Morgunblaðið - 23.11.2003, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2003 B 9
Kennara vantar í kennslu á unglingastigi sem fyrst.
Viðkomandi hafi reynslu af kennslu og vinnu með
unglingum. Um er að ræða fullt starf.
Kennari í Brúarskóla
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 520 6000. Laun samkv.
kjarasamningum LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 21. desember.
Umsóknir sendist Brúarskóla, Vesturhlíð 3, 105 Reykjavík.
Hlutverk Brúarskóla er að mæta þörfum nemenda sem eru
með geðrænan og félagslegan vanda og geta ekki nýtt sér
skólavist í almennum skólum. Skólinn rækir hlutverk sitt bæði
með námstilboði fyrir nemendur og ráðgjöf til kennara og
annars starfsfólks skóla. Rík áhersla er lögð á samstarf í
skólanum.
Sölumenn
Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir kraft-
miklum sölumönnum í símasölu.
Góðir tekjumöguleikar. Vinnutími frá kl. 18-22
fjögur kvöld í viku.
Áhugasamir sendi upplýsingar um aldur og
starfsferil til augldeildar Mbl. eða á box@mbl.is
merktar: „K—14580“ fyrir 27. nóvember nk.
Hagfiskur er 11 áa gamalt fyrirtæki sem sérhæfir sig meðal annars
í símasölu á frystu sjávarfangi. Ánægðir viðskiptavinir okkar skipta
þúsundum enda leggur fyrirtækið metnað sinn í að bjóða aðeins
fyrsta flokks vöru og þjónustu.
Aukavinna
Okkur vantar vanan starfsmann í sal, mánu-
daga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl 16.30
til 21.30 og annan hvern laugardag frá 9.00
til 15.00, samtals um 18 klst á viku. Umsækj-
andi þarf að hafa náð 22 ára aldri og geta unnið
sjálfstætt. Umsóknareyðublöð á staðnum.
Heitt og Kalt ehf. Grensásvegi 10 Rvk.
Heitt og Kalt er reyklaust veitingahús við Grensásveg.
Tölvusmiðjan óskar eftir
að ráða í eftirfarandi stöðu:
Kerfisstjóri
— netmaður
Verið er að leita að einstaklingi til að sinna dag-
legum rekstri á netþjónum, útstöðvum og net-
búnaði ásamt almennri notendaþjónustu.
Starfið krefst afburðaþekkingar á Microsoft
stýrikerfum og nauðsynlegt að viðkomandi
hafi góða reynslu á þessu sviði.
Eftirfarandi kostir skipta miklu máli:
Þekking á víðnetsbúnaði (aðalega Cisco),
grunnþekking á Linux, hæfileiki til að vinna
sjálfstætt og skipulega, almennur áhugi á upp-
lýsingatækni og nýjungum á því sviði, metnað-
ur og almenn reglusemi. Leitað verður eftir
meðmælum og æskilegt er að viðkomandi hafi
Microsoft vottun. Viðkomandi mun hafa
starfsaðstöðu í Fjarðabyggð.
Um Tölvusmiðjuna
Tölvusmiðjan er fyrirtæki í upplýsingatækni
og eru helstu starfssvið almenn tölvuþjónusta,
hýsing, netþjónusta, víðnetslausnir og
hugbúnaðarþróun. Tölvusmiðjan hefur starfs-
stöðvar á Austur-Héraði og í Fjarðabyggð og
þjónustar aðallega fyrirtæki og stofnanir á
miðausturlandi.
Umsóknir sendist á netfangið
starf@tolvusmidjan.is
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
í síma 470 2230.
Vélaviðgerðarmaður
Innflutningsfyrirtæki óskar eftir vönum starfs-
manni til starfa við viðgerðir og þjónustu á
vinnuvélum og líkum tækjum.
Leitað er að kröftugum einstaklingi með ríka
þjónustulund sem er tilbúinn að takast á við
krefjandi verkefni auk ferðalaga.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Skriflegar umsóknir sendist til auglýsingadeild-
ar Mbl. merktar: „Viðgerðir — 3232“ fyrir
30. nóvember eða í box@mbl.is .
Vífilsstaðir
Hjúkrunarheimilið á Vífilsstöðum mun
hefja starfsemi sína í janúar 2004
Við leitum að starfsfólki til starfa í eftirfar-
andi stöður frá 1. febrúar 2004.
Bjóðum upp á sveigjanlegan vinnutíma.
Hjúkrunarfræðingar
óskast á kvöld-, helgar- og næturvaktir.
Sjúkraliðar
óskast á allar vaktir.
Starfsfólk óskast í:
Aðhlynningu á allar vaktir
Býtibúr á morgun-, kvöld- og helgarvaktir.
Ræstingu á morgun- og helgarvaktir.
Upplýsingar veitir
Ingibjörg Tómasdóttir,
sími 585 9403 og 585 9500.
Yfirlæknir
Starf yfirlæknis hjá Heyrnar- og talmeinastöð
Íslands er laust til umsóknar. Um fullt starf er
að ræða og veitist það frá og með 1. janúar
2004. Umsækjendur skulu hafa sérfræðiviður-
kenningu í háls-, nef- og eyrnarlækningum og
heyrnarfræði (Audiology).
