Morgunblaðið - 15.09.2003, Side 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss og Rán koma í
dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10. Fé-
lagsvist í dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 10 söngstund, kl.
opin smíðastofa/út-
skurður, kl. 13–16.30
opin handavinnustofa,
kl. 13.30 félagsvist kl.
16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
12 bútasaumur, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–
11, samverustund, kl.
13.30–14. 30 söngur við
píanóið Kristjana H. kl.
13–16 bútasaumur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofa Félags eldri
borgara í Kópavogi er
opin í dag frá kl. 10–
11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10 leikfimi,
kl. 13 brids, kl. 9–16.30
púttvöllurinn opinn.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 myndlist, kl. 13–
16 körfugerð, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13–16
spilað, kl. 10–13 versl-
unin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16.30, félagsvist kl.
13.30, kl. 9–12 hár-
greiðsla.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9.30
stólaleikfimi, kl. 11.15
leikfimi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið opnað kl. 9
rabb og kaffi á könn-
uni, pútt og billjard-
salur opnir til kl.16.
Æfing hjá Gaflara-
kórnum kl. 10.30–12.30
tréútskurður kl. 13, fé-
lagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids í dag
kl. 13.
Gerðuberg, félagsstarf
kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar m.a. almenn
handavinna, frá hádegi
spilasalur opinn, dans
fellur niður. S.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum frá kl. 9–17.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga, heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlínsmálun, perlu-
saumur og kortagerð
og fótaaðgerð, kl. 10
bænastund, kl. 13.30
sögustund og spjall, kl.
13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 jóga, kl. 10–11 jóga,
kl. 13–16 frjáls spila-
mennska. Fótaaðgerð-
ir.
Norðurbrún 1. kl. 9–16
fótaaðgerð, kl. 10–11
ganga, kl. 13–16.45 op-
in vinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9–10
boccia, kl. 9–12 mósaik,
kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.30–10.30
boccia, kl.11–12 leik-
fimi, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morgun-
stund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia-æfing,
kl. 13 handmennt al-
menn, glerbræðsla og
frjáls spil.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK,
Gullsmára, spilar í fé-
lagsheimilinu í Gull-
smára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13. Veitingar seldar í
kaffihléi. Allir eldri
bridsarar velkomnir.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19 brids.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást í Reykjavík,
Hafnarfirði og Sel-
tjarnarnesi á Skrif-
stofu LHS, Síðumúla 6,
Reykjavík, s. 552-5744,
fax 562-5744, Hjá
Hirti, Bónushúsinu,
Suðurströnd 2, Sel-
tjarnarnesi, s. 561 4256
Bókabúð Böðvars,
Reykjavíkurvegi 66,
Hafnarfirði, s. 565
1630.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Vesturlandi:
Penninn Bókabúð
Andrésar, Kirkjubraut
54 Akranesi, s. 431
1855 Dalbrún ehf.,
Brákarbraut 3, Borg-
arnesi, s. 437 1421
Hrannarbúðin, Hrann-
arstíg 5, Grundarfirði,
s. 438 6725 Verslunin
Heimahornið, Borgar-
braut 1, Stykkishólmi,
s. 438 1110.
Í dag er mánudagur 15.
september, 258. dagur ársins
2003. Orð dagsins: En ég segi
yður, er á mig hlýðið:
Elskið óvini yðar, gjörið þeim
gott, sem hata yður.
(Lk. 6, 27.)
Björn Bjarnason fjallará vef sínum um tíð-
indin frá Svíþjóð: „Morð-
tilræðið við Önnu Lindh,
utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, vekur óhug allra
og þó einkum að sjálf-
sögðu Svía, sem búa enn
við þá staðreynd, að ekki
hefur tekist að leysa
morðgátuna um Olof
Palme, forsætisráðherra
þeirra, þótt við hana hafi
verið glímt í áratugi.
Nú sér lögreglan á eftirungum, hávöxnum
manni hlaupa út úr versl-
unarhúsi í hjarta Stokk-
hólms. Hann kastar frá
sér felujakka og blóð-
ugum hnífi, sem hann not-
aði til að stinga ráð-
herrann á hol, þegar hún
var á síðdegisstundu á
milli pólitískra stríða að
skoða fatnað á slá með
vinkonu sinni.
Atburðir sem þessirskilja eftir djúp sár
hjá þeim, sem eftir lifa, en
þau gróa vonandi, því að
maðurinn hefur hæfileika
til að sigrast á sorg. Sárin
í þjóðarsálinni eru
kannski erfiðari viðfangs,
því að þau mótast meðal
annars af sektarkennd,
vegna þess að ekki var
meira gert til að tryggja
öryggi ráðherrans og
stjórnmálamannsins.“
Dagný Jónsdóttir fjallareinnig um morðið á
heimasíðu sinni: „Hinn 11.
september er greinilega
ekki dagur hinna gleði-
legu tíðinda. Eðlilega eru
allir harmi slegnir yfir láti
Önnu Lindh, en hún var
virkileg fyrirmynd allra
kvenna í stjórnmálum. Ég
ætla ekki að fjalla um það
nánar hér, enda eru allir
netmiðlar uppfullir af
fréttum um hið hörmu-
lega morð. Þó fannst mér
mjög ósmekklegt að sjá í
Aftenposten frétt um að
sænskir nýnasistar deili
ekki sorg Svía, þeir fagna
láti hennar. Þeir eru ekki
mannlegir og gera sér
ekki grein fyrir að fyrir
utan það að vera einn
fremsti stjórnmálamaður
Svía var hún móðir og eig-
inkona.
