Morgunblaðið - 15.09.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SVÍAR HAFNA EVRU
Andstæðingar evrunnar fögnuðu í
Svíþjóð í gærkvöldi eftir að sænskir
kjósendur felldu með yfirgnæfandi
meirihluta að ganga í myntbandalag
Evrópu og taka upp hina sameig-
inlegu mynt Evrópusambandsríkja,
evruna. Alls greiddi 56,1% þjóð-
arinnar atkvæði gegn evrunni og
41,8% með. Kjörsókn var rúm 80%.
Myndir af morðingja?
Sænska lögreglan birti í gær nýj-
ar myndir úr eftirlitsmyndavél NK-
vöruhússins í Stokkhólmi, sem sýna
mann sem svarar til lýsingar vitna á
morðingja Önnu Lindh, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar.
WTO-viðræður stranda
Viðræður ráðherra hinna 146 að-
ildarríkja Heimsviðskiptastofnunar-
innar (WTO) um nýtt samkomulag
um aukið frelsi í alþjóðaviðskiptum,
sem staðið höfðu yfir í fimm daga í
Cancun í Mexíkó, fóru út um þúfur í
gækvöld. Ágreiningur milli fátækra
ríkja og ríkra reyndist of mikill.
Vilja enn sjá sameiningu
Bankastjóri Landsbankans telur
skynsamlegt að sameina SH og SÍF
og forstjóri Íslandsbanka segir að
sameining að hluta eða í heild hljóti
að vera ein af þeim leiðum sem eig-
endur félaganna muni skoða.
Gjaldeyrir fyrir 31 milljarð
Seðlabankinn hefur keypt gjald-
eyri fyrir ríflega 31 milljarð frá því í
fyrrahaust og á sama tímabili greitt
upp allar erlendar skammtíma-
skuldir sínar og er stefnt að því að
gjaldeyrisforðinn verði 50 milljarðar
um næstu áramót en það er 15 millj-
örðum meira en verið hefur.
Forysta í fiskveiðistjórnun
Dr. Jeffrey D. Sachs, einn virtasti
hagfræðingur heims, segir að Ísland
geti gegnt mikilvægu hlutverki á
sviði fiskveiðistjórnunar á heimsvísu
og að mælingar Íslendinga á stærð
fiskistofna geti nýst víða um heim.
Elding skorar á Alþingi
Fundur Eldingar, félags smábáta-
sjómanna á norðanverðum Vest-
fjörðum, hefur skorað á Alþingi að
lögfesta án tafar samþykktir stjórn-
arflokkanna um línuívilnun þannig
að þær komi til framkvæmda eigi
síðar en 1. nóvember.
mánudagur 15. september 2003 mbl.is
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakki 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is
• 4ra og 5 hæða lyftuhús • Sér inngangur í íbúðir af svalagangi
• Þvottaherbergi í íbúðum • Vandaðar innréttingar
• Steinsallað að utan • Stæði í bílageymsluhúsi
• Frábær staðsetning • Hagstætt verð
• Hægt að breyta íbúðum að innan eftir óskum kaupenda
• Öflugt innra eftirlit með framkvæmdum
Höfum til sölu skemmtilega hannaðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í 4ra og
5 hæða lyftuhúsi á skjólgóðum og fallegum útsýnisstað í Grafarholti í Reykjavík.
Stutt er í alla þjónustu og leikskóli er steinsnar frá húsinu. Íbúðirnar verða
afhentar fullbúnar án gólfefna (utan baðherbergis- og þvottaherbergisgólfa sem
verða flísalögð). Sameign og lóð verður fullfrágengin.
Fullbúin sýningaríbúð
Hafið samband við sölufólk
Verðdæmi:
með sér stæði í bílageymsluhúsi
2ja herb. 72 fm verð frá 11.600.000 kr.
3ja herb. 84 fm verð frá 13.100.000 kr.
4ra herb. 103 fm verð frá 14.700.000 kr.
Frábær staðsetning – hagstætt verð
Þórðarsveigur 2–6 Grafarholti
Góðar lausnir,
vandaðar vörur
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Fasteignablaðið
// Ofhitun // Hafnarbúðir // Kollsteypa? // Iðnverk
!"
