Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 23
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 23 Það voru mikil for- réttindi að fá að kynn- ast Hárlaugi. Ég man þegar ég kom fyrst í Hlíðartún fyrir rúmum átján árum sem kærasta Guðmundar, sonar hans. Mikið þótti mér Hárlaugur, eða Laugi eins og hann var kallaður, vera glæsilegur maður: Hávaxinn, kíminn, með þykkt dökkt hár enda kallaði ég hann oft „sjarmörinn“. Þegar ég kynntist honum betur sá ég að hann hafði líka einstaklega gott hjartalag. Þau hjónin Laugi og Rúna tóku mér strax opnum örmum og gáfu mér skilyrðislausa ást og hlýju og það var alveg einstakt að sækja þau heim. Okkur Lauga fannst það vel við hæfi að ég hársnyrtirinn ætti tengdapabba með þessu fína nafni Hárlaugur. Laugi var hreykinn af börnum sín- um og barnabörnum og fylgdist hann vel með því hvað þau voru að gera í lífinu og alltaf gátu þau leitað til hans. Pálmar Örn, sonur okkar Gumma, fékk aldeilis að njóta góð- mennsku afa síns, hann var í sveit- inni hjá honum og Rúnu á sumrin og lærði mörg handtökin hjá afa sínum. Þeir félagarnir brölluðu margt sam- an og stundum var vafamál hver væri að ala hvern upp. Þegar Pálmar var yngri fannst honum ekki við hæfi að afi notaði vasahníf við matarborð- ið þegar gesti bar að garði og faldi því hnífinn fyrir afa sínum en Laugi notaði yfirleitt vasahnífinn heimavið og hann hafði gaman af að rifja þessa sögu upp. Laugi hafði góðan húmor og oft var stutt í glensið, mörgum fleygum setningum frá honum eigum við hin eftir að halda á lofti. Það er skrýtið að koma í Hlíðartún og sjá hann ekki að störfum því aldrei man ég eftir honum sitja auðum höndum. Í hey- skapnum var kappið mikið hjá hon- um og þá sagði hann ósjaldan við okkur sem áttum það til að tala að- eins of mikið: „Látið hendurnar ganga eins og munninn.“ Lífið heldur áfram og við sem sitj- um hér eftir með tómleikatilfinningu í hjartanu getum yljað okkur við góðar minningar um „sjarmörinn“ okkar sem ég sé fyrir mér ganga inn um gullna hliðið með sinn trygg- lynda Stubba sér við hlið. Elsku Rúna mín, ég bið góðan Guð um að passa þig og styrkja okkur öll í sorg okkar því að missirinn er mik- ill. Þín tengdadóttir, Hrafnhildur Magnúsdóttir. Við munum hann í túninu heima. Dálítið óþolinmóður ef óunnin verk lágu fyrir. Röskur til verka, snyrti- menni fram í fingurgóma. Ekki allra, en tryggur þeim sem hann á annað borð hleypti að sér. Hressandi nær- vera, spaug á vör, viðkvæmur undir skelinni. Bar með sér sérstakan tals- máta frá Hverfinu austan við fljót, þar sem hann ólst upp. Var sólginn í hrossaket með þverhandarþykku spiklagi. Reykti rosalega áður en læknarnir bönnuðu honum það. Mátti ekkert aumt sjá. Við þökkum Lauga samfylgdina um tún og fjöll, í roki, rigningu, logni og bjartviðri. Allir á Austurhlíðarbæjunum. Þegar eitt fegursta sumar kveður og fyrsta haustlægðin teygir sig til landsins kveður Hárlaugur bóndi, vinur okkar og granni, og heldur á vit almættisins, á hlaðinu við bæinn HÁRLAUGUR INGVARSSON ✝ Hárlaugur Ingv-arsson fæddist í Halakoti (nú Hvítár- bakka) í Biskups- tungum 14. júní 1928. Hann lést á heimili sínu Hlíðar- túni í Biskupstung- um 1. sept. síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Skálholts- kirkju 10. septem- ber. sem hann ungur byggði ásamt eiginkonu sinni fyrir tæpri hálfri öld. Hann hafði þá fastnað sér elstu dóttur hjónanna í Austurhlíð, Guðmundar