frá 13. júní 2003 - til 25. júlí 2003. Einnig má sjá tillögur á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 25. júlí 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 13. júní 2003. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ UPPBOÐ Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Laugartún 4, 0101, íb. að norðan, Svalbarðseyri, þingl. eig. Jón Árni Þórðarson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 18. júní 2003 kl. 14.00. Lundargata 17, austurendi, Akureyri, þingl. eig. Bylgja Ruth Aðal- steinsdóttir, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Íslandsbanki hf., Íslandsbanki hf., útibú 565, Landsbanki Íslands hf. og Lífeyrissjóð- ir Bankastræti 7, miðvikudaginn 18. júní 2003 kl. 10.30. Óseyri 16, 01-0103, Akureyri, þingl. eig. Entre ehf., gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Íslandsbanki hf. og Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 18. júní 2003 kl. 11.00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 12. júní 2003. Harpa Ævarrsdóttir, ftr. SMÁAUGLÝSINGAR EINKAMÁL Rómantískur og ábyrgur 26 ára einlægur karlmaður m. góðan húmor óskar eftir að kynnast jákv. og hjartahr. ísl. konu m. vináttu/rómantík/samb. í huga. Er m. doktorsgr., bý í Kaliforníu og óska ekki eftir að ferðast til Íslands. Ég tala ekki ísl. Svör sendist til marty@alt-cmos.com eða Marty, P.O. Box 2279, Sunny- vale, CA 94087, USA. FÉLAGSLÍF Í kvöld kl. 20.00 Bæn og lofgjörð í umsjón Elsabetar og Miriam. Allir hjartanlega velkomnir. Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Kennsla kl. 19:00 með Anitu Björk, kennara á Arken í Svíþjóð en hún fer fyrir handleiðslu nemenda á skólanum og kennir m.a. um lækningu, lausn og persónulegan vöxt. Athugið að á morgun, laugar- dag, kennir hún einnig frá kl. 10:00 til 16:00. Skráning er á skrifstofu Vegarins í síma 564 2355 eða á vegur- inn@vegurinn.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.