Morgunblaðið - 23.11.2003, Side 18
18 | 23.11.2003
Hún segir að sér hafi liðið vel á þessum tíma og hefði hún gjarnan viljað vera lengur
og kynnast þeirri hlið á Hollywood betur.
„Ég var frekar ung þegar ég byrjaði að leika ytra og tók út mikinn þroska á þessu
tímabili og hefur mér alltaf fundist þetta ómetanleg reynsla.“ Jóhanna segist hafa
hætt þegar hún fékk ekki atvinnuleyfið framlengt. Hún ákvað að koma heim að
vinna við það sem hún elskar að gera eins og hún orðar það.
Jóhanna hefur síðan leikið í íslenskum leikhúsum. Síðastliðinn vetur lék hún í leik-
ritinu Beyglur með öllu sem sett var upp í Iðnó. Nú er hún með öðrum að þýða leik-
ritið svo hægt sé að fara með það til dæmis á leiklistarhátíðir. Þessa stundina er hún
að æfa fyrir söng- og leikdagskrá sem verið er að færa upp á Kaffi Reykjavík.
Ylfa Edelstein lék í fjórum þáttum af bandarísku sjónvarpsþáttunum The Edu-
cation of Max Bickford sem sýndir voru á
Stöð 2 í fyrra. Aðalleikarar voru Richard
Dreyfuss Óskarsverðlaunahafi og Marcia
Gay Harden sem vann Óskarsverðlaun fyrir
„Pollock“. Ylfa lék jógakennara Dreyfuss
sem kom til hennar og vildi tileinka sér heil-
brigðara líferni en nennti ekki mikið að
hreyfa sig.
Ylfa fluttist til Bandaríkjanna árið 1987
eftir að hún lauk námi við Menntaskólann
við Sund. Hún byrjaði í leiklistarnámi í St.
Louis en fór svo til New York í tveggja ára
leiklistarnám í skólanum The Actor’s
Space. Hún fluttist svo til Los Angeles þar
sem hún hefur búið í rúm tíu ár og unnið í
leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum.
Ylfa hefur komið fram í ýmsum sjón-
varpsþáttum eins og „The HoopLife“ sem
voru teknir upp í Kanada og fjölluðu um
körfuboltalið, lék Ylfa íþróttasálfræðing í
þáttunum. Þá hefur hún leikið í þáttunum
„Law & Order C.I.“ þar sem hún fór með
hlutverk lögfræðings í einum þætti en lék
rússneska hjákonu í öðrum. „Það er miklu
vænlegra að leika lögfræðinga en sakborn-
inga í Law & Order því það eru meiri líkur
á að þeim bregði aftur fyrir í þáttunum en
sakborningarnir hverfa af sjónarsviðinu um
leið og dæmt er í máli þeirra,“ segir Ylfa
sposk. Hún hefur nýlokið við að leika í
kvikmyndinni Dís þar sem hún leikur
bandarískan ljósmyndara sem hittir aðal-
söguhetjuna.
Hún segist lifa þannig lífi að hún viti
aldrei hvað gerist næst. „Ef fólk hefur rétta
innstillingu fyrir slíku lífi getur það verið
spennandi. Líf leikarans gengur út á að vera
tilbúinn, líkamlega, tilfinningalega og hug-
arfarslega þegar tilboðið kemur. Ég sæki því
reglulega leiklistartíma og les mikið t.d.
