Morgunblaðið - 15.09.2003, Síða 1
Botnbaráttan í Landsbanka-
deildinni harðnar enn Íþróttir
STOFNAÐ 1913 249. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Söðlasmíði
í sveitinni
Hann sér ekki fram úr verkefnum
og frelsið skiptir miklu 12
Fjölnýting
er framtíðin
Íslendingar hafa náð lengra en
flestir aðrir í nýtingu jarðhita 8
VIÐRÆÐUR ráðherra frá öll-
um 146 aðildarríkjum Heims-
viðskiptastofnunarinnar
(WTO) um nýtt samkomulag
um aukið frelsi í alþjóðavið-
skiptum, sem staðið höfðu yfir í
Cancun í Mexíkó í fimm daga,
fóru út um þúfur í gær. Fulltrú-
ar margra fátækra ríkja fögn-
uðu niðurstöðuleysinu sem
sigri í hagsmunabaráttu þeirra
gegn ríku iðnríkjunum á Vesturlöndum.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, sem sat
fundinn fyrir Íslands hönd, segir niðurstöðuna
mikil vonbrigði. Líklegt þykir að þetta muni
seinka framkvæmd Doha-þróunaáætlunarinnar
svonefndu, sem stofnunin samþykkti á síðasta ráð-
herrafundi í Doha í Katar fyrir tveimur árum.
Samkvæmt áætluninni var gert ráð fyrir að við-
ræðulotunni að nýjum rammareglum um alþjóða-
viðskipti, ekki sízt með landbúnaðarvörur, lyki
fyrir ársbyrjun 2005.
„Það hafði að mínu mati þokazt verulega í dag
og við vorum búnir að sjá texta í landbúnaðarmál-
um sem okkur fannst þokast verulega í átt til
samkomulags. En síðan voru atriði, svokölluð
Singapore-mál, sem varða m.a. fjárfestingar og
fleira sem strandaði á. Við reiknuðum þá með því
að þau mál yrðu sett til hliðar en það var ákveðið
að gera það ekki, þannig að það hlýtur að vera eitt-
hvað miklu meira sem menn hafa talið að stæði í
veginum. […]Þetta eru mikil vonbrigði vegna þess
að menn setja meiri svartsýni í hlutina og tefja fyr-
ir þróuninni og verst er þetta fyrir fátækustu ríkin
í heiminum að mínu mati.“ Halldór sagði stefnt að
því að halda viðræðum áfram í Genf og þar kæmu
saman háttsettir embættismenn eigi síðar en 15.
desember nk. til að fjalla um framhaldið í þeim til-
gangi að ljúka málinu á tilsettum tíma.
Andstaða við aukið frjálsræði
Singapore-málin, sem Halldór nefnir, snúa að
auknu frjálsræði á sviði fjárfestinga yfir landa-
mæri, stefnumótun í samkeppnismálum, afnámi
viðskiptahindrana og opinberum útboðum. Kváðu
ráðamenn þróunarríkja hafa lýst sig mjög andvíga
auknu frjálsræði á þessum sviðum.
WTO-viðræður út um þúfur
Mikil vonbrigði að mati
utanríkisráðherra
Reuters
Hnattvæðingarandstæðingar fagna í Cancun.
Cancun. AFP, AP.
Halldór
Ásgrímsson
EISTAR samþykktu aðild Eistlands
að Evrópusambandinu (ESB) með
yfirgnæfandi meirihluta í þjóðarat-
kvæðagreiðslu í gær. Samkvæmt
bráðabirgðaúrslitum, er öll atkvæði úr
hinum 652 kjördeildum landsins höfðu
verið talin, studdu um 67% inngöng-
una í ESB en 33% sögðu nei.
Á kosningavöku á krá í miðbæ höf-
uðborgarinnar Tallinn bar forsætis-
ráðherrann Juhan Parts niðurstöðuna
saman við daginn sem Eistland lýsti
fyrst yfir sjálfstæði árið 1918.
„Við verðum áfram eistnesk [innan
ESB], en með þessari sterku tilfinn-
ingu að tilheyra fjölskyldu … fjöl-
skyldu Evrópuþjóða,“ sagði Parts.
Kjörsókn var um 63%, en um
850.000 manns voru á kjörskrá.
Eistar sam-
þykkja ESB
Tallinn. AP.
ANDSTÆÐINGAR evrunnar
fögnuðu í Svíþjóð í gærkvöldi eftir
að Svíar felldu með yfirgnæfandi
meirihluta að ganga í myntbanda-
lag Evrópu (EMU) og taka upp
hina sameiginlegu mynt Evrópu-
sambandsríkjanna, evruna. Alls
greiddu 56,2% þjóðarinnar at-
kvæði gegn evrunni og 41,8% með.
