Morgunblaðið - 23.11.2003, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2003 B 15
ATVINNUHÚSNÆÐI
FR
Æ
ÐSLUMIÐSTÖÐ BÍ
LGR
EI
N
A
Sveinspróf í bíliðngreinum
Umsóknarfrestur vegna þátttöku í sveinspróf-
um vorið 2003 í bifreiðasmíði, bifvélavirkjun
og bílamálun rennur út þann 5. desember nk.
Fyrirvari er gerður um næga þátttöku.
Umsóknareyðublöð fást hjá Fræðslumiðstöð
bílgreina hf., Gylfaflöt 19, Reykjavík. Jafnframt
ber að skila umsóknum ásamt fylgigögnum
þangað og greiða tilskilin gjöld í síðasta lagi
5. desember nk. Nánari upplýsingar eru veittar
í síma 586 1050.
Sveinspróf
í húsasmíði
Sveinspróf í húsasmíði verður haldið
23. - 25. janúar 2004
Umsóknafrestur er til 1. desember nk.
Ekki er tekið við umsóknum sem berast eftir
þann tíma.
Með umsókn skal fylgja afrit af burtfararskírteini
og námssamningi. Þeir, sem ljúka námi á yfir-
standandi önn, þurfa ekki að leggja fram burt-
fararskírteini.
Prófstaðir verða ákveðnir síðar. Til að próf geti
farið fram á tilteknum stað, er miðað við að
próftakar séu fimm eða fleiri.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð liggja
frammi hjá Menntafélagi byggingariðnað-
arins, Hallveigarstíg 1, 1. hæð Reykjavík,
sími 552 1040 og fax 552 1043.
Einnig er hægt að nálgast umsóknaeyðublöð
á heimasíðu Menntafélagsins www.mfb.is
135 fm jarðhæð/leiga
Til leigu 135 fm jarðhæð við Dugguvog.
Tilvalið fyrir heildverslun eða léttan
iðnað. Vörumóttökudyr.
Upplýsingar í síma 896 9629.
Ósfiskur á Höfn
Fiskverkunarhús og fisk-
vinnsla til sölu
Stálklætt 399,6 m² fiskverkunarhús með 2 vinnu-
sölum og þjónusturými. Fiskvinnslan Ósfiskur
verkar harðfisk og nýjan fisk. Frystir, kælir og
fiskvinnslutæki fylgja með. Húsið er fullbúið
fyrir útflutningsleyfi. Upplýsingar á Fasteigna-
sölunni Hraun sf., sími 478 1991.
KENNSLA
VINNUVÉLAR
Járnsmíðavélar
www.idnvelar.is
Vegna mikillar sölu á nýjum vélum eigum við
úrval af notuðum járnsmíðavélum:
Rennibekkur - TOS - 1500 x 450 mm
Rennibekkur - OKUMA - CNC með matara
Rennibekkur - JAGUAR - CNC - 2 ásar
Fræsivél - TOS - 1300 x 350 m. digital
Fræsivél - TOS - 1000 x 200
Borvélar/sagir/klippur/loftpressur o.fl.
IV ehf.
Hvaleyrarbraut 18-20,
sími 565 5055.
idnvelar@idnvelar.is
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Akurinn
kristið samfélag, Núpalind 1,
2.hæð Samkoma í dag kl. 14.00
Nálægið yður Guði, og þá mun
hann nálgast yður.
Allir hjartanlega velkomnir.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðum. Vörður L. Traustason.
Gospelkór Fíladelfíu sér um
lofgjörðina.
Allir hjartanlega velkomnir.
filadelfia@gospel.is
www.gospel.is
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
I.O.O.F. 3 18411248 O,ET.1
Í kvöld kl. 19.30 Bænastund.
Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma.
Umsjón Áslaug Haugland.
Mánudag 24. nóvember
kl. 15.00 Heimilasamband.
Sr. Jakob Hjálmarsson talar
Allar konur hjartanlega
velkomnar.
Morgunguðsþjónusta kl. 11.
Fræðsla fyrir börn og fullorðna.
Ásdís Blöndal kennir.
