Vísir - 22.11.1980, Blaðsíða 23
„Jill the Ripper”
Ýmsir telja að Jack the Ripper
hafi verið kona. Rithöfundurinn
William Stewart telur aö morðin
hafi verið framin af geðsjúkri
ljósmóður, sem kann að hafa
farið um stræti Lundúna i karl-
mannsfötum. Likurnar eru fá-
tæklegar en Stewart telur aö
Mary Kelly hafi veriö komin þrjá
mánuði á leið þegar hún var myrt
og að öskuhrúga i herbergi henn-
ar gæti hafa verið leifar af dular-
klæðum Rippers. Aðrir benda á
að „Geösjúka ljósmóðirin” gæti
varla hafa komist undan i spari-
fötum Kellys. Hin ógæfusama
vændiskona hafði veðsett þau.
James Kenneth Stephen
J.K. Stephen (1859-1892) orti
gamankvæöi sem enn má finna i
kvæöasöfnum frá þessum tima.
Hann var frændi Sir Lesley
Stephen sem var kennari Alberts
Victors prins og faöir hinnar
frægu Virginiu Woolf. Hann var
vinur John Druitt Montague. Rit-
höfundurinn Michael Harrison
setti fram þá kenningu að Step-
hen hefði verið moröinginn og
byggði það á samanburði á
kvæðum hans og bréfunum, sem
lögreglunni bárust frá Ripper.
Þrátt fyrir að Stephen hafi
óumdeilanlega verið heldur
undarlegur ungur maöur og haft
tengsl í ýmsar áttir, virðist kenn-
ingin falla um sjálfa sig miöað viö
staðhæfingar Jurgen Thorwald og
annarra áreiðanlegra glæpasér-
fræöinga, sem telja aðeins tvö af
mörg hundruð bréfum sem bárust
frá Ripper, raunveruleg.
„Leðursvuntan”
Laugardagur 22. nóvember 1980
Ripper. Nokkrum dögum áöur en
Frances Coles var myrt, sagöi
ritarinn Booth, að „Carrotty Nell
veröur sú næsta”. Eftir morðið
hvarf hann. Þó Booth hafi enginn
lygari veriö- var ritarinn þaö
væntanlega. Sumir telja að hann
hafi myrt Coles en aörir eru vissir
um sekt Thomas Sadlers, drykk-
fellds járnbrautarstarfsmanns
sem var handtekinn eftir morðið
á Alice Mackenzie en slapp vegna
skorts á sönnunum.
VÍSIR
Meðal þeirra sem lögreglan
grunaði og rithöfundurinn Arthur
Griffiths, majór, telur hafa verið
Ripper er „geðsjúkur pólskur
gyðingur”. Þessi óhamingjusami
maður, sem ýmist er kalláður
Pizer eöa Kosminski, var geð-
sjúkur skósmiður (sem fékk
viðurnefniö „Leðursvunta” af
vinnufötum sinum) sem virðist
vera fórnarlamb gróusagna sem
komust á kreik strax eftir moröið
á Turner. Hann var handtekinn
eftir morðið á Nichoils en látinn
laus. „Gyðingar eru þjóöin, sem
verður ekki kennt um neitt” stóö
málað á vegg nálægt liki
Eddowes, en þóttSir Henry Smith
majór og Sir Robert Anderson
sem báöir voru háttsettir i
Lundúnalögreglunni virðist hafa
talið „Leöursvuntuna” seka.var
þaðliklega málaö af and-gyðingi.
Sumir telja reyndar að Ripper
hafi veriö „schochet”, maður
sem slátrar dýrum eftir öllum
kúnstarinnar reglum við fórnar-
athafnir gyöinga.
Albert Victor, prins og
hertogi af Clarance
„Prins Eddy” (1864-1892) heföi
orðið konungur Englands ef hann
hefði lifað. Hann var veikgeðja og
nánast örugglega kynferðislega
brenglaöur. Slúðriö i London
sagði Ripper „vera úr konungs-
fjölskyldunni” en ekki var bent á
„Eddy” fyrr en Dr. Thomas
Stowell, læknir.sem virtur var um
allan heim, birti árið 1870
„ákæru” á hendur „Eddý”. Þó
Stowell hafi siðar dregiö i land.
hafi nú ýmsir fleiri tengt „Eddy”
viö moröin á vændiskonunum.
Sir William Whithey
Gull (og aðrir”)
Gull (1816-1890) komst til mik-
illa metorða, þegar hann læknaöi
prinsinn af Wales árið 1871, hann
var þá aölaður og gerður aö sér-
legum lækni Viktoriu dottningar.
Hinn frægi miöill Robert James
Lee (sem var i miklum metum
hjá Viktoriu) sagðist skömmu
eftir 1890 hafa „dreymt” Ripper
og sagði hann hafa veriö virtan
lækni og átti næsta augljóslega
við Gull. 28. april 1890 birtist svo
Götulifsmynd frá London á timum Jack the Ripper.
