Vísir - 15.12.1980, Qupperneq 20

Vísir - 15.12.1980, Qupperneq 20
20 Mánudagur 15. desember 1980. AUGLÝSING UM UNDANÞÁGU FRÁ ÁKVÆÐUM ' gr. laga nr. 85 1968 um eiturefni og hættuleg efni varðandi innflutning og sölu á metanóli Með stoð í 21. gr. laga nr. 85/1968 um eiturefni og hættuleg efni er olíuinnflytjendum veitt heimild til þess að flytja inn metanól í heilum tunnum til endursölu þeim aðilum sem rétt eiga til slíkra kaupa sbr. 5. gr. 1. m gr. 1. og 2. tl. áðurnefndra laga. Með reglugerð útgefinni i dag hefur ráðuneyt- ið heimilað olíuinnf lytjendum að rjúfa tunnur, sem i er metanól, og búa til vatnsblöndur metanóls, sem ætlaðar eru til eldsneytis í f lug- förum. Heimildin er bundin því skilyrði að vatnsblöndur metanóls séu tryggilega geymd- ar og afgreiddar beint í sérstaka geyma í f lug- förum og jafnframt að seljandi færi inn í sér- stakar sölubækur upplýsingar um selt magn metanóls. Framangreint auglýsist hér með skv. 21. gr. laga nr. 85/1968. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. 11. desember 1980. Vélamaður óskast óskum að ráða vanan vélamann til vinnu á ýmsum vélum m.a. á stórum hjólaskóflum. Nánari upplýsingar gefnar í síma 21000. Vegagerð rikisins, Borgartúni 7, Reykjavík. Næst þegar þú kaupir filmu - athugaðu verðið FUJI filmuverðið er mun lægra, en á öðrum filmutegundum. Ástæðan er magninnkaup beint frá Japan. FUJ! filmugæðin eru frábær, - enda kjósa atvinnumenn FUJI filmur fram yfir allt annað. Þegar allt kemur til alls, - þá er ástæðulaust fyrir þig að kaupa dýrari filmur, - sem eru bara næstum þvíeins góðar og FUJI filmur. FUJI filmur fást í öllum helstu Ijós- myndaverzlunum. FUJICOLOR B/ENDUR HAFR Sin AB SE6JA Jón Bjarnason frá Garðsvík og áður Grýtubakka lætur skammt milli minningabóka sinna. t framhaldi af Bænda- blóðier nii komið út hjá Erni og örlygi annað bindi minning- anna undir heitinu Hvað segja bændur nú? Lýkur þessu bindi svo að Jón er kvæntur maður og hefur reist nýbýli i landi æsku- heimilisins, Grýtubakka. Bændablóði var svo vel tekið, að Jóni hefur verið talsverður vandi á höndum, og er fljótsagt að hann veldur þeim vanda og vex með honum. Þetta bindi er ekki siður læsilegt og fróðlegt. Tvennt er það einkum sem ég tel þessari bók til gildis, en það er lifsviðhorf hennar og still. Jón Bjarnason víll i öllu hafa það semrétt reynistog honum ei eðlisnauðsyn að vera hreinskil- inn. En hann er aldrei berorð- ur bersöglinnar vegna, né heldur reynir hann að vera ein- hvers konar afhjúpunarmaður i orði eða verki.til þess að þjóna tiskuduttlungum timans. Jón Bjarnason er gætinn og grand- var I hreinskilni sinni og lætur menn njóta sannmælis. Lifs- reynsla hans, þroski og skop- skyn, hjálpast að til þess að gera frásögn hans hlýja og mannlega. Hann meiðir ekki að gamni sinu. En hann sér á mönnum bæði kost og löst. Góð- vildina og mannskilninginn á hann ekki langt að sækja. Um það er til dæmis bréfið góða frá föður hans, er Jón var nemandi á Laugum. Það er merkilegt bréf.sem ber höfundi sinum fag- urt vitni. Frásögn Jóns þykir mér risa hæst, þegar hann segir frá dvöl sinni á Laugaskóla og siðar með Þingeyingum i þungri sjúk- dómslegu og eftir hana. Undir- straumur mikilla geðshræringa er I þessum köflum, en sann- girnin stillir öllu i hóf. Texti: Gisli Sigurgeirs- son. Ljóst er af þessari bók Jóns hversu föstum fótum hann stendur I islenskum bókmennta- heimi. Þar fer saman arfur og ástundun. Ekki er það tilviljun að á Laugum gekk honum best i islensku, bæði málfræði og stíl. Arfurinn frá Grýtubakka