Vísir - 02.01.1981, Page 11

Vísir - 02.01.1981, Page 11
Föstudagur 2. janúar 1981 11 vísm Nlyntbreytingin: BREVTINGAR A TÆKJARÚHAÐI I FULLUM GANGI FRAM Á ÁR Þótt óneitanlega megi búast við þvi að myntbreytingin eigi eftir að valda almenningi hugarangri á næstunni, hafi hann ekki stund- að námið af kappi fyrir áramót, er ljóst, að á starfsliði bankanna mæðir mest álag. En starfskraft- ar bankanna eru ekki aðeins manneskjur, þar eru einnig vélar sem gegna mikilvægu hlutverki. Svo er um hlutverk mynttalning- arvéla bankanna. 1 tfu ár hafa slikar vélar þjónað fslenskum viðskiptavinum bankanna, stillt- ar fyrir þá mynt sem nú er að kveðja. Enskyídu skapast vanda- mál varðandi vélarnar þegar ný mynt kemur fram? Við leituðum til Einars Þ. Mathiesen fram- kvæmdastjóra E.Th. Mathiesen hf., en fyrirtækið hefur f áratug selt mynttalningarvélar til bank- anna og er lang stærst á þvi sviði hér á landi. Að sögn Einars er um þrjár vélagerðir að ræða, flokkunarvél- ar og talningsvél, fyrir smá- mynt. Þá eru sérstakar talninga- vélar fyrir bankana, og siðan seðlatalningavélar. Engin vand- kvæði koma upp varðandi seðla- talningu. Flokkunarvélarnar taka við biandaðri mynt, eins og algengt er að berist til bankanna Ur spari- baukum landsmanna. Vélar þess- araðgreina og telja hverja mynt. Talningavélarnar eru hins vegar til þess að telja i poka fyrir bank- ana en þá er ekki um að ræða greiningu á mismunandi mynt. Það sem ræður i talningu hjá þessum vélum er þvermál pen- ingsins, sem fellur i viðkomandi rauf og ljósgeisli telurumleið.Við spurðum Einar hvort ekki kæmu upp vandkvæði ef nýju myntinni væri ruglað saman við þá gömlu og einnig varðandi breytingar á vélunum yfir i talningu á nýju myntinni. Einar taldi að vandkvæði ættu ekki að koma upp, þar sem unnið hefði verið nýtt prógram fyrir vélarnar út frá nýju myntinni I marsmánuði, og allir hlutir til breytinga væru komnir til lands- ins, svo hægt er að staðla vélarn- ar mjög fljótlega. „Innstreymi i bankana verður i gamalli mynt, svo það er ekki ráðlegt að breyta flokkunarvél- unum strax, en útstreymi verður i nýju myntinni og þvi er nauðsyn- legt að talningavélarnar, séu til- búnar fyrir nýju myntina. Til þess að brúa þetta bil hefur fiokkunarsvið talningarvélanna verið aukið þannig, að hún getur talið nýju myntina f poka, auk gömlu, 5, 10 og 50 krónanna”, sagði Einar Þ. Mathiesen. Einu vandkvæðin sem gætu skapast væru þau, að innan um nýju myntina laumaðist gamla myntin i flokkunarvélarnar, og þvi er nauðsynlegt að aðgreina myntina vel. —AS. ERLINGUR PÁLMASON VFIR- LðGREGLUÞJÚNN Á AKUREVRI - Olafur Asgeirsson aðstoðarmaður hans Erlingur Pálmason hefur verið ráðinn yfirlögregluþjónn á Akur- eyri, frá og með áramótunum. Erlingur var i starfi varðstjóra hjá lögreglunni á Akureyri. Gísli Ólafsson lætur þvi af starfi yfir- lögregluþjóns, en hann hefur ver- ið I starfi frá 1941 og yfirlögreglu- þjónn frá 1959. Hinn nýi yfirlögregluþjónn. Er- lungur Pálmason, hefur verið i starfi frá 1948 og varð varðstjóri 1959. Hann er 55 ára gamall. Samkvæmt upplýsingum Hjalta Zophaniassonar, deildar- stjóra í dómsmálaráðuneytinu, var einnig ráðið i stöðu aðstoðar- yfirlögregluþjóns, sem er nýtt embætti á Akureyri, og hliðstætt þvi sem gildir i Hafnarfirði, Kópavogi og Keflavik. Ólafur As- geirsson var skipaður i það starf, en hann var áður aðstoðarvarð- stjóri. Ólafur hefur starfað frá 1964, en hann er 35 ára gamall. —AS. \ & & wr & & INNRITUN I hefst þriðjudaginn 6. janúar. Innritun þridjudag, miðvikudag og fimmtudag frá kl. 10-12 og 13-19 alla dagana ATH: Innritun aðeins þessa þrjá daga I- Dansstúdíóið Sóley Jóhannsdóttir Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar Dansskóli Sigvalda Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar * DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS Gtaldmiðilsskipti 2. janúar Bankamir og útibú þeirra verða opnir eingöngu vegna gjaldmiðilsskipta föstu- daginn 2. janúar 1981 kl. 10-18. Komið og kynnist nýja gjaldmiðlinum með því að skipta handbærum seðlum og mynt í Nýkrónur. Viðskiptabankarnir t5 <S>

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.