Vísir - 20.12.1980, Blaðsíða 31
Laueardaeur 20. desemhipr ÍQ8ft
VlSIR
r
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Útvegsmenn neituðu að ræða við öátasiömenn í gær:
Svívirðileg framkoma
- Siómannafélögin undirðúa verkfall
99
„Þar sem stjórn Ltú er ekki
ljóst aö hve miklu leyti ríkis-
stjórnin ætlar aö semja fyrir
hönd útvegsmanna viö sjömenn
og staöfesting á þvf ekki fengist
þrátt fyrir ósk þar um, treystir
stjórn LÍÚ sér ekki til viöræöu
viö samtök sjómanna um
endurnýjun kjarasamninga.
Svo segir m.a. i frétt sem
Landssamband islenskra
útvegsmanna sendi frá sér aö
afloknum sáttafundi
útvegsmanna og sjómanna á
bátum i gær. Var fundurinn
mjög stuttur og fóru þar engar
viöræöur fram aö heitiö bæti.
Þeir Kristján Ragnarsson
formaöur Llú og Óskar Vigfús-
son form. Sjómannasambands
Islands ræddu viö sáttasemjara
og siöan var samninganefnd
sjómanna tilkynnt aö
útvegsmenn væru ekki til
viöræöu fyrr en „staöfesting
fáist á þvi frá rikisstjórninni, aö
samningageröin veröi án
afskipta hennar”, eins og segir I
frétt Llú.
Þaö eru einkum tvö atriöi sem
útvegsmenn setja fyrir sig. Þaö
er frumvarp um lögbindingu
jólafridaga sjómanna á togur-
um og yfirlýsing stjórnarinnar
um lifeyrissjóö sjómanna, en
fyrirhugaö er aö skipa nefnd til
aö endurskoöa lifeyriskerfi
bátasjómanna og farmanna.
„Útvegsmenn koma sviviröi-
lega og ódrengilega fram i
þessu máli”, sagöi einn af
samningarnefndarmönnum
sjómanna, er Vi'sir náöi tali af
honum I gær. „Þessi óbilgirni
þeirra á vissulea eftir aö draga
dilk á eftir sér, ef fram heldur
sem nú horfir”.
Þá er gert ráö fyrir aö
sjómenn boöi til verkfalls innan
tiöar vegna þessa. Sjómanna-
samband Islands hefur beint þvi
til allra aöildarfélaga aö þau
leiti eftir verkfallsheimild, og
hafa þau sum hver þegar aflaö
sér slikrar heimildar.
— JSS
„Bráðuni koma blessuð jólin / börnin fara að hlakka til”, segir I
visunni, og eflaust eru það fleiri en börnin sem hlakka til, þó hjá þeim
sé eftirvæntingin mest og merkjanlegust. Stúlkan á myndinni er einn af
nemendum Myndlistarskólans á Akureyri, sem var að mála jólasvein
þegar ljósmyndari Visis smellti af þessari mynd. (Visismynd G.S.
Akureyri)
iscargo ætlar ao
lelgja farpegavél
„Þaö veröur haldinn hluthafa-
fundur milli jóla og nýjárs þar
sem tekin veröur ákvöröun um
hvaöa flugvél veröur fengin til
farþegaflugs,” sagöi Kristinn
Finnbogason framkvæmdastjóri
Iscargo i morgun.
Iscargo hefur verið veitt leyfi
til farþegaflugs og hyggst taka
upp reglubundnar feröir milli
Hollands og íslands. Sagöi
Kristinn aö ætlunin væri aö það
flug gæti hafist fyrir páska. Búiö
er aö gera samning viö hollenska
flugfélagið KLM um aö setja
þetta flug Iscargo inn i sölukerfi
KLM um allan heim. Aöeins væri
Háhyrnlngarnlr
fara um helgina
Fjórir háhyrningar eru nú eftir
I Sædýrasafninu, en hinn fimmti
var fluttur til Barcelona á Spáni i
vikunni. Aö sögn Jóns Kr.
Gunnarssonar forstööumanns er
fyrirhugaö aö koma dýrunum
sem eftir eru út ekki siöar en
strax eftir helgi.
„Þetta fer nokkuö eftir flugi og
veöri, þar sem ekki má f lytja þá i
miklu frosti”, sagði Jón.
eftir aö undirskrifa þann samn-
ing.
Þaðeru tværgerir flugvéla sem
valið stendur um hjá Iscargo,
Boeing 727 eöa Electra. Kristinn
Finnbogason sagöi aö fyrst i staö
myndi sú vél sem valin veröur
tekin á leigu en ekki keypt.-SG.
Viilur
leiðréttar
I grein dr. Björns Dagbjarts-
sonar i Visi á miðvikudag um
skelfiskvinnslu viö Breiðafjörð
slæddust inn þrjár villur, sem
ástæða er til að leiðrétta.
I myndatexta var talað um
rækjuvinnslu i Stykkishólmi en
átti að vera skelliskvinnsla. Þá
var sagt að Breiðafjörðurinn gæfi
af sér 6-800 tonn af skelíiski, en
átti að vera 6-8000 tonn. Litlu sið-
ar i greininni féli svo niður tölu-
stafurinn 7, en þar átti að standa:
„Þá væru 7 aðilar byrjaðir að
vinna aflamagn, sem nú endist
ekki handa tveimur stöðvum i
nema 7-9 mánuði á ári.
Leiðréttist þetta hér með og eru
hlutaðeigandi beðnir velvirðingar
á þessum mistökum.
Eggert Haukdal studdl að lokum hækkun vðrugjaldslns:
FÉKK PENINGA í BYGGÐA-
SJÓÐ FYRIR ATKVÆBI SITT
„Ég hef veriö ákafiega óhress
með þetta frumvarp og taldi að
þessi skattheimtuaðferð væri
óheppileg á allan máta,” sagöi
Eggert Haukdal alþingismaöur
þegar Visir spuröi hann um af-
stööu hans til vörugjaldsins.
