Vísir - 09.12.1980, Blaðsíða 15
r-------------------------
Land heldur enn
I áfram að risa á Kröflu-
5 svæðinu, en engin merki
I sjást þess að eldsum-
| brot séu að hefjast.
Norðurendinn á stöðv-i
arhúsinu við Kröflu-
I virkjun hefur lyfst um
| 6.5 mm miðað við suður-
| endann frá siðasta gosi,
sem jafngildir þvi að
landið á umbrotsvæðinu
| hefur hækkað um 30 cm.
■ Landhæð á Leirhnúks-
svæðinu er þvi komin 6
I cm yfir það sem hún var
| fyrir gosið i október, en
■ það þarf ekki að vera
óeðlilegt. Slikt hefur
I gerst áður i umbrotun-
| um við Kröflu, en Páli
I Einarsson, jarðeðlis-
fræðingur, taldi þá ólik-
I legt, að það drægist öilu
I lengur en i 4-5 vikur, að
■ til tiðinda drægi.
Þótt þegar hati oröiö þrjú eld-
gos á Kröílusvæöinu á þessu ári,
þá er þaö alls ekki sjálfsagöur
hlutur aö gos veröi nú. Kvikan
gæti allt eins hlaupiö neöanjarö-
ar, eins og ott heíur gerst áöur i
Kröflueldum. Til aö mynda varö
eldgos i september 1977. Siðan
gaus ekki aftur fyrr en i mars á
þessu ári. Á þessum tima höf'öu
þó orðið mörg kvikuhlaup, sem
fáir uröu varir viö.
ibúarnir hafa vara
á sér
Siðustu vikurnar hafa ibúar i
Keynihlið haft vara á sér vegna
hugsanlegra eldsumbrota, sem
gætu sett byggðina i hættu. Hald-
inn var borgarafundur, þar sem
visindamenn kynntu fyrir ibúun-
um á hverju þeir mættu eiga von
og kerfi Almannavarna var
kynnt. Slikar varúðarráðstalanir
hafa raunar alltaf veriö geröar
þegar von hefur veriö á umbrota-
hrinum á Kröflusvæöinu, en á
þeim hefur verið hert aö þessu
sinni og allur öryggisbúnaður
bættur, þar sem nú er svartasta
skámmdegið og allra veöra von
þannig að færð geti spillst.
Fram til þessa hala gosin verið
norðan Leirhnjúks, jafnvel allt
norður i Gjástykki, þannig að þau
hafa ekki skapað hættu fyrir
byggðina. Hins vegar náöi gosið i
október s.l. nokkru sunnar en
áður hafði gerst. Vakti þaö upp
ótta um aö næst gæti gosið enn
sunnar, jafnvel i Bjarnarflagi.
Þar er Kisiliöjan og byggðin i
Reynihliö steinsnar frá. Ekki er
þó hægt að benda á aö þróun
Kröfluelda, eða einstakur þáttur
þeirra gefi forsendur fyrir þvi að
svo illa fari. Hins vegar veröur
ekki horft fram hjá þvi að þetta
gæti gerst. Á þetta hafa visinda-
menn bent og heimafólk er
viðbúið hinu versta.
Vílja að betta gangi
nú yfir sem fyrst
Kg dvaldi i Reynilili'ö á föstu-
dag og laugardag og þar gengur
lifið sinn vanagang. Ekki er hægt
að merkja neinn ótta meðal fólks-
ins, en þó verður maður var við
að margir eru kviðnir undir niðri,
vilja að þetta gangi nú yíir sem
fyrst, svo hægt sé að halda heilög
jól i friði og ró.
Gosið i október viröist hafa
skotið mörgum ibúum Reynihlið-
ar nokkurn skelk i bringu. Þetta
var á laugardagskvöldi og margir
sátu og voru að horfa á sjónvarp-
ið. Þá var hringt frá Almanna-
vörnum og tilkynnt um aö gos
VlSIR
Þriðiudagur 9. desember 1980.
Þriðjudagur 9. desember 1980.
VÍSIR
„Nei, við erum sko ekkert hrædd við gos. Þaö eru einhverjir karlar, sem alltaf eru að spá gosi, en þeir vita litið i sinn koll,”, sögðu þessir tápmiklu krakkar, sem kunnu vel að meta snjóinn og
brekkurnar i Reynihlið.
Kisiliöjan er_i Bjarnarflagi, en sá möguleiki er fyrir hendi að þar geti gosið
llann kom á fljúgandi ferð niður
snarbratta brekkuna fyrir norðan
byggðina i Reynihlið og taldi al-
gerlega ástæðulaust að vcra að
gcra scr rellu út af þessu gosi.
MANNSLIF ERU
EKKI í HÆTTU
- Þess vegna raskar goshættan
ekki ró ibúanna í neynihlíð
legt i aðra röndina. Verst fannst
mér að heyra drunurnar þegar ég
fór út til að ná i ferðatösku, þvi
við ætluðum að vera viðbúin þvi
að þurfa að yfirgefa staðinn. Mér
fannst eins og þetta gæti verið
rétt við húsvegginn hjá mér”
sagði þessi viðmælandi okkar i
Reynihlið.