Í dag hafa margir veriðað rifja upp hvar þeir
voru staddir fyrir tveimur
árum þegar hörmung-
arnar dundu á í Banda-
ríkjunum. Þá var ég að
vinna uppi á Stúdentaráði
og við Tjörvi fengum inn
til okkar mjög ringlaða
erlenda nema sem vissu
ekkert hvað var að gerast.
Við lokuðum því skrifstof-
unni og fórum yfir á
Gamla garð og þýddum
fréttirnar fyrir þau. Það
var nokkuð einkennilegt
að upplifa þetta í mjög svo
fjölþjóðlegum hópi. Um
kvöldið höfðum við aug-
lýst skemmtikvöld fyrir
erlendu nemana. Við
ákváðum að halda það en
þó undir öðrum formerkj-
um þ.e. fólk bara hittist og
spjallaði um það sem hafði
gengið á og stemmningin
var afar einkennileg. Ég
vona innilega að maður
eigi aldrei eftir að upplifa
slíkan dag aftur.“
STAKSTEINAR
Sár í þjóðarsálinni
Víkverji skrifar...
ENGINN vafi er áþví í huga Víkverja
að evran hefur leikið
Spánverja grátt. Vík-
verji hefur á undan-
liðnum árum notið
þeirrar gæfu að hafa
nokkur kynni af þeirri
góðu þjóð sem Spán
byggir. Sumarleyfi sitt
nýtti Víkverji að hluta
til dvalar í Andalúsíu
þar sem hann hefur
oftlega hlaðið andlega
sem líkamlega raf-
geyma sína.
Vinir Víkverja í
Andalúsíu höfðu raun-
ar sagt honum að evr-
an hefði haft verulegar verðhækk-
anir í för með sér þar. Sögðu þeir
gjarnan að verðlagið hefði loks „náð
skýjunum“ en á spænskri tungu er
sú líking gjarnan notuð til að lýsa
dýrtíð.
Nú kann að vera að verðlagsþróun
hafi verið misjöfn eftir því hvar dval-
ið er á Spáni en Víkverja sýndist
sem máltíð á veitingahúsi hefði
hækkað um 30–50% með tilkomu
evrunnar. Hið sama á við um kaffi-
hús og markaði. Verð í mat-
vöruverslunum hefur sömuleiðis
hækkað þótt ekki sé sú hækkun
sambærileg við veitingahúsin. Al-
mennt gildir að mun dýrara er nú en
áður fyrir ferðamenn að dveljast á
Spáni. Víkverji minntist samtala (og
deilna) sem hann átti við spænska
vini og kunningja áður en evran var
tekin upp þar syðra. Víkverji taldi
þá að hún myndi hafa umtalsverðar
verðhækkanir í för með sér og nú
liggur fyrir að það mat hans var rétt.
Hins vegar er það svo að þrátt
fyrir nefndar verðhækkanir á Spáni
er enn ódýrt fyrir Íslendinga að
dveljast þar. Fyrir þá sem hafa af
því nokkra skemmtan að fara út að
borða er enn ódýrt að næra líkams-
hulstrið á spænskum veitingastöð-
um. Víkverji undrast
jafnan verðlag á hinum
íslensku og telur að um
þá gildi almennt að við-
skiptavinir fái lítið fyrir
krónurnar. Verð á víni á
íslenskum veitinga-
stöðum er að mati Vík-
verja hróplegt og hann
fær ekki skilið að við-
skiptavinir þeirra, ís-
lenskir sem erlendir,
sætti sig við það.
x x x
VÍKVERJI tilheyrirsístækkandi hópi
áhugafólks um spænska
knattspyrnu. Víkverji
telur spænsku deildina þá skemmti-
legustu í Evrópu, hún er jöfn og ekki
er óalgengt að það lið sem sigrar
tapi tíu leikjum á leiktíðinni. Hið
sama á t.a.m. ekki við um ensku
knattspyrnuna, sem er um flest fyr-
irsegjanleg þótt ágæt sé.
Það gladdi því Víkverja mjög þeg-
ar hann fékk af því fréttir að ákveðið
hefði verið að bjóða upp á beinar út-
sendingar úr spænsku knattspyrn-
unni í viku hverri á Sýn í vetur. Þar
með hafði gamall draumur ræst.
Víkverji telur lofsverðan metnað og
þjónustulund einkenna afstöðu ráða-
manna Sýnar til viðskiptavina sinna.
Reuters
Víkverji, í dulargervi, á ónefndum veitingastað.