Shakespeare, ný og gömul leikrit, ljóð til að
næra sálina og stunda jóga til að efla einbeit-
inguna og líkamlegan styrk.“
Ingvar E. Sigurðsson lék nokkuð veiga-
mikið hlutverk í stórmyndinni K-19: The
Widowmaker þar sem aðalleikararnir eru
ekki af verri endanum, þeir Harrison Ford
og Liam Neeson. Myndin er framleidd af
Sigurjóni Sighvatssyni og lýsir óhugnanlegu óhappi um borð í sovéskum kjarn-
orkukafbáti á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna 4. júlí 1961. Ingvar þótti standa sig vel í
hlutverki sínu en hann lék einn af áhöfninni. „Verið var að leita að leikurum í hlut-
verk sovéskrar áhafnar kafbátsins og var ég beðinn um að koma í prufu til LA og fór
ég í eina slíka. Í henni fékk ég í hendurnar texta eins karakters úr myndinni og las
hann á ensku fyrir framan myndavél. Nokkrum mánuðum síðar var hringt og spurt
hvort ég gæti komið daginn eftir, því þá áttu tökur að fara að hefjast. Ég neitaði, því
ég var að vinna í leikhúsinu. Síðan æxlaðist það svo að við vorum ekki alveg tilbúin
að sýna leikritið. Var ákveðið að gefa mér lausan tauminn og frumsýna seinna og var
ég þakklátur fyrir það.“
Leið Ingvars lá þá til Kanada þar sem kvikmyndin var tekin upp að hluta til. „Ég
fór í tólf daga kafbátaskóla í Halifax, sem þjálfar að öllu jöfnu kafbátahermenn. Þar
skoðuðum við dísilkafbát og hlustuðum á fyrirlestra um það hvernig kjarnorkukaf-
bátar starfa auk þess sem okkur voru sýndar brunaæfingar fyrir kafbáta. Nokkrum
vikum síðar fór ég í búningamátun og tökur hófust.“
Hann segir það góða reynslu og frábært að kynnast kvikmyndagerð að Holly-
wood-sið. „Segja má að það sé svipað að leika í kvikmynd hvar sem er í heiminum en
aðalmunurinn felst í fjármununum sem lagðir eru í kvikmyndirnar og þar af leiðandi
hve margt fólk vinnur við tökurnar.
Unnið var við mjög þröngar aðstæður.Við vorum að leika inni í nákvæmri eftirlík-
ingu af kafbáti. Við myndatökurnar var oft öll áhöfnin inni í einum hluta kafbátsins
og var hitinn þá rosalegur og menn svitnuðu mikið og var förðunarfólkið sífellt að
þerra andlitið á okkur. Fleira kom á óvart
eins og að handritið var að breytast dag frá
degi. Maður hefði haldið að í svona dýrri
framleiðslu væri allt á hreinu.“
Ingvar hefur verið að leika í Bretlandi í
leikriti Vesturportsins, Rómeu og Júlíu,
sem var fært upp í Old Vic-leikhúsinu í
London við góðan orðstír. Ingvar er einn af
stofnendum Vesturports.
Berglind Ólafsdóttir er nýjasta „Holly-
woodstjarnan“. Hún er tuttugu og sex ára
og býr í Beverly Hills ásamt eiginmanni sín-
um. Berglind, sem hefur búið sex ár í
Bandaríkjunum, fer með hlutverk í nýjum
sjónvarpsþætti sem hóf göngu sína í Banda-
ríkjunum á dögunum. Þátturinn heitir
„Style Court“ eða Tískurétturinn og geng-
ur út á að draga annálaða tískuþrjóta fyrir
rétt þar sem viðkomandi er tekinn í gegn
fyrir eindæma smekkleysi í klæðaburði og
hann dæmdur til útlitsbreytinga. Berglind
leikur réttarvörð, sem sér um að halda frið-
inn í réttarsalnum.
Hún kemur einnig fram sem annar
stjórnandi í þættinum „Cram“ hjá Game
Show Network. Berglind er nýkomin til
Hollywood frá New York þar sem hún
hafði leikið aðalhlutverkið í sjónvarpsaug-
lýsingu fyrir Wrigley’s-tyggjóframleiðslu-
fyrirtækið. „Ég hef ekki mikinn áhuga á að
leika í sjónvarpsauglýsingum en geri und-
antekningar ef auglýsingin er vönduð og ég
fæ tækifæri til að leika.“
Hún segist vera búin að vera í leiklist-
arnámi hjá Larry Moss Studio. „Ég hef ver-
ið í stöðugri vinnu að undanförnu,“ segir
hún og lætur vel yfir sér.
Berglind hefur farið með hlutverk í Disn-
ey-myndunum „Animal“ og „Hot Chick“
með Rob Schneider og „Master of Dis-
guise“ með Dana Carvey og komið fram í
sjónvarpsþættinum „Scare Tactics“ sem
sýndur hefur verið á Stöð 2. Þá lék hún ekki
alls fyrir löngu í tveim þáttum sem heita
„Watching Ellie“, aðalleikarinn í þeim þátt-
um er Julia Dreyfuss sem lék Diane í Sein-
feld-þáttunum. Þá hefur hún leikið í þátt-
unum „According to Jim“ með Jim Belushi
í aðalhlutverki, svo eitthvað sé nefnt.
