Morgunblaðið - 23.11.2003, Qupperneq 10
10 B SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sölufólk á öllum aldri
Viljum ráða sölufólk í dag- og kvöldverkefni.
Spennandi verkefni, föst laun plús bónus.
Aðstoð, leiðbeiningar og góður starfsandi.
Nánari upplýsingar í síma 590 8000 á milli
kl. 13 og 15 alla virka daga.
BM-ráðgjöf er upplýsingafyrirtæki sem veitir sérhæfða þjónustu
í markaðs-, upplýsinga- og innheimtumálum. Markmið fyrirtæk-
isins er að aðstoða fyrirtæki og félagasamtök við að ná settu
marki í upplýsinga-, markaðs- og innheimtustarfi. Með sér-
þjálfuðu starfsfólki og öflugum tæknibúnaði beitum við hnit-
miðuðum vinnubrögðum til að auka gæði þjónustu og auka
árangurinn af innheimtu- og markaðsstarfi viðskiptavinarins.
BM ráðgjöf ehf.,
Ármúla 36, Reykjavík,
sími 590 8000, netfang tor@bm.is
Innanhússarkitekt
leitar eftir fjölbreyttu og krefjandi starfi. Hef
mikla starfsreynslu við fagið.
Hef starfað á teiknistofum en síðustu ár starfað
sjálfstætt að margvíslegum verkefnum.
Góð reynsla í notkun teikniforrita (auto-cad).
Upplýsingar í síma 567 7212 og 698 7212.
Störf í grunnskólum
Reykjavíkur
Borgaskóli, sími 577 2900.
Skólaliði við baðvörslu stúlkna, 100% starf.
Almenn kennsla fyrir 2. bekk, frá áramótum.
Frá 1. feb. 2004 til vors vantar fólk í afleysingar
vegna foreldraorlofs, í eftirtalin störf: Tölvuum-
sjón, 50% starf. Almenn kennsla í 6. bekk.
Smíðakennsla auk almennrar kennslu.
Fellaskóli, sími 557 3800.
Sérkennari eða kennari með reynslu í náms-
veri.
Hlíðaskóli, sími 552 5080.
Táknmálsdeild. Þroskaþjálfi eða kennari á
táknmálssvið Hlíðaskóla frá áramótum. Tákn-
málskunnátta nauðsynleg.
Ingunnarskóli, sími 585 0400.
Skólaliði 100% starf. Starfsmaður í heilsdags-
skóla eftir hádegi.
Vogaskóli, sími 553 2600.
Stuðningsfulltrúi. 100% staða. Baðvarsla
drengja á mánudags- og föstudagsmorgnum
og eftir hádegi á miðvikudögum.
Upplýsingar veita skólastjórar, aðstoðarskóla-
stjórar eða aðrir tilgreindir í viðkomandi
skólum. Umsóknir ber að senda til skóla. Laun
skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við
viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um laus störf, umsóknar-
frest og grunnskóla Reykjavíkur er að finna
á netinu undir www.grunnskolar.is.
Menntaskólinn á Ísafirði
Lausar kennarastöður
Menntaskólinn á Ísafirði auglýsir eftir kennur-
um á vorönn 2004 í eftirfarandi bóknámsgrein-
um:
Ensku (20 kst/viku).
Sálfræði (24 kst/viku).
Jafnframt vantar stundakennara og/eða kenn-
ara í hlutastarfi í eftirfarandi verknámsgreinar:
Vélstjórnargreinar (10 kst/viku).
Rafiðngreinar (8 kst/viku).
Málmiðngreinar (8 kst/viku).
Umsóknarfrestur er til 7. des. 2003.
Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 6. gr.
laga nr. 86/1998 um leyfi til þess að nota starfs-
heitið framhaldsskólakennari. Starfskjör fara
eftir kjarasamningi ríkisins og KÍ frá 7. janúar
2001.
Allar nánari upplýsingar veita Ólína Þorvarð-
ardóttir skólameistari og Guðbjartur Ólason
aðstoðarskólameistari í símum 450 4401 og
450 4402.
Raunvísindastofnun Háskólans
Laust starf
Starf framkvæmdastjóra Raunvísindastofnunar
Háskólans er laust til umsóknar. Framkvæmda-
stjórinn veitir sameiginlegri skrifstofu stofnun-
arinnar forstöðu og sér um daglegan rekstur.
Hann sér um framkvæmd þeirra mála sem
stjórn stofnunarinnar felur honum og sinnir
öllum samskiptum við fjársýslu ríkisins, ráðu-
neyti og aðrar stofnanir, fyrirtæki og erlenda
aðila varðandi málefni Raunvísindastofnunar.
Umsækjandi skal hafa lokið háskólaprófi eða
hafa jafngilda starfsreynslu. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna ríkisins. Æskilegt er
að nýr framkvæmdastjóri geti hafið störf frá
og með 1. janúar 2004. Umsóknir með ítarleg-
um upplýsingum um menntun og starfsferil
skulu hafa borist formanni stjórnar Raunvís-
indastofnunar, Dunhaga 3, 107 Reykjavík, eigi
síðar en 8. desember nk.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækj-
endum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar
ákvörðun hefur verið tekin.
Raunvísindastofnun Háskólans.
Við leikskólann Hörðuvelli eru lausar stöður
leikskólakennara.