#$%&'
( )*'
+*!"
, *- %%'
./0112
*./0112
' 3
./0112
*./0112
5
5
1 55
5
!!!"
.071
.071
.071
.071
8
8
8
5 #
$
$
%#!
#
#&&
$
' (
1 1 14 ))
)
1.1
))
)
) %
1 1655
1 GERA má ráð fyrir töluverðri ásókn
í byggingarrétt á nýju athafnasvæði
efst í norðanverðu Vatnsendahvarfi,
sem Kópavogsbær auglýsir nú til út-
hlutunar, en umsóknarfrestur renn-
ur út í dag. Svæðið er ætlað fyrir
verzlanir, skrifstofur og iðnað.
Um er að ræða um fimm hektara
lands, en aðkoma verður frá Breið-
holtsbraut og fyrirhuguðum Arnar-
nesvegi um Vatnsendahvarf og
Vatnsendaveg.
Á svæðinu verða alls átta lóðir frá
3.500 ferm. að stærð upp í liðlega
10.000 ferm. Áætlað er að lóðirnar
verði byggingarhæfar um miðjan
maí 2004.
Á stærstu lóðinni, sem er rúmir
10.000 ferm., má reisa byggingu,
sem verður 1–2 hæðir en að grunn-
fleti um 4.400 ferm. Hægt verður að
skipta húsinu í smærri einingar.
Á næststærstu lóðinni, sem er
rúmir 7.000 ferm., má reisa bygg-
ingu á 1–2 hæðum að grunnfleti um
1.800 ferm. og hægt verður líka að
skipta húsinu í smærri einingar
Á hinum lóðunum, sem eru sex og
á bilinu 3.500–5.000 ferm., má reisa
byggingar á 2 hæðum, að grunnfleti
um 750 ferm. Hægt verður að skipta
húsunum í smærri einingar.
Vakin er sérstök athygli á því, að
umsóknum um byggingarrétt þarf
að fylgja staðfesting banka eða lána-
stofnana um greiðsluhæfi umsækj-
enda.
Álitlegt svæði
Þarna er um mjög álitlegt svæði
að ræða, hvort heldur fyrir skrif-
stofur eða léttan iðnað. Svæðið er í
góðum tengslum við aðalgatnakerfið
og ekki spillir að það er í jaðri úti-
vistarsvæðisins í Elliðaárdal með af-
ar góðu útsýni yfir Faxaflóann að
Esjunni og í austurátt að Henglin-
um.
Skipulag svæðisins er hugsað
þannig að fleiri fyrirtæki geti verið í
hverri byggingu, sem skipta megi í
nokkrar einingar. Umsóknarfrestur
um þessar lóðir er til kl. 15.00 í dag
samkv. framansögðu.
Nýtt athafnasvæði í Vatns-
endahvarfi til úthlutunar
Morgunblaðið/Kristinn
Um mjög álitlegt svæði er að ræða, hvort heldur fyrir skrifstofur eða léttan iðnað.
Víða hefur verið gripið til ýmissa ráða til að
varna ofhitun. En kælitæki, sem hefur fengið
það skemmtilega heiti „kæliraftur“, hefur
verið lítið notað hér á landi. 16
Þar var aðstaða fyrir verkamenn og sjómenn
og einnig gistiaðstaða. Ráðningarskrifstofa
Reykjavíkur var þar og skrifstofur bæjar-
stjórnar Vestmannaeyja í gosinu. 20
Líklegt er að almennur 90% lánsréttur leiði
tll nýrrar kollsteypu í húsnæðismálum af
svipuðu tagi og fyrri stórfelldar uppstokk-
anir kerfisins hafa kallað fram. 27
Fyrirtækið var stofnað af nokkrum íslenzk-
um fyrirtækjum gagngert til þess að selja
vörur þeirra, sem áttu í mikilli samkeppni við
innfluttar byggingarvörur. 32
SG-hús
áSelfossi
STARFSEMI SG-húsa hf. á Selfossi
er mjög öflug um þessar mundir.
Fyrirtækið er í röð stærstu fyr-
irtækja hér á landi í framleiðslu
timburhúsa og er nýlega flutt í
1.400 ferm. húsnæði á Austurvegi
69.
