Morgunblaðið - 13.06.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þig umlykur dulúð. Þú sýnir
ekki þinn innri mann meðal
ókunnugra heldur setur upp
grímu. Grímuna tekur þú
ekki niður nema í öruggu
umhverfi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sýndu varkárni bæði við
akstur og gang í dag. Þó
nokkur spenna býr innra
með þér og gæti hún orsakað
kæruleysi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Áhyggjur vegna peninga og
annarra eigna eru þarflaus-
ar. Þær eru einungis til
komnar vegna tunglstöðu
morgundagsins.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Eirðarleysi mun hrjá þig í
dag vegna stöðu himintungl-
anna. Ekki örvænta, þetta er
fullkomlega eðlilegt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Farðu þér hægt í dag því þú
gætir auðveldlega gert mis-
tök. Ef mistök eiga sér stað
orsakast þau af fljótfærni
eða kæruleysi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þrátt fyrir leiðtogahæfileika
þína gæti reynst auðveldara
að fylgja því sem vinir leggja
til heldur en að miðla málum.
Stundum verða aðrir að fá að
ráða för.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú skalt varast að gefa yf-
irmönnum þínum góð ráð í
dag. Tillögur þínar eru að
öllum líkindum ekki góðar og
gætu valdið vandræðum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú segir nokkuð í dag.
Samræður gætu farið út um
þúfur vegna þess að einhver
móðgast vegna orða þinna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Peningar valda þér hugar-
angri. Mundu, það skiptir
ekki máli hversu mikið þú
þénar heldur hversu mikið
þú sparar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ef þú átt þess kost að fá lík-
amlega útrás skaltu gera
það. Það væri æskilegt vegna
þeirrar spennu sem í þér
býr.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hunsaðu óöryggi og hættu
að efast um sjálfa(n) þig.
Þessar tilfinningar eiga ekki
rétt á sér.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Forðastu að bregðast við
gagnrýni vinar í dag. Án
nokkurs vafa er hún ekki
komin til af illu. Ef hún er
sprottin af illu þarftu ekki á
þessum vin að halda!
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einhver vill gefa þér upp-
byggjandi ráð í dag. Að sjálf-
sögðu finnst þér þetta þarf-
laust með öllu. Hafðu það þó
hugfast að þetta er vel
meint.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SUMARKVEÐJA
Sjá! nú er liðin sumartíð,
hverrar ljómi
blíðu blómi
hruman áður hressti lýð.
Nú sjáum vér hve fastan fót
allt það hefur
gæfan gefur.
Gráts eru hér og gleði mót.
Óðfluga á tímans vagni vær
öllum stundum
áfram skundum;
enginn honum aftrað fær.
Þannig smám saman líður leið,
sem bát siglandi
ber að landi
bára hver, sem yfir skreið.
– – –
Jón Þorláksson
LJÓÐABROT
50 ÁRA afmæli. Þriðju-daginn 10. júní sl.
varð fimmtug Ingibjörg
Guðrún Magnúsdóttir, Hóf-
gerði 16, Kópavogi. Í dag,
föstudaginn 13. júní, taka
hún og eiginmaður hennar,
Einar Pétursson, á móti
gestum í sal íþróttahússins í
Smáranum kl. 20:30.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 13. júní,
er fimmtugur Árni
Kjartansson, vélfræðingur.
Hann býður vinum og
vandamönnum í afmæl-
iskaffi á heimili sínu, Lyng-
brekku 13, Kópavogi, á
morgun, laugardaginn 14.
júní, frá kl. 15.30.
TÍUR eru ekki mannspil og
njóta ekki þeirra mannrétt-
inda að vera taldar til punkta.
Stundum væri þó full þörf á
því, því tíur geta bætt mögu-
leika sagnhafa verulega, eink-
um ef þær eru í slagtogi með
hinum mennska hluta stokks-
ins.
Norður
♠ ÁKD74
♥ ÁKD82
♦ 3
♣65
Suður
♠ 65
♥ 73
♦ ÁD864
♣ÁD83
Suður spilar hér sex grönd
og fær út spaða. Slemman er
frekar slöpp, en tíur tvær í há-
litunum myndu snarauka
vinningslíkurnar. En því er
ekki að heilsa hér. Sagnhafi
byrjar á því að taka þrjá efstu
í spaða og nú skulum við velta
framhaldinu fyrir okkur eftir
því hvernig spaðinn liggur: (a)
Hvernig á að spila ef austur
reynist eiga fjórlit í spaða? (b)
Ef spaðinn fellur 3–3?
(a) Ef austur á fjóra spaða
verður að treysta á hjartað
3–3. Besta framhaldið er að
gefa austri fjórða slaginn á
spaða og reyna síðan að giska
á réttu svíninguna í láglit-
unum. Sú ágiskun byggist að
nokkru á sálfræði. Hverju
henti vestur í þriðja spaðann?
