Vísir - 20.01.1981, Blaðsíða 14

Vísir - 20.01.1981, Blaðsíða 14
VÍSIR Þriðjudagur 20. janúar 1981. Þriðjudagur 20. janúar 1981. VÍSIR Guðjón sagði að vistin I menntaskóla og Leiklistarskólanum væri tvennt ólikt m.a. vegna þess að i hinum siðarnefnda er 100% mætingarskylda. Leiktúlkunín mikllvægur Dáttur í kennslunni: Hver nemandi glímir við ðað sem honum hentar „Leiktúlkunin fer þannig fram, aö nemendur eru látnir leika atriöi úr leikritum”, sagði Sigmundur Orn Arngrimsson, þegar VIsis- menn litu inn i leiktúlkunartima hjá nemendum i öðrum bekk. Sigmundur Orn og Arnar Jónsson sjá um aö leiðbeina nemendum i leiktúlkun og eru 4 nemendur i hvorum hóp. „1 haust vorum við meö atriði úr grisku leikriti, Antigonu eftir Sófókles”, sagöi Sigmundur. „A þessari önn vinnum við með stutt einleiksatriði sem eru valin með tilliti til þarfa hvers og eins á þess- um tima. Þetta er eiginlega tilraun sem við erum aö gera núna, þannig að hver nemandi á að fá að glima við það sem honum hentar”. En þar sem blaöaspánar eru fá- kunnandi i þeim efnum, sem snúa að leiklist, var upplagt að spyrja Sigmund hvert væri markmiöið meö leiktúlkuninni. „Það má segja, að meö henni læri þau að leika og koma fram. Þau læra að hagnýta sér þau tækni- legu atriði sem kennd eru ásamt fleiru i skólanum”. Þá eru nemendur að vinna að ljóöadagskrá, sem unnin er upp úr verkum Jakobinu Siguröardóttur. Er þar um að ræða flutning á ljóö- um og texta og vinnur allur hópur- inn, samtals 8 manns að þvi verk- efni. —JSS Þau læra áreiöanlega sitt af hverju i þessari lotu, krakkarnir, meö ekki óreyndara leikhúsfólk en Helga Skúlason og Þóru Borg í fararbroddi. Hiutverk skóians er að þroska lciklistarhæf ileika nemenda og þjálfa þá til leik- listarstarfa. Námstlminn er 3 ár og eins árs starf i nemendaleikhúsi skólans. Hvert námsár varir um 34 vikur, frá 1. september til 15. mai. Timasókn nemur um 45 (40 minútna) kennslu- stundum á viku og nemendur hafa 100% mætingarskyldu. Námsgreinar skólans eru: taltækni, framsögn, raddbeit- ing, tónmennt, söngur, lík- amsþjálfun, hreyfing, (dans, akrobatik, hrynjandi-æfingar o.fl.), skylmingar, spuni, (improvisation), leiktúlkun greining (analýsa), leikhús- fræði, leiklistarsaga, islenska o.fl. Auk þess koma inn i námið skemmri námskeiö i öðrum greinum leiklistar, svo sem leikmyndateiknun, lýs- ingu, förðun o.fl. Námsárinu er skipt i annir og á hverri önn er unniö aö einu eða fleiri verkefnum. 1 lok annar eru þau verkefni sem unniö hefur veriö aö, kynnt innan skólans og nem- endur fá umsagnir kennara. Kennarafundur metur hvort nemandi hefur staðist cin- staka námsáfanga. A meðan á náminu stendur vinna nem- endur einnig sjálfstætt að verkefnum og sýna kennur- um. Að loknu 3ja ára námi starfa nemendur i Nemenda- leikhúsi og vinna að sýningu, sem þeir sýna opinberlega. 