Morgunblaðið - 23.11.2003, Síða 40

Morgunblaðið - 23.11.2003, Síða 40
40 | 23.11.2003 illskiljanleg viðbót. Lambið hafði stökkan hjúp en náði enn að vera bleikt innst í miðjunni. Helsti kosturinn var hins vegar að það var borið fram á diski. Það átti nefnilega ekki við um nautamedalíur. Þær komu á samskonar ílöngu fati og rækjurn- ar og hörpufiskurinn. Þótt þar hafi dæmið sloppið fyrir horn gekk þetta engan veg- inn upp með kjötið. Það má segja að þessi framsetning hafi nánast eyðilagt annars ágætan rétt þar sem engin leið var að snæða kjötið við þessar aðstæður. Kjötinu hafði verið komið fyrir í hlið- arhólfunum báðum, vinstra megin smurðu með sinnepi og steikt grænmeti, jöklasalat og púrrulaukur m.m., og hægra megin með grænmetisblöndu í einskonar ratatouille-stíl. Í miðjunni skál með mjög góðri kaldri grænpiparsósu og bakaðri kartöflu. Allt í fína lagi með sjálfan matinn, fín hráefni og ágætis mat- reiðsla, en því miður var það hálfgerð gestaþraut að borða hann. Í fyrsta lagi eru hnífarnir bitlausir. Þá höfðu kjötbit- arnir mjög svipað ummál og hólfið sem þeim hafði verið komið fyrir í. Og þegar gaffli var stungið í kjötið og hnífi beitt þrýsti það á grænmetið undir í hólfinu með þeim afleiðingum að það byrjaði að leka upp úr hólfinu. Hvernig sem reynt var fannst engin leið til að borða þennan rétt með góðu móti. Kjúklingabringa var sem betur fer á hefðbundnum diski og var hún sögð vera „tex-mex“. Núðlurnar voru hins vegar austurlenskar og sæt chili-sósan sömuleiðis. Það hefði mátt nota minna af henni, rétt- urinn varð svolítið væminn. Með þessu voru nokkur stór blöð af eikarlaufssalati með basilolíu. Salatið var í sjálfu sér ágætt en basilolían átti alls engan veginn við blessaðar núðlurnar. Maturinn er alls ekki alvondur á Enricos. Líkt og áður sagði eru hráefnin góð og eldamennskan á köfl- um ágæt. Það skortir hins vegar fókus, það er ekki sniðugt að hafa matinn jafnósamstæðan og innrétt- ingarnar. Þá er maturinn allt of dýr miðað við það sem í boði er. Þjónusta var lipur og afskaplega vinaleg, hins vegar hefði verið ágætt að fá ný hnífapör milli rétta. Allur borðbúnaður er einfaldur, hnífapör ódýr og vínglös þykk, þung og óskemmtileg. F yrir skömmu opnaði veitingastaðurinn Enrico’s á Laugavegi í húsnæði þarsem skemmtistaðurinn Kaupfélagið var áður til húsa. Þrátt fyrir nafnið er Enrico’s ekki ítalskur veitingastaður, raunar er mjög erfitt að staðsetja hann yfirhöfuð. Hann er hvorki fugl né fiskur. Sem virðist raunar vera meðvitað. Innréttingar Enricos eru þannig hrærigrautur af stílum og tímabilum, ljósakrónur í stíl sjöunda áratugarins í bland við kristalkrónur, mjúkir stólar og sófar í bland við harða og stílhreina stóla. Það sama má segja um litasamsetn- ingar. Þarna er teflt djarft og verður hver og einn að gera upp við sig hvernig til tekst. Matseðillinn að mörgu leyti í sama dúr. Hann er ekki settur upp líkt og hefðbundinn matseðill heldur er hann kaflaskiptur eftir einhvers konar þemum og virðist ekki ætlunin að matargestir velji sér forrétt og eftirrétt. Að minnsta kosti tókst mér ekki að finna forréttina. Þarna er snakkþema, „rómantík og skelja“-þema, „konfekt sælkerans“- þema og klassískt þema. Við byrjuðum á nachos með tveimur sósum og var það ósköp hefðbundið. Flögur með sósunum í