Morgunblaðið - 03.11.2003, Síða 28

Morgunblaðið - 03.11.2003, Síða 28
28 C MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍAV eru með í byggingu fjölbýlishús fyrir 50 ára og eldri við Klapparhlíð í Mosfellsbæ Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna að undanskyldum þvottahúsgólfum og baðherbergjum sem verða flísalögð. Sér þvottahús verða í öllum íbúðum. Gólfplötur verða einangraðar undir gólfílögn til að auka hljóð- einangrun. Kaupendur geta valið um þrjár viðar- tegundir í hurðum og vönduðum innréttingum. Í eldhúsi verður keramikhelluborð með fjórum hellum, blástursofn og gufugleypir með kolasíu. Heimilistæki verða frá AEG, Simens eða sambærileg. Mynddyrasími verður í öllum íbúðum. Húsið er glæsilega hannað 4ra hæða fjölbýlishús með lyftu. Útveggir verða staðsteyptir, einangraðir að utan og klæddir litaðri bárumálmklæðningu og að hluta harðviði og gluggar álklæddir. Húsið þarfnast því lítils viðhalds. Sérinngangur verður í hverja íbúð af svalagangi með glerskermun. Innangengt verður í bílageymslu í kjallara þar sem sér bílastæði fylgir flestum íbúðunum. Sameign verður skilað fullfrágenginni með flísalögðu anddyri og teppalögðu stigahúsi. Íbúðir á fyrstu hæð hafa sér afnotarétt af hluta lóðar. Sjónvarpsloftnets- og símatenglar verða í stofu og svefnherbergjum. Allar svalir snúa í suður. ÍbúðirnarHúsið Njóttu lífsins í viðhaldslitlu lyftuh Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.