Morgunblaðið - 23.11.2003, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Dalvíkurbyggð
Safnstjóri
Laust er til umsóknar starf forstöðumanns Bóka-
safns Dalvíkurbyggðar og Héraðsskjalasafns
Svarfdæla. Um er að ræða 75% starf.
Starfssvið:
Áætlanir um uppbyggingu, starfsemi og
rekstur safnanna.
Daglegur rekstur bókasafns og héraðsskjala-
safns.
Gerð starfs- og fjárhagsáætlunar safnanna.
Koma fram fyrir hönd safnanna út á við.
Gegnir almennum störfum bókasafns- og
héraðsskjalavarðar.
Menntun og hæfniskröfur:
Háskólamenntun í bókasafns- og upplýsinga-
fræði eða jafngildu námi æskileg.
Haldgóð reynsla af sambærilegum verkefn-
um.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt.
Góð almenn tölvukunnátta.
Laun eru skv. gildandi kjarasamningum við-
komandi stéttarfélags við Launanefnd sveitar-
félaga.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember
2003. Umsóknum skal skila til fjármála- og
stjórnsýslustjóra.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Pálína
Jóhannsdóttir, fjármála- og stjórnsýslustjóri,
í síma 460 4903, netfang gp@dalvik.is.
Su›urbygg›arskóli er n‡r grunnskóli flar sem
áhersla ver›ur lög› á n‡sköpun í skólastarfi.
Stefnt er a› sveigjanlegum og fjölbreyttum kennsluháttum, s.s. samvinnunámi,
samflættingu námsgreina og einstaklingsmi›u›u námi.
Helstu verkefni:
St‡ra og bera ábyrg› á daglegri starfsemi og rekstri skólans.
Veita skólanum faglega forystu á svi›i kennslu og flróunar í starfi.
Lei›a samstarf starfsmanna, nemenda, heimila og skólasamfélagsins í heild.
Menntun og hæfni:
Kennarapróf.
fiekking og reynsla á svi›i stjórnunar.
Framhaldsmenntun á svi›i stjórnunar, uppeldis- e›a kennsluréttinda er æskileg.
Lei›togahæfileikar.
Í starfinu er lög› áhersla á frumkvæ›i, skipulagshæfileika, sjálfstæ› vinnubrög› og
hæfni í mannlegum samskiptum.
Vi›komandi flarf a› geta hafi› störf eigi sí›ar en um næstu áramót.
Búseta: Skilyr›i fyrir rá›ningu í starfi› er a› vi›komandi sé e›a ver›i búsettur í
sveitarfélaginu.
Á heimasí›u Árborgar www.arborg.is er a› finna skipurit og a›rar uppl‡singar
sem a› gagni geta komi› fyrir umsækjendur.
Uppl‡singar veita Katrín S. Óladóttir og fiórir fiorvar›arson.
Netföng: katrin@hagvangur.is og thorir@hagvangur.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is. Á›ur augl‡stur umsóknarfrestur
hefur veri› framlengdur til og me› 1. desember nk.
Númer starfs er 3537.
Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • Bréfasími 520 4701 • www.hagvangur.is
Skólastjóri vi›
Su›urbygg›arskóla
Árborg er sveitarfélag í sókn.
Íbúafjöldi er 6.300 manns og
stö›ug uppbygging í gangi.
Árborg er fljónustumi›stö› fyrir
allt Su›urland, verslun, fljónusta
og i›na›ur eru a›alatvinnugreinar
sveitarfélagsins. Skólastarf er öflugt
og fer›afljónusta er mjög vaxandi.
Auk grunnskólanna eru sex
leikskólar, tónlistarskóli og
Fjölbrautaskóli Su›urlands. Gó›
almenn fljónusta. Menningarlífi›
er fjölbreytt, umhverfi› fagurt og
fólki› skemmtilegt.
VÆNTINGAR ungs fólks til
launa og gæða starfa hafa verið
nokkuð óraunhæfar undanfarin ár,
segja talsmenn atvinnumiðlana. Að
sögn viðmælenda Morgunblaðsins
einkenndist uppgangstíminn af
„seljendamarkaði“ á vinnumarkaðn-
um, þar sem atvinnuveitendur
stunduðu yfirboð í von um stærri
bita af væntanlegri köku sem síðan
brást. Þetta olli miklu launaskriði og
óraunhæfum væntingum nýútskrif-
aðra starfskrafta á vinnumarkaði.
Nú hefur ástandið jafnað sig og
meira jafnvægi komið á ráðningar.
