Morgunblaðið - 23.11.2003, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2003 B 3
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin
á Akranesi
Sérfræðingur
í svæfingum
Staða sérfræðings á sviði svæfinga og
deyfinga á svæfinga- og skurðdeild Sjúkra-
hússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akran-
esi er laus til umsóknar. Um er að ræða fullt
starf. Staðan veitist frá 1. janúar 2004. Umsókn-
um ber að skila á þar til gerðu eyðublaði, sem
fæst á skrifstofu landlæknis og á heimasíðu
embættisins. Mikilvægt er að staðfest afrit fylgi
af starfsvottorðum, vottorðum um próf og
nám, leyfisveitingum og vísindaritgerðum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórir Berg-
mundsson, lækningaforstjóri SHA, sími 430
6000, netfang thorir.bergmundsson@sha.is.
Umsóknir sendist Guðjóni S. Brjánssyni, fram-
kvæmdastjóra stofnunarinnar, Merkigerði 9,
300 Akranes fyrir 20. desember 2003.
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi
(SHA) skiptist í sjúkrasvið og heilsugæslusvið.
Á sjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkrahús
með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn
árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og
á vissum sviðum sérhæfða sjúkrahúsþjónustu
á lyflækningadeild, handlækningadeild,
fæðinga- og kvensjúkdómadeild, hjúkrunar-
og endurhæfingadeild og á vel búnum stoð-
deildum þar sem höfuð áhersla er lögð á þjón-
ustu við íbúa Vestur- og Suðvesturlands. Jafn-
framt er vaxandi árhersla lögð á þjónustu við
íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á heilsugæslu-
sviði er veitt almenn heilsugæsluþjónusta fyrir
íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness með for-
ystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd
og forvarnarstarf. SHA tekur þátt í menntun
heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla
Íslands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn
stofnunarinnar eru um 240 talsins. SHA er
reyklaus stofnun. Sjá nánar heimasíðu
www.sha.is.
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Staða læknis á
Egilsstöðum
Frá 01.01.2004 (eða eftir nánara samkomulagi)
er staða læknis við Heilbrigðisstofnun Austur-
lands á Egilsstöðum laus til umsóknar. Stofn-
unin samanstendur af, heilsugæslustöð og
sjúkradeild og heilsugæsluseli á Borgarfirði.
Heilsugæslan og sjúkradeildin eru í sömu
byggingu. Við stofnunina eru 4 stöðugildi
lækna og sinna þeir í sameiningu báðum deild-
um. Þjónustusvæðið, Egilsstaðalæknishérað,
er víðáttumikið og dreifbýlt. Fjórðungssjúkra-
húsið í Neskaupsstað er í um einnar klukku-
stundar akstursfjarlægð og þar eru skurðlækn-
ir, lyflæknir og svæfingalæknir.
Við leitum eftir sérfræðingi í heimilislækning-
um, lyflækningum, öldrunarlækningum, eða
öðrum sérgreinum. Umsóknarfrestur er til 15.
desember nk. Frekari upplýsingar veita Pétur
Heimisson, yfirlæknir og Anna Dóra Helgadótt-
ir, rekstrarstjóri í síma 471 1400. Umsóknir
skulu sendar til Heilbrigðisstofnun Austurlands
Egilsstöðum, Lagarási 17, 700 Egilsstöðum.
Héraðið og Egilsstaðir. Í læknishéraðinu voru 1. des. 2002 rúmlega
3000 manns, þar af ca 1700 á Egilsstöðum. Veruleg íbúafjölgun
er í læknishéraðinu í tengslum við nýhafnar virkjunar- og stóriðju-
framkvæmdir. Auk þeirrar stöðu sem nú er auglýst er tímabundið
setin 5. staða læknis á vegum stofnunarinnar við Kárhnjúkavirkjun.
Á Egilsstöðum er leikskóli (bygging annars slíks að hefjast), deilda-
skiptur grunnskóli, menntaskóli og háskólasetur er nýtekið til starfa.
