Morgunblaðið - 23.11.2003, Blaðsíða 3
23.11.2003 | 3
4 Flugan
Flugan er fljót að hefja sig til flugs og taka
stefnuna á alls lags merkileg mannamót.
6 Birna Anna
leggur m.a. út af bandarískum sjónvarpsþátt-
um um forrík ungmenni, sem æða glórulaus
um verslanir með kreditkort foreldra sinna
upp á vasann.
6 Lofar góðu
Einar Þorsteinsson viðskiptafræðingur hygg-
ur á meistaranám í fjármálum í Bretlandi.
8 Púlsinn
Rebekka Rán Samper dregur upp mynd
af Katrínu Jakobsdóttur, varaformanni
Vinstri grænna.
10 101 alheimur
Fyrsta Hollywoodmynd Hallgríms Helga-
sonar, Herra Alheimur, er reyndar bók. Í
henni er Guði lýst sem fremur lífsleiðum
náunga með bumbu og í þvældum inni-
skóm.
14 Íslendingar í Hollywood
Allt frá tímum þöglu myndanna hafa
Íslendingar drepið niður fæti í stóriðjuveri
draumanna. Nokkrir hafa annað slagið
sést á hvíta Hollywood-tjaldinu.
20 Að lifa án lífsförunautar
Enda öll ævintýri á að prinsinn hittir
draumaprinsessuna? Sambúð tveggja
einstaklinga er ekki endilega sú leið sem
allir velja sér í lífinu.
24 Við segjum ekki nóg
„Útlendingar eiga ekki sameiginlegar
forsendur í Íslendingabók og því er gil
sem þarf að brúa,“ segir Toshiki Toma,
prestur innflytjenda.
26 Hundalíf
Á hundasýningum kyssast hundaeigendur
og óska hver öðrum gleðilegs sýningardags.
29 Straumar
Um helmingur söngvaranna á Motown-
sýningunni á Broadway eru útlendingar,
búsettir hérlendis.
Augliti til auglitis við Clint Eastwood.
Tíska, hönnun, ferðalög, byggingarlist,
matur og vín.
42 Álitamál
Guðrún Guðlaugsdóttir veltir upp
nokkrum hliðum á mannlegum málum.
45 Frá mínum sófa séð og heyrt
Sigga Beinteins mælir með geisladiski,
myndbandi, sjónvarpsþætti, bók og vefsíðu.
45 Maður eins og ég
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur svarar
nokkrum spurningum eftir bestu samvisku.
46 Pistill
Friðrik Erlingsson dregur í efa að RÚV sé
eina Almannavarnarflauta þjóðarinnar.
24
2610 32Forsíðumyndina tók Golli á heimili Hallgríms Helgasonar
miðvikudaginn 12. nóvember 2003.
Tímarit Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík,
sími 5691100, netfang: timarit@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Margrét Sigurðardóttir margret@mbl.is,
Valgerður Þ. Jónsdóttir, vjon@mbl.is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is
Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.
„Þeir sem lifa óvenjulegu lífi skrifa venjulegar bækur og þeir sem lifa
venjulegu lífi skrifa óvenjulegar bækur,“ segir Hallgrímur Helgason rit-
höfundur í samtali við Þorstein J. í Tímariti Morgunblaðsins. En hvaða
bækur eru óvenjulegar, hverjar venjulegar, hverjir eru venjulegir, hverjir óvenjulegir og hvaða blöð – eða
tímarit eru venjuleg? Fátt er nýtt undir sólinni, segir klisjan, sem einmitt er klisja af því þetta er rétt. Nánast
allt sem mennirnir taka sér fyrir hendur í lífi og list kann að vera óvenjuleg útfærsla á því venjulega, klisj-
unni. Hallgrímur leitar fanga í Hollívúdd og skapar sögupersónum sínum ásjónu frægra leikara. Slíkt er
svosem ekki alveg nýtt af nálinni í íslenskum samtímabókmenntum, þótt ekki sé það „venjulegt“. Hollí-
vúdd hefur löngum haft aðdráttarafl fyrir þá sem vilja skapa sér frægð og frama í heimi kvikmyndanna.
Meira að segja nóbelsskáldið Halldór Laxness dvaldi þar á sínum ungdómsárum og skrifaði kvikmynda-
handrit. Allt frá þriðja áratug liðinnar aldar hafa Íslendingar sést annað slagið á hvíta Hollívúdd-tjaldinu í
misbitastæðum hlutverkum. Hildur Einarsdóttir hafði uppi á þeim og stiklar á ferli hvers og eins – sem
kann að vera óvenjulegur í augum flestra landa þeirra. Skarphéðinn Guðmundsson hitti svo mesta harð-
jaxl kvikmyndanna, Clint Eastwood, og þótti hann afalegur, soldið eins og „tengdó“. Skyldi hann setja
kartöflurnar yfir klukkan korter í sjö eins og Guðbergur Bergsson er vanur að gera, að sögn Hallgríms
Helgasonar? Viðtalið við Clint Eastwood er kannski ekki það óvenjulegasta í heimi viðtalanna, en enginn
hefur þó áður líkt stjörnunni við tengdapabba Skarphéðins Guðmundssonar.
23.11.03