Morgunblaðið - 23.11.2003, Blaðsíða 38
38 | 23.11.2003
Það getur verið gaman að skoða hús, ganga um áhugaverða staði ogvelta umhverfinu fyrir sér. Margir gera það á ferðalagi um önnur lönden síður hér heima. Göngutúr um miðborgina og Þingholtin í Reykja-
vík getur bætt úr því en þar
endurspeglast upphaf íslenskrar
byggingarlistar.
Gangan getur hafist við Nor-
ræna húsið, byggt 1963–68, sem
er teiknað, jafnt að innan sem
utan, af finnska arkitektinum Al-
var Aalto og ber húsið sterk höf-
undareinkenni. Húsið er það
fyrsta og eina á Íslandi sem
teiknað er af einum af stóru er-
lendu arkitektunum sem mörk-
uðu alþjóðlegu arkitektasöguna.
Út Sturlugötu og inn Tjarnar-
götuna. Hús númer 43 er það
fyrsta sem Einar Sveinsson arki-
tekt teiknaði eftir að hann lauk
námi. Hann var húsameistari
Reykjavíkurborgar og teiknaði
m.a. Melaskóla, Heilsugæslu-
stöðina í Reykjavík og Laugar-
dalslaugina. Niður Skothúsveg í
átt að Þingholtunum, framhjá
Hljómskálanum sem er hús í
norrænum, nýklassískum stíl,
teiknað af Guðmundi H. Þor-
lákssyni fyrir Lúðrasveit Reykja-
víkur 1923. Inn Fjólugötu en
þar eru mörg falleg hús frá fyrri
hluta síðustu aldar. Á þessu
svæði er húsið við Sóleyjargötu
11 einstakt. Það er teiknað af
Sigurði Guðmundssyni arkitekt
en hann teiknaði m.a. Þjóð-
minjasafnið og Austurbæjar-
skóla. Húsið er holdgervingur
fúnkísstílsins og einkenni þess
hafa verið varðveitt í gegnum ár-
in.
Gengið inn Laufásveg í aust-
urátt. Fyrst má nefna Galtafell,
Laufásveg 46, teiknað í kastala-
stíl af Einari Erlendssyni, byggt
1916–1919. Annars einkennir
fúnkís- og nýklassískur stíll þetta
hverfi og hús númer 79 er gott
dæmi um það. Húsið er teiknað
af Einari Erlendssyni fyrir Her-
mann Jónasson forsætisráðherra.
Upp Njarðargötu, inn Fjölnis-
veg. Þarna er ákveðið skipulags-
mynstur ríkjandi sem er einstakt
í Reykjavík; heildstætt grindverk
alla götuna við húsin sem hafa
garð í suður. Grindverkið er
friðað. Hús númer 7 er sérstakt
að því leyti að útlit þess er upp-
runalegt; það er ómálað með grænum gluggum en slíkt var einkenni húsa á
fyrri hluta 20. aldar áður en farið var að mála þau. Upp Mímisveg, inn
Freyjugötu. Á þessum slóðum er nokkuð séríslenskur fúnkísstíll; grámúruð
hús með hvítum gluggum. Þarna er upplagt að koma við í Hnitbjörgum
(1916–24), húsi Einars Jónssonar, sem var safn, vinnustofa og íbúðarhús lista-
mannsins teiknað af honum sjálfum en Einar Erlendsson arkitekt var honum
innan handar. Guðjón Sam-
úelsson gerði fyrstu uppdrætti
að húsinu.
Skólavörðuholt, Hallgríms-
kirkja (1937–86) …sniðugt að
fara upp í turninn og virða fyrir
sér útsýni og skipulag hverf-
isins. Þaðan er haldið niður
Þórsgötu að Óðinstorgi. Við
Óðinstorg fer að bera á ansi
margvíslegum byggingarstíl og
fjölskrúðugum arkitektúr. Ein-
kennandi að skipulag hefur ekki
náð að ganga upp því glugga-
laus, hár gafl er á steinhúsi við
torgið en húsið hefur greinilega
átt að ná fyrir hornið en aldrei
verið klárað. Þetta má sjá á
mörgum stöðum í miðborginni.
Niður Spítalastíg, inn Berg-
staðastræti í átt að Skólavörðu-
stíg. Hús númer 7 við Berg-
staðastræti er það síðasta sem
Einar Sveinsson teiknaði.
Niður Skólavörðustíg, inn
Ingólfsstræti. Hús númer 14 er
eitt af fyrstu fúnkíshúsunum á
Íslandi teiknað af Þóri Baldvins-
syni og eitt fárra fúnkíshúsa sem
enn hefur öll upprunaleg ein-
kenni. Þórir teiknaði m.a. gamla
Alþýðuhúsið á horni Ingólfs-
strætis og Hverfisgötu. Hús
númer 21 er fyrsta steinsteypta
íbúðarhúsið í Reykjavík. Arki-
tektinn er ókunnur en húsið er
byggt í klassískum stíl sem sést í
skrauti umhverfis glugga.
Inn Grundarstíg. Hús númer
15, þar bjó Ríkarður Jónsson
myndhöggvari og hafði vinnu-
stofu. Númer 24, gamli Versl-
unarskólinn, hús sem Thor Jen-
sen lét byggja fyrir syni sína,
Ólaf, Hauk og Thor. Niður
Hellusund, sendiráð Þjóðverja
og Breta. Stílfagurt hús sem fell-
ur vel inn í gróið umhverfið.
Inn Þingholtsstræti, hús númer
29a, Esjuberg, sögufrægt hús og
einstakt í alla staði. Inn Mið-
stræti. Einkenni götunnar eru
stór og íburðamikil timburhús
ýmist í klassískum eða norskum
stíl, „sveiserstíl“. Niður Bók-
hlöðustíg, Stöðlakot, gamall og
vel varðveittur steinbær frá 19.
öld. Inn Laufásveg, Þrúðvangur, þar bjó Einar Benediktsson skáld. Niður
Skálholtsstíg. Kjörið að koma við í Listasafni Íslands, ganga sunnan við Frí-
kirkjuna, í gegnum Hljómskálagarðinn og ljúka göngutúrnum.
BYGGINGARLIST | HALLA BÁRA GESTSDÓTTIR
Á GÖNGU AÐ VETRI TIL
Við Óðinstorg og nágrenni ber á margvíslegum byggingarstíl og fjölskrúðugum arkitektúr
Út Sturlugötu og inn
Tjarnargötuna. Hús númer
43 er það fyrsta sem Einar
Sveinsson arkitekt teiknaði
eftir að hann lauk námi.
L
jó
sm
yn
di
r:
G
un
na
r
S
ve
rr
is
so
n