1 skólanum eru cngin skóla- gjöld, en nemendur þurfa aö greiða handrita- og bóka- kostnað og kaupa sér æfinga- skó og æfingafatnað. Nem- endur sem eru orönir 20 ára eiga rétt á námslánum. „Og ég sem er komin styst” sagði Sigurjóna Sveinsdóttir, þegar hún var beöin um að leyfa blaða- mönnum að fylgjast með leiktúlk- uninni. Samt var ekki annaö^að sjá en aö henni færist þetta pryðilega úr hendi. Eyþór Arnason var henni til aöstoöar i þetta sinn. Guöjón Pedersen nemandf á 4. ári: „BJÓST EKKI m AD SKðLINN VÆRI SVONA” „Ég vissi ekkert um skólann, og bjóst raunar ekki við að hann væri svona, þegar ég byrjaöi hér”, sagði Guðjón Pedersen nemandi i 4. bekk. „Ég kom hingaö úr menntaskóla, vann raunar eitt ár i millitiðinni, en hóf svo nám hér. Ég átti satt að segja ekki von á þessari ögun og þeim langa skóladegi, sem hér er enda ekki vanur sliku. 1 mennta- skólanum gat maður verið fjarver- andi svo dögum eða vikum skipti, en hér dugir ekkert slikt”. Guðjón kvaðst ekki hafa fengið neina nasasjón af leiklist áður en hann hóf nám við skólann, „lék i mesta lagi jólasvein, þegar ég var lOára”, eins og hann komst að orði. En hvers vegna þá leiklistarskól- inn?. „Ég hafði kynnst fólki, sem var i skóianum og fékk þá „inter- essu” fyrir þessu. Og hér er ég enn”. En hvað liggur fyrir hjá nemanda sem lýkur námi i vor? „Ég hef verið stórorður um bylt- ingu i leikhúsunum þessi 4 ár, sem ég hef veriö viö nám, en er e.t.v. farinn að draga saman seglin i þeim efnum núna. En það er margt hægt að gera með þessa menntun. Þá á ég viö að menn geta allt eins unnið sjálfstætt ef þvi er að skipta. Ég er ánægöur með þaö sem ég hef fengið hér, en jafnframt þykir okkur ágætt að fara hvert i sina áttina núna, enda búin að vinna náið saman i 4 ár”. —JSS ,MiKið starf, sem krefsl mikiis skipulags” - segir Pélur Einarsson skólasljóri Leiklistarskóli tslands er einn af þeim skólum sem láta ekki mikið yfir sér dags daglega, en þar eru þeim mun meiri umsvif, þegar inn er komið. Visismenn litu þar inn i gær og birtist afrakstur þeirrar heimsóknar að svo miklu leyti sem plássið leyfir, hér á opnunni nú. Skólastjórinn Pétur Einarsson var fyrst tekinn tali og spurður þeirrar sigildu spurningar hvað fólk þyrfti að hafa til aö bera til að komast inn i skólann. „Umsækjandi þarf að uppfylla ákveöin skilyrði”, sagöi Pétur. „Þeir sem það gera gangast undir inntökupróf sem er tviskipt. t fyrri hlutanum eru allir kallaðir fyrir i 10 manna hópum og úr þeim váldir þeir, sem mega taka þátt I siðari hlutanum. Ýmis konar verkefni eru lögð fyrir umsækjendur, einkum i siðari hluta prófsins, sem stendur yfir i um það bil tvær vikur. Að þvi loknu tekur inntökunefnd ákvörðun um hvaða átta umsækjendum skuli hleypt áfram”. Aðsóknin hefur verið þetta 45-55 nemendur, en nú var hvorki tekið inn i vor né haust, þannig aö við eigum von á 50-60 umsóknum”. Leiklistarskólinn er til húsa á þrem stöðum, og var Pétur spurður hvort það stæði skólanum og starf- semi hans ekki fyrir þrifum. Litlð inn á æfingu a útvarpslelkriti: „ÞAR VORII SÖGÐ 3 DÖNALEG ORÐ" A 3ja ári vinna nemendur eitt út- varpsleikrit i samvinnu við leik- listardeildútvarpsins. Æfing á einu sliku stóð yfir i gær I húsnæði skól- ans og var leikstjórinn Helgi Skúla- son tekinn tali. „Þetta er unniö eins og venjulegt útvarpsleikrit