og Elínar, sem þar bjuggu við rausn um þrjátíu ára skeið. Foreldrar Guðmund- ar, móðuramma og langafi höfðu öll búið þar frá árinu 1836 þeg- ar Magnús Jónsson flutti frá Bræðratungu að Austurhlíð. Hárlaug bar samt ekki langt að, en hann var einn af ellefu systkinum frá Hvítárbakka í Bræðratunguhverfi. Öll þau systkini voru söngfólk gott eins og foreldrar þeirra og tekið var eftir þessum myndarlega hópi á mannamótum því lengi hefur það tíðkast hér í sveit að taka lagið við hin ýmsu tækifæri og munu okkar fyrstu kynni hafa verið við slíkar að- stæður á ungmennafélagsfundum. Laugi og Rúna eins og við ná- grannarnir kölluðum þau giftu sig 18. júní 1955 ásamt þremur bræðr- um Lauga og tveimur systrum Rúnu. Er slíkt mjög fátítt, að þrír bræður gangi að eiga þrjár systur einn og sama daginn. Fyrst um sinn voru þeir Kristinn bróðir Lauga og Sigríður systir Rúnu í sambýli við foreldra þeirra systra í Austurhlíð. En árið 1958 ákváðu þau Laugi og Rúna að byggja sér nýbýli úr Austurhlíð, þau byggðu bæinn sinn vestan við Austurhlíð- arbæinn og kölluðu hann Hlíðartún og fengu land einkum fyrir neðan og vestan. Á árunum 1950–60 stofnuðu tólf ung hjón hér í sveit nýbýli. Mikil uppsveifla var í landbúnaðinum sem var að vakna af þyrnirósarsvefni eft- ir niðurskurð og útrýmingu mæði- veikinnar. Sáu menn hilla undir bjartari framtíð um fjárbúskap enda margar góðar fjárjarðir í Biskups- tungum. Hárlaugur tók til óspilltra málanna að byggja upp sitt mynd- arlega bú, rækta stórt tún og byggja yfir fólk og fénað. Hann var hamhleypa til allra verka, verkhraður og unni sér ekki hvíldar fyrr en sá fyrir verklok. Oft mun svefntíminn hafa orðið stuttur því margt þurfti að gera, annað kom líka til að hann var bóngóður með af- brigðum og ávallt tibúinn að rétta nágrönnum og vinum hjálparhönd. Á þessum áratug var mikil upp- bygging um allar sveitir og Laugi lá þá ekki á liði sínu, var ávallt fyrstur mættur, hvort sem var smala- mennska eða steypuvinna hjá grönn- um og hans fjölmörgu vinum. Hann vann einnig út á við með búskapnum, bæði hjá sláturfélaginu og í gróður- húsavinnu. Þá var hann um langt árabil við löggæslustörf um helgar. Öllum þótti gott að vinna með Lauga, lét hann ekki halla á sig við nokkur störf. Seinna á ævinni var Laugi sund- laugarvörður í Reykholti við miklar vinsældir ungra sem aldinna, náði hann einkar góðum tökum á skóla- börnum, sem héldu tryggð við hann þótt þau flyttu burt í önnur byggð- arlög. Sambýli Lauga og Rúnu við systk- ini sín í Austurhlíð og börn þeirra hefur alla tíð verið til fyrirmyndar og held ég að ekki væri hægt að komast þar lengra með gagnkvæmri virð- ingu og tillitssemi. Svo var einnig með hjónin í Dalsmynni, Linda og Rúnu sem nú eru bæði látin, við hjónin í Úthlíð áttum því láni að fagna að sú mikla vinátta foreldra okkar Rúnu gekk í arf til okkar og það stóð ekki upp á Lauga, oft hitt- umst við og fórum á milli bæja þótt ekki væri erindið annað en að hittast og fá kaffibolla er málefni líðandi stundar voru rædd. Margar ferðir fórum við líka sam- an um sveitir landsins; var Laugi skemmtilegur ferðafélagi og hafði vakandi auga með hvernig bændur í öðrum héruðum stóðu að verki. Þegar Laugi varð fimmtugur fór- um við nokkrir vinir hans með hon- um í skemmtiferð til Vestmanna- eyja, einhver í hópnum orti þá: Hárlaugur í Hlíðartúni, höldur góði sanni, fimmtugur á ferjunni, fögnum