Ef hann hefur kallað í öðrum
láglitnum er sennilega best að
trúa því, en auðvitað ber að
taka tillit til þess hvers konar
spilari vestur er.
(b) Spaðinn fellur. Þá er
skynsamlegast að taka strax
fríslagina tvo í spaða og reyna
að rýna í afköstin. Svína síðan
í öðrum láglitnum. Ef svín-
ingin heppnast er hjarta næst
dúkkað og þá er nóg að lit-
urinn falli 4–2. Misheppnist
svíningin hins vegar verður
hjartað að koma 3–3.
Norður
♠ ÁKD74
♥ ÁKD82
♦ 3
♣65
Vestur Austur
♠ 32 ♠ G1098
♥ G94 ♥ 1065
♦ KG72 ♦ 1095
♣9742 ♣KG10
Suður
♠ 65
♥ 73
♦ ÁD864
♣ÁD83
Svona var allt spilið og vest-
ur gat ekki stillt sig um að
kalla í tígli í þriðja slag. Aust-
ur spilaði tígli þegar hann
komst inn á fjórða spaðann, en
sagnhafi ákvað að treysta kalli
vesturs og fór upp með ásinn
og svínaði síðan laufdrottn-
ingu. Tólf slagir.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Þessar stúlkur héldu tombólu á Húsavík, til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðust 8.147 kr. Þær eru f.v. Jóney
Ósk Sigurjónsdóttir, Þóra Kristín Sigurðardóttir, Heiðdís
Hafþórsdóttir og Helga Sigurbjörnsdóttir.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
40 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 13. júní,
er fertug Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, Mýrum 4,
Patreksfirði. Eiginmaður
hennar er Jón B.G. Jónsson,
yfirlæknir Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Patreksfirði.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
g3 Bf5 5. Rc3 e6 6. Bg2 Be7
7. 0-0 Rbd7 8. b3 Re4 9.
Rxe4 Bxe4 10. Bf4 0-0 11.
He1 h6 12. Bf1 c5 13. cxd5
exd5 14. dxc5 Bxc5 15. Rd2
Bh7 16. Bh3 g5 17. Bxd7
Dxd7 18. Be5 Hfe8 19. Bb2
d4 20. Hc1 b6 21. a3 a5 22.
Rf3 Had8 23. Dd2 g4
24. b4 gxf3 25. bxc5 –
Staðan kom upp á
Stigamóti Tafl-
félagsins Hellis sem
lauk fyrir skömmu.
Andri Áss Grét-
arsson (2.315) hafði
svart gegn Kristjáni
Eðvarðssyni (2.238).
25. – Hxe2! 26. Hxe2
Dh3 og hvítur gafst
upp enda óverjandi
mát. Það kom móts-
höldurum á óvart að
mótið verði reiknað
fyrir næsta stigalista
FIDE, 1. júlí nk. Fyrir
Björn Þorfinnsson eru þetta
afbragðstíðindi þar sem
hann hækkaði hvorki meira
né minna en um 33 stig á
mótinu. Skákþing Hafn-
arfjarðar hefst í kvöld, 13.
júní, kl. 19.30 en það mun
fara fram í félagsheimili
Skákdeildar Hauka að Ás-
völlum í Hafnarfirði. Öllum
er velkomið að taka þátt í
mótinu en því lýkur 15. júní.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
ÁRNAÐ HEILLA
www.fotur.net
Ríkharður Jósafatsson
Austurlensk læknisfræði
Nálastungur og nuddfræði
Fellsmúla 24
108 Reykjavík
553 0073
GSM: 863 0180
nalastungur@simnet.is
Skólavörðustíg 8
10% kynningarafsláttur
af Lapponia skart - maí og júní
BJARNI JÓNSSON
listmálari
hefur opnað sína árlegu sýningu
í Eden Hveragerði.
Sýningunni lýkur 15. júní.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396.
REYKJAVÍK - SELTJARNARNES
Mér hefur verið falið að leita eftir húsnæði
miðsvæðis í Reykjavík eða á Seltjarnarnesi.
Æskilegt er að eignin sé með fjórum
svefnherbergjum, og bílskúr. Verðhugmynd
25 millj. Kaupendur eru tilbúnir að veita
ríflegan afhendingartíma sé þess óskað.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband
og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
Hafðu samband - það kostar ekkert!
4. flokkur 1992: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
12.734.052 kr.
2.546.810 kr.
254.681 kr.
25.468 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
9.953.995 kr.
1.990.799 kr.
199.080 kr.
19.908 kr.
2. flokkur 1995: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
9.542.920 kr.
1.908.584 kr.
190.858 kr.
19.086 kr.
1. og 2. flokkur 1998: Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
1.609.727 kr.
160.973 kr.
16.097 kr.
Innlausnardagur 15. júní 2003
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Rafrænt: 1: 1,60972672
1. og 2. flokkur 2001: Rafrænt: 1: 1,24033365