Morgunblaðið - 23.11.2003, Side 35

Morgunblaðið - 23.11.2003, Side 35
Lexus RX300 EXE LEXUS N†B†LAVEGI 6 SÍMI 570 5400 WWW.LEXUS.IS N J Ó T T U fi E S S S E M fi Ú Á T T S K I L I ‹ . K O M D U Í R E Y N S L U A K S T U R H J Á S Ö L U D E I L D L E X U S Á N † B † L A V E G I N U M S T R A X Í D A G . N Á N A R I U P P L † S I N G A R Á W W W . L E X U S . I S E ‹ A Í S Í M A 5 7 0 5 4 0 0 . RX300 N‡r mælikvar›i á yf irbur›i fiú getur trúa› flínum eigin augum. fia› sem á›ur flótti kraftaverki líkast er sjálfsag›ur hlutur í Lexus RX300 EXE. Sta›albúna›ur í RX300 EXE: Zenonljós, 18 tommu felgur, rafst‡rt st‡rishjól, minni fyrir sætisstillingar, st‡ri og spegla, regnskynjari á rú›uflurrkum, sjálfvirk hur›aropnun a› aftan, tvöföld mi›stö› (mismunandi stillingar fyrir ökumann og farflega), fimm flrepa sjálfskipting, öryggis- og tæknibúna›ur sem á sér ekki hli›stæ›u ....... og sí›an allt hitt sem okkur hjá Lexus flykir sjálfsagt a› sé í hverjum lúxusbíl. Lexus RX300 EXE - 5.640.000 kr. Lexus RX300 - 5.190.000 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 22 89 4 1 1/ 20 03 tvær tískulínur frá Sigrúnu; um 20 ólíkar sam- kvæmistöskur og um 40 gerðir skartgripa. Roðið og kristallarnir eru dýrt hráefni og út- koman er eftirsóknarverð lúxusvara. Við- skiptavinirnir eru víðsvegar um heiminn, meðal annars í Japan, á Ítalíu, í París, á Ís- landi og nú síðast í tískumusteri austursins, Moskvu. „Rússlandsmarkaður er mjög spenn- andi, hann er stór og opinn fyrir nýjungum auk þess sem kaupmátturinn þar er meiri en í Evr- ópu.“ Hönnun Sigrúnar hefur verið fáanleg um tíma í versluninni Leonard og nýlega hóf Saga Boutique sölu á afar sérstöku hreistursskarti Sigrúnar. Um er að ræða hálsmen og armbönd úr marglitu fiskahreistri með áföstum íslenskum galdrastöfum. Kynngimagnað skart þar sem íslensk náttúra og forn helgitákn kristallast í hönnuninni. Orkan frá eldfjallaeyjunni í norðri er Sigrúnu óþrjótandi hugmyndabrunnur. „Ég kem reglulega til Íslands, viðheld tengslunum við landið, anda að mér fjallaloftinu og sæki þangað hugmynd- ir. Ísland er hreint og ómengað af iðn- aði og hefðum. Það gæti verið ástæða þess hve það þykir eftirsóknarvert erlendis – land óheftrar sprengiorku.“ Síðastliðin tvö ár hefur Sigrún tekið þátt í verkefni á vegum Útflutningsráðs Íslands sem skipu- leggur sýningu íslenskra hönnuða á tískuviku í París. Verkefnið gengur sífellt betur. „Ég hef mikla trú á íslenskri hönnun, en það þyrfti að vera miklu auðveldara fyrir kaup- endur að nálgast hana á erlendum mörk- uðum. Ef vara er ekki kynnt, veit enginn af henni og þar af leiðandi verður engin sala.“ Gæluverkefni Sigrúnar er að koma upp sér- stöku galleríi fyrir íslenska hönnun í París. Heimiliskisan Cósíma malar ljúflega í rauðum sófa í Latínuhverfinu. Ekkert kem- ur henni úr jafnvægi. Hvorki látlaust malið í faxtækinu, síminn né reglulegar heimsókn- ir Gucci, Dior og Prada. Cósíma skartar auðvitað nýjustu hönnun Sigrúnar; kattaról úr roði með ásettum Swarovski-kristöllum. „Kettir og fiskur hafa alltaf farið vel saman,“ segir Sigrún. „Gæludýraeign Parísarbúa og Frakka er mjög mikil. Því ekki að hanna ólar fyrir ketti sem eigendur þeirra geta einnig notað?“ Hugmyndin er óneitanlega skemmtileg og örlítið tvíræð. Rétt eins og tískan í dag. Föt eru seld með hlutum sem eru þeim ekkert tengdir. Dýr ganga í samskonar fötum og eigendur þeirra. Draumalönd tískunnar eru ævintýralegir huliðsheimar sköpunar og frelsis. Fiskroð og galdrastafir að hætti Sigrúnar gefa tóninn um það sem koma skal. HÖNNUN „Um daginn hitti ég aðila frá Dior og sýndi þeim nýjasta roðið okkar sem er fjólublátt. Augu þeirra stóðu á stilkum,“ segir Sigrún.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.