hef- ur verið vel ávaxtaður með lestri góðra bóka, fornra og nýrra. Þess vegna getur Jón skrifað þann sterka, klassiska stil sem á bókinni er. Hann er kannski ekki alveg eins i- smeygilega glettinn frá upphafi til enda sem á Bændablóði, en það sem skortir á linnulausa gamansemi i stilfarinu sjálfu, vinnst upp i meiri tilfinninga- hita, eftir þvi sem nær dregur höfundi sjálfum i frásögninni. Og meiri þjálfun við ritstörf hefur gert hann færari en áður um að bregða upp glöggum, skýrt dregnum myndum af fjölda manna og staða. Skopskyn hans kemur og á framfæri, sem fyrr, sæg skemmtilegra smásagna og smellinna visna. Einkum lætur hann sér annt um að koma til skila visum sem litt hefur ella verið á loft haldið, og eru ýmsar þarna prentaðar i fyrsta sinn, að þvi er ég best veit. Hvað segja "bændur nú? Þeir segja að gott hefur verið að eiga Jón Bjarnason i sinum hópi. Li'tt skólagenginn skrifar þessi bóndi eins og sá sem valdið hef- ur. Hafi Jón i Garðsvik þökk fyrir verk sitt og metnað. Með- an svo er gert, getur Islensk al- þýða borið höfuðið hátt og is- lensk bændamenning haldið reisn sinni. Prófarkalestur er góður, en ekki öruggur. Káputeikning er i miklu ósamræmi við texta bók- arinnar og til talsverðrar ó- prýði. „Tvennt er þaö einkum, sem ég tel lifsviðhorf hennar og stfll....” bók til gildis, en það er Námsgagnastofnun og SkáksambandiO gefa út skákkennslubók: Brotið blað í sðgu skák- fræðslunnar seglr Frlðrlk ólafsson. forsetl FIDE Ot er komin á vegum Náms- v gagnastofnunar, I samvinnu við Skáksamband Islands, bókin Æskan að tafli. 1 formálsorðum Friðriks Ólafssonar, forseta F.I.D.E., segir m.a.: „Með útgáfu þessarar bókar er brotið blað i sögu skákfræðslu hér á landi. Nú verður unnt að ÆSKAN AÐ TAFLl samræma skákkennslu um land allt og beita skipulegum vinnu- brögðum i framtiðinni. Þetta framtak boðar að minu mati bjarta framtið fyrir útbreiðslu skákarinnar. Höfundur bókarinnar, Hol- lendingurinn Berry J. Withuis, er þekktur I heimalandi sinu fyrir skrif sin um skák og er höfundur fjölmargra skákbóka. Þykir hann einkar laginn við að skrifa fyrir börn á skemmtilegu og aðgengilegu máli og hafa þau kunnað vel að meta bækur hans. Vona ég, að sama verði upp á teningnum hjá ungukynslóðinni hér á landi.” Skáksamband íslands hefur látið gera próf, sem nemendur geta þreytt að loknu námi hvers hinna þriggja hluta bókarinnar, og ætti það að verka hvetjandi á alla þá er vilja auka þekkingu sina á skáklistinni. Skólar, taflfélög og einstakl- ingar geta pantað próf og próf- skirteini hjá Skáksambandi islands, pósthólf 674, Reykja- vik, og verða umbeðin gögn þá send i póstkröfu. verðlauna- barnabók komin út Um þessar mundir kemur út hjá Námsgagnastofnun bókin Undir regnboganum eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur. 1 tilefni alþjóðaárs barnsins 1979 efndi Rikisútgáfa námsbóka til samkeppni um bækur handa börnum á skólaskyldualdri. 28handrit bárust til samkeppn- innar og varð dómnefnd sammála um að veita Gunnhildi Hrólfsdótt- ur viðurkenningu fyrir haridrit sitt. Þetta er fyrsta bók höfundar, sem er húsmóöir i Mosfellssveit. „Sagan fjallar um Döggu, 11 ára telpu, sem á heima i þorpi norðanlands. Henni virðast öll sund lokuð, þegar móðir hennar slasast, og Dagga verður að fara til ættingja sinna i Reykjavik. Ekki líður þó á löngu, þar til hún er orðin þátttakandi i lifi hinnar glaðværu fjölskyldu i Brekku, hinu nýja heimili sinu, þar sem hver dagur er ævintýri likastur.”

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.