Hjá SG-húsum starfa að jafnaði
35–40 manns, en fyrirtækið fram-
leiðir fyrst og fremst timburein-
ingar í hús og þar eru íbúðarhús
langstærsti þátturinn, en sumar-
hús, leikskólar, skólastofur og minni
hús fyrir ýmsa aðila eru líka snar
þáttur í framleiðslunni.
Það er mikill kostur við timbur-
hús, hve byggingartími þeirrar er
stuttur. „Eftir að efnið er komið á
byggingarstað, tekur ekki nema 8–
10 vinnudaga að reisa 150–160
ferm. íbúðarhús, þannig að það sé
tilbúið til innréttinga,“ segja þeir
Óskar G. Jónsson og Kári Helgason,
framkvæmdastjórar SG-húsa, í við-
talsgrein í blaðinu í dag. /26
2003 MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HEIÐAR OG RAGNHILDUR STIGAMEISTARAR/B12
BJARNI Skúlason, júdókappi, varði í 9.–13. sæti á
HM í júdó sem fram fer í Japan. Bjarni keppti í
-90 kílóa flokki.
Fyrst lagði kappinn Wu frá Taívan á ippon, þá
var Pereteyko frá Úsbekistan felldur mjög
snaggaralega á ippon og röðin komin að Zvia-
dayri frá Georgíu, en hann fékk silfur á HM síð-
ast. Bjarni varð að játa sig sigraðan en sá
georgíski komst í úrslitaglímuna en tapaði þar
fyrir Hee Tae Hwang frá Kóreu.
Bjarni fékk því uppreisnarglímu og mætti þar
Gabriel Lama frá Chile og tapaði þeirri glímu en
Lama varð í 7.–8. sæti.
Þessi árangur Bjarna tryggir honum ekki sæti
í júdókeppni næstu Ólympíuleika.
Bjarni Friðriksson og Vernharð Þorleifsson
haf báðir náð sjöunda sætinu á HM, Vernharð
2001 en Bjarni 1989.
Bjarni í 9.–13. sæti í
Japan á HM í júdó
Grosswallstadt stöðvaði sigur-göngu Lemgo á laugardaginn
og sigraði, 26:24, í hörkuleik.
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði
eitt marka Grosswallstadt en Heiko
Grimm var atkvæðamestur í liðinu
með 6 mörk. Svissnesku landsliðs-
mennirnir Carlos Lima og Marc
Baumgartner skoruðu 5 mörk hvor
fyrir Lemgo. Grosswallstadt er þar
með komið með 5 stig eftir þrjá
leiki og virðist til alls líklegt í vet-
ur.
Einar Örn Jónsson skoraði 5
mörk og Rúnar Sigtryggsson eitt
fyrir Wallau-Massenheim sem vann
góðan heimasigur á Minden, 33:27.
Jan Behrends var í aðalhlutverki
hjá Wallau og skoraði 11 mörk.
Sigfús Sigurðsson skoraði 4
mörk fyrir Magdeburg sem vann
auðveldan sigur á Pfullingen, 38:27.
Staðan var 20:11 í hálfleik og Al-
freð Gíslason byrjaði strax í fyrri
hálfleiknum að hvíla sína bestu
menn.
Gylfi Gylfason skoraði 4 mörk
fyrir Wilhelmshavener sem tapaði
fyrir Gummersbach á útivelli,
29:24. Kyung-Shin Yoon skoraði 8
mörk fyrir Gummersbach í leikn-
um.
Guðmundur Hrafnkelsson og fé-
lagar í Kronau-Östringen eiga erf-
iðan vetur fyrir höndum. Nýliðarn-
ir töpuðu fyrir Nordhorn á
heimavelli, 22:29, og eru án stiga
eftir fjóra fyrstu leiki sína.
Jaliesky Garcia skoraði eitt mark
fyrir Göppingen sem tapaði fyrir
Kiel á heimavelli, 21:26.
Flensburg er á toppi deildarinn-
ar með 8 stig eftir 4 leiki og vann
Eisenach á útivelli, 33:25.
