Morgunblaðið - 23.11.2003, Qupperneq 36
36 | 23.11.2003
FERÐALÖG | GUÐBJÖRG R. GUÐMUNDSDÓTTIR
Í SUMAR héldu Magnús Valur Pálsson, Jóna Guðrún Jónsdóttir og börninþeirra, Una María og Jón Páll, á vit ævintýranna í heim Astrid Lindgren íSmálöndum í Svíþjóð.
„Það kom okkur skemmtilega á óvart hve vel og fagmannlega er að öllu staðið í
garðinum, án þess að verið sé að plaga
gesti með auglýsingum og sölumennsku.
Þeim hefur tekist að leysa þetta mjög
skemmtilega, ganga fyrst og fremst út frá
þörfum barnanna og það hittir í mark.
Aðkoman að garðinum er til fyrirmynd-
ar og auðvelt að rata um svæðið. Við feng-
um okkur hressingu á veitingastað við
innganginn og rýndum í kort af svæðinu
til að átta okkur áður en við lögðum af
stað í leiðangur um þennan ævintýra-
heim.“
Magnús segir að fjölskyldan hafi byrjað
á að skoða smáhúsabæinn þar sem allt er
miðað við stærð smáfólksins. „Börnin
þutu milli húsa og þeim fannst þetta svo
sniðugt að þau vissu ekkert hvernig þau
áttu að láta. Þetta er ótrúlega spennandi
og skemmtilegt og inni i húsunum er alltaf
eitthvað sem kemur á óvart.
Næst lá leið í Kattholt og þar var mikið
uppistand því Emil var búinn að festa
höfuðið í súpuskál og ekki viðlit að losa
hana.
Í Matthíasarskógi rís heljarmikill kastali
þar sem hægt er að príla og skoða og
Ronja ræningjadóttir, Birkir Borkason og
fleiri létu sig ekki vanta þar. Það var gam-
an að sjá sjá söguna um Ronju lifna í þessu
náttúrulega umhverfi.
Frá Sjónarhóli barst skarkali og læti,
enda ekki við öðru að búast þar sem pabbi
hennar Línu var í heimsókn ásamt fleirum.
Lína Langsokkur hefur að öðrum ólöst-
uðum greinilega mest aðdráttarafl gesta í
garðinum. „Allir vilja tala við Línu og hún tekur öllum vel og með bros á vör,
enda eru allir velkomnir til hennar, bæði vinir og óvinir.“
Magnús segir merkilegt að hugsa til þess að uppeldissamtök og foreldrar í Sví-
þjóð höfðu horn í síðu Línu þegar hún kom fram á sjónarsviðið á sínum tíma þar
sem hún þótti ekki nægilega góð fyrirmynd, búandi án foreldra í stóru húsi með
apa og hesti. Uppátæki hennar þóttu heldur ekki beinlínis til fyrirmyndar. Senni-
lega hefur þó engin persóna barnabókmenntanna haft jafn mikil áhrif á börn og
Lína sem kennir börnunum að ef þau hafi
trú á sjálfum sér séu þeim allir vegir færir.
Fjölskyldan eyddi einum degi í garðinum
en hefði með léttum leik getað verið þar ann-
an dag í viðbót.
50 atvinnuleikarar halda uppi fjöri Um
fimmtíu atvinnuleikarar sjá um að túlka hin-
ar ýmsu sögupersónur Astrid og setja reglu-
lega á svið atriði úr hinum fjölmörgu sögum
hennar og ferst það vel úr hendi.
„Upphaf garðsins má rekja aftur til ársins
1981 þegar Tommy Isacsson og fleiri byggðu
eftirlíkingu af bænum Kattholti í útjaðri
Vimmerby, fyrst og fremst til skemmtunar
fyrir börn sín og vini þeirra. Þetta vatt upp á
sig, næst var Sjónarhóll byggður, þá Matt-
híasarborg og svo fór að stórt landsvæði var
lagt undir þessa ævintýraveröld.“
Aðstandendur garðsins hafa reynt að líkja
eftir híbýlum sögupersónanna með sem ná-
kvæmustum hætti og náttúran fær að njóta
sín á þessu stóra landsvæði.
