Morgunblaðið - 15.09.2003, Side 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 13
SÆNSKA lögreglan dreifði í gær
nýjum myndum úr eftirlitsmyndavél
vöruhússins NK í Stokkhólmi, sem
sýna mann sem svarar til lýsingar
vitna á morðingja Önnu Lindh, utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar.
„Við viljum fá aðstoð almennings
við að bera kennsl á manninn,“ sagði
Mats Nylen, talsmaður lögreglunn-
ar. Hann fullyrti þó ekki að mað-
urinn á myndunum væri grunaður
um að vera sá sem stakk Lindh til
ólífis með hnífi á annarri hæð vöru-
hússins sl. miðvikudag, en komst síð-
an undan. Nylen sagði lögregluna
hafa yfirheyrt allnokkra í tengslum
við rannsóknina á morðinu.
Myndirnar úr öryggismyndavél-
inni sýna mann klæddan í gráan
hettubol með stóru Nike-merki fram
á, með ermarnar uppbrettar og með
derhúfu á höfði. Ólíkt fyrstu mynd-
unum sem lögreglan lét frá sér af
manninum hafði ekkert verið átt við
þessar myndir; þær sýna allt sem
festist á myndband öryggismynda-
vélarinnar. Andlit mannsins er þó að
hluta hulið af derinu á derhúfunni
og því erfitt að greina andlit hans,
eins og sjá má af myndunum sem
hér fylgja. Öryggismyndavélarnar
náðu ekki að festa sjálfa árásina á
myndband.
Að sögn lögreglu passar mað-
urinn við lýsingu vitna á árásar-
manninum; hann sé um þrítugur
Svíi, bólugrafinn með axlarsítt hár.
Fram hafði komið að hann væri rið-
vaxinn, en maðurinn á myndinni er
meðalmaður að vexti.
„Við höldum áfram að rannsaka
þekkta glæpa- og ofbeldismenn, um
tíu manna hóp. Það eru nokkur nöfn
sem við viljum kanna sérstaklega,“
sagði annar talsmaður lögregl-
unnar, Stina Wessling.
Liðveizlu leitað hjá erlendum
réttarrannsóknastofum
Rannsóknir á morðvopninu –
rauðskeptum skurðarhníf – og föt-
um sem talið er að morðinginn hafi
fleygt frá sér á flóttanum, stóðu enn
yfir í gær. Sænska lögreglan hefur
farið fram á aðstoð réttarrann-
sóknastofa í Þýzkalandi og Bret-
landi við að ná sem skýrustum
fingraförum af morðvopninu og við
DNA-greiningu á lífsýnum af hnífn-
um og fötunum.
Myndir af morðingjanum?
AP
Röð mynda af hinum grunaða úr öryggismyndavél, sem teknar voru skömmu áður en Anna Lindh var stungin.
Stokkhólmi. AP, AFP.
Í FYRSTU heimsókn sinni til Íraks
frá því innrásarlið bandamanna
steypti stjórn Saddams Husseins af
stóli sagði Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, í gær að
sér litist vel á þær framfarir sem
náðst hefðu að því marki að koma á
sjálfsstjórn heimamanna í hinu her-
setna landi. En hann sagði að yfir
eftirlitslítil landamæri Íraks
streymdu óvelkomnir hermdar-
verkamenn sem væru staðráðnir í að
grafa undan þessum framförum.
Með Hoshyar Zebari, nýlega skip-
aðan utanríkisráðherra bráðabirgða-
ríkisstjórnar Íraks, sér við hlið á
blaðamannafundi í Bagdad, bar
Powell lof á pólitískar og efnahags-
legar framfarir sem orðið hefðu í
landinu frá því stríðsátökum lauk.
Hann sagði stöðu öryggismála enn
erfiða og henni stafaði „mikil ný
hætta“ af „hryðjuverkamönnum sem
eru að reyna að komast inn í landið í
þeim tilgangi að spilla fyrir öllu ferl-
inu“.