Berglind, sem auk eigin skírnarnafns hefur notað listamannanöfnin Burgland Icey
og Icey Berglind, hefur nokkrum sinnum tekið þátt í Óskarsverðlaunaathöfninni og
sama á við um Emmy-verðlaunaafhendinguna. Á síðustu Emmy-verðlaunahátíð lék
hún atriði á móti leikaranum Brad Garett, sem leikur bróðurinn í sjónvarpsþátt-
unum „Everybody Loves Raymond“. „Það var ánægjuleg reynsla enda Brad fínn
náungi,“ segir hún. „Nú ætla ég að taka mér nokkurra daga frí og byrja svo aftur á að
fara í prufur. Ég vonast til að fá einhver spennandi hlutverk.“ he@mbl.is
Heimildir: Líf í skáldskap, höf. Ólafur Ragnarsson. Litróf lífsins, höf. Anna Kristine Magnúsdóttir.
Of stór fyrir Ísland, höf. Jón Hjaltason.
Íslenskir leikarar í Hollywood
BILL CODY
The Fighting Gringo (1939),
Stagecoach (1939),
Outlaws of the Range (1936)
Blazing Justice (1936)
The Texas Rambler (1935)
The Reckless Buckaroo (1935)
Six Gun Justice (1935)
Frontier Days (1934)
Law of the North (1932)
Ghost City (1932)
Oklahoma Jim (1931)
The Montana Kid (1931)
Under Texas Skies (1930)
Eyes of the Underworld (1929)
Wolves of the City (1929)
The Price of Fear (1928)
The Arizona Whirlwind (1927)
The Galloping Cowboy (1926)
The Fighting Smile (1925)
Riders of Mystery (1925)
The Fighting Sheriff (1925)
BJARNI BJÖRNSSON
The Black Pirate
My Old Dutch
Beau Geste
Wedding March
JÓHANN PÉTURSSON
Carny (1979)
Prehistoric Women (1950)
PÉTUR RÖGNVALDSSON
Journey to the Center
of the Earth (1959)
SIRRÝ GEIRS
Bachelor Father
The Crawling Hand (1963)
The Beverly Hillbillies (1962)
Truth and Consequenses
The Crawling Hand
Bedtime Story (1964)
ANNA BJÖRNS
Dream West (1986) (sjónvarpsþáttur)
Get Crazy (1983)
The Sword and the Sorcerer (1982)
More American Graffiti (1979)
GUNNAR HANSEN
Chainsaw Sally (2004)
Hayride Slaughter II (2003)
The Next Victim (2003)
Rachel’s Attic (2002)
Hatred of a Minute (2002)
Hellblock 13 (2000)
Replicator (1996)
Exploding Angel (1995)
Freakshow (1995)
Mosquito (1995)
Campfire Tales (1991)
Hollywood Chainsaw Hookers (1988)
The Demon Lover (1976)
The Hills Have Eyes
The Texas Chain Saw
Massacre (1974)
MARÍA ELLINGSEN
The New Age (1994)
D2: The Mighty Ducks (1994)
Curacao (1993) (Sjónvarpsþáttur)
Santa Barbara (1984) (Sjónvarps-
þáttur)
JÓHANNA JÓNAS
Loving
Parker Lewis Can’t lose (1990)
YLFA EDELSTEIN
The Education of Max Bickford
Law & Order: Criminal Intent (2001)
The Hoop Life (1999) (Sjónvarps-
þáttur)
Cache (1998)
Earth: Final Conflict (1997)
INGVAR E. SIGURÐSSON
K-19: The Widowmaker (2002)
BERGLIND ÓLAFSDÓTTIR
Stylecourt (Sjónvarpsþáttur)
Watching Ellie (Sjónvarpsþáttur)
According to Jim
Cram (2003) (Sjónvarpsþáttur)
Scare Tactics (2003)
The Hot Chick (2002)
The Master of Disguise (2002)
The Animal (2001)
HELSTU MYNDIR