Morgunblaðið - 23.11.2003, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2003 B 11
Hugbúnaðar-
sérfræðingur
Fjármálafyrirtæki í miklum vexti óskar eftir
hugbúnaðarsérfræðingi á sviði forritunar fyrir
Navision Attain viðskiptahugbúnað. Jafnframt
er mikilvægt að viðkomandi hafi víðtæka þekk-
ingu á Microsoft hugbúnaði; Windows-server,
Exchange-server, SQL-server, Office og tengd
verkfæri. Alhliða þekking á netkerfum og net-
samskiptum er æskileg.
Umsóknir berist til augldeildar Mbl., eða á
box@mbl.is, merktar: „IT-Navision“ fyrir
28. nóv. 2003.
Í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti er
laust til umsóknar starf
lögfræðings á sviði
fjármálamarkaðar
Starfið mun aðallega felast í þátttöku í
stefnumótun um þróun laga á fjármála-
markaði, samningu frumvarpa, innleiðingu
tilskipana, samskiptum við markaðsaðila,
eftirlitsstofnun EFTA og framkvæmdastjórn
ESB.
Umsækjendur skulu hafa lokið kandidats-
prófi í lögfræði. Þekking og reynsla á sviði
fjármálamarkaðar og opinberrar stjórn-
sýslu er æskileg. Um er að ræða fullt starf
í stöðu deildarsérfræðings sem stefnt er
að ráða í frá og með 1. janúar næstkom-
andi. Laun greiðast samkvæmt kjarasamn-
ingi FHSS. Nánari upplýsingar um starfið
veitir Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytis-
stjóri.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og starfsferil sendist iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneyti, Arnarhvoli, 150 Reykjavík í síð-
asta lagi 8. desember. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðn-
ingu hefur verið tekin.
Yfirlæknir
óskast á nýrnadeild á lyflækningasviði I.
Um fullt starf er að ræða og veitist það frá 1.
mars 2004. Umsækjendur skulu hafa sérfræði-
viðurkenningu í nýrnalækningum og almennum
lyflækningum. Áhersla er lögð á uppbyggingu
og þróun nýrnalækninga við sjúkrahúsið.
Yfirlæknir sérgreinar er yfirmaður deildar og
ber ábyrgð gagnvart lækningaforstjóra og
sviðsstjóra. Stjórnunarreynsla er mikilvægt
skilyrði. Honum ber að hlúa að kennslu og
vísindavinnu á deildinni. Nauðsynlegt er að
umsækjendur hafi reynslu á því sviði. Laun
eru skv. kjarasamningi sjúkrahúslækna. Ætlast
er til að sá sem starfinu gegnir starfi eingöngu
á sjúkrahúsinu sbr. yfirlýsingu LSH vegna
kjarasamnings við sjúkrahúslækna, dags.
2. maí 2002. Umsóknum ber að skila á þar til
gerðum eyðublöðum er nálgast má á vef
Landspítala – háskólasjúkrahúss undir „laus
störf “. Umsóknum þurfa að fylgja vottfestar
upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af
stjórnunarstörfum, kennslu og vísindavinnu
ásamt sérprenti eða ljósriti af greinum sem
umsækjandi hefur skrifað eða birt.
Umsóknargögn berist, fyrir 15. des. n.k., í
tvíriti til skrifstofu lækningaforstjóra Eiríksgötu
5 og veitir hann eða sviðsstjóri lyflækninga-
sviðs I, Guðmundur Þorgeirsson, sími
543 1000, netfang gudm@landspitali.is,
upplýsingar um starfið.
Mat stöðunefnda landlæknis og læknaráðs
LSH byggist á innsendum umsóknargögnum.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist
ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim.
Ræsting
Dagdeild aldraðra í Þorraseli, Þorragötu
3, óskar eftir starfsmanni/konu við ræstingu
(uppmæling). Vinnutími er 3,5 klst. eftir kl. 16
virka daga.
Einungis reglusamur og snyrtilegur einstak-
lingur kemur til greina, ekki yngri en 18 ára.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og Eflingar. Nánari upplýsingar veitir
Droplaug Guðnadóttir, forstöðumaður, í síma
562 2571, netfang: droplaugg@fel.rvk.is .
Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf
og starfsmannastefnu Félagsþjónustunnar á
vefsíðunni: www.felagsthjonustan.is .
