Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 13.06.2003, Qupperneq 49
KVIKMYNDIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 49 Andardráttur (Respiro) Mynd sem er sterk, falleg, tilgerðarlaus og nánast lifir eigin lífi, eins og hefðin er þegar best tekst til í evrópskri kvikmyndagerð. (H.L.) Háskólabíó. Nói Albínói Frumleg og vel gerð mynd í alla staði sem ger- ist í einangruðu sjávarþorpi þar sem óvenju- legur uppreisnarmaður á í stríði við menn og máttarvöld. Magnað byrjendaverk. (S.V.) Háskólabíó. X2 Frábærar tæknibrellur, ásættanlegur sögu- þráður miðað við hasarblaðamyndir, ásamt góðum leikurum og ábúðarmiklum persónum, gera mynd Singers að afbragðsafþreyingu. (S.V.) Smárabíó. Einkenni (Identity) Unnið er skemmtilega með hrollvekjuhefðina í þessari snjöllu kvikmynd með þeim John Cus- ack, Ray Liotta og Amöndu Peet í aðahlut- verkum. Ómissandi fyrir aðdáendur spennu- trylla og frumlegra söguflétta. (H.J.)  Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó Akureyri. Eiturlyfjalögga (Narc) Ein hrottalegasta mynd síðari ára dregur upp trúverðuga mynd af því jarðneska víti sem blasir við lögreglumönnum og þeirra nánustu á hverjum degi. Ray Liotta fer á kostum. (S.V.)  Smárabíó. Abrafax og sjóræningjarnir Krakkarnir í Abrafax lenda í rosalegum æv- intýrum. (H.L.) ½ Laugarásbíó. Að hrekja burt gæja á 10 dög- um (How to Lose a Guy in 10 Days) Hugmyndin að þessari rómantísku gaman- mynd er sniðug en langsótt. Bráðskemmtileg á köflum en lendir í vandræðum í lokin. (H.J.)  Sambíóin. Didda og dauði kötturinn Didda er níu ára gömul Keflavíkurmær sem gengur á milli bols og höfuðs á glæpalýð í Bítlabænum. Góður leikur, hollt, gott og gam- aldags barnagaman. (S.V.)  Sambíóin. Af gamla skólanum (Old School) Gamanmynd sem byrjar í skemmtilega kald- hæðnislegum tóni, en hneigist um of til staðl- aðra aulabrandara. (H.J.) Regnboginn. Allt að verða vitlaust (Bringing Down the House) Klaufaleg gamanmynd þar sem tilraunir til að stefna saman ólíkum menningarheimum reyn- ast innantómar. Leikararnir Steve Martin, Queen Latifah og Eugene Levy standa sig þó vel. (H.J.) Sambíóin. Kengúru-Kalli (Kangaroo Jack) Eins brandara, fjölskylduvæn Bruckheimer- mynd um þjófótta kengúru og tvo hrakfalla- bálka. Fyrir smáfólkið. (S.V.) Sambíóin. Jói enski (Johnny English) Atkinson skemmtilegur að vanda í Clouseau- stellingum í Bond-gríni sem skortir lokafín- pússningu. (S.V.) Sambíóin, Háskólabíó. Kalli á þakinu Ágætis smábarnamynd gerð eftir sögu Astrid Lindgren, um skemmtilegan karl sem kann að fljúga. Handbragðið er ágætt en myndin er ekki jafngóð og bækurnar. (H.L.) Laugarásbíó. Matrix endurhlaðið (The Matrix Reloaded) Á heildina litið er Matrix endurhlaðið langt frá því að vera jafn heilsteypt, öguð og hugvekj- andi og forverinn. (H.J.)  Sambíóin, Rafeind á Egilsstöðum og Bíóhöllin á Akranesi. Reiðistjórnun (Anger Management) Sandler kominn í gamla góða formið. Gamli góði Nicholson hinsvegar víðsfjarri í hugmyn- dasnauðri en ágætis dægrastyttingu.(H.L.) Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó, Borgarbíó. Svikahrappar (Confidence) Vel mönnuð mynd um glúrna svikahrappa. Tómir stælar og innantómt blaður í þokka- legum búningi. (S.V.) Laugarásbíó. Töfrabúðingurinn Byggð á gömlu áströlsku ævintýri, ekkert stór- kostlegt listverk, hún er lítil og bara ansi lífleg og hjartnæm teiknimynd. (H.L.)  Smárabíó, Borgarbíó. Myrkravík (Darkness Falls) Hrollvekja sem nærist á öllum gömlu tugg- unum og notar þær á heimskulegan og úrsér- genginn máta. Einkar slöpp tilraun til hryllings- myndagerðar. (H.J.)  Smárabíó, Regnboginn. Respiro: Evrópsk mynd eins og þær gerast bestar. BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn FRANKIE Muniz hefur heldur bet- ur slegið í gegn sem Malcolm í miðj- unni, og nú er hann mættur sem spæjari, litlu síðri en sjálfur James Bond. Eða hvað? Fjölskylda Cody Banks sér hann sem ósköp venjulegan ungling sem finnst gaman á bretti, hatar stærð- fræði og er skíthræddur við stelpur. En Cody á sér leyndarmál, og það er að hann er í þjálfun hjá leyni- þjónustu Bandaríkjanna og getur margt sem aðra unglinga dreymir um. Hann kann að keyra einsog brjálæðingur og á helling af vopnum og spæjaragræjum. En er Cody nógu vel þjálfaður? Þegar hann þarf að fara að reyna við skólasystur sína til þess að komast að föður hennar sem er hættulegur vísindamaður lendir hann í vandræðum. Óljóst er hvort Cody getur lokið erindinu því að hann kann ekki að reyna við stelpur. Spæjari í stelpu- klípu Þessi er nú svolítið sæt … Regnboginn, Smárabíó og Laugarásbíó kynna kvikmyndina Unga spæjarann (Agent Cody Banks). Leikstjórn: Har- ald Zwart. Aðalhlutverk: Frankie Muniz, Hilary Duff, Angie Harmon, Keith David, Cynthia Stevenson og Arnold Vosloo.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.