og tekið upp niðri I útvarpi”, sagöi hann. „Núna erum við með enskt leikrit, sem fjallar um unglinga i London, sambands- leysi þeirra viö foreldra og um- hverfi. Hefur þaö hlotiö nafniö „Börn barnanna okkar”. Aðspurður um hvenær leikritið yröi tilbúiö til flutnings sagði Helgi þaö veröa 1 næstu viku „ef Guð og samninganefndin lofar”. Þetta er fyrsta leikritið sem þessir nemendur vinna að og veröur flutt opinberlega, en þeir höfðu fengið nasasjón af vinnslu út- varpsleikrita fyrr i vetur. Einnig munu þeir vinna sænskt barnaleik- rit sem verður farið með I skólana. Þetta er i annað sinn sem slik samvinna er milli Rikisútvarpsins og skólans og sagði Helgi að freist- ast væri til að velja leikrit sem leyfði að nemendur gætu leikiö per- sónur úr sinum aldursflokki. Leik- ritiö sem nemendur fluttu I fyrra vakti töluveröa athygli, þvi „þar voru sö.göu 3 dónaleg orð”, eins og einn nemenda sagði þegar þetta bar á góma. Þá hafa nemendur fengið reynt leikhúsfólk til liðs við sig i þessi tvö skipti aö þessu sinni fer ÞóraBorg með eitt hlutverkiö. —JSS „Þetta er auðvitað á engan hátt heppilegt húsnæði. Lindarbær, þar sem 4. bekkur eða Nemendaleik- húsiö er staðsett er vandræðaleik- hús. Við höfum leitaö að húsnæði, en þaö er a.m.k. alltaf eitt vanda- mál sem við rekumst á og það er varðandi rýmið. Við þurfum mikið rými og það segir sig sjálft að leik- listin útheimtir slikt. Maður aðlag- ar sinn leik aö þvi rými sem fyrir hendi er hverju sinni og menn geta lent I vanda I stórum leikhúsum, séu þeir vanir öðru. Einnig hefur þetta mikiö að segja upp á radd- sviöið”. En er lausn á húsnæðisvandan- um I sjónmáli? „Nei, þvi miður. Viö erum með leigusamning til eins árs hér en vit- um ekki hvað gerist eftir þann tima. Þaö blasir við að við þurfum að reisa nýtt húsnæöi, eigum við aö fá það sem okkur hentar. Hins veg- ar er biöstaða i þessu máli hjá okk- ur nú, þar sem við erum að athuga einn möguleika sem ekki er hægt að greina nánar frá að svo komnu. Þetta skýrist vonandi allt með vor- inu”. „Geta menn fallið i leiklistar- skóla, eða kemst sá alla leiö sem hefur það af i gegnum hreinsunar- eldinn? „Þaö er ekki um nein hrein próf að ræða hjá okkur. í lok hvers árs er gerö úttekt á stööu hvers nem- anda og hvernig honum hefur gengið aö tileinka sér námiö. Það væri til i dæminu að einhver þyrfti aö sækja sama áfanga aftur, eöa honum yröi visað frá námi en til þess hefur ekki komið enn”. Nú mega nemendur ekki leika opinberlega nema eftir ákveönum reglum. Hvers vegna er það svo? „Þaö er framkomubann hjá nemendum og þeir mega ekki flytja efni opinberlega nema skv. vissum skilyrðum. Þeirgeta þó sótt um undanþágur i sumarleyfum eft- ir 2. námsáriö. Það er ákveðin ásókn hjá leik- húsunum, að ná i ný andlit. Við höf- um hins vegar litið svo á að ákveðinn greinarmunur sé gerður á atvinnuástandi og námsástandi. Nemendur vinna mjög mikiö saman og ef þeir væru i vinnu út og suður myndi það skapa vissa til- hneigingu til aö kljúfa hópinn og skapa erfiöleika i samvinnu hans. Hins vegar útilokum við ekki dag- skrárgerö