Samkoma kl. 20.00. Mikil lof-
gjörð og fyrirbænir. Sérsöngur.
Ágúst Valgarð Ólafsson predik-
ar. Þáttur kirkjunnar „Um trúna
og tilveruna“ er sýndur á
Ómega kl. 13.30.
Basar og vöfflukaffi verður
laugardaginn 29. nóv. kl. 14-18
og kaffihúsakvöld frá kl. 21 á
Bíldshöfða 10, 2. hæð, til styrkt-
ar nýju kirkjuhúsi. Komið og
styrkið gott málefni.
Samkoma kl. 16.30.
Kevin White predikar.
Þriðjud. Samkoma kl. 20.
Miðvikud. Bænastund kl. 20.
Fimmtud. Unglingarnir kl. 20.
Laugard. Samkoma kl. 20.30.
www.krossinn.is
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Fjölskyldusamkoma kl. 11:00,
lofgjörð og skipt í deildir, eitt-
hvað við allra hæfi. Léttur há-
degisverður á fjöldskylduvænu
verði á eftir samkomunni.
Allir velkomnir.
Bænastund kl. 19:30.
Almenn samkoma kl. 20:00,
Högni Valsson predikar, lofgjörð
og fyrirbænir. Allir velkomnir.
Sími fyrir bænarefni er 564 2355
eða vegurinn@vegurinn.is.
HALLDÓR Jón
Garðarsson starfar sem
verkefnastjóri mark-
aðsdeildar hjá Nýherja
hf. en alls starfa fimm
starfsmenn innan deild-
arinnar. ,,Í starfinu fel-
ast m.a. samskipti við
auglýsingadeildir fjöl-
miðla, prentþjónustur
og blaðamenn. Þetta er
fyrst og fremst gíf-
urlega fjölbreytt starf,
enda býður Nýherji upp
á mikið úrval vara og
lausna og sérfræðiþjón-
ustu á sviði upplýs-
ingatækni fyrir fyr-
irtæki og einstaklinga,“ segir
Halldór. „Meðal annars er ég í því að
skrifa fréttatilkynningar og greinar
í samvinnu við fjölmarga sérfræð-
inga fyrirtækisins, setja fréttir inn á
vef Nýherja og uppfæra annað efni á
vefnum. Einnig tek ég ljósmyndir af
starfi og atburðum inn-
an fyrirtækisins. Þá tek
ég mikinn þátt í auglýs-
ingagerð í samvinnu við
grafískan hönnuð fyr-
irtækisins og markaðs-
stjóra þess, sem og við
söluráðgjafa Nýherja.“
Ráðstefnur og
kynningar
Halldór segir að Ný-
herji standi fyrir tugum
ráðstefna og kynninga á
ári hverju þar sem bæði
innlendir og erlendir
fyrirlesarar, frá stórfyr-
irtækjum á borð IBM,
SAP, Sony og Cisco, fjalli á faglegan
hátt um það sem er að gerast í upp-
lýsingatækni hverju sinni. „Mark-
aðsdeildin kemur talsvert að und-
irbúningi fyrir ráðstefnur og
kynningar af þessu tagi, í samstarfi
við aðra starfsmenn Nýherja. Þessir
viðburðir fara aðallega fram í ráð-
stefnusal Nýherja, en þó hefur fyr-
irtækið haldið allra stærstu ráð-
stefnurnar úti í bæ. Þá er að mörgu
að huga í undirbúningnum. Á þessu
ári héldum við til dæmis ráðstefnu á
Nordica Hotel, og sóttu hana yfir
hundrað og sextíu gestir. Þá gefum
við út nokkuð af bæklingum og ber
helst að nefna fjörutíu síðna bækling
sem við gáfum út í september en þar
segir frá öllum betri lausnum Ný-
herja.“
Mikil samvinna við fólk
Halldór segir eitt stærsta einkenni
starfsins vera mikil samvinna við
fólk, jafnt innan sem utan fyrirtæk-
isins. „Þetta starf felur í sér mikil
samskipti og gerir miklar kröfur til
manns varðandi samvinnu.
Það þarf að útbúa mikið af auglýs-
ingatengdu efni og markaðsefni fyr-
ir lausnasvið Nýherja og er maður
oft með mörg mál á sinni könnu.
