Morgunblaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2003 11 YFIRSTJÓRNENDUR íslenskra fyrirtækja fá í fyrsta sinn tækifæri til að sækja svokallað AMP-námskeið hérlendis í október. AMP stendur fyrir Advanced Management Pro- gram og eru námskeiðin ætluð reynslumikl- um stjórnendum. Anna Margrét Marinósdótt- ir, verkefnastjóri hjá Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík, hefur undanfarna mánuði staðið í ströngu við að skipuleggja námskeiðið. „Þessi námskeið eru haldin um allan heim og eru miðuð við yfirstjórnendur með langa reynslu að baki. Þarna geta stór- laxarnir í fyrirtækjunum komið saman og rætt málin undir handleiðslu færustu sér- fræðinga.“ Námskeiðið verður haldið í fjórum tveggja daga lotum og lýkur í maí 2004. Stjórn- endaskólinn hefur fengið fjóra prófessora frá virtum háskólum sem allir hafa mikla reynslu af AMP-námskeiðum. Fyrstu lotuna kennir Joe Pons sem sérhæfir sig í markaðsmálum, en hann hefur kennt við IESE Business School í Barcelona. Luis M. Huete sérhæfir sig í þjónustustjórnun og viðskiptavina- tengslum og kennir bæði við Harvard og IESE. Fjármálalotan verður á hendi James C. Ellert sem kennir m.a. við IMD í Sviss og University of Chicago. Síðustu lotu nám- skeiðsins er stýrt af Karel Cool frá Insead- háskólanum í Frakklandi en hann mun leið- beina stjórnendum um stefnumótun og hvern- ig hægt er að auka samkeppnishæfni og frammistöðu í starfi. Íslenskur veruleiki ræddur „Stjórnendaskóli HR er búinn að fá til liðs við sig virta og þekkta kennara utan úr heimi, enda lögðum við áherslu á að ná bestu kenn- urunum frá þekktustu viðskiptaskólunum. Við þekkjum dæmi um að íslenskir stjórnendur hafa farið á sambærileg námskeið erlendis, en það er bæði dýrt og tímafrekt. Við lítum svo á að við séum að veita þeim tækifæri á að ræða sín á milli um þau viðfangsefni sem þeir kljást við í starfi,“ segir Anna Margrét. Hún segir að námskeiðið verði að miklum hluta byggt upp á umræðuverkefnum (e. case studies). Hópnum, eða bekknum, á að skipta upp í minni hópa sem ræða tiltekin viðfangs- efni og vandamál sín á milli. „Þarna er verið að skiptast á skoðunum og menn fá tækifæri til að hlusta á sjónarmið annarra, vega þau og meta. Eftir að hópurinn hefur lokið um- ræðum er farið inn í bekk þar sem leiðbein- andinn stýrir umræðum.“ Þátttakendafjöldi á námskeiðinu verður Stjórnendur á skólabekk Morgunblaðið/Golli „Það er nauðsynlegt fyrir stjórnendur að koma saman og skiptast á skoðunum,“ segir Anna Margrét Marinósdóttir. Alþjóðlegt námskeið fyrir íslenska yfirstjórnendur verð- ur í fyrsta sinn haldið á Íslandi í haust. Færustu sérfræð- ingar á sviði stjórnunar ætla að hjálpa stjórnendum að auka samkeppnishæfni sína og fyrirtækja sinna. takmarkaður og inntökuskilyrði verða ströng, að sögn Önnu Margrétar. „Það verða vissu- lega einhverjir fyrirlestrar en aðaláherslan verður á verkefnin og umræðu um þau. Nám- skeiðið snýst um stjórnun og ákvarðanatöku, ekki um að ljóstra upp viðskiptaleyndarmál- um. Stjórnendur verða að ná að tileinka sér nýjan hugsanahátt til að tryggja samkeppn- isstöðu fyrirtækja sinna. Á svona námskeið- um koma saman stjórnendur með ólíkan bak- grunn og af ýmsum sviðum viðskiptalífsins, en allir þurfa að fást við svipuð vandamál tengd stefnumörkun og framtíðarsýn fyrir- tækja. Reynslan er auðvitað mikill skóli en með svona námskeiði fá þeir nýja sýn á vandamálin. Þeim er nauðsynlegt að geta rætt við aðra í sömu stöðu,“ segir Anna Mar- grét. Millistjórnendur mennta sig frekar Að sögn Önnu Margrétar eru millistjórn- endur í íslenskum fyrirtækjum miklu dug- legri að sækja sér viðbótarmenntun en yf- irstjórnendur. „Sumir yfirstjórnendur eru að vakna upp við þann vonda draum að þeir eiga á hættu að sitja eftir. Millistjórnendur fást meira við vandamál sem koma upp frá degi til dags. Yfirstjórnendur þurfa að horfa lengra fram í tímann,“ segir Anna Margrét. Í október munu íslenskir stjórnendur í fyrsta sinn geta sótt námskeið af þessu tagi án þess að yfirgefa landið. Anna Margrét vonar að þetta verði þó ekki í síðasta sinn. „Leiðbeinendurnir eru margir hverjir búnir að kenna á svona námskeiðum í áratugi. Það er einstakt tækifæri að fá svo reynslumikla menn hingað til lands,“ segir Anna Margrét.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.