Og enn eiga ibúarnir i Reyni-
hlið von á gosi, en það raskar ekki
ró þeirra, þó einhver kviði sé
undir niðri. Það er lika til, að
menn hafi látið ótta sinn i ljós, en
slikt hefur öðrum þótt litt karl-
mannlegt og ekki sæmandi Þing-
eyingi. Hafa margar kersknisvis-
ur gengið i þessu sambandi. En er
einhver ástæða til að óttast?
Nei, ekki á það að vera,
samkvæmt upplýsingum visinda-
manna og eftirlitsmanna á stað-
num. Skjálftvaktin „vakir” allan
sólarhringinn. Dragi til tiðinda er
Almannavarnarnefnd staðarins
gert viðvart. Hún metur siðan
stöðuna og ákveður áframhald-
andi aðgerðir. Er talið að hægt
eigi að vera að segja til um það
með a.m.k. tveggja tima fyrir-
vara, hvort ástæða er til að ibúar-
nir i Reynihlið yfirgefi heimili sin
eða ekki. Lif eru þvi ekki i hættu,
þó verðmæti gætu hugsanlega
farið undir hraun ef svo fer sem
verst getur orðið.
Lif eiga ekkí
að vera i hættu
En hvenær verður þá gosiö?
Það getur enginn sagt til um það.
Það getur verið byrjað þegar
þetta kemst á prent, en það getur
lika dregist fram i janúar. Hjört-
ur Tryggvason sem er eftirlits-
maður Orkustofnunar á Kröflu-
svæðinu, og þess vegna af Hús-
Eysteinn Tryggvason I Norrænu eldfjallastöðinni ber saman bækur slnar við skjálftavaktina.
gæti verið i aðsigi. Þar var um að
ræða þriðja gosið á einu og sama
árinu, þannig að þetta raskaði
ekki ró ibúanna og flestir settust
við sjónvarpstæki sin aftur. En
mörgum var brugðið þegar roða-
bjarma brá yíir byggðina, svo
bjart varð sem á degi.
Mér fannst eins og
betta gæti verið rétt
við húsvegginn hjá mér
„Það var búið að láta okkur
vita um hvað væri i aösigi, en þaö
raskaði ekki ró okkar á heimilinu,
viðhöfðum meiriáhugaa þvisem
var i sjónvarpinu”, sagöi einn af
viðmælendum minum i Reyni-
hlið. „Mér brá hins vegar illilega
þegar allt i einu birti úti og roða-
bjarma sló yfir alla byggðina.
Það varsamfelld skýjahella íyfir
og snjór lika, sem varð til þess aö
birtan magnaðist einn meira.
Þetta var tignarlegt en óhugnan-
vikingum neíndur „Gosi” spáði
gosi á laugardaginn svona i grini
eins og hann sagði i viötali við
mig á föstudag. En svo varö hann
andvaka um nóttina og endur-
skoðaði þessa afstöðu sina. Varð
það til þess að hann hætti viö gos
á laugardaginn, írestaöi þvi um
óákveðinn tima. Margir fleiri
hafa spáð, en slikir spádómar eru
oftast settir fram i græskulausu
gamni. „Blessaður, það er gott þú
ert kominn, gosið byrjar nefni-
lega eftir Löður á laugardaginn,
þvi þá er Ömar Ragnarsson á
rallballi fyrir sunnan og það gýs
alltaf þegar hann er i einhverju
rallstandi,” sagði Pétur kokkur i
Reynihlið, þegar hann heilsaöi
mér við komuna á fimmtudags-
kvöldið.
Margt fleira var skrafað. Til að
mynda frétti ég af konu, sem
hefur séð það fyrir i draumi, að
gosið byrji i dag, mánudag. Þá er
mikið hringt utan af landi frá
draumspökum en spádómar
þeirra hafa aldrei lariö eftir,
enda geta ekki allir draumar
ræst.
Eysteinn Tryggvason sagði
mér eina draumsögu. Þá hringdi
til hans maður i Norrænu eld-
fjallastöðina og sagöist hafa hann
séð brjóstahaldara i draumi.
Taldi maðurinn að draumurinn
væri fyrir gosi á Kröflusvæöinu
og það sem meira var, þaö yrði
ekki bara eitt gos, heldur tvö^
G.S. Mývatnssveit 7/12 ’80.
Þær Ingigerður Arnljótsdóttir og Hólmfriöur Jónsdóttir sjá um skjálftavaktina ásamt Baldri Þórissyni. A milli þeirra má
sjá slritann.sem gefur landrisið tilkynna.
Ómar Ragnarsson hefur löngum veriö meö þeim fyrstu á vettvang
þegar gosiö hefur á Kröflusvæöinu og þá oftast á „FRÚNNI” sinni.
Vilhjálmur Knudsen hefur myndaö öll Kröflugosin, auk þess sem hann
hefur tekiö mikiö af mannlifsmyndum 1 Mývatnssveit. Hann hefur
verið nyröra undanfarnar 3 vikur og geröi sér vonir um aö ná upphafi
að gosi, en hann gafst upp á sunnudaginn.