Fólk byrjar lægra í stiganum
Jens Ólafsson, framkvæmdastjóri
ráðningarþjónustunnar Ábendis,
segir það einkenna ástand vinnu-
markaðarins þessa dagana að það
taki lengri tíma fyrir fólk að finna
sér vinnu við hæfi, bæði taki fyr-
irtæki sér lengri tíma í að leita og
einnig séu fleiri um hvert auglýst
starf. „Fólk getur ekki gert eins
miklar væntingar og kröfur til
starfa,“ segir Jens og bætir við að
fólk þurfi nú að byrja smærra og
neðar í stiganum en áður. „Þegar
uppgangurinn var sem mestur gat
fólk gengið beint úr skóla í góð
störf. Nú þarf nýtskrifaður við-
skiptafræðingur að sætta sig við
starf sem gjaldkeri eða þjónustu-
fulltrúi í banka, enda er það eðlilegt,
það þarf að öðlast reynslu og það er
í raun ekki skynsamlegt að setja
manneskju, nýskriðna úr skóla með
enga hagnýta reynslu í ábyrgðar-
starf. Nú þarf fólk að byrja á „botn-
inum“ og vinna sig upp. Ungt há-
skólamenntað fólk er gjarnan með
háar hugmyndir um laun, í kringum
250–300.000 krónur í grunnlaun í
upphafi. Þetta er óraunhæft og mun
skynsamlegra að miða við eins og
180– til 230.000 krónur í grunn-
laun,“ segir Jens.
Þarf að byggja upp reynslu
Jens segir atvinnuástandið í raun
tiltölulega eðlilegt, þótt skórinn hafi
kreppt nokkuð undanfarin tvö ár sé
ekki hægt að tala um að neina
kreppu hafi verið að ræða. „Flestir
geta fengið vinnu, þótt ekki sé um
draumastarfið að ræða. Fólk þarf
bara að miða svolítið lægra. Þetta
var þannig að fólk gat fengið gott
starf og laun fljótlega eftir háskól-
ann. Sá tími er liðinn og ég hef ekki
trú á því að hann komi aftur í bráð.
Enda var það ástand mjög óeðlilegt.
Fólk þarf einfaldlega að byggja upp
reynslu í starfi. Dýrar ráðningar á
óreyndum starfsmönnum höfðu
mikið að gera með slæma afkomu
margra fyrirtækja, enda fór launa-
kostnaður upp úr öllu valdi en fram-
leiðni jókst ekki að sama skapi.“
Betra að vinna eitthvað en
að vera atvinnulaus lengi
Jens sýnist mest að gera hjá með-
alstórum fyrirtækjum, þar sem rúm
er fyrir vöxt. „Stóru fyrirtækin eru
að minnka við sig, en þetta mun
hægt og rólega taka við sér aftur.
Afkoman batnar smám saman þegar
fyrirtækin fara að fá hæfari og um
leið ódýrari starfsmenn. Ég vil vera
hóflega bjartsýnn og fólk verður að
temja sér hógværar væntingar, því
væntingarnar endurspegla oft ekki
raunveruleikann. Ungt fólk sem er
að koma út úr skóla þarf að gera ráð
fyrir því að það verði erfiðara og
taki lengri tíma að finna drauma-
starfið. Í dag er frekar litið á starfs-
reynslu en menntun, enda vegur
reynslan þungt,“ segir Jens og bæt-
ir við að nauðsynlegt sé að nálgast
atvinnuleit með opnum hug. „Fólk
má auðvitað aldrei hætta leitinni að
draumastarfinu, en það þarf að gera
sér grein fyrir því að það þarf að
byrja neðar en það hafði hugsað sér,
og það er mjög eðlilegt. Fólk þarf
líka að vera opið fyrir öðrum störf-
um, ekki útiloka störf af öðrum vett-
vangi. Af minni reynslu er það
sterkara fyrir manneskju sem er að
sækja um vinnu að sýna fram á stöð-
uga vinnu við hvað sem er, frekar en
atvinnuleysi. Þetta ber hugarfari
vitnisburð auk þess að halda manni
gangandi. Atvinnuleysi er niður-
drepandi og engum hollt,“ segir
Jens og bætir því brosandi við að
hann hafi sjálfur ekið strætisvagni í
níu mánuði eftir að hann lauk prófi í
háskóla.
Nauðsynlegt
að víkka
sjóndeildar-
hringinn
Morgunblaðið/Árni Torfason
Járnabindingar geta verið ágætur undirbúningur fyrir önnur störf.
Ungt fólk þarf að sætta sig við lengri leið að
„draumastarfinu“ og vera tilbúið að endur-
skoða stöðuna
Morgunblaðið/Jim Smart
Stúdentar streyma út úr háskólum á hverju ári, vongóðir og fullir af orku. Ekk finna allir strax starf við hæfi.