Tíu mörk Guðjóns
Vals gegn Wetzlar
GUÐJÓN Valur Sigurðsson fór á kostum með Essen í þýsku 1. deild-
inni í handknattleik í gær þegar lið hans vann stórsigur á Wetzlar,
32:20. Guðjón skoraði 10 mörk í leiknum, þar af 8 í fyrri hálfleik, og
ekkert þeirra úr vítakasti. Essen fékk þar með sín fyrstu stig á tíma-
bilinu en liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum. Gunnar Berg
Viktorsson skoraði 5 mörk fyrir Wetzlar en Róbert Sighvatsson
komst ekki á blað.
FIMM lið eru í mikilli fallhættu fyr-
ir síðustu umferð efstu deildar
karla í knattspyrnu sem leikin verð-
ur á laugardaginn kemur. Und-
anfarin ár hefur oft verið mikil
spenna í fallslag deildarinnar á
lokasprettinum en útlit er fyrir að í
þetta sinn verði síðasta umferðin
spennuþrungnari en nokkru sinni
fyrr.
Fjögur af þessum fimm liðum
mætast í innbyrðis leikjum sem ger-
ir spennuna enn meiri. Grindavík
(22 stig) fær KA (21) í heimsókn og
Fram (20) og Þróttur (22) mætast á
sínum sameiginlega heimavelli,
Laugardalsvellinum. Þar er staðan
sú að Grindavík og Þrótti nægir stig
til að halda sér í deildinni. Valur
(20) sækir Fylki heim í Árbæinn og
Hlíðarendaliðinu dugir ekkert ann-
að sigur til að tryggja sér áfram-
haldandi sæti meðal þeirra bestu.
Ljóst er að 23 stig munu í öllum
tilfellum nægja til að halda sér í
deildinni en Þróttur og Grindavík,
sem nú eru í 6. og 7. sætinu með 22
stig, geta bæði fallið á þeirri stiga-
tölu ef úrslitin verða þeim óhagstæð
í síðustu umferðinni.
Fimm í
fallhættu
fyrir síðustu
umferðina
Morgunblaðið/Þorkell
KR-ingar fengu Íslandsbikarinn afhentan á heimavelli í gær en þeir tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn fyrir nokkru. Meisturunum
tókst ekki að fylgja titilinum eftir með því að vinna í gær þegar þeir tóku á móti ÍBV, þeir töpuðu 2:0. Á myndinni tekur Kristján Finn-
bogason, fyrirliði KR, við Íslandsbikarnum úr höndum Eggerts Magnússonar, formanns KSÍ.
DARKO Ristic, körfuknattleiks-maður frá Serbíu-Svartfjalla-
landi, hefur samið við nýliða KFÍ frá
Ísafirði um að leika með þeim í úrvals-
deildinni í vetur. Samkvæmt heima-
síðu KSÍ er Ristic væntanlegur til
Ísafjarðar um næstu mánaðamót.
Ristic lék með Skallagrími eftir
áramótin á síðasta tímabili og skoraði
þá 14,2 stig og tók 7,3 fráköst að með-
altali í níu leikjum með Borgnesing-
um. Hann er 27 ára gamall framherji,
um tveir metrar á hæð og lék lengi
með Radnicki í Júgóslavíu, þar af tvö
ár í úrvalsdeildinni. Hann spilaði með
franska 3. deildarfélaginu Briochin
síðasta vetur, þar til hann kom til liðs
við Borgnesinga, og skoraði þar allt
að 40 stigum í leik.
Þar með teflir KFÍ fram þremur
erlendum leikmönnum í vetur en auk
Ristics verða Bandaríkjamennirnir
Anton Collins og Jeb Ivey með Ísa-
fjarðarliðinu. Þeir eru þegar komnir
til landsins og fóru með KFÍ í æf-
ingaferð til Englands fyrr í þessum
mánuði.