Magnús nefnir að lokum að væntanlega
verði enginn aðdáandi þessa víðlesnasta
barnabókahöfundar heims svikinn af heim-
sókn í garðinn.
Búið er að koma upp veglegu sögusafni
um lífshlaup Astrid Lindgren og það borgar
sig að taka sér tíma til að skoða það og æsku-
heimili hennar í Vimmerby er opið gestum.
Þá er gistiaðstaða við svæðið í sérstökum
smáhýsum og vel búið tjaldsvæði er einnig í
næsta nágrenni.
Heimur Astrid Lindgren, 598 85 Vimmerby, Svíþjóð Sími:
0046 492-79 800 | info@alv.se | Heimur Astrid Lindgren er opinn frá 15. maí til 1. september en safnið um Astrid
Lindgren er opið allan ársins hring. Fjölskyldupassi í garðinn kostar yfir hásumarið um 9.000 krónur en í byrjun
sumars um 6.500 krónur. Hægt er að bóka gistingu í smáhýsum með tölvupósti á netfangi bokning@alv.se Vefslóðin
er. www.alv.se.
EMIL ENN FASTUR Í SÚPUSKÁLINNI
Persónur Astrid Lindgren allar ljóslifandi á einum stað; Ronja ræningjadóttir, Lína Langsokkur og börnin í Ólátagarði
Það er um 400
kílómetra leið
frá Kaupmanna-
höfn að Vim-
merby og um
290 kílómetrar
frá Stokkhólmi.
L
jó
sm
yn
di
r:
M
ag
nú
s
V
al
ur
Lína Langsokkur vakti óskipta athygli og börnin kepptust um að fá að sitja hjá henni.
Una María og Jón Páll brugðu sér á bak hesti Línu.
HÓTEL Í BARCELONA Í
sumar var hótelið Neri opn-
að í gotneska hverfinu ná-
lægt Römblunni í Barce-
lona.
Hótelið er í ævafornu
húsi sem hefur allt verið
tekið í gegn. Alls eru 22
gistiherbergi í húsinu og hvert þeirra hefur sitt þema. Öll
herbergin eru með viðargólfi, skemmtilegri lýsingu og
mikil vinna var lögð í hönnunina. Herbergin eru misstór
og íburður meiri eftir því sem þau eru stærri. Gestir geta
horft á kapalsjónvarp og hafa aðgang að DVD tækjum,
ADSL tenging er í herbergjum og sjálfvirk loftkæling.
Neri hótel San Sever 5, Barcelona, 08002
NÝTT
GLÆPAÞEMA Á VEITINGAHÚSI Á veitingahús-
inu Abendmahl í Berlín er mikið um að vera á
miðvikudögum í vetur en þá er boðið upp á
glæpaseðil. Þegar matseðill vetrarins var settur
saman hafði eigandinn Alfred Hitchcock í huga
og réttirnir heita eftir verkum hans eins og t.d.
Hvað varð um Simone de Beauvoir? Á meðan
fólk borðar rétti af glæpaseðli kryfur bókmennta-
fræðingur verk
Alfred Hitchcock.
Abendmahl, Muskauer
str. 9 10997, Berlín,
Þýskalandi | Sími: 0044
30-6125170 | abendmahl
@abendmahl-berlin.de |
www.abendmahl-
berlin.de/
LONDON Curzon Restaurant and Bar er nafnið á
nýjum ítölskum veitingastað sem var opnaður í
Mayfair-hverfinu í London fyrir skömmu. Hann er
á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni er bar þar sem
léttir réttir eru á boðstólum en á efri hæðinni er lif-
andi tónlist og ekta ítalskur matseðill. Matreiðslu-
meistarinn Beny Valini hefur getið sér orð bæði í
Pisa og New York fyrir matargerð sína.
Curzon Restaurant and Bar, 37a Curzon Street, Mayfair, W1 London.