Morgunblaðið - 13.06.2003, Side 47

Morgunblaðið - 13.06.2003, Side 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 47 Skráning í golfskála, sími 482 3380 Múrarameistarafélag Reykjavíkur Ræst út frá kl. 9.00. 1., 2. og 3. verðlaun í öllum flokkum unglinga, kvenna og karla. Golfklúbbur Öndverðarness Þjóðhátíðarmótið laugardaginn 14. júní Golfklúbbur Grindavíkur Verðlaun eru eftirfarandi: 1. vinningur 40 þús. kr. ferðavinningur á parið 2. vinningur 20 þús. kr. úttekt í Golfbúðinni Strandgötu á parið 3. vinningur 15 þús. kr. úttekt í Golfbúðinni Strandgötu á parið 4. vinningur 10 þús. kr. úttekt í Golfbúðinni Strandgötu á parið Nándarverðlaun: 1./14. holu eftir 2. högg: 2 x 5 þús. gjafabréf frá Golfbúðinni Strandgötu 13. holu: 2 x 5 þús. gjafabréf frá Golfbúðinni Strandgötu Skráning fer fram á golf.is fram að miðnætti á laugardag og eftir það í símum 895 9997 (Hávarður) og 660 7303 (Kjartan). Hámarksforgjöf karla er 24 og kvenna 28. Mótsgjald er 4 þús. kr. á parið. Texas Scramble. tekin heildar spilaforgjöf og deilt í með 5 Fiskimjöl og Lýsi/Samherji hjóna- og parakeppni sunnudaginn 15. júní Rástímar eru frá 8.00-10.00 og 13.00-15.00. klukkunni til baka. Hans tími með landsliðið er liðinn. Það eru nýir menn sem hafa verið ráðnir til að stjórna landsliðinu og stjórn KSÍ hefur tilkynnt að hún hafi hug á að breyta til og ráða erlendan þjálfara. Atvinnuum- sókn Guðjóns er tímaskekkja. Svipuð tímaskekkja og átti sér stað á Akranesi þegar George Kirby var endurráðinn til að endurtaka gömul afrek, sem ekki tókst – og sama gerðist hjá Víkingi, þegar Rússinn og goð- sögnin Júrí Sedov var endurráð- inn til sömu verkefna. Honum mistókst einnig. Meira að segja Ásgeir Elíasson náði ekki að koma Fram á fyrri stall, þegar hann tók á ný við Framliðinu eft- ir að hann hætti sem landsliðs- þjálfari. Svona mætti lengi telja. Menn verða að sætta sig við það – það er alltaf erfitt að snúa klukkunni til baka. Sigmundur Ó. Steinarsson  ARSENAL hefur boðið Leeds fjórar millj. sterlingspunda fyrir ástralska sóknarleikmanninn Harry Kewell og auk þess á Leeds að fá Jermaine Pennant, sem metinn er á 2,5 millj. punda. Líklegt er að Leeds taki boðinu, þar sem framtíð Kewell á Elland Road er óljós. Pennant, sem er 21 árs, hefur ekki náð að fóta sig vel fyrir utan knattspyrnuvöllinn, sem innan hans.  NORÐUR-Írska landsliðið í knatt- spyrnu hefur nú leikið 972 mínútur án þess að hafa gert mark og hafa því enn ekki skorað í undankeppni Evr- ópumóts landsliða.  FORRÁÐAMENN knattspyrnu- sambands Evrópu íhuga nú að láta enga áhorfendur vera til staðar þeg- ar Tyrkir og Englendingar leika í Istanbúl í undankeppni Evrópumóts landsliða í knattspyrnu. Tyrkir léku gegn Makedóníu sl. miðvikudag í Istanbúl þar sem heimamenn unnu leikinn, 3:2. UEFA hefur sett af stað rannsókn þar sem leikmaður Make- dóníu, Saso Lazarevski, fékk hlut í höfuðið sem kastað var í hann frá áhorfendasvæði vallarins. Þetta var ekki í fyrsta sinn í leiknum sem hlut- um var kastað inn á völlinn í leikn- um.  UEFA hefur gefið það í skyn að ekki verði teflt á tæpasta vað hvað varðar öryggi leikmanna og verði það ekki tryggt fái áhorfendur hrein- lega ekki að horfa á leikinn. Enska knattspyrnusambandið hefur nú þegar tekið ákvörðun um að bjóða stuðningsmönnum sínum ekki uppá miða á áðurnefndan leik sem fram fer þann 11. október á þessu ári. Aganefnd UEFA kemur saman þann 3. júlí nk. og mun ákveða næstu skref í málinu. FÓLK SVEINN Margeirsson, langhlaup- ari úr UMSS, bætti í gærkvöld 22 ára gamalt Íslandsmet Jóns Dið- rikssonar, UMSB, í 3.000 m hindrunarhlaupi þegar hann hljóp á 8.46,20 mín., á móti í Borås Svíþjóð. Fyrra metið sem Jón átti var 8.49,56 og sett í Remscheid í Þýskalandi 28. júní 1981. Sveinn kom fyrstur í mark í hlaupinu í gærkvöld og fékk litla keppni síð- asta kílómetrann Fyrir utan met Sveins í 2.000 m hindrunarhlaupi á síðasta ári þá er þetta fyrsta met hans í hinum hefðbundnu keppnisgreinum á frjáls- íþróttamótum, en Sveinn hefur lengi rennt hýru auga til metsins sem féll í