Morgunblaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 26
Morgunblaðið/Arnaldur Listasafn Einars Jónssonar, Hnitbjörg, hlaut styrk Hörpu Sjafnar í ár til málunar í safninu. T ILVERAN breytir um lit á sumrin, um það erum við öll sammála, einkum þeg- ar sólin skín. Það er þó misjafnt hversu djúptæk þessi lit- breyting er, málningin á mannvirkj- um umhverfisins er einn af þeim þáttum sem á ríkan þátt í þessari umbreytingu. Fyrirtækið Harpa Sjöfn hefur þó unnið merkilegt starf fyrir okkur hin í þessum efnum. Ár- lega veitir fyrirtækið hinum ýmsu mannvirkjum svokallaða málningar- styrki og hafa nú á annað hundrað mannvirki hlotið slíka styrki. „Í ár hljóta 25 aðilar málning- arstyrk frá okkur og nemur verð- mæti þeirra um tveimur milljónum króna. Alls hefur fyrirtækið úthlut- að fjórtán þúsund lítrum af máln- ingu til verðugra verkefna á síðustu árum að verðmæti meira en sex milljónir króna. Styrkirnir dreifast víða um land og til afar mismunandi verkefna. Nokkrar kirkjur eru með- al styrkþega, eftirtektarverð og þekkt hús sem hafa menningar- sögulegt gildi eins og t.d. Wathne- hús á Akureyri, Þrúðvangur að Laufásvegi 7 og Suðurgata 4 í Reykjavík. Einnig fær Byggðasafn Hafnarfjarðar styrk vegna Sívert- senshúss og Siggubæjar, svo eitt- hvað sé nefnt,“ sagði Helgi Magn- ússon, framkvæmdastjóri Hörpu Sjafnar. Þetta fyrirtæki er nú orðið 67 ára. „Þá er átt við þann hluta fyr- irtækisins sem er Harpa hf. En fyr- ir um tveimur árum sameinuðust Harpa og Sjöfn á Akureyri og til varð fyrirtækið Harpa Sjöfn. Við teljum okkur nú vera með um fjórð- ung málningarmarkaðarsins á Ís- landi,“ sagði Helgi ennfremur. Hvað hafið þið að leiðarljósi þeg- ar þið veljið styrkþega hjá ykkur? „Fyrir fimm árum ákváðum við að auglýsa málningarstyrki á veg- um Hörpu vegna þess að við höfð- um gert okkur ljóst að víða voru að- ilar að vinna merkilegt starf við að varðveita mannvirki sem hafa menningarsögulegt gildi og leggja ýmislegt á sig til að bjarga verð- mætum frá glötun. Auk þess var okkur hugsað til alls konar góðgerð- arfélaga, íþróttafélaga, ungmenna- félaga og slíkra aðila sem eru að leggja góðum málefnum lið og skortir oft fjármuni til sinna starfa. Við vildum gera tilraun til að koma til móts við starfsemi af þessu tagi með því að veita þeim málningar- styrki. Skemmst er frá því að segja að mikil ásókn hefur verið í þessa styrki og höfum við fengið mikla hvatningu til að halda áfram að veita þá, enda hefur fjöldi umsókna borist ár hvert sem verðugar eru en við höfum því miður ekki getað sinnt nema hluta þeirra. Mikil ásókn er frá ýmsum aðilum um stuðning frá fyrirtækjum í atvinnu- lífinu og hefur verið ánægjulegt að fylgjast með því hvernig fyrirtæki hafa fundið slíkum stuðningi farveg á síðari árum, með mismunandi hætti. Málningarstyrkurinn er okk- ar aðferð.“ Er mikið fjör á málningarmark- aðinum núna? „Það er óhætt að segja það. Nú er háannatími og vorið og sumarið hafa verið góð og mikil sala. Veður skiptir miklu máli í þessari grein. Gott sumar þýðir mikil viðskipti fyrir málara og málningarframleið- endur.“ Hvaða litir eru mest í tísku þetta árið? „Okkur sýnist að ljósari litir séu að koma meira í tísku aftur. Reynsl- an sýnir að tískan í litavali í máln- ingu er svipuð og önnur tíska, hún gengur í hring og virðist hver hringur taka um það bil 20 ár að ganga yfir. Við sjáum ljósa liti, þar á eftir koma jarðlitir og á endand- um dökkir litir – þannig lokast hringurinn – ljósu litirnir koma síð- an aftur.“ En er það þá nákvæmlega sama málningin sem kemur til skjalanna á ný? „Málningin er í stöðugri þróun. Íslensk málningarframleiðsla hefur orð á sér fyrir gæði, enda búa Ís- lendingar við rysjótt veðurfar sem krefst mikilla gæða af málningu. Þess vegna höfum við lagt mikinn metnað í rannsóknir og þróun máln- ingarinnar og rekum rannsókna- stofur. Hjá fyrirtækinu starfa þrír efnaverkfræðingar sem sinna vöruþróun og gæðaeftirliti. Málning er eins og flestur annar varningur í stöðugri framþróun.“ Hefur samkeppni harðnað á þess- um markaði upp á síðkastið? „Á Íslandi eru þrjár málningar- verksmiðjur, voru fjórar þar til Harpa og Sjöfn sameinuðust fyrir tveimur árum og þannig hafði það verið um áratuga skeið. Þessi ís- lenski iðnaður keppir í óverndaðri samkeppni við innflutning. Við er- um að keppa við risafyrirtæki, að- allega evrópsk og ég vil leyfa mér að halda því fram að íslenskur málningariðnaður hafi staðið sig mjög vel í þeirri samkeppni vegna gæða og góðrar þjónustu. Helstu keppinautar okkar sem selja inn- flutta málningu eru stórmarkaðir en sérstaða Hörpu Sjafnar er að við rekum eigin málningarverslanir. Harpa Sjöfn heldur úti lítilli keðju átta málningarverslana í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Keflavík, Akureyri og á Selfossi. Við erum þannig með verslanir á öllum helstu Mannvirki og málningar- styrkir Hörpu Sjafnar Harpa Sjöfn hefur um árabil veitt málning- arstyrk til ýmissa verk- efna um land allt. Meðal þeirra sem nú hafa hlotið styrki eru landsfræg mannvirki, svo sem Lista- safn Einars Jónssonar, Hnitbjörg. Helgi Magn- ússon, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði Guð- rúnu Guðlaugsdóttur frá þessum og ýmsum öðr- um þáttum í starfsemi Hörpu Sjafnar. Frá úthlutun málningarstyrkja Hörpu Sjafnar í ár. Fríkirkjan í Reykjavík hlaut málningarstyrk Hörpu. Helgi Magnússon í verslun Hörpu Sjafnar í skeifunni 4, en sú verslun hefur jafnan helgarvakt til klukkan 18. Morgunblaðið/Jim Smart 26 C MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐFasteignir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.