Yfirlæknir er faglegur yfirmaður stofnunarinnar
og ber ábyrgð gagnvart framkvæmdastjóra.
Honum er ætlað að hlúa að og hafa frumkvæði
að vísindavinnu á sviði stofnunarinnar. Stjórn-
unarreynsla er mikilvægt skilyrði. Laun eru
skv. kjarasamningi sjúkrahúslækna og er
starfið bundið við Heyrnar- og talmeinastöðina
eingöngu.
Umsóknum ber að skila til Heyrnar- og tal-
meinastöðvar Íslands. Umsóknum þurfa að
fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri
störf, reynslu af stjórnunarstörfum og vísinda-
vinnu ásamt sérprenti eða ljósriti af greinum
sem umsækjandi hefur skrifað eða birt. Um-
sóknir sendist til framkvæmdastjóra Heyrnar-
og talmeinastöðvarinnar, Guðrúnar Gísladótt-
ur, gudrung@hti.is, Háaleitisbraut 1 og veitir
hún upplýsingar um starfið. Umsóknir skulu
berast fyrir 8. desember nk. Mat stöðunefndar
landlæknis byggist á innsendum umsóknar-
gögnum. Viðtöl verða við umsækjendur og
byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig
á þeim.
Tungumálakunnátta
21 árs ábyrgðarfull stúlka óskar eftir fullu starfi
sem fyrst. Mjög góð frönsku- og enskukunn-
átta. Er með stúdentspróf af IB-braut, MH. Er
vön ýmsum þjónustu- og afgreiðslustörfum.
Færni í mannlegum samskiptum, er stundvís
og reglusöm. Áhugasamir sendi inn tilboð á
box@mbl.is merkt: „B — 14575“, f. 1. des.
Sinfóníuhljómsveit
Íslands
auglýsir 2 lausar stöður
fiðluleikara í
2. fiðlu
frá og með 1. febrúar 2004
Skylduverkefni: W.A. Mozart: 1. þáttur m/kadensu úr
Fiðlukonsert nr. 3, 4 eða 5.
J.S. Bach: Tveir þættir (hægur og hraður) úr einleiksverki að
eigin vali.
Umsókn, ásamt ferilskrá, skal hafa borist
hljómsveitinni 15. desember 2003.
Hæfnispróf fer fram 26. janúar 2004.
Laun skv. kjarasamningi Starfsmannafélags SÍ og fjármála-
ráðherra.
Umsókn og hæfnispróf gilda í eitt ár (sbr. reglur um ráð-
ningu hljóðfæraleikara, 9. gr.)
Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri.
Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Háskólabíói v/Hagatorg, pósthólf 7052,
127 Reykjavík, sími 545 2502, fax 562 4475,
netfang: kristin@sinfonia.is .
Skrifstofu- og
bókhaldsstarf
Innflutningsfyrirtæki óskar eftir starfsmanni
til að sjá um bókhald ásamt almennum skrif-
stofustörfum. Unnið er með DK Retis tölvu-
kerfi.
Möguleiki er að semja um breytilegan vinnu-
tíma. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
allra fyrst.
Skriflegar umsóknir sendist til auglýsingadeild-
ar Mbl. merktar: „Skrifstofa — 3242“ fyrir
30. nóvember eða í box@mbl.is .
Leikskólakennarar
Leikskólinn Suðurvellir, Vogum Vatnsleysu-
strandarhreppi, auglýsir eftir leikskólakennur-
um eða öðru uppeldismenntuðu starfsfólki.
Um er að ræða þrjár 100% stöður frá og með
næstu áramótum.
Upplýsingar um leikskólann er að finna á
heimasíðu Vatnsleysustrandarhrepps
www.vogar.is, http://www.vogar.is
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi
Launanefndar sveitarfélaga og Félags íslenskra
leikskólakennara.
Upplýsingar um stöðurnar veitir leikskólastjóri,
Ragnhildur Sigmundsdóttir, í síma 424 6817.
Starfskraftur óskast
í blómaverslun. Reynsla æskileg.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „Blóm—14574“, fyrir 28. nóvem-
ber.
Frá Grunnskóla
Djúpavogs
Við Grunnskóla Djúpavogs vantar okkur um-
sjónarkennara fyrir 1. og 2. bekk eftir áramót
en bekkjunum er kennt saman.
Grunnskóli Djúpavogs er einsetinn, heildstæð-
ur grunnskóli með 67 nemendur. Við skólann
starfa nú 11 samhentir kennarar.
Mjög gott íþróttahús er á staðnum og ný sund-
laug.
Umsóknarfrestur er til 15. des. 2003.
Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri Gauti
Jóhannesson í síma 478 8836, netfang:
grunnskoli@djupivogur.is .
Frekari upplýsingar um skólann má finna á
heimasíðu hans:
http://www.djupivogur.is/grunnskoli þar
sem einnig er hægt að nálgast umsóknareyðu-
blöð.