Leikskólinn er nýr og glæsilegur, fjögurra deilda
og stendur við Lækinn í Hafnarfirði.
Megináherslur í starfi skólans er „að hafa
gaman og láta okkur líða vel.“
Allar upplýsingar veitir María Kristjánsdóttir,
leikskólastjóri í síma 555 0721 eða 860 8583.
Samkvæmt jafnréttisáætlun Hafnarfjarðar eru
karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um
starfið.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í
fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá
bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um leið af
hagkvæmni stærðarinnar og staðsetningar í jaðri höfuð-
borgarsvæðisins. Það er gott að búa og starfa í Hafnarfirði.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Leikskólakennarar
Kennarar
Okkur vantar áhugasaman kennara til starfa
við Barnaskóla Vestmannaeyja sem fyrst eða
eftir samkomulagi. Um er að ræða starf um-
sjónarkennara í 6. bekk.
Upplýsingar gefa Hjálmfríður skólastjóri í sím-
um 481 1944/690 8756, netfang:
hjalmfr@ismennt.is og Hjördís Kristinsdóttir
deildarstjóri miðstigs í síma 481 1944/693 2909,
netfang: hjordk@ismennt.is.
Á heimasíðu skólans:
www.vestmannaeyjar.ismennt.is eru viðamikl-
ar upplýsingar um Barnaskólann og skóla-
starfið þar.
Barnaskóli Vestmannaeyja er heilstæður grunnskóli með 440 nem-
endum. Í Vestmannaeyjum fer fram framsækið skólastarf í leik-
og grunnskólum auk þess eru þar starfandi öflugir sérskólar s.s.
tónlistarskóli og framhaldsskóli. Þá er í Vestmannaeyjum öflugt
íþróttalíf og góð aðstaða til margvíslegrar tómstundaiðkunar s.s.
hestamennsku, fjallamennsku/ bjargveiði, kór, leikfélag, björgunar-
sveit auk saumaklúbba.
Skólastjóri.
Í SMÁRALINDINNI koma
saman margar ólíkar mann-
eskjur í mörgum ólíkum erinda-
gjörðum. Þó er víst að allir eiga
sér draumastarf. En hugmynd-
irnar voru jafnólíkar og fólkið
sjálft.
Þær Helga Sigrún Gísladóttir
og Kristín Erla Pétursdóttir
voru að dimittera frá Flens-
borgarskóla. Helgu dreymir um
að verða kennari, segir vanta
aga í menntakerfið og þjóðfé-
lagið. „Ég hef yndi af börnum
og unglingum og tel mig hafa
nóg fram af færa. Ég hef það
sem til þarf til að blómstra í
kennarastarfi. Helga stefnir á
Kennaraháskólann næsta haust. Kristín Erla segist enn
óákveðin, en sterklega komi til greina að starfa á vett-
vangi sálfræðinnar. „Enginn veit sína ævina fyrr en öll er.
Mér finnst sálfræðin heillandi fag og starf, þar leynast
hlutir sem alla langar að vita og öllum koma við.“
Hjalti Leifsson er þrettán ára og hans draumastarf er
að gerast forritari og leikjahönnuður. „Ég hef mjög gam-
an af tölvuleikjum,“ segir Hjalti, „og ég vil geta gefið öðr-
um krökkum það sem fullorðnir hafa gefið mér.“
Jónína Tryggvadóttir skenkti kúnnum Smáralindar
ljúffengan kaffisopa þegar þeir tóku sér hlé í versl-
unarleiðöngrum sínum. Hún sagði greinilegt að hún væri
ekki búin að finna sig, annars væri hún örugglega á fullu í
því. Þegar blaðamaður þrýsti á kom í ljós að hún lumar á
draumum um að starfa við hönnun. „Mig langar til dæmis
að starfa við textílhönnun og þess konar hluti.“ Sagt er að
maður viti margt þegar maður veit hvað maður vill ekki.
„Ég get allavega ekki hugsað mér að vinna við skrif-
stofustörf, að sitja bak við tölvu allan daginn.“
Feðgarnir Karl Viðar Pálsson og Steingrímur Viðar
Karlsson eru úr Mývatnssveitinni. Þeir voru í bænum með
fjölskyldunni að leita að fötum og fleiru. Karl segist nú
þegar vinna í sínu draumastarfi við efnistöku í Kísiliðj-
unni við Mývatn. „Ég starfa þar við dælingu úti á vatninu
á sumrin og viðhald á tækjum á veturna. Stóri kosturinn
er að þetta er mikil útivinna allt sumarið. Það eru sérrétt-
indi að fá að starfa á vatninu innan um allt fuglalífið.“
Steingrímur, sem er sex ára, elur með sér metnað um að
gerast jarðýtumaður. „Mér finnst svo gaman að jarð-
ýtum,“ segir Steingrímur, sem að sögn fjölskyldunnar
þekkir allar tegundir jarðýtna og varð svo sannarlega
hlessa þegar hann kom suður og sá allar jarðýturnar í
borginni.
Morgunblaðið/Svavar
Ísbirnurnar Helga Sigrún Gísladóttir og Kristín Erla Pétursdóttir.
Draumastörf
Morgunblaðið/Svavar
Hjalti Leifsson.
Jónína Tryggvadóttir
Morgunblaðið/Svavar
Feðgarnir Karl Viðar Pálsson og Steingrímur Viðar Karlsson.