Morgunblaðið - 15.09.2003, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 29
DAGBÓK
4. flokkur 1992: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
12.903.582 kr.
2.580.716 kr.
258.072 kr.
25.807 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
10.056.645 kr.
2.011.329 kr.
201.133 kr.
20.113 kr.
2. flokkur 1995: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
9.641.497 kr.
1.928.299 kr.
192.830 kr.
19.283 kr.
1. og 2. flokkur 1998: Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
1.626.355 kr.
162.635 kr.
16.264 kr.
Innlausnardagur 15. september 2003
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Rafrænt: 1: 1,62635485
1. og 2. flokkur 2001: Rafrænt: 1: 1,25314603
Enska fyrir börn
Það er leikur að læra
Barnanámskeið hefjast
20. september
Það er leikur að læra 6-7 ára
Talnámskeið 8-9 ára, 10-12 ára
Unglinganámskeið 13-14 ára
Stuðningsnámskeið fyrir 10. bekk
588 0303 fyrir 13. sept.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert félagslynd/ur en vilt
þó eiga þér rólegt athvarf. Á
komandi ári verður aðal-
áhersla þín á þínu nánasta
sambandi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Næstu vikurnar verða
ánægjulegar í samskiptum við
maka þinn og samstarfsmenn.
Þú finnur til vinsemdar og
hlýju gagnvart þeim sem eru í
kringum þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú færð hugsanlega peninga í
gegnum maka þinn. Komandi
mánuður hentar sérstaklega
vel til að fara fram á lán eða
annars konar aðstoð.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Næstu fjórar vikur ættu að
verða skemmtilegar. Það eru
líka miklar líkur á því að þú
lendir í ástarævintýri. Njóttu
þess sem að höndum ber.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Samband þitt við foreldra
þína mun batna á næstu vik-
um. Á sama tíma finnurðu til
löngunar til að fegra heimili
þitt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert að gera þér grein fyrir
því hvað það er mikil ást í lífi
þínu. Láttu ástvini þína vita
hversu mikils þú metur þá.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samningaviðræður sem tengj-
ast fjármálum ættu að snúast
þér í hag á næstu vikum. Þetta
er einnig góður tími til að leita
að vinnu. Fjármálin líta vel út.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Láttu það sem veitir þér
ánægju hafa forgang fram yfir
vinnuna. Láttu það eftir þér
að kaupa þér eitthvað fallegt.
Það þarf ekki að kosta mikið
til að veita þér ánægju.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur vaxandi áhuga á and-
legum málefnum. Þú veist að
það er mikið ónotað rými í
hjarta þínu. Reyndu að tengj-
ast þeim ónýtta krafti sem þar
býr.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Komandi mánuður mun ein-
kennast af skemmtunum og
annríki í félagslífinu. Vina-
sambönd munu hugsanlega
breytast í ástarsambönd og
ástarsambönd í vinasambönd.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú verður hugsanlega beðin/n
um að taka að þér verkefni
sem tengist einhvers konar
hönnun eða skreytingu. Not-
aðu tækifærið til að fegra um-
hverfi þitt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur áhuga á að fara í
ferðalag. Verkefni sem tengj-
ast útgáfustarfsemi, fjar-
lægum löndum, framhalds-
menntun og lögfræði munu
ganga vel á næstunni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert óvenju ástríðufull/ur og
finnur til mikillar hlýju bæði
gagnvart sjálfri/sjálfum þér
og öðrum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SVANASÖNGUR Á HEIÐI
Ég reið um sumaraftan einn
á eyðilegri heiði;
þá styttist leiðin löng og ströng,
því ljúfan heyrði’ eg svanasöng,
já, svanasöng á heiði.
Á fjöllum roði fagur skein,
og fjær og nær úr geimi
að eyrum bar sem englahljóm,
í einverunnar helgidóm,
þann svanasöng á heiði.
Svo undurblítt ég aldrei hef
af ómi töfrazt neinum;
í vökudraum ég veg minn reið
og vissi’ ei, hvernig tíminn leið
við svanasöng á heiði.
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
LÍTUM á spil norðurs, sem
er gjafari og vekur á einum
spaða. Það eru allir á hættu:
Norður
♠ DG1074
♥ ÁKD6
♦ 53
♣K2
Austur passar og makker
lyftir í tvo spaða. Geim eða
ekki geim? Það er sú ákvörð-
un sem blasir við að taka, en
vestur setur strik í reikning-
inn með því að koma inn á
tveimur gröndum, sem sýnir
láglitina:
Vestur Norður Austur Suður
– 1 spaði Pass 2 spaðar
2 grönd ?
Hvernig á að bregðast við í
stöðunni?
Ýmislegt kemur til greina.
Laufkóngurinn hefur öðlast
aukið vægi, en innákoman
bendir til að legan geti verið
slæm. Það mætti reyna vís-
indalega við geim með því að
segja þrjú hjörtu, en aðrir
möguleikar eru þeir að dobla
og leita eftir sekt, eða
stökkva beint í fjóra spaða.
Spilið er frá úrslitaleik Ítala
og Dana á heimsmeist-
aramóti ungmenna og þar
voru viðbrögð norðurs ólík:
Norður
♠ DG1074
♥ ÁKD6
♦ 53
♣K2
Vestur Austur
♠ 53 ♠ ÁK9
♥ – ♥ G1054
♦ KG762 ♦ D1084
♣DG9875 ♣104
Suður
♠ 862
♥ 98732
♦ Á9
♣Á63
Opinn salur:
Vestur Norður Austur Suður
S. di Bello J. Houmöll-
er
F. di Bello B. Hou-
möller
– 1 spaði Pass 2 spaðar
2 grönd 4 spaðar 5 tíglar Pass
Pass Dobl Allir pass
Jonas Houmöller fór beint
í fjóra spaða og Furio di
Bello gat ekki stillt sig um að
segja fimm tígla á fjórlitinn.
Sú þróun var norðri ekki á
móti skapi, hann doblaði og
uppskar 200. Í lokaða salnum
fór Lo Presti rólegu leiðina
og doblaði tvö grönd:
Lokaður salur:
Vestur Norður Austur Suður
Schaltz Lo Presti Gjaldbaek Mazzadi
– 1 spaði Pass 2 spaðar
2 grönd Dobl 3 tíglar Pass
Pass 4 spaðar Pass Pass
Dobl ! Allir pass
Gjaldbaek tók doblið al-
varlega og lét þrjá tígla duga
og blandaði sér ekki meira í
sagnir. En Martin Schaltz
doblaði fjóra spaða í þeirri
von að makker skildi það
sem beiðni um hjartaútspil.
Sannkallað hetjudobl, en
Schaltz varð fyrir vonbrigð-
um þegar Gjaldbaek spilaði
út trompkóngi og skipti svo
yfir í lauf. Það breytti þó
engu, því Gjaldbaek spilaði
tígli síðar og vörnin náði
fjóra slagi. Einn niður, 200 til
Dana og 9 IMPar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4
4. e3 c5 5. Rge2 cxd4 6. exd4
d5 7. c5 Rc6 8. a3 Bxc3+ 9.
Rxc3 0–0 10. Bb5 e5 11.
Bxc6 bxc6 12. 0–0 Ba6 13.
He1 e4 14. Bg5 h6
15. Bh4 He8 16. Da4
Dc8 17. Bxf6 gxf6 18.
He3 f5 19. Hh3 Kh7
20. f4 Bd3 21. Rd1
He6 22. Re3 Db8 23.
He1 Dxf4 24. Hh5
Hf6 25. Dd1 Hg8 26.
g3 Hg5 27. Rg2 Df3
28. Dxf3 exf3 29. Rf4
Be4 30. He3 Hxh5
31. Rxh5 He6 32. Rf4
He7 33. Hb3 Bc2 34.
Hxf3 He1+ 35. Kf2
Hh1 36. h4 a5 37.
He3 Hb1 38. He7
Hxb2 39. He2 Ha2
Staðan kom upp á rúss-
neska meistaramótinu sem
lauk fyrir skömmu. Sergei
Volkov (2.620) hafði hvítt
gegn Dimitry Bocharov
(2.526). 40. Rxd5! og svartur
gafst upp enda rennur
c-peðið upp í borð eftir 40 …
cxd5 41. c6.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Þessi fríði stúlknahópur stóð nýlega fyrir flöskusöfnun á
Akureyri til styrktar Hetjunum, félagi langveikra barna,
og söfnuðust 5.443 krónur. Þær heita Ólöf Katrín Elling-
sen, Birna María Ellingsen, Emelía Lára Magnúsdóttir,
Nanna Rán Brynjarsdóttir, Sara Dögg Eiðsdóttir, Fanndís
Eva Friðriksdóttir, Greta Karen Friðriksdóttir og Amanda
Sjöfn Magnúsdóttir.
Morgunblaðið/Ragnhildur
Þessir duglegu krakkar söfnuðu dósum að andvirði kr.
1.656 til styrktar Rauða krossi Íslands. Þau eru Valur
Snær, Daníel Ingi, Björn, Víðir, Guðmundur og Halldóra.
alltaf á föstudögum