i skólum o.fl. þviumlikt. Þetta mál hefur mikið verið rætt og ég held að það sé fullur skilningur fyrir þessu meðal nem- enda. Hvernig er að gegna starfi skóla- stjóra Leiklistarskóla íslands? Þaö er bæði skemmtilegt og leiöinlegt. Þetta er mikið starf sem krefst mikils skipulags. Það eru ýmsar hindranir i vegi eins og hús- næðismálin. En þaö hlýtur hins vegar aö vera gaman fyrir alla „fagidiota” að fá aö kenna fagið”. —JSS Sólveig Pálsdóttir var að æfa lag úr Saumastofunni eftir Kjartan Ragnarsson, undir leiðsögn Fjólu ólafsdóttur. Byrja Eitt af þvi sem nemendur veröa aö leggja stund á er söngur og raddbeiting. Sólveig Pálsdóttir nemandi á 3ja ári var I söngtima þegar við bönkuðum upp á i stofu 18 i Miðbæjarskólanum gamla. „Þau byrja i söng og raddþjálfun strax i 1. bekk og byrja gjarnan á þjóðlögum eða léttum lögum”, sagði Fjóla ólafsdóttir leiðbein- andi, „Kennslan miðast ekki sist við aö fá hljóm upp á sviöið og láta röddina berast. Þetta atriði er mjög mikilvægt fyrir leikarann”. En hvað um þá sem eru lag- Söngur og raddbeltlng: strax í i. bekk lausir? Verða þeir að fara á mis viö þessa þjálfun, eöa standa á ein- hvern hátt verr aö vigi en hinir sem syngja eins og englar? „Ef leikari er laglaus verður að aðstoða hann þannig aö hann geti lifað með þvi og sungið þrátt fyrir það”, sagöi Fjóla. „En að þessu leyti er um mjög mikiö þjálfunar- atriði að ræða. Flestir þeirra sem byrja i söngtimum syngja ekki hreint. Þetta er i langflestum til- fellum hægt að lagfæra en menn þurfa vitaskuld yfirleitt lengri tima en þrjú ár til að veröa verulega góðir. Þetta ætti ekki að fæla neinn frá”. „Það er mjög mikiö atriöi fyrir verðandi leikara aö fá raddþjálf- un”, skaut Sólveig inn i. „Söngur- inn er stór liður i þvi og raunar eitt af hjálpartækjunum. Sumir ná bet- ur fram i gegnum söng en tal, þannig að þetta getur verið mjög einstaklingsbundið”. Söngtimarnir eru einkatimar, þannig að aðeins einn nemandi er I tima i einu. Og nú var sá næsti mættur, svo að við þökkuðum fyrir okkur. —JSS 15 Við gerum ekki upp á miííi Aílir fá sama afsiátt Litíð synishorn af lágu vöruverði: • Saltar rúl/upy/sur kg-verð kr. 17,85 • Hangiframpartur kg-verð kr. 25,40 s Hangiframpartur úrbeinaðir kg-verð kr. 52,40 • Cheerios 425 gr verð kr. 12,50 » Cocoa Puffs 480 gr. verð kr. 20,60 • Bug/es 198 gr verð kr. 9,60 » Kjúk/ingar 5 stk. i kassa kg-verð kr. 32,00 » Lambahjörtu, vakúmpökkuð kg-verð kr. 17,70 • Lambanýru, vakúmpökkuð kg-verð kr. 17,70 Lambalifur, vakúmpökkuð v kg-verð kr. 31,30 Coco-malt Benco, 400 gr verð kr. 11,80 £99 kg kg-verð kr. 27,50 • Strásykur 25 kg. kg-verð kr. 8,70 C-11 þvottaefni 3 kg pakkning kg-verð kr. 11,05 OPIÐ: föstudaga kl. 9—22 laugardaga kl. 9—12 í Matvörudeild og Rafdeild /A A A A A A — _l 'j'!9 . Z JU''..IU34j J ■ UariHUUIlHllillli Jón Loftsson hf.__________________ Hringbraut 121 Sími 10600 Fyrst um sinn er opið í: ★ Byggingavorudei/d ★ Húsgagnadeiid ★ Teppadei/d til kl. 19 á föstudögum, en lokað á laugardögum Allirfá sama afslátt

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.