Morgunblaðið - 15.09.2003, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
HAGFRÆÐINGURINN dr. Jeffrey D. Sachs
segir í samtali við Morgunblaðið að Ísland geti
gegnt mikilvægu hlutverki á sviði fiskveiði-
stjórnunar í heiminum. Vís-
indalegar mælingar Íslend-
inga á stærð fiskistofna geti
nýst víða um heim og Ís-
lendingar geti verið fátæk-
um smáríkjum fyrirmynd,
einkum þeim sem byggi af-
komu sína á sjávarútvegi.
Sachs, sem er bandarísk-
ur þróunarhagfræðingur,
heldur tvo fyrirlestra í Há-
skóla Íslands í dag en hann
er hér á vegum forseta Íslands, Ólafs Ragnars
Grímssonar. Sá fyrri er hluti af málstofu sem
haldin er á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða
og stjórnmála og viðskipta- og hagfræðideildar
HÍ. Þar mun Sachs fjalla um áhrif alþjóðavæð-
ingar á þróunarmynstur í hagvexti í heiminum.
Síðari fyrirlestur Sachs er á ráðstefnu á vegum
Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, Háskóla
Íslands og utanríkisráðuneytisins um málefni
þróunarlanda og þróunaraðstoð Íslendinga.
Jeffrey D. Sachs er einn af virtustu hagfræð-
ingum heims. Hann er margverðlaunaður fyrir
störf sín og ritverk og hefur hlotið heiðurs-
gráður við fjölda háskóla.
Ísland gegni
lykilhlutverki
í fiskveiði-
stjórnun
Lítið hagkerfi/11
Jeffrey D. Sachs
ÞEIR máttu hafa sig alla við þessir drengir er þeir hlupu undan öld-
unni sem elti þá í fjörunni við Hraunskeið í gær. Brimið var gríðar-
mikið en myndin er tekin nálægt ósum Ölfusár. Drengirnir virtust
skemmta sér hið besta – en skyldi þeim ekki hafa orðið dálítið kalt?
Morgunblaðið/Ómar
Strákar leika sér í fjörunni
HALLDÓR J. Kristjánsson, bankastjóri
Landsbankans, segir skynsamlegt að sameina
SH og SÍF og að því beri að stefna. Bjarni Ár-
mannsson, forstjóri Íslandsbanka, segir að
sameining að hluta eða í heild hljóti að vera ein
af þeim leiðum sem eigendur félaganna muni
skoða.
Halldór segir að hugsanlega megi fram-
kvæma sameiningu í áföngum en hann telur
aftur á móti lítils virði að velta sér upp úr for-
tíðinni:
„Mikilvægast nú er að halda áfram að leita
leiða til að styrkja starfsemi þessara mikil-
vægu félaga en endamarkmiðið ætti að vera
skýrt,“ segir bankastjóri Landsbankans.
Bjarni Ármannsson segir „getgátur“ fráfar-
andi stjórnarformanns SÍF í viðtali í Morgun-
blaðinu um markmið Íslandsbanka í samein-
ingartilraunum á árinu fráleitar. Í umræddu
viðtali hélt Friðrik Pálsson því fram að Ís-
landsbanki hafi aldrei gefið færi á öðru en yf-
irtöku SH á SÍF og að bankinn hafi látið
stjórnast af þröngum hagsmunum sínum og
erlendra samstarfsaðila. „Vangaveltur um að
Íslandsbanki gangi erinda ákveðinna hópa eða
fyrirtækja, hvort sem er innlendra eða er-
lendra, eiga sér enga stoð í veruleikanum,“
segir Bjarni.
Að því er varðar hlut Landsbankans í SH og
ráðgjöf hans vegna hugsanlegrar sameiningar
við SÍF segir Halldór að þar hafi bankinn stað-
ið faglega að verki. „Fullt samkomulag var um
þessa vinnu bankans. Því er það afar ósann-
gjarnt að gagnrýna Landsbankann síðar fyrir
þátt hans sérstaklega af þeim sem að því sam-
komulagi stóðu þá.“
Halldór J. Kristjánsson bankastjóri Landsbanka Íslands
Enn ber að stefna að
sameiningu SH og SÍF
Ósanngjarnt/4
Getgátur/4
FJÖLMENNUR fundur Eldingar, félags
smábátasjómanna á norðanverðum Vestfjörð-
um, skoraði í gær á Alþingi að lögfesta án tafar
landsfundasamþykktir stjórnarflokkanna um
línuívilnun og tryggja þar með að ákvæðið þar
um í stjórnarsáttmála komi til framkvæmda
eigi síðar en 1. nóvember. Það sé krafa strand-
byggðanna að endurheimta þann aldagamla
rétt að nýta nálæg fiskimið með vistvænum
veiðarfærum.
Fundurinn lýsti og þeirri skoðun sinni að
það væru dapurleg skilaboð til þjóðarinnar ef
orð alþingismanna stæðu ekki, það myndi
grafa undan virðingu Alþingis.
Að auki var skorað á ríkisstjórnina að festa í
lög lágmarksfjölda sóknardaga krókabáta.
Fundurinn var haldinn í íþróttahúsinu á Ísa-
firði og sótti hann á fjórða hundrað manns.
Alþingi lög-
festi loforð um
línuívilnun
Stórar útgerðir/10
SG-hús á Selfossi stefna að því að hefja út-
flutning á timburhúsum til Grænlands. Nú
þegar beinar siglingar eru hafnar á milli Ís-
lands og Grænlands kann að opnast veruleg-
ur markaður fyrir framleiðslu fyrirtækisins
þar í landi.
Kanadamenn hafa einnig sýnt starfsemi
SG-húsa mikinn áhuga og vilja koma á sam-
starfsverkefni milli Íslands og Nýfundna-
lands í framleiðslu á timburhúsum hér á landi
með útflutning til Evrópu í huga en Kanada
stendur utan við EES.
Í þessari viku kemur til Íslands hópur Kan-
adamanna gagngert í því skyni að kynna sér
starfsemi og framleiðslu SG-húsa.
Hyggjast selja
timburhús til
Grænlands
Styrkur nýrra/C26
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráðherra er
nýkominn úr opinberri heimsókn til Mongólíu.
Heimsótti ráðherrann meðal annars hirðingja-
fjölskyldu ásamt föruneyti og var leystur út
með gjöfum.
„Þeir höfðu frétt af því að ég væri áhuga-
maður um hestinn. Til þess að gleðja mig gaf
hirðingjabóndinn mér því hest, sem hann mun
fóðra og hafa í hjörð sinni. Þarna á ég því hest-
inn Skjóna á beit í högum Mongólíu,“ segir
landbúnaðarráðherra. Skjóni mun vera átta
vetra og sést hér með bláan hátíðarborða.
Landbúnaðarráðherrar Íslands og Mongólíu
undirrituðu samkomulag um samstarf á sviði
landbúnaðarrannsókna í ferðinni.
Stórbrotin upplifun/6
Skjóni í
Mongólíu
Guðni Ágústsson heldur í tauminn á Skjóna sínum sem mun halda til á sléttum Mongólíu.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