viðtal i Chicago Sunday
Times-Herald, sem vakti feikna-
athygli. Þar hélt dr. Benjamin
Howard þvi fram.að Gull, sem
átti að hafa látist 1890,væri enn á
lifi. Hann væri hins vegar orðinn
snargeggjaður vitleysingur og
heföi verið komið fyrir á geö-
sjúkrahúsi eftir „réttarhöld” 12
vel metinna lækna og kvaðst Ho-
ward sjálfur hafa verið einn
þeirra. 1976 kom svoá markaðinn
bók eftir Stephen Knight, þar sem
hann heldur þvi fram aö „Eddy”
prins hafi eignast barn með ein-
hverri konu af lágum stigum og
hafi Mary Kelly — sfðust hinna
llklegri fórnarlamba Rippers —
verið falið að gæta þess. Eftir aö
Kelly neyddist til að gerast hóra, á
hún aöhafa reynt að kúga fé út úr
konungsfjölskyldunni með þeim
árangri að forsætisráðherrann
Salisbury gaf út „aftökuskipun”
með samþykki drottningarinnar,
á hendur Kelly og nánustu vin-
konum hennar. Morðingjarnir
eiga að hafa veriö Gull, lögreglu-
foringinn Sir Robert Anderson og
fyrrum ökumaður „Eddys”, John
Netley. Þeir þrir eiga að hafa
fariö um göturnar i hestvagni,
lokkað vændiskonurnar upp i,
myrt þær og siðan fleygt likunum
burt. Málarinn Walter Richard
Sickert (1860-1942) sem er sagður
hafa tekið viö uppfóstrun hinnar
óskilgetnu dóttur Eddys” og
geröist siðar ástmaður hennar —
er einnig talinn hafa átt hlut að
samsærinu.
George Chapman
Ýmsir telja aö George Chap-
man (1865-1903) liklegastan allra
grunaðra. Hann fæddist I Póllandi
og hét þá Severin Kolosowski og
læröi til rakara,en neyddist til að
flýja til Englands vegna gruns
um, aö hann hefði limlest konu
nokkra. Þaö var árið 1887 og
Chapman hóf störf sem rakari i
East End. Snemma árs 1890 fór
hann i flýti til New York og til-
raunir til að tengja hann við
nokkurs konar Ripper-morð I Jer-
sey City á árunum 1891-1893 eru
taldar vafasamar. Þegar hann
kom aftur iil London 1895 geröist
hann kráareigandi og myrti á
næstu árum fjölmargar stúlkur
sem unnu hjá honum og þjónuðu
honum til borös og sængur, með
þvi að eitra fyrir þær. Hann var
handtekinn 1902. Abberline, hátt-
settur lögregluforingi sem mikiö
hafði unnið að Ripper-málinu,
sagöi lögregluforingjanum sem
handtók Chapman: „Þarna-
náðiröu loksins Jack the
Ripper!” Chapman var hengdur
fyrir morö á þremur ástkonum
sinum. Ýmislegt fleira þykir
benda til þess, að hann hafi verið
Ripper og þau rök að hann hafi
verið náttúraður fyrir eitur og aö
fjöldamoröingjar haldi sig vana
lega við sömu aðferöina,virðast
ekki fullnægjandi.
„Rússneski læknirinn”
Þeir eru margir sem telja
„geðsjúkan rússneskan lækni”
hafa veriö Ripper, þar á meðal
Sir Harold Scott og Richard
Deacon. Læknirinn hét Alexander
Pedaténkó en var einnig nefndur
Vassili Konovalov, Andrei
Luikovó og Mikhel Ostrong (eða
Ostrog). Hann starfaði á lækna-
stofu i East End.þar sem Martha
Turner, Mary Nicholls, Annie
Chapman og Mary Kelly voru all-
ar til meðferðar snemma árs
1888. Deacon heldur þvi fram, aö
Pedaténkó, sem áður hafði myrt
vændiskonu i Paris á svipaðan
hátt, hafi verið sendur til Eng-
lands af Okhrana, leynilögreglu
Zarstjórnarinnar i Rússlandi i
þeirri von aö gerðir hans vörpuöu
skugga á róttæka rússneska út-
laga sem bjuggu i London. Eftir
Ripper-morðin mun Pedaténkó
hafa snúið aftur til Sankti Péturs-
borgar, þar sem hann dó á geð-
veikrahæli eftir að hafa myrt enn
eina konu. Sir Basil Thompson
aðstoðaryfirmaöur rannsóknar-
lögreglu Lundúna, var sann-
færöur um sekt Pedaténkós.
23
LÆKNINGASTOFA
Hef opnað lækningastofu
í Domus Medica,
Egilsgötu 3, 5. hæð.
Viðtalspantanir í síma 15477.
GUNNAR VALTÝSSON,
LÆKNIR
Sérgrein: Almennar lyflækningar
innkirtla- og efnaskiptasjúkdómar.
EIGENDUR
athugið:
Höfum opið alla laugardaga
kl. 8-18.40
BÓN- OG
ÞVOTTASTÖÐIN HF
Sigtúni 3. Sími 14820
Hefur þú prófað heita
pottinn með innbyggða
vatnsnuddinu?
„Þetta er dýrðlegt, ég kem
örugglega aftur" þetta er það
sem við fáum að heyra
frá ánægðum viðskiptavinum,
sem til okkar koma.
Hefur þú komið?
Ef ekki, hvers vegna ekki
að prófa.
Við höfum margt upp á að bjóða
m.a. sauna, sóllampa,
nuddsturtur, æfingatæki
(að sjálfsögðu fyrir bæði kynin)
P.S. Kariar:
Nuddari er mættur á staðinn
Hringið í síma 76540
Baðstofan
Breiðholti — Þangbakki 8
(Mjóddin)
:r.::
ÍiÍÍI
iiiis
:::::
:::::
Íiiii
ÍiÍiÍ
:::::
:::::