Aðalbókari
Hveragerðisbær auglýsir laust til umsóknar
starf aðalbókara frá og með nk. áramótum.
Helstu kröfur til umsækjenda eru:
Mjög góð þekking á bókhaldi.
Mjög góð þekking á Navision Financials upp-
lýsingakerfi.
Starfsreynsla.
Í boði er krefjandi og skemmtilegt starf hjá vax-
andi bæjarfélagi.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í síma
483 4000.
Skriflegar umsóknir skulu berast skrifstofu bæj-
arins, Hverahlíð 24, 810 Hveragerði fyrir
1.desember nk. merktar: „Aðalbókari“.
Hveragerðisbær Au
gl
.Þ
ór
hi
ld
ar
22
00
.1
96
Skólaskrifstofa
S E L T J A R N A R N E S B Æ R
Íþróttakennarar
Mýrarhúsaskóli auglýsir lausa kennarastöðu í
íþróttum frá 1. janúar 2004. Aðstaða til kennslu
í íþróttum og sundi er mjög góð.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum KÍ
við Launanefnd sveitarfélaga.
Í Mýrarhúsaskóla er 1.-6. bekkur með um 450
nemendur og þar starfa um 60 manns.
Skólastjóri er Regína Höskuldsdóttir, sími 595-
9200, netfang: regina@seltjarnarnes.is. Sjá einnig
www.myrarhusaskoli.is.
Umsóknir berist til skólastjóra sem veitir allar
nánari upplýsingar um stöðuna.
Umsóknarfrestur er til 5. desember 2003.
Mýrarhúsaskóli Seltjarnarnesi
Framkvæmdastjóri
fyrir IÐNÚ bókaútgáfu
IÐNÚ bókaútgáfa sérhæfir sig í útgáfu efnis
fyrir framhaldsskóla, einkum í iðn- og starfs-
menntun. IÐNÚ bókaútgáfa er í eigu Iðnmennt-
ar ses, samtaka iðnmenntaskóla.
Við leitum að einstaklingi með þekkingu á:
Rekstri,
markaðsmálum,
tölvu- og margmiðlunarumhverfi,
útgáfustarfsemi af ýmsum toga.
Umsóknir sendist til IÐNÚ bókaútgáfu, Brautar-
holti 8, 105 Reykjavík, fyrir 5. desember 2003.
Upplýsingar um starfið gefur Baldur Gíslason
í síma 895 5877.
LAUS STÖRF
• Umsjónarkennara Hjallaskóla
• Forfallakennara Hjallaskóla
• Leikskólakennara Kópasteini
• Leikskólakennara Núpi v/Núpalind
• Leikskólakennara Fífusölum v/Salaveg
• Leikskólakennara Grænatúni v/
Grænatún
• Leikskólakennara Dal v/Funalind
• Tónmenntakennara Snælandsskóla
• Gangav./ræsta Snælandsskóla
• Tölvuumsjónarmanns Snælandsskóla
• Stuðningsfulltrúa Lindaskóla
• Umsjónarkennara Salaskóla
• Tónlistarkennara Salaskóla
Nánari upplýsingar á:
www.kopavogur.is
og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is
GCG
Global Consulting Group
Reynslumiklir sölumenn
Getum bætt við okkur nokkrum sölumönnum
með góð tengsl innan íslenskra fyrirtækja.
Metnaður, áræði, lífsgleði og dugnaður skilyrði.
Mjög góð laun, ásamt tryggingu.
Svar sendist til: thor@img-global.com, fyrir 28.
nóvemberber. www.img-global.com
Gerðaskóli
Garðbraut 90, 250 Garði,
Frá áramótum vantar kennara í 50% stöðu til
að kenna nemanda í þriðja bekk. Kunnátta í
Tákn með tali er nauðsynleg eða vilji til að
tileinka sér þá samskiptaleið.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma
422 7020.
Grunnskólakennarar
Vegna forfalla auglýsir Hvolsskóli á Hvolsvelli
eftir kennara til starfa í efri bekkjum skólans
frá 1. janúar 2004.
Meðal kennslugreina eru stærðfræði, náttúru-
fræði og enska.
Skriflegar umsóknir sendist til skólastjóra
Hvolsskóla, umsóknarfrestur er til 10.12. 2003.
Upplýsingar um Hvolsskóla eru á heimasíðu
hans http://hvolsskoli.ismennt.is
Upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjóri í síma 487 8408 og heima í síma 487
8384.