„Ég fékk því til leiöar komiö aö
prósentutalan I frumvarpinu
lækkaöi úr 10 I 7% á sælgætiö.
Þaö blasti viö aö Byggða-
sjóöur yröi vanmegna aö sinna
sinu hlutverki á næsta ári.
Rikisstjórnir, sem setið hafa að
undanförnu hafa farið i kringum
lögin um Byggöasjóð og hann
fær ekki þaö fé sem honum ber
og hann þarf á aö halda til að
sinna sinu hlutverki. Þar er allt-
of mikil sjálfvirkni eins og
kannski annarsstaðar i
þjóöfélaginu og sjálfkrafa lán út
á skipasmiöar eru 10%. Margir
togarar eru I smiðum inn-
anlands, sem koma á næsta ári
og það er hvorki meira mé
minna en þriggja milljarða
dæmi.
Viö þaö réði sjóðurinn
ekki, nema á kostnaö annara
verkefna. Nú eru allir sammála
um aö ekki megi hleypa svona
mörgum togurum á flot og
þessa reglu þarf aö sjálfsögöu
aöendurskoöa.en þetta varallt
fariö i gang. Auövitaö má ekki
skrúfafyrirog ganga af i'slensk-
um skipasmiöaiönaöi dauöum,
hann veröur aö hafa eðlileg
verkefni. Það er ekki eingöngu
sjávarútvegsmál, heldur lika
stórfellt iðnaöarmál. Þaö blasti
við aö bróöurparturinn af f’ekj-
um sjóðsins færi sjálfkrafa i
þetta.
I margar vikur hefur ekki
fengist á þessu tekið. Aö öllu
athuguöu, aö lausn fékks á
málefnum Byggðasjóös aö
hluta, og lækkun á vörugjaldinu,
þá greiddi ég þvi jáyrði mitt.
Nú, þaöer auövitaö atriöi sem
verður aö taka tillit til að maöur
styöur þetta stjórnarsamstarf
og I sliku samstarfi hafa menn
alltaf þurft aö taka á sig ýmis-
legt, sem ekkier skapfellulegt.”
sagöi Eggert Haukdal. SV
Harður árekstur varð i Valla-
hreppi um klukkan elleftu i
gærmorgun. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar á Egils-
stööum lentu saman sjúkrabill og
fólksbill, með þeim afleiöingum
aö báöir bilarnir eru taldir ónýtir.
Engan mann sakaöi i árekstrin-
um, sem varð meö þvi móti aö
annar billinn ók þvert á stefnu
hins. Ekki var fuUkomlega ljóst
hvors var sökin, er Visir spuröist
fyrir um máliö.
— AS
TM-húsgögn
TH húsgögn héldu uppá fimm
ára afmæli sitt meö happdrættis-
skoöanakönnun um helgarsýn-
ingar húsgagnaverslana. Um sjö
þúsund þátttakendur voru i könn-
uninni og var hver einasti þeirra
fylgjandi h e lg a rsýningu m
húsgagnaverslana. Július
Hafsteinsson, Fifuseli 11 I
Reykjavik varö sá heppni viö
útdrátt i happdrættinu og sést hér
ásamt fjölskyldu sinni og vinn-
ingnum, sem er sófasettiö og
boröiö. Þaö er Halldór
Guömundssón verslunarstjóri
sem afhenti vinninginn.
31
Ensk
ióla-
messa á
morgun
I rúmlega þrjá áratugi hefur
séra Jakob Jónsson annast
enska jólamessu i Reykjavik
og má segja að messan sé
oröin hefð I bæjarlifinu.
Enska jólamessan I ár verö-
ur i HaUgrímskirkju á sunnu-
daginn kiukkan 16. Þar
prédikar séra Jakob og eru
alUr hjartanlega veUcomnir.
Allur ágóöi af rekstri klukk-
unnar rennur til aö styrkja
fatlaöa i Reykjavik.
Torg-
klukkan
í gagniö
Kiwanisklúbburinn Katla
hefur tekið aö sér rekstur
Torgklukkunnar. Allur ágóöi
af rekstri hennar rennur til að
bæta aðbúnaö fyrir fatlaöa i
Reykjavik. Hefur klukkan ÖU
veriöendurbætt.
Ný málnefnd
Menntamálaráðuneytið hef-
ur skipaö eftirtalda menn i
Islenska máiefnd um fjögurra
ára skeiö frá 10. desember
1980 að telja:
Baldur Jónsson, dósent, sem
jafnframt er skipaöur
formaður nefndarinnar,
Bjarna Vilh já lmsson,
þjóðskjalavörö, dr. Jónas
Kristjánsson, forstööumann
Stofnunar Arna Magnússonar
á íslandi, dr. Kristján Arna-
son, málfræöing, og Þórhall
Vilmundarson, prófessor.
Á sjúkrahús
eítlr veltu
Bill fór útaf veginum viö
Ingólfshvol I ölfusi, og valt
heila veltu. Tveir menn sem i
bilnum voru slösuöust nokkuö
og voru fluttir á sjúkrahús. 1
gærkvöldi haföi annar þeirra
fengiö að fara heim, en hinn
mun hafa veriö meira slas-
aöur og átti lengri sjúkralegu
fyrir höndum. — AS
Vfsisbfó
1 Visisbiói i dag verður sýnd
myndin Raunir dýralæknisins
og þar er á ferö hinn vinsæli
dýralæknir úr sjónvarpsþátt-
unum. Myndin er meö fslensk-
um texta og sýningin hefst
klukkan þrjú i Hafnarbiói.