Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 57
Opinberun Hