Morgunblaðið - 23.11.2003, Qupperneq 1
Sunnudagur
23. nóvember 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8.946 Innlit 16.638 Flettingar 66.084 Heimild: Samræmd vefmæling
JÓN Geir Jóhannsson, versl-
unarstjóri Dressmann í Kringl-
unni, segir verslun hafa verið að
aukast síðan um miðjan október.
„Fólk er farið að skima eftir jóla-
gjöfum og leita að góðum fötum.
Þeir allra fyrstu eru að byrja upp
úr enda ágúst. Síðan fer umferðin
að aukast jafnt og þétt um í byrj-
un október. Auðvitað er maður
líka illþyrmilega minntur á jóla-
vertíðina með gegndarlausum
jólaskreytingum. Sjálfur hef ég þá
stefnu, sem verslunarstjóri, að
setja ekki upp ótímabærar jóla-
skreytingar, þannig er Dressman
nú vin í jólaeyðimörkinni,“ segir
Jón Geir og hlær. „Við byrjum að
bæta við fólki í lok nóvember og
fyrstu vikuna í desember, þá byrj-
ar törnin. Það koma fjórar auka-
manneskjur hér inn sem vinna í
jólafríinu sínu frá próflokum til
upphafs skóla. Ég er aldrei með
minna en fimm manns í afgreiðslu
í desember og reyni að hafa nóg
fyrir alla að gera eftir jól, þá eru
útsölur, skil og vörutalningar.“
Morgunblaðið/Svavar
Jón Geir Jóhannsson, verslunarstjóri Dressmann í Kringlunni.
Allt á fullt eftir mánaðamót
RAGNHILDUR
Thorlacius, vaktstjóri í
bókabúð Máls og menning-
ar á Laugavegi, segist vera
farin að finna fyrir fyrir
jólaösinni. „Það má segja
að hún hafi byrjað rólega
rétt eftir síðustu mán-
aðamót, þá fór fólk að koma
hér í svolitlu jólaskapi, í
föndurhugleiðingum og
einnig að huga að því að
senda pakkana út til ætt-
ingja sinna. Við finnum líka fyrir því að það eru fleiri ferðamenn
hér núna en síðasta vetur.“ Ragnhildur segir törnina hefjast
fyrir alvöru strax eftir næstu mánaðamót. „Vð erum að und-
irbúa okkur fyrir það. Það eru byrjaðir upplestrar úr jólabók-
unum á Súfistanum.“
Ragnhildur segir um tuttugu starfsmenn vinna að jafnaði í
verslun Máls og menningar yfir daginn, en um jólin fjölgar þeim
a.m.k. um helming. „Jólafólkið okkar er frá miðjum desember
og út fyrstu vikuna í janúar, þann tíma sem skólafríin eru og
það er mikil aðsókn í þau störf og færri komast að en vilja.
Jólastemningin í Miðbænum er sígild og segir Ragnhildur
fólk njóta þess að koma þangað fyrir jólin. „Við erum líka alltaf
með einhverjar uppákomur seinnipartinn á laugardögum þegar
líður að jólum,“ segir Ragnhildur að lokum.
Mikil aðsókn í vinnu
Ragnhildur Thorlacius,
vaktstjóri í Máli og menningu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
EINAR Karl Birgisson, versl-
unarstjóri verslunarinnar Zara í
Smáralind segist hafa orðið var
við fyrstu jólabylgjuna fyrir tveimur
vikum. „Törnin byrjar fyrir alvöru
eftir mánaðamótin, við erum að
smáauka við mannskapinn hérna
vinnuna. Við erum svo heppin að
hafa gott fólk hér í hlutastarfi og
þegar jólavertíðin hefst hækkar
starfshlutfallið hjá því jafnt og
þétt. Í raun má segja að það fjölgi
hér um fjörutíu prósent þegar jól-
in nálgast og það ástand varir al-
veg fram yfir jól og út í miðjan jan-
úar, þannig að skólafólkið okkar
fær góðan mánuð í vinnu.“
Einar Karl segir Smáralindina
hafa náð sér vel á strik und-
anfarna mánuði eftir dálitla lægð.
„Fólk er farið að koma hérna meira
á virkum dögum og Smáralindin er
ekki lengur svona helgarstaður. Svo
er maður farinn að sjá mikið af
ferðamönnum hér á svæðinu, líka á
veturna, það er mjög ánægjulegt.“
Skólafólkið
fær góðan
mánuð í vinnu
Morgunblaðið/Svavar
Einar Karl Birgisson, verslunar-
stjóri Zara í Smáralind.