tveimur litlum glerskálum, annars vegar cheddarostasósa og hins vegar salsa. Þá var einnig valinn sem foréttur blanda af grillaðri risahörpuskel og tígrisrækjum. Þessi réttur var borinn fram á einhvers konar ílöngu fati með úrfellingum fyrir matinn. Tveimur minni hólfum til hliðanna, þar sem rækjurnar voru, og stærra hólfi í miðjunni, þar sem hörpufiskurinn beið neytandans. Jafnt hörpufiskur sem rækjur voru fyrsta flokks og alveg mátulega grilluð. Það var hins vegar lítið annað í þessum rétti. Kletta- og blaðsalat ásamt paprikuræmu undir fisknum bætti litlu við og virtist fyrst og fremst vera til skrauts. Tvær lime-sneiðar komu að ágætu gagni. Manni fannst þetta vera nokkuð rýrt fyrir 3.300 krónur. Þá hefði að ósekju mátt hafa með blaut- þurrku eða litla skál til að skola puttana. Rækjan var enn í skelinni og því nauðsynlegt að grípa til guðsgafflanna til að komast að henni. Lambasneiðar voru ágætar með mildri piparrótarsósu og blönduðu steiktu græn- meti, ekki síst sveppum, og bakaðri kartöflu. Prosciutto-skinka með var hins vegar GESTAÞRAUTIR OG ÓSAMRÆMI Þrátt fyrir nafnið er Enrico’s ekki ítalskur veitingastaður, raunar er erfitt að staðsetja hann VÍN Vestur-Ástralía hefurfallið í skuggann af öðr- um framleiðslusvæðum landsins. Sem er synd því vín þaðan eru yfirleitt jafnari að gæðum en vín frá t.d. Suð- ur-Ástralíu. Framleiðandinn Palandri er með þeim stærri á svæðinu og nokkur vín frá honum eru nú fáanleg hér. Palandri Chardonnay 2001 hefur þægilega og ljúfa angan þar sem sætir hitabeltisávexir og sítrus eru í ríkjandi í bland við mentol. Vínið er hófstilltara en margir samlandar þess jafnt þegar kemur að ávexti sem eik. Svona eiga Ástr- alar að vera, engin yfirkeyrsla heldur byggt á mesta styrk þeirra, dýpt og hita í ávexti í bland við góða víngerð. 1.990 krónur. 17/20 Palandri Cabernet Merlot er sömuleiðis langt í frá að vera dæmigerður „Ástrali. Sætur kóngabrjóstsykur og kirsuberja- ávöxtur, mild vanilla. Vel uppbyggt með einföldum en þykkum ávexti, mjúkum en stífum tannínum, gott jafnvægi, milliþungt. 1.990 krónur. 16/20 Frá Rioja koma vínin Baron de Ley. Baron de Ley Reserva 1998 angar áberandi af dökku súkku- laði, það er farið að þroskast í nefinu, þar má greina blóðugt kjöt og krydd. Í munni er vínið mjúkt og þokkafullt með mikilli fyllingu. Glæsilegt í alla staði og mjög góð kaup. 1.490 krónur. 18/20 Finca de Monasterio 2000 er einnar ekru vín frá sama framleiðanda. Ungt, nokkuð lokað í nefi í fyrstu en opnar sig eftir að hafa verið í glasi um stund. Eik og dökkur berjaávöxtur koma þá í ljós. Í munni kröftugt, þykkur ágengur ávöxtur, tannískt og vel uppbyggt. 2.190 krónur. 18/20. MATUR OG VÍN | STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON ENRICO’S ★ Enrico’s, bistro og vínbar. Laugavegi 3. Sími: 5520077. ANDRÚMSLOFT: Meðvitað sambland stíla og tímabila. Ágætlega hlýlegt. MÆLT MEÐ: Nautamedalíurnar eru ágætar og það er spenn- andi þraut að snæða þær. VÍNLISTI: Mætti taka meira mið af matnum. Fremur fátæk- legur fyrir „vínbar“. Verð hins vegar í þokkalegu lagi. EINKUNN:  Viðunandi  Góður  Mjög góður  Frábær  Afburða veitingastaður Einkunnagjöf byggist á mati á þjónustu, húsnæði, vínlista og mat, að teknu tilliti til verðlags.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.