Bleksvart blek
Í MORGUNBLAÐINU 2.
september sl. var fróðleg
umfjöllun um verðlagningu
á prenthylkjum. Þar er
sýnt fram á að framleiðend-
ur hafa lækkað verð á
prenturum en verði á
prenthylkjum halda þeir
miklu hærra en eðlilegt
getur talist. Þarna kom í
ljós að fleiri en ég hafa
furðað sig á þessum við-
skiptamáta. En sem betur
fer eru nú aðrir aðilar farn-
ir að bjóða blekhylki á eðli-
legu verði sem hægt er að
nota í staðinn.
En það eru ekki ein-
göngu útlendir framleið-
endur sem nota sér þörfina
fyrir prenthylki.
30. júní sl. vantaði mig
hylki í prentarann minn.
Það er svart HP 29. Ég
hafði orðið var við að verð
þeirra er misjafnt svo ég
hringdi í fjórar búðir. Í
Office One í Skeifunni kost-
uðu þau 4.190 kr., í Tölvu-
listanum Nóatúni 3.490 kr.,
í Pennanum, Hallarmúla,
3.840 kr. og í Griffli, Skeif-
unni, 3.030 kr. Já, auðvitað
keypti ég þar.
Á þessu eina prenthylki
er 1.160 kr. munur á verði í
búðum í sama hverfi. Sami
framleiðandi, sami innflytj-
andi. Er þetta eðlilegt?
Ég er ekki vanur að
hlaupa eftir auglýsingum
og kaupa það sem ég get
verið án, en þegar ég sá um
daginn auglýstan prentara
sem prentar svart og í lit,
er einnig ljósritunarvél fyr-
ir svart og í litmyndir og
auk þess „scanner“ þá
stóðst ég ekki mátið.
Þessum prentara fylgdu
tvö blekhylki, annað svart
og hitt í lit. Prentarinn með
öllu saman kostaði 14.900
kr. eða svipað og þrjú og
hálft blekhylki í einni búð-
inni.
Nú mun verð á blek-
hylkjum fara að lækka og
verða eðlilegt. Þegar prent-
arar eru ódýrari og full-
komnari en áður þarf mað-
ur ekki að kvarta. En það
er alltaf þörf á að kynna sér
hver býður besta verðið.
Með því vinnst tvennt,
maður sparar peninga og
þeir njóta viðskiptanna sem
bestu kjörin bjóða.
Óskar Jóhannsson.
Traust og vinátta
besta forvörnin
MARGIR foreldrar og for-
ráðamenn barna hafa mikl-
ar áhyggjur af því hvernig
börnum þeirra reiðir af í
harðnandi heimi þar sem
eiturlyf eru víða á boðstól-
um.
Bestu forvarnirnar eru
að byggja upp traust og
vináttu milli foreldra og
barna. Námskeið sem hald-
in eru af Húgó Þórissyni og
Vilhelm Norðfjörð í sam-
skiptum foreldra og barna
eru án efa með því besta
sem boðið er upp á í þeim
efnum í dag. Þar er foreldr-
um kennt, en ekki kennt
um, því að það er ekki með-
fæddur eiginleiki að ala upp
börn og margir eru óörugg-
ir í þeim efnum þegar börn-
in komast á unglingsár.
Lesandi.
Tapað/fundið
Gleraugu töpuðust
í síðustu viku
SILHOUETTE titan-gler-
augu með gylltum örmum
og rauðu gleraugnabandi
týndust á Reykjavíkur-
svæðinu miðvikudaginn 3.
sept. sl. Finnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
692 9048.
Farangurshlíf
týndist
SVÖRT farangurshlíf af
Volkswagen Golf tapaðist
sunnudaginn 7. september
sl. milli Holtavegar og
Sorpu við Sævarhöfða.
Finnandi vinsamlegast
hringið í síma 822 7745
Fundarlaun.
Telpnahjól týndist
BLÁTT (var áður fjólu-
blátt) hjól týndist við
Breiðholtslaug sl. mánu-
dagskvöld. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 898-
6423.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
LÁRÉTT
1 fara höndum um, 8 lag-
vopn, 9 skúta, 10 aðgæti,
11 fiskur, 13 illa, 15
skammt, 18 dapurt, 21
ótta, 22 óþétt, 23 eru í
vafa, 24 farangur.
LÓÐRÉTT
2 ákveð, 3 raka, 4 lok, 5
lítil tunna, 6 dæld í jörð-
ina, 7 efa, 12 ferskur, 14
tré, 15 fokka, 16 hæsta,
17 höfðu uppi á, 18 ekki
framkvæmt, 19 púkans,
20 pinna.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 drúpa, 4 flíka, 7 lepps, 8 Óttar, 9 aum, 11 röng,
13 gaur, 14 eigra, 15 volt, 17 treg, 20 æra, 22 tómur, 23
lyfið, 24 rýran, 25 akrar.
Lóðrétt: 1 dulur, 2 úlpan, 3 assa, 4 fróm, 5 ístra, 6 aurar,
10 ungar, 12 get, 13 gat, 15 vitur, 16 lemur, 18 rófur, 19
góður, 20 ærin, 21 alda.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16