Aðstaða til íþróttaiðkunar er góð, einn fullkomnasti frjálsíþróttavöllur
landsins, íþróttahús og sundlaugar, níu holu golfvöllur og stutt í
skíðasvæði. Hestamennska er vaxandi og metnaðarfull uppbygging
nýs svæðis fyrir þá íþrótt er hafin. Tónlistar- og menningarlíf er
öflugt og t.d. er hægt að ljúka 8. stigi söngnáms við tónskólann
á Egilsstöðum. Á Egilsstöðum er nýtt hótel sem verið er að stækka,
mörg öflug verslunar- og þjónustufyrirtæk i og fer þeim fjölgandi.
Fullkominn flugvöllur og 3-5 flugferðir til Reykjavíkur alla daga.
Auk þess er sl. tvö sumur vikulegt flug beint til Evrópu og 20 mínútna
akstur er á Seyðisfjörð um borð í ferjuna Norrænu sem á sumrin
siglir milli Norðurlanda og Seyðisfjarðar. Vegasamgöngur í héraðinu
og til nágrannabyggða á fjörðum eru mjög góðar, enda lega Egils-
staða frábær, í miðju veganeti Austurlands. Ferðamennska er mikil,
bæði á sumri og vetri enda býður svæðið uppá ótal möguleika til
útivistar og ferðalaga.
Lausar stöður í Borgarbókasafni
Borgarbókasafn óskar eftir að ráða starfsmenn í nýtt bókasafn í Árbæjarhverfi.
Safnið verður opnað í febrúar. Í safninu verða 7 starfsmenn og verður það opið fram á kvöld
og um helgar.
Bókasafnið í Árbæ verður sjöunda safn Borgarbókasafns. Hin eru: Foldasafn í Grafarvogi,
bókasafnið í Gerðubergi, Sólheimasafn, Seljasafn, Kringlusafn og aðalsafnið í Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15. Auk þess rekur safnið bókabíl sem hefur um fjörutíu viðkomustaði víðs
vegar um borgina.
Safnstjóri
Safnstjóri sér um daglega stjórnun á vinnustaðnum, vinnur að gerð starfsáætlana, sér um
að framfylgja starfsmannastefnu borgarinnar og ber ábyrgð á uppbyggingu safnkosts svo
eitthvað sé nefnt.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun í bókasafns- og upplýsingafræði áskilin.
Menntun eða reynsla af stjórnun æskileg.
Starfið krefst frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða.
Viðkomandi verður að hafa ánægju af mannlegum samskiptum og vera fær um að skapa
liðsheild í starfsmannahópi.
Bókasafns- og upplýsingafræðingar
Verkefni eru t.d. upplýsingaþjónusta, þjónusta við börn og unglinga og notendafræðsla.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun í bókasafns- og upplýsingafræði áskilin.
Starfið krefst frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða.
Viðkomandi verður að hafa ánægju af mannlegum samskiptum og vera fær um að vinna í
hópi.
Bókaverðir
Verkefni eru t.d. afgreiðsla, frágangur og uppröðun safnefnis og þjónusta við notendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
Starfið krefst frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða.
Viðkomandi verður að hafa ánægju af mannlegum samskiptum og vera fær um að vinna í
hópi.
Meirihluti starfsmanna Borgarbókasafns eru konur og eru karlar því sérstaklega hvattir til að
sækja um störfin.
Vinnutími getur verið sveigjanlegur.
Ráðningartími er frá 1. janúar. Nánari upplýsingar veitir Erla Kr. Jónasdóttir safnstjóri aðal-
safns, erla@borgarbokasafn.is.
Laun og kjör skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og St.Rv.
Umsóknir berist Önnu Torfadóttur, borgarbókaverði, Borgarbókasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15, 101 R. eigi síðar en 8. desember nk.
Borgarbókasafn hefur að leiðarljósi að jafna aðgang almennings að upplýsingum, þekkingu
og afþreyingu. Meðal markmiða safnsins er að efla íslenska tungu, bókmenntir og menn-
ingu, styðja nám og símenntun og leitast safnið við að nýta nýjustu miðla og bestu tækni á
hverjum tíma.
Markvisst er unnið að símenntun og að því að efla frumkvæði starfsmanna og vill safnið
ráða til sín starfsmenn sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að ná fram markmiðum
safnsins.
Á heimasíðu Borgarbókasafns, www.borgarbokasafn.is
eru nánari upplýsingar um starfsemina.