Maður er kannski eina stundina að
skrifa fréttatilkynningu, aðra er
maður að vinna í auglýsingum. Síðan
er maður farinn að skrifa grein um
eitthvert efni. Það sem er einkenn-
andi fyrir daginn er fjölbreytileik-
inn.
Stundum koma auðvitað stór
verkefni sem taka mjög mikinn tíma
og þá sitja önnur mál aðeins á hak-
anum, sem maður þarf svo að vinna
upp þegar stóru málin klárast.“
Þeir eiginleikar sem Halldór segir
að skipti mestu máli eru að geta
bæði unnið vel með ólíku fólki og
haft sjálfstæð vinnubrögð. Einnig sé
mikilvægt að hafa gott vald á tungu-
málum og færni í skrifum. „Maður
þarf líka að vera skipulagður og geta
tekið ákvarðanir þegar svo ber und-
ir. Það er oft mikil pressa og maður
þarf að gera marga hluti á mjög
skömmum tíma. Þolinmæði er líka
mikilvæg, maður er að vinna með
mörgu og ólíku fólki og það er nátt-
úrlega brjálað að gera hjá öllum öðr-
um og maður þarf að fá efni frá sínu
samstarfsfólki, maður vill náttúrlega
að allt gerist í gær,“ segir Halldór og
hlær. „Maður verður fyrst og fremst
að hafa gaman af því að vinna undir
pressu og gera marga hluti en þetta
er bæði fjölbreytt og skemmtilegt
starf.“
Svipað blaðamennsku
Halldór segir markaðsmenntun nýt-
ast vel í þessu starfi, en hann er
sjálfur með BA-gráðu í stjórn-
málafræði og próf í hagnýtri fjöl-
miðlun frá HÍ. „Síðan var náttúrlega
mjög góður skóli að hafa fengið
reynslu við að starfa sem blaðamað-
ur, það er mjög líkt starf hvað varð-
ar álag og takt. Maður er að vinna
með mjög mörgum og oft með mörg
verkefni í einu.“
ll HVAÐ GERIR …
… verkefnastjóri markaðsdeildar?
Í mörgum meðalstórum og stærri fyrirtækjum
eru deildir sem halda utan um markaðs- og
kynningarmál. Starfsmenn þessara deilda hafa
oft afar vítt verksvið og þurfa því að hafa fjöl-
breytta kunnáttu og hæfileika auk þess að búa
yfir þolinmæði og lipurð í samskiptum.
Halldór Jón Garðarsson.
LAUNAVÍSITALA í október 2003 er
240,4 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrra
mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur
launavísitalan hækkað um 5,5%.
Samræmd vísitala neysluverðs á Ís-
landi hefur hækkað um 1,1% frá október
2002 til október árið 2003, miðað við
1,9% meðalhækkun á Evrópska efna-
hagssvæðinu. Mesta verðbólga á Evr-
ópska efnahagssvæðinu á þessu tólf
mánaða tímabili var 3,3% í Írlandi og
Grikklandi. Verðbólgan var minnst 0,9% í
Finnlandi og 1,0% í Austurríki.
Þetta kemur fram á vef hagstofunnar,
www.hagstofa.is.
5,5% hækkun
launavísitölu síð-
ustu 12 mánuði
Í OKTÓBERMÁNUÐI síðastliðnum voru
skráðir 93.408 atvinnuleysisdagar á
landinu öllu sem jafngilda því að 4.059
manns hafi að meðaltali verið á atvinnu-
leysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur
jafngilda 2,8% af áætlun Efnahags-
skrifstofu fjármálaráðuneytis um
mannafla á vinnumarkaði í október
2003. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði
í október 2003 var 144.328. Þetta kemur
fram á vef vinnumálastofnunar;
www.vinnumalastofnun.is.
Ennfremur kemur þar fram að um tveir
þriðju atvinnulausra eru einungis með
grunnskólapróf, eða 2.853 manns. 1.618
karlar eru skráðir atvinnulausir, en 1.549
konur.
2,8% atvinnu-
leysi í októ-
bermánuði