Powell skaut á að um 100 slíkir
óvelkomnir aðkomumenn væru nú í
landinu og sagðist viss um að banda-
ríska hernámsliðið væri fært um að
fást við vandann.
Hermaður fellur við Fallujah
Zebari, sem tók við utanríkisráð-
herraembætti bráðabirgðastjórnar-
innar fyrir viku, sagði að það hvernig
til tækist að halda stjórn á öryggis-
málunum myndi hafa mikil áhrif á
það hversu fljótt verði hægt að koma
á raunverulegri sjálfstjórn Íraka.
Hann sagðist vonast til að um mitt ár
2004 yrði „kjörin, lögmæt ríkis-
stjórn“ tekin við stjórnartaumum í
landinu.
Árásir á liðsmenn hernámsliðsins,
sem eiga sér stað nær daglega, héldu
áfram í gær er sprengja sprakk á
vegi nærri bænum Fallujah, um 50
km vestur af Bagdad. Einn banda-
rískur hermaður lét lífið og þrír
særðust, að því er hernámsyfirvöld
greindu frá.
Reiði ríkir enn meðal íbúa Fall-
ujah vegna dauða átta íraskra lög-
reglumanna, sem bandarískir her-
menn skutu fyrir mistök fyrir
helgina. Talsmenn hersins hafa beð-
ist opinberlega afsökunar á atvikinu,
en margir þeirra sem viðstaddir
voru útför hinna felldu í gær sóru að
halda áfram öflugri andspyrnu gegn
hernámsliðinu.
Um 155 bandarískir hermenn hafa
fallið í Írak frá því George W. Bush
Bandaríkjaforseti lýsti því yfir 1. maí
sl. að hernaðinum í Írak væri að
mestu lokið. Í stríðinu sjálfu fram að
þeim degi féllu 138 hermenn úr
bandaríska innrásarliðinu.
Powell bjart-
sýnn á framfarir
Segir hermdar-
verkamenn
streyma til Íraks
AP
Bandaríski utanríkisráðherrann
ávarpar blaðamenn í Bagdad í gær.
Bagdad, Fallujah. AP.
EHUD Olmert, varaforsætisráð-
herra Ísraels, sagði í gær að til greina
kæmi að drepa Yasser Arafat, á sama
tíma og þúsundir Palestínumanna
tóku þátt í kröfugöngum vítt og breitt
um Vesturbakkann og Gazasvæðið til
að sýna samstöðu með leiðtoga sínum.
Olmert sagði í útvarpsviðtali að
meðal kosta sem í stöðunni séu á því
að fást við Arafat, frá bæjardyrum
Ísraelsstjórnar séð, væri að reka
hann úr landi, loka hann inni í herkví í
bækistöðvum sínum „sem myndi ein-
angra hann frá umheiminum“, eða að
drepa hann. Virtist sem þessum af-
dráttarlausu orðum Olmerts væri
beint til annarra forystumanna Pal-
estínumanna; þeim væri hollast að
snúa baki við Arafat og að Ísraelar
héldu sér öllum valkostum opnum.
„Það er ótækt að Arafat hafi nokk-
ur áhrif á gang mála hér lengur,“ tjáði
Olmert ísraelska útvarpinu.
Þessi ummæli varaforsætisráð-
herrans sýndu svo ekki varð um villzt
að hinn svonefndi Vegvísir til friðar,
nýja friðaráætlunin sem Bandaríkja-
menn voru meðal forgöngumanna
um, er orðinn óframkvæmanlegur og
að samskiptin milli Ísraela og Palest-
ínumanna hafa sjaldan verið verri.
Saeb Erekat, einn forystumanna pal-
estínsku heimastjórnarinnar, sagði
ummæli Olmerts sýna „hegðun og
gerðir mafíu, ekki ríkisstjórnar“.
Ítreka
hótanir
Ramallah. AP.
AP
Arafat veifar stuðningsfólki með
sigurmerkinu í Ramallah í gær.