Kosningaþátttaka var 81,2%.
Andstæðingar evrunnar voru í
meirihluta um nánast alla Svíþjóð,
einungis á Stokkhólmssvæðinu og
á Skáni, syðst í Svíþjóð, voru
stuðningsmenn í meirihluta.
Göran Persson, forsætisráð-
herra og formaður Jafnaðar-
mannaflokksins, hélt blaðamanna-
fund þegar úrslitin voru ljós.
„Þetta eru skýr úrslit, mjög skýr
og kosningaþátttakan mikil,“ sagði
Persson. Það yrði því auðvelt að
virða niðurstöðuna. Hann sagði að
ríkisstjórnin myndi nú reyna að
gera hið besta úr stöðunni.
Persson sagðist ekki geta metið
áhrif þjóðaratkvæðagreiðslunnar
til skamms tíma og hvað myndi
gerast á mörkuðum. Til lengri tíma
litið myndi þetta fela í sér verri
tækifæri fyrir Svíþjóð. „En það
vissi þjóðin,“ sagði Persson.
Spjótum beint að
stöðugleikasáttmála
Maud Olofsson, leiðtogi Mið-
flokksins, sem var einn helsti tals-
maður andstæðinga evrunnar,
fagnaði niðurstöðunni í gær. Hún
sagði sænsku þjóðina greinilega
gera sér grein fyrir að myntbanda-
lagið stæði á brauðfótum og að
stöðugleikasáttmálinn gengi ekki
upp í raunveruleikanum. Þá hefðu
Svíar seðlabanka sem gætið haldið
verðbólgu í skefjum.
Ulla Hoffmann, leiðtogi Vinstri-
flokksins, sagði í gærkvöldi að hún
teldi að nú ætti að endurskoða að-
ild Svíþjóðar að stöðugleikasátt-
málanum, sem setur ríkjum ESB
þröngar skorður í ríkisfjármálum.
Peter Eriksson, talsmaður Um-
hverfisflokksins, sagðist búast við
því að niðurstaða þjóðaratkvæða-
greiðslunnar yrði virt. Hann sagð-
ist ekki eiga von á að úrslitin hefðu
áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið við
Jafnaðarmannaflokkinn. Eriksson
sagði við blaðamenn í gærkvöldi að
hann hefði verið viss um að morðið
á Önnu Lindh myndi hafa meiri
áhrif. „Ég var sannfærður um það í
gærkvöldi að við myndum tapa,“
sagði Eriksson.
Lars Leijonborg, formaður
Þjóðarflokksins, sagði niðurstöð-
una mikil vonbrigði. Hann hefði
vonast eftir öðrum úrslitum. Þegar
hann var spurður um hvernig hann
skýrði þessa niðurstöðu sagðist
hann ekki telja að skýringarinnar
væri að leita í sjálfri kosningabar-
áttunni. Það sem kæmi á óvart
væri að rúmur helmingur sænsku
þjóðarinnar væri jafnandstæður
Evrópusamstarfinu og þessi úrslit
gæfu til kynna.
Of fastir í tæknirökum
Jafnaðarmaðurinn Gunnar
Lund aðstoðarfjármálaráðherra,
sem fer með málefni EMU í rík-
isstjórninni, sagði greinilegt að
ekki hefði tekist að koma til skila
hinu stærra samhengi evrunnar,
stækkun Evrópusambandsins og
fjölgun aðildarríkja. „Við vorum of
fastir í tæknilegri, efnahagslegri
röksemdafærslu framan af kosn-
ingabaráttunni,“ sagði Lund.
Svíar hafna evru
Reuters
Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, yfirgefur kosningaskrifstofu jafnaðarmanna sem börðust fyrir
evruaðild Svía, eftir að úrslitin voru ljós í gærkvöldi. Jafnaðarmannaflokkurinn var klofinn í evrumálinu.
Sænska þjóðin/18
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
56,2% greiddu
atkvæði á móti,
41,8% með
Persson: ger-
um það besta
úr stöðunniLÖGREGLAN í Stokkhólmi birti í gærmyndir úr eftirlitsmyndavél NK-vöruhúss-
ins af manni sem leitað er vegna morðsins
á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóð-
ar. Þótt lögreglan segði ekki beint að hana
grunaði að maðurinn sem sæist á myndun-
um væri morðinginn túlka sænskir fjöl-
miðlar birtinguna sem sterka vísbendingu
um að maðurinn sé talinn vera sá sem
réðst á Lindh. Í gærkvöldi höfðu lögregl-
unni þó ekki borizt eins margar vísbend-
ingar frá almenningi og hún vonaðist eft-
ir, að sögn Dagens Nyheter á Netinu.
AP
Myndir/13
Morðingi
Lindh?
Fimm
geta fallið