Vísir - 22.11.1980, Blaðsíða 21

Vísir - 22.11.1980, Blaðsíða 21
Laugardagur 22. nóvember 1980 VÍSIR • „Matos hótar að steypa Castro"/ segir Mogginn. í brons eða gips? • „Þingmenn krata boða varamenn"/ segir Þjóðviljinn. Ég sem hélt að timbur- mennirnir hefðu komið óboðnir, það er nú „stællinn". • „Umræður á aIgjöru frumstigi", segir Sigurður Helgason í Mogganum um fyrir- hugaðan flugrekstur í Afríku. Er ekki allt á frumstigi þarna niður frá?. • „61 gróðamöguleiki — 90 milljónir alls ", segir Fiat umboðið í auglýsingu í Moggan- um. Ég varð allur ein augu, skítblankur eins og þið vitið. En gróðinn var þá fólginn i því að kaupa bíl á 5 m. kr., sem gæti hugsanlega kostað 6 m. kr. Ég þurfti því margar 90 milljónir til að eiga möguleika á að ná þessum gróða. Þar sem ég átti ekki mögu- leika á þessari umsetn- ingu, þá læddist ég til að fara yfir á rauðu Ijósi í gær, þið látið það ekki fara lengra. Ég slapp við sekt og þar með græddi ég 100 þúsund án þess að leggja nokkuð á móti!! • „Slógum Verndaranum við", segir Þjóðviljinn og á við varnarliðið. Ég hélt ég ætti ekki eftir að lifa þann dag, að Þjóðviljinn nefndi varnarliðið svo virðulegu nafni, sem „verndara", og það meira að segja með stórum staf. • „Stétt rafiðnaðar- manna: Á góðum vegi að tortíma sér", segir í Þjóðviljanum. Með leyfi að spyrja raf- iðnaðarmenn: Hvar funduð þið þennan góða veg? • „Gjaldmiðiisbreyt- ingin eftir áramót fyrir- sjáanlega runnin út í sandinn", segir Alþýðublaðið. Það er sama hvar ég leita, ég i f inn breytinguna hvergi. i # Sagt er að læknar og ■ prestar séu lötustu , starfsstéttirnar í land- ' inu, þeir nenni ekki einu I sinni að klæða sig sjáif ir | í vinnufötin! • I litlum kaupstað , búa þrír nafnar, sem gegna nafninu Björn. Til að fyrirbyggja mis- | skilning hafa þeir verið i aðgreindir. Sá Björninn sem er prestur bæjar- búa er nefndur Guð- björn, sá sem sér um | frystihúsið er nefndur Isbjörn og bæjarstjórinn er nefndur Þorbjörn, þar sem hann þykir sýna I mikið þor með því að | þora að vera í bænum. # „Hvernig verður Island árið 2000? spyr Mogginn. Ætli það þori nokkur að hugsa | svo langt. # Hann var læknir fyrir austan og átti það víst stundum til að vera | svolítið slompaður á | stofunni. Eitt sinn kom maður til hans og bað um sjónvottorð vegna endurnýjunar á ökuskír- | teini sínu. „Sérð þú | mig", spurði læknirinn. ■ „Já, það geri ég", svar- aði maðurinn undrandi. „Þá sérðu vel, þvi ég sé | þig ekki", drafaði þá i lækninum um leið og . hann gaf manninum vottorð um góða sjón. I • Þið hafið heyrt um | Skotann, sem hélt við | gifta konu. Hann beið á gangstéttinni fyrir framan hús konunnar. Hún henti tíkalli út um | gluggann til merkis um að nú væri honum óhætt að koma inn. En konan lif ir enn í farsælu hjóna- bandi, þvi að Skotinn | köm aldrei. Hann er enn að leita að tíkallinum. _ • Og úr því að við er- um að tala um Skota, þá I er rétt aðtaka það f ram, | að stundum getur það ■ verið dýrt að spara. Það . fengu skosku hjónin að | reyna, sem fóru ávallt í rúmið, þegar skyggja tók á kvöldin. Þau eignuðust 17 börn. Góða helgi. Ævinlega heil og sæl. • Það gekk ekki and...., nei, fyrirgefiði, átakalaust að byrja að þessu sinni. Það er nefnilega mikill snjór hérna fyrir norðan núna, þanníg að það er ekkert hlaupið í sand- kassa. • „Lítið kynlif eykur líkur á krabba", segir Mogginn. Það var og, þetta eru gleðileg tíðindi og í fyrsta skiptið, sem ég sé eitt- hvaðtalið hollt, sem líka er gott. • „Bókagerðarmenn sömdu eftir 44ra stunda sáttafund." segir Mogginn. Fyrsta bókin, sem kom á mark- aðinn eftir verkfallið heitir: „Samið í draumi", en undirtitill- inn er „Martröð sátta- semjarans lokið". • Góðkunningi minn var obbolítið slompaður um daginn. Hann ákvað því að fara í Sjallann. Þegar þangað kom þótti kunningjunum maður- inn vera fullmikið slompaður, þannig að þeir pöntuðu fyrir hann leigubíl til að hann kæmist heim. Kunningi minn stóð úti á götu, þegar bíllinn loksins kom, þreif upp aftur- hurðina og skutlaði sér flötum inn í sætið. Þá verður honum litið út um hliðargluggann, þar sem hann sér uppljóm- aðann stafninn á Sjall- anum. „Nú, við erum bara komnir, þakka þér fyrir bílstjóri", sagði góðkunningi minn og vatt sér út um gagn- stæðar dyr við þær, sem hann kom inn um — og skellti sér aftur í Sjall- ann. r------- I sandkassinn Gisli Sigur- geirsson, blaöamaöur Visis á Akur- eyri, skrifar. Stórlækkun ShrifvéKnhf Suðurlandsbraut 12 Simi 85277 Fengum nokkrar vélar á ótrúlega góðu verði. Aðeins kr. 1.790 þús. Enginn á markaðnum i dag getur boðið ljósritunarvélar sem ljósrita á venjulegan pappir á svipuðu verði. Nú er tækifærið, Laugalæk 2 Sími 8-65-11 Aðeins úrvals kjötvörur # Talandi brúður, syngja og tala á islensku # Gangandi brúður, syngja og tala á íslensku # Grátandi brúður og brúður sem borða og drekka. Póstsendum TÓmSTUnDflHÚSID HF laugaueg TM-Rftljmí: »31901

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.