gær. Þess má geta að Jón Diðriksson á enn sex Íslandsmet og er það elsta frá árinu 1980, í 1.000 metra hlaupi, en hann á einnig Íslandsmetin í 1.500 m, 1 mílu, 2.000 m, 3.000 m og 5.000 m hlaupi. Morgunblaðið/Hasse Sjögren Sveinn bætti 22 ára gam- alt met Keppt var í 15 greinum og vorukeppendur um 70 víðsvegar að en eitthvað bar á þreytu hjá sumum enda nýkomnir af Smáþjóðaleikunum. Þeir sömu hristu það af sér til að gera sitt allra besta á þessu minningarmóti um Hauk, sem setti Norðurlandamet í Svíþjóð 1950, þar sem hann hljóp 200 metrana á 21,13 sekúndum og stóð það met í mörg ár. Bjarni Þór þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum í 200 metra hlaupinu því fast á hæla hans kom Sigurkarl Gústavsson úr UMSB og Blikinn Andri Karlsson. „Við erum nýkomin frá Möltu og hálfgerð ferðaþreyta í okkur svo að ég er sáttur við að vinna auk þess sem þetta var úrslitahlaup fyrir Evrópumótið um aðra helgi. Það var samt best að vinna minning- arhlaup um Hauk. Maður kemur þegar slíkt er í húfi og þetta er sér- stakt mót enda þeir bræður Örn og Haukur frábærir afreksmenn, mað- ur lítur til þeirra tíma sem tíma glæsilegra afreka,“ sagði Bjarni og bætti stoltur við að hann hefði áður náð sama tíma og Haukur í 200 metr- unum. Sigur Sunnu var nokkuð öruggur. „Ég er enn hálfþreytt en vildi samt vera með til að heiðra minningu Hauks,“ sagði hún eftir sigurinn í 200 metra hlaupinu. „Það var ekki mikil keppni, helst að komast í mark því þessi mótvindur sem skall á skyndi- lega setti strik í reikninginn. Það var ágætt að keppa í einni grein og kom- ast í gang en framundan er Evrópu- mót í Danmörku eftir tíu daga. Ég þarf að ná upp sprengikrafti fyrir það því ég er að taka hæg og stór skref upp úr startblokkunum, ef það gengur upp er ég til í hvað sem er.“ Í spjótkasti kvenna var hörð bar- átta og þrjár gerðu tilkall til gullsins. Íslandsmethafinn Vigdís Guðjóns- dóttir úr HSK kastaði í þriðja kasti 48,60 metra en fékk harða keppni frá Ásdísi Hjálmsdóttur úr Ármanni og Sigrúnu Fjeldsted Sveinsdóttur úr FH. Þær köstuðu báðar yfir 46 metra í síðasta kasti en það dugði ekki til. „Áður fyrr keppti ég meira við sjálfa mig en nú er meira tauga- stríð svo að þetta er ágætis vítamín- sprauta,“ sagði Vigdís eftir keppn- ina. „Það er skemmtilegt en þó ekki, að vísu meira gaman og spenna en best þó þegar maður er búinn að vinna. Nú er stefnan sett á Evrópu- bikarkeppni landsliða í Danmörku og þessi árangur á að duga til þess.“ Dætur Hauks afhentu verðlaun fyrir 200 metra hlaupin og var vel fagnað. „Okkur er mikill heiður sýndur með að halda minningarmót um föður okkar, ég veit að hann er með okkur hér og mjög stoltur,“ sagði Ragnheiður Elín að lokinni verðlaunaafhendingu. „Við erum ald- ar upp við íþróttina og sá tími sveip- aður dýrðarljóma og ég er að ljúka við úrklippubók um hann.“ Sunna og Bjarni unnu Minningarhlaupið MIKIÐ var á sig lagt í Laugardalnum í gær þegar fram fór miðnæt- urmót ÍR í frjálsum íþróttum, mest þó í 200 metra hlaupi sem jafn- framt var minningarhlaup um Hauk Clausen, einn mesta afreks- mann ÍR, sem lést í síðastliðnum mánuði á 75. aldursári. Þá spretti unnu Sunna Gestsdóttir UMSS á 24,99 og Bjarni Þór Traustason úr FH á 22,94 og fengu að launum bikar til minningar, sem afhentur var af dætrum Hauks, Þórunni Ernu og Ragnheiði Elínu Clausen. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Dætur Hauks Clausen, Þórunn Erna og Ragnheiður Elín, af- hentu Sunnu Gestsdóttur, UMSS, og Bjarna Þór Traustasyni, FH, sigurverðlaunin á Laugardalsvellinum. Stefán Stefánsson skrifar NÍNA K. Björnsdóttir handknatt- leikskona, sem lék með Haukum á nýafstöðnu leiktímabili, hefur ákveðið að ganga til liðs við Ís- landsmeistara ÍBV. Aðalsteinn Eyj- ólfsson, nýráðinn þjálfari ÍBV, stað- festi þetta í samtali við Morgun- blaðið. Aðalsteinn sagði það mikinn feng að fá Nínu til Eyjaliðsins, því Nína hefur á undanförnum árum verið ein albesta skyttan í kvenna- handknattleiknum. Nína til Eyja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.