Morgunblaðið - 13.06.2003, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 53
ÁLFABAKKI
Kl. 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Kl. 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12
AKUREYRI
Kl. 10. Bi. 12
KEFLAVÍK
Kl. 10. Bi. 12
ÁLFABAKKI
Kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12
ÞESSI FRÁBÆRA GRÍNMYND ER FRÁ FRAMLEIÐANDAN-
UM JERRY BRUCKHEIMER SEM HEFUR GERT SMELL-
INA ARMAGEDDON, PEARL HARBOR, THE ROCK OG
CONAIR. KANGAROO JACK KEMUR ÞÉR Í SVAKA STUÐ!
Bein
t
á to
ppin
n
í US
A!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Bi. 12
POWERSÝNINGKL. 10.15 og 12.30.Í SAMBÍÓUNUMÁLFABAKKA
. .
. .Í Í
FRUMSÝNING
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50, 8, 10.15 OG 12.30.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12 . Bi. 12
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 9.05, 10.15,11.20 og 12.30. Bi. 12
Svalasta mynd
sumarsins er
komin.
KVIKMYNDIR.COM KVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi með
óborganlega bardaga“
3 vik
ur
á to
ppnu
m
á Ísla
ndi
Toppmyndin
sem rústaði
samkeppninni í
Bandaríkjunum
síðustu helgi
KVIKMYNDIR.IS
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6.
TROMMULEIKARINN Rod Mor-
genstein verður með sólótónleika í
sal FÍH við Rauðagerði á laug-
ardaginn. Morgenstein er þekktur
sem trommuleikari í hjómsveit-
unum Dixie Dregs, Steve Morse
Band og Winger, sem spilaði tónlist
í anda Bon Jovi og Poison á níunda
áratugnum. Dixie Dregs, sem stofn-
uð var árið 1975, naut nokkurra
vinsælda og hlaut alls sex Grammy-
tilnefningar fyrir hljóðfæraleik árs-
ins í rokkinu (Best Rock Instrumen-
tal Performance). Hljómsveitin var
þekkt fyrir að spila tónlist, sem var
blanda af rokki, djassi og þjóðlaga-
tónlist. Hljómsveitin Winger náði
talsverðum vinsældum með sam-
nefndri plötu sem kom út árið 1988.
Platan seldist í tveimur milljónum
eintaka um heim allan en á árunum
1986 til 1990 hlaut Morgenstein
fjölda verðlauna fyrir trommuleik
sinn hjá Modern Drummer Magaz-
ine og reyndar aftur árið 1999.
Hann hefur ennfremur komið
fram með tónlistarmönnum á borð
við John Myung (Dream Theater),
Ty Tabor (King’s X), Derek Sherin-
ian (Planet X), Alphonso Johnson,
Pat Metheny og Jaco Pastorius.
Morgenstein hefur spilað um
heim allan með hljómsveitum og
sem sólólistamaður en Ísland er síð-
asti áfangi hans í vel heppnaðri tón-
leikaför um Evrópu.
Rod Morgenstein með sólótónleika í sal FÍH
Þekktur trommuleikari til landsins
Tónleikar með Rod Morgenstein í sal
FÍH við Rauðagerði laugardaginn
14. júní kl. 16.
TENGLAR
.....................................................
www.rodmorgenstein.com
ÓVENJULAGLEGIR bílar voru á
sveimi í nágrenni blaðsins í gær, en
þar voru á ferð félagar úr bílaáhuga-
mannafélaginu Live2Cruise og Sport-
bílaklúbbi Íslands.
Tilefnið var frumsýning myndar-
innar Of fljót, of fífldjörf (2 Fast 2
Furious) sem frumsýnd er í kvik-
myndahúsum í kvöld.
„Við erum hér með sviplíka bíla og
notaðir eru í myndinni. Við tókum
upp á svipuðu samstarfi við bíla-
áhugamenn þegar fyrri myndin, Hin
fljótu og fífldjörfu (The Fast and the
Furious) var frumsýnd fyrir tveimur
árum og finnst gaman að vera með
svona þemauppákomur í kringum
myndirnar okkar,“ segir Christof
Wehmeier hjá Samfilm og bætir við
að til dæmis hafi fjöldi fólks fengist til
að mæta í bíó í svörtu þegar myndin
Menn í svörtu (Men in Black) var
frumsýnd á sínum tíma. Meðal þess
sem gert verður í kringum frumsýn-
ingu myndarinnar nú verður gleð-
skapur á skemmtistaðnum Astró en
miðar á sýningu myndarinnar kl. 8 í
kvöld gilda líka sem aðgöngumiðar
þar, þó háð 20 ára aldurstakmarki.
Hópurinn mun í dag þeysa norður
til Akureyrar þar sem fyrir dyrum
stendur heljarinnar bílaþing þar sem
meðal annars verður bílasýning,
götuspyrna og „almennur rúntur og
partý og stemning“, eins og Tómas
hjá Sportbílaklúbbnum orðar það.
Um bílana sem sjá má á meðfylgj-
andi mynd segir Tómas að þeir séu
allir „tjúnaðir“ japanskir bílar, þó
mismikið hafi verið lagt í þá: „Mikil
vinna og miklir peningar hafa farið í
hvern bíl. Maður lifir hálfpartinn
þessum „fljóta og fífldjarfa“-lífsstíl að
því marki að mánaðarlaunin fara að
mestu í bílinn. Páll hjá Live2cruise
segir sinn hóp rúmlega tveggja ára
gamlan. „Við hittumst og reynum að
þjappa saman bílaáhugafólki á Íslandi
og hafa meira gaman af þessu.“ Páll
virðist nokkuð spenntur fyrir mynd-
inni en segist ekki kannast við að bíla-
menningin á Íslandi sé svipuð því sem
þar er sýnt: „Þetta er kannski aðeins
ýkt í myndinni.“
„Kannski aðeins
ýkt í myndinni“
Stoltir eigendur glæsikerranna, fljótir en vonandi ekki of fífldjarfir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Bílalestin er merkt myndinni nýju í
bak og fyrir.
Live2cruise og Sportbílaklúbbur Íslands setja sig í stellingar fyrir Of fljót, of fífldjörf