Morgunblaðið - 15.09.2003, Page 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 7
Ingvar
Helgason
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
7
1
9
Ingvar Helgason hf. · Sævarhöfða 2 · Sími 525 8000 · ih@ih.is · www.ih.is
frá 3.289.000 kr.
TERRANO
frá 4.590.000 kr.
PATROL
frá 2.490.000 kr.
DOUBLE CAB
frá 2.760.000 kr.
X-TRAIL
frá 3.860.000 kr.
MAXIMA
frá 2.260.000 kr.
PRIMERA
frá 1.650.000 kr.
ALMERA
frá 1.390.000 kr.
MICRA
Hann er japanskur og var valinn áreiðanlegasti bíll í sínum flokki af bresku neytendasamtökunum. Könnunin tók til bilanatíðni og
gangsetningar og það var okkar bíll, Nissan Almera sem náði hæstu einkunn, einfaldlega 100% áreiðanlegur bíll. Nissan Almera er
á einstöku verði miðað við búnað, þægindi og aksturseiginleika.
Komdu í reynsluakstur, 100% bíllinn stendur þér til boða fyrir aðeins 29.929 kr. á mánuði.
ÞETTA ER BÍLLINN
NISSAN ALMERA frá
29.929
á rekstrarleigu í 3 ár.
kr./mán.
Innifalið: Leiga til 36 mánaða, akstur
allt að 20.000 km á ári, smur- og
þjónustueftirlit samkvæmt þjónustubók.
Consumers’ Association
100%
Var valinn áreiðanlegastibíll í sínum flokki af breskuneytendasamtökunum
áreiðanlegur
ÍSLENSK-KANADÍSKT verslun-
arráð var stofnað í Toronto sl. föstu-
dag en unnið hefur verið að stofnun
þess um nokkurt skeið. Rúmlega 60
fulltrúar úr íslensku og kanadísku at-
vinnulífi mættu til stofnfundarins
sem fram fór á Delta-Chelseahótel-
inu.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, ávarpaði fund-
inn og fór yfir aðstæður til viðskipta
á Íslandi. Valgerður sagði í samtali
við Morgunblaðið að eftir því væri
tekið í Kanada að skattur á fyrirtæki
væri kominn niður í 18%. „Það að við
erum aðilar að hinu Evrópska efna-
hagssvæði styrkir okkur líka í þess-
um viðskiptum og ætti að vera
áhugavert fyrir Kanadamenn að eiga
viðskipti við okkur þar sem þeir eru
þá komnir inn á þennan 750 milljóna
markað í Evrópu.“
Mörg fyrirtæki áhugasöm
Valgerður bætti við: „Það er aug-
ljóst eftir að hafa hlýtt hér á mál
manna að viðskiptin hafa aukist
verulega eftir að sendiráðið tók hér
til starfa en það eru náttúrulega
miklu meiri möguleikar og mjög
mörg fyrirtæki sem hafa skráð sig
sem áhugsamöm um viðskipti við Ís-
land. Þannig að við sjáum þetta
[stofnun verslunarráðs] sem mögu-
leika á auknum viðskiptum, ég held
að það sé ekki nokkur vafi á því að
það eru ýmsir möguleikar,“ sagði
ráðherra.
Sendiherra Íslands í Kanada,
Hjálmar W. Hannesson, átti frum-
kvæði að stofnun íslensk-kanadísks
verslunarráðs. Gordon Reykdal, for-
stjóri og aðalræðismaður Íslands í
Edmonton, var kjörinn fyrsti for-
maður þess og Jóhann Valberg
Ólafsson, svæðisstjóri Eimskipa í
Kanada, varaformaður. Á fundinum
hélt meðal annarra Hugh Porteous,
yfirmaður rannsókna og fyrirtækja-
samskipta hjá Alcan, erindi og lofaði
hann mjög íslenskt viðskiptaum-
hverfi og samskipti Alcan við íslensk
fyrirtæki og stjórnvöld. Á Delta-
Chelseahóltelinu þar sem fundurinn
fór fram hefur undanfarna daga stað-
ið yfir kynning á Íslandi, m.a. hafa
veitingastaðir á hótelinu haft íslensk-
an mat á boðstólum. Kynningin er
hluti af markaðsstarfi „Iceland Nat-
urally“-verkefnisins, sem er sam-
starfsverkefni íslenskra stjórnvalda
og fyrirtækja í Norður-Ameríku.
Rúmlega 60 fulltrúar
mættu á stofnfundinn
Ljósmynd/Jón E.G.
Frá vinstri: Gordon Reykdal, forseti verslunarráðsins, Valgerður Sverris-
dóttir viðskipta- og iðnaðarráðherra, Hjálmar W. Hannesson sendiherra
og Jóhann Ólafsson, varaforseti verslunarráðsins, á stofnfundinum.
Íslensk-kanadískt verslunarráð stofnað í Toronto