Darko Ristic
til Ísfirðinga
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 24
Viðskipti 11 Bréf 26
Vesturland 13 Dagbók 28/29
Erlent 13 Staksteinar 28
Listir 14/16 Leikhús 30
Umræðan 17 Fólk 30/33
Forystugrein 18 Bíó 30/33
Minningar 20/24 Ljósvakar 34
Kirkjustarf 24 Veður 35
* * *
ÞAÐ er víst komið haust þó að
haustlitir trjánna láti enn bíða eftir
sér. Haustsólin hefur skinið glatt
yfir Reykjavík og börn og full-
orðnir hafa nýtt sér góða veðrið til
útivistar. Á Ægissíðu var hópur
barna að skoða sig um þegar ljós-
myndari átti leið þar um. Börnin
höfðu húfu á höfði enda komið fram
í september.
Morgunblaðið/Ásdís
Undir
haustsól
SEÐLABANKI Íslands hefur
keypt gjaldeyri fyrir rúmlega 31
milljarð króna frá því í september
í fyrrahaust. Á tímabilinu hefur
bankinn greitt upp allar erlendar
skammtímaskuldir sínar og stefnt
er að því að gjaldeyrisforðinn
verði um 50 milljarðar króna um
næstu áramót, en það er aukning
upp á tæpa 15 milljarða króna frá
því sem verið hefur.
Birgir Ísleifur Gunnarsson
seðlabankastjóri segir að bankinn
hafi byrjað að kaupa gjaldeyri á
innlendum gjaldeyrismarkaði í
september í fyrrahaust og frá því í
maí í vor hafi bankinn keypt dag-
lega 2,5 milljónir Bandaríkjadala á
hverjum virkum degi eða 12,5
milljónir dala á viku. Samanlögð
kaup bankans frá því í fyrrahaust
nemi um 31 milljarði króna.
Birgir Ísleifur sagði að gjaldeyr-
isforðinn hefði verið orðinn óþægi-
lega lítill meðal annars vegna þess
að orðið hafi að ganga á forðann,
þar sem bankinn hafi þurft að
styðja við gengi íslensku krónunn-
ar með sölu á gjaldeyri þegar
gengi krónunnar hafi lækkað mjög
mikið á árunum 2000 og 2001. Þá
hafi Seðlabankinn haldið uppi forð-
anum með skammtímalántökum í
útlöndum, en miðað hafi verið við
að gjaldeyrisforðinn væri um 36
milljarðar króna á hverjum tíma.
„Við skulduðum orðið óþægilega
mikið af þeirri upphæð þannig að
við ákváðum að kaupa gjaldeyri til
þess að styðja forðann fyrst og
fremst. Reyndar er það orðið svo
nú að við erum búnir að borga upp
allar okkar erlendu skuldir og
stefnum að því að gjaldeyrisforð-
inn verði um 50 milljarðar króna
um áramótin,“ sagði Birgir Ísleif-
ur.
Hann sagði að unnið væri að því
að auka gjaldeyrisforðann frá því
sem verið hefði. Jafnframt væri
unnið að því innan bankans að
setja nýjar viðmiðunarreglur varð-
andi það hversu gjaldeyrisforðinn
ætti að vera mikill. Það sama væri
að gerast í nánast öllum seðla-
bönkum í kringum okkur sem
væru með sömu umgjörð peninga-
stefnunnar, þ.e.a.s. miðuðu við
verðbólgumarkmið. Gamla viðmið-
ið hefði verið að gjaldeyrisforðinn
dygði fyrir þriggja mánaða vöru-
innflutningi, en það væri viðmið
sem mjög margir væru hættir að
notast við. Menn væru nú fremur
að taka mið af erlendum skamm-
tímaskuldum þjóðarbúsins.
„En þetta er allt í vinnslu
ennþá. Við erum ekki komnir með
niðurstöðu í þessum efnum og
verðum það ekki fyrr en seinna í
haust,“ sagði Birgir Ísleifur enn-
fremur.
Gjaldeyrir keyptur fyr-
ir 31 milljarð á einu ári
Nýjar viðmiðunarreglur um upphæð
gjaldeyrisforðans eru væntanlegar
FARÞEGAR á leið til og frá Gríms-
ey hafa lent í því að verða stranda-
glópar þar sem farþegaferjan Sæ-
fari hefur aðeins leyfi til að flytja
tólf farþega frá 1. september. Þann-
ig voru t.d. sex farþegar skildir eftir
á Dalvík á föstudaginn og þá fengu
einhverjir ekki pláss með skipinu
frá Grímsey sama dag. Óttar Jó-
hannsson, oddviti í Grímsey, segir
flugvöllinn í Grímsey verða lokaðan
allan október vegna mikilla endur-
bóta og síðan aftur í svipað langan
tíma næsta vor. Því sé alveg nauð-
synlegt að fá bráðabirgðaákvæði
vegna ferjunnar á þeim tíma.
Sæfari má flytja 90 farþega á sér-
stakri undanþágu frá reglum Evr-
ópusambandsins yfir sumarmánuð-
ina en þá er sett laust farþegahús á
ferjuna. Fyrir tilkomu reglnanna
var siglt með farþegaskýli frá 15.
maí til 15. september og að sögn
Óttars hefur þessi stytting á bæði
vori og hausti valdið mönnum veru-
legum vandræðum.
Skrýtnar reglur
„Sæfari má ekki sigla yfir sum-
artímann með 90 farþega ef öldu-
hæð er yfir 2,5 metrar á öldudufli á
sundinu og hátti þannig til verður
skipstjóri einfaldlega að tilkynna
farþegunum á bryggjunni að hann
verði að velja tólfs manns úr, hinir
verði að vera eftir. Þannig að það
geta líka komið upp vandamál á
sumrin. Hins vegar eru reglurnar
þannig að ef ölduhæðin er undir 2,5
metrum þegar ferjan siglir frá Dal-
vík að morgni en eykst síðan veru-
lega og er komin yfir 2,5 má ferjan
samt sigla í land. Það finnst okkur
auðvitað skrýtið.“
Óttar segir að eins og staðan sé
nú dugi ekki að Sæfari fari aðeins
með tólf farþega, staðan sé óviðun-
andi og þetta geti ekki gengið svona,
hvorki gagnvart ferðamönnum né
fólki sem býr í Grímsey og allra síst
mönnunum sem vinna í ferjunni sem
lendi í því að velja 12 úr 90 manna
hópi. Þá megi ekki gleyma að ferjan
sé aðalþungaflutningaleið Grímsey-
inga, öll aðföng komi með ferjunni
og hún flytji allan fisk frá eynni.
Flugið sé með póst og farþega.
„Við erum hins vegar að vinna í
þessum málum, bæði sveitarstjórn
og samgönguráðherra setti á lagg-
irnar nefnd til að ræða samgöngu-
mál Grímseyinga almennt, bæði flug
og ferjumál. Það er vilji hjá öllum,
held ég, til þess að ná og finna ein-
hverja lausn á þessu. Og menn
hætta ekki fyrr en hún finnst.“
Grímseyjarferjan Sæfari má
aðeins flytja tólf farþega í vetur
Flugvöllurinn lok-
aður allan október
SEXTÁN ára ökumaður velti
bíl og keyrði á ljósastaur á Staf-
nesvegi í Sandgerði síðdegis í
gær. Þrír voru í bílnum og var
mesta mildi að þeir skyldu allir
sleppa ómeiddir að sögn lög-
reglunnar í Keflavík. Bíllinn er
gjörónýtur.
Sextán ára
velti bifreið
MAÐURINN sem slasaðist alvar-
lega í bílslysi á Holtavörðuheiði á
föstudag liggur enn á gjörgæsludeild
Landspítalans og er líðan hans
óbreytt, að sögn vakthafandi læknis.
Óbreytt líðan
♦ ♦ ♦
BIFREIÐ og léttu bifhjóli lenti sam-
an á Akureyri í gær og voru ökumað-
ur og farþegi hjólsins fluttir á
sjúkrahús, en annar þeirra var talinn
lærbrotinn. Atvikið átti sér stað er
hjólinu var ekið af gangstétt út á
götu. Ökumaður bifhjólsins var rétt-
indalaus, hjólið óskráð auk þess sem
ólöglegt er að flytja farþega á léttu
bifhjóli. Hvorugur var með hjálm.
Keyrðu á kind og lömb
Þá drápust kind og tvö lömb er
keyrt var á þau á Laugarvatnsvegi
við Apavatn aðfaranótt sunnudags.
Engin slys urðu á fólki en bíllinn var
óökufær á eftir.
Réttindalaus
ók á bíl