heiðursmanni. Já, heiðursmaður var hann og heiðarlegur, hann mátti ekkert aumt sjá og eins og áður sagði var hann mjög barngóður. Hann átti þeirri gæfu að fagna að eignast fjögur börn sem öll hafa haldið á lofti merki hinna heiðvirðu foreldra sinna. Seinna komu tengda- börn og barnabörnin sem öllum var tekið opnum örmum. Laugi varð fyrir því áfalli að veikj- ast af alvarlegum hjartasjúkdómi fyrir nær 20 árum. Hann fór til London í aðgerð og fékk allgóðan bata þótt aldrei yrði hann samur maður eftir en átti þó allmörg ár með ástvinum sínum. Laugi leit oft inn en stoppaði stutt, hraði hans og árvekni dreif hann áfram, kannski beið hans einhver heima eða eitthvað var ógert sem koma skyldi í verk. Líf og saga Hárlaugs er saga ís- lenska bóndans sem gekk út að sá, hann sá korn sitt falla í góðan jarð- veg og uppskeran var sú hamingja sem bóndinn sér í gripum sínum, jörð sinni og fjölskyldu allri. Við fjölskyldan öll í Úthlíð þökk- um þessum góða granna samfylgd- ina. Við vottum eiginkonu og ástvin- um öllum okkar dýpstu samúð um leið og við biðjum þeim blessunar guðs. Ágústa og Björn. „Komdu sæll, ég heiti Hárlaugur, það er ekki víst að þú munir það.“ Þannig hljómaði fyrsta setning þessa sérstæða manns í mín eyru fyrir um 16 árum. Laugi var með orðheppnari mönn- um og alltaf fljótur til svars ef á reyndi. Og víst er að oft reyndi á þennan hæfileika í samskiptum okk- ar. Morgunkaffi í Hlíðartúni hjá þeim Rúnu og Lauga hefur verið fastur liður hjá okkur hjónunum þegar við höfum dvalið í sumarbústað okkar fyrir ofan bæinn á undanförnum ár- um. Þar voru málin rædd, slegið á létta strengi og farið yfir (veður) horfur næstu daga. Rúna passaði að allir stæðu mettir upp frá borðum og hennar svellþykku flatkökur með heimatilbúnu kæfunni gleymast ekki þeim er eitt sinn smakkar. Hnyttin tilsvör, yfirburðadugnaður og áreið- anleiki voru sterkustu einkenni Lauga og eru mannkostir hans þó hvergi nærri taldir. Þekkt er saga frá hans yngri árum er hann var staddur á einu af frægum bingóum Tungnamanna og fékk gólftusku í sinn hlut. Hárlaugur fór upp á svið í Aratungu til að veita verðlaununum viðtöku og varð þá að orði: „Þangað sækir fé sem fé er fyrir.“ Hárlaugur reyndist Ólöfu konu minni vel þegar hún sem barn var vetrarlangt hjá þeim Rúnu. Hennar orð fara hér á eftir: Laugi var barngóður og reyndist mér sem besti faðir þennan tíma sem ég dvaldist í Hlíðartúni. Ég var vak- in á hverjum morgni með hafragraut og spældu eggi og öruggt var að skólabíllinn þurfti aldrei að bíða í Hlíðartúni – hann passaði vandlega upp á það. Þegar ég lít til baka minnist ég þess aldrei að Laugi hafi gert miklar kröfur til mín eins og gjarnt er um duglegt fólk. En kröfur hans til sjálfs sín þóttu mér óhóflegar á stundum. Laugi var í okkar huga einskonar tákn þeirrar kynslóðar sem lagði grunninn að því þjóðfélagi sem við þekkjum í dag. Sístritandi frá morgni til kvölds, aldrei kvartað, engar kröfur á aðra og tilfinningar ekki bornar á torg. Í síðasta skipti sem ég hitti Lauga kom ég ein að sækja kjöt í frysti- kistuna til þeirra hjóna. Þá tók hann á móti mér og sagði: „Sæl Ollý mín, ertu ein? Ég hélt þú værir skilin við kallinn. Nú, maður veit aldrei.“ Þannig var hann, maður vissi aldrei hvað honum dytti í hug að segja næst. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Það er með söknuð í hjarta en hafsjó af góðum minningum sem við kveðjum vin okkar, Hárlaug Ingv- arsson. Megi hann hvíla í Guðs friði. Við biðjum þess að góður Guð veiti Rúnu og öðrum aðstandendum styrk í þeirra djúpu sorg. Grétar og Ólöf. Allt er í heiminum hverfult og ekk- ert eilíft undir sólinni. Þessar stað- reyndir lífsins leita á við fráfall okk- ar góða granna Hárlaugs í Hlíðartúni. Í hvert sinn sem komið var í Tungurnar var allt svo tryggt á sínum stað, Högnhöfðinn, Miðfellið, Bjarnarfellið og svo Hárlaugur og Rúna í Hlíðartúni en nú er skarð fyr- ir skildi. Hárlaugur er horfinn af sjónarsviðinu og eftir sitjum við með sáran söknuð en sárabótin er hlýjar og góðar minningar um sannan og góðan vin. Þótt lengi hafi verið ljóst að hver nýr dagur gæti verið sá síð- asti í lífi hans bregður manni við. Það er skrýtin tilfinning að geta ekki lengur beðið Hárlaug að færa fyrir sig randbeitargirðinguna eða líta eft- ir hryssunum sem komnar voru að köstun eða önnur smáviðvik sem hann var svo fús að inna af hendi þegar til hans var leitað. Það var líka notaleg og góð tilfinning að fá þetta hlýja og vinalega viðmót þeirra hjóna þegar komið var við í Hlíðar- túni hvort sem um var að ræða erindi eða erindisleysu. Að hitta Hárlaug og eiga við hann tal var sannarlega gefandi. Hann var vel með á nótunum á flestum sviðum, alltaf jákvæður og skemmtilegur og húmorinn og gáskinn aldrei langt undan. Það var skemmtilegt og upp- byggjandi að standa út á hlaði í Hlíð- artúni og hlæja að spaugilegum hlið- um lífs og tilveru með Hárlaugi. Að spá í hesta og hrossarækt, heyskap- inn eða bústörfin almennt. Hann var vandur að virðingu sinni, nærgætinn og sannarlega mannbætandi að fá tækifæri á samleið með slíkum öðlingi þótt stuttur tími væri. Vísast munu Högnhöfði, Miðfell og Bjarnarfell verða þarna áfram um sinn þótt vinur vor Hárlaugur sé horfinn á braut. Við sendum Rúnu ásamt börnum og barnabörnum hlýjar samúðarkveðjur. Snorri, Jóhanna, Valdimar og Brynhildur. Þá fann ég, hvað jörðin er fögur og mild þá fann ég, að sólin er moldinni skyld, fannst guð hafa letrað sín lög og sinn dóm með logandi geislum á strá og blóm. Allt bergði af loftsins blikandi skál. Allt blessaði lífið af hjarta og sál. Jafnvel moldin fékk mál. (Davíð Stefánsson.) Hann Laugi í Hlíðartúni er til moldar borinn í dag, farinn yfir móð- una miklu til ljóssins, sem skín svo skært handan við hina jarðnesku til- veru. Það var öllum sem þekktu Hár- laug Ingvarsson harmafregn þegar það fréttist að hann varð bráðkvadd- ur við heimili sitt, á miðjum annadegi hans, hinn 1. sept. sl. Um árabil hafði hann átt við heilsubrest að stríða, en það hamlaði honum ekki við að stunda búskap sinn af sömu eljusemi og snyrtimennsku sem fyrr, þegar heilsan var góð og bústofninn stærri. Eflaust hefði hann sjálfur kosið að mega ljúka vegferð sinni hér með þessum hætti, beint úr ástfólgnu starfi bóndans á jörð sinni. Fyrir okkur, sem bjuggum hvert sumar í túnfætinum á Hlíðartúni, var ómetanlegt að eiga þau hjónin að nágrönnum og fylgast morgunvisst með Lauga og hverskonar mausi hans við óendanleg búsýslustörfin. Óteljandi morgna var setið saman yfir morgunkaffinu og rætt um landsins gagn og nauðsynjar. Bændasamfélagið með Hlíðinni í Biskupstungum er vinsamlegt og sérstakt og samheldnin einstök. Hárlaugur í Hlíðartúni var einn hlekkurinn í þeirri sterku keðju er bindur sveitungana svo þétt saman. Vinsemd, skilningur og alúð gagn- vart sumargestum hinna fjölmennu sumarhúsabyggða í Tungunum gerir fólk þar vinmargt, langt út yfir sveit- unga- og ættarbönd. Ekki er ofmælt að segja að þeir unglingar sem dvöldu sumarlangt og oft mörg sumur á heimili þeirra Rúnu og Lauga hafi flutt með sér ómetanlegar og ljúfar minningar frá þeirri dvöl og bundist heimilinu og hinum látna órjúfanlegum böndum. Við hjónin og fjölskylda okkar vottum Rúnu og ástvinum hins látna okkar innilegustu samúð. Eygló og Sigurður. Hárlaugur mágur minn varð bráð- kvaddur við bústörf nærri heimili sínu í Hlíðartúni í Biskupstungum mánudaginn 1. september sl. Leiðir okkar Hárlaugs lágu fyrst saman þegar við vorum ungir að árum og tókum þátt í íþróttaæfingum á veg- um Umf. Biskupstungna, í Vatns- dalnum við Krók og einnig á túninu við Ásakot en á þeim árum var móð- urbróðir minn Guðmundur, Mummi, á Galtalæk formaður ungmenna- félagsins. Mikill fjöldi ungmenna var þá á flestum bæjum í Tungunum og við sumardvalarkrakkar að sunnan fengum líka að vera með. Sumardvöl mín í æsku hjá afa og ömmu á Galtalæk og svo síðar tengd- ist mjög hinum fjölmenna barnahópi og fjölskyldunni á Hvítárbakka og í þeim hópi reyndist líka vera konu- efni mitt sem síðar varð. Þá lágu leiðir okkar Hárlaugs saman í Íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal veturinn 1946–1947 ásam fjölda annarra ungra uppvaxandi drengja úr Tung- unum. Okkur Hárlaugi varð vel til vina enda þá að verða ljóst að hverju stefndi með tengdir okkar. Félagslíf- ið í Íþróttaskólanum í Haukadal þennan vetur var mjög öflugt og er mér alltaf minnisstætt vegna hins mikla sönglífs okkar skólafélaganna þar sem fremstur í flokki fór vinur okkar og skólafélagi Sigurður Er- lendsson á Vatnsleysu. Ungir að árum staðfestum við Hárlaugur ráðahag okkar og hófum búskap en hann kvæntist Guðrúnu Guðmundsdóttur frá Austurhlíð í Biskupstungum og hófu þau fyrst búskap í Austurhlíð í sambýli við for- eldra Guðrúnar 1954 en 1958 höfðu þau byggt myndarlegt nýbýli úr landi Austurhlíðar, Hlíðartún, þar sem þau hafa búið síðan. Í þessum fáu minningar- og kveðjuorðum okkar Hildar viljum við þakka þeim Hárlaugi, Guðrúnu og börnum þeirra tryggð og vinskap í okkar garð. Hárlaugur var einstak- lega ljúfur og góður drengur, glað- legur í vinahópi og bráðskemmtileg- ur. Uppbyggingin í Hlíðartúni og búskapurinn þar í gegnum árin vitna um dugnað bóndans, húsfreyjunnar og barna þeirra. Hárlaugur gerði ekki mjög víðreist um ævina, borinn og barnfættur Tungnamaður og bjó þar. Tungnamenn sjá því á bak ein- um af máttarstólpum byggðarinnar sem lifði þar tímana tvenna í upp- byggingu og framförum og átti sjálf- ur stóran þátt í því að treysta ábúð- ina í þessari fögru sveit og mannlíf allt. Við Hildur og fjölskyldur okkar kveðjum nú góðan dreng með sökn- uði og færum um leið Guðrúnu og að- standendum öllum í báðum fjöl- skyldum innilegar samúðarkveðjur við hið snögga fráfall Hárlaugs Ingv- arssonar. Blessuð sé minning hans. Hafsteinn Þorvaldsson. Lýs, milda ljós, í gegnum þennan geim, mig glepur sýn, því nú er nótt, og harla langt er heim. Ó, hjálpin mín, styð þú minn fót; þótt fetin nái skammt, ég feginn verð, ef áfram miðar samt. (Matthías Jochumsson.) Þetta sálmvers söng ungur bóndi yfir lélegum prímusgarmi í Einifells- kofanum fyrir rúmum fjörutíu árum. Stelpuskotta sem hlýddi á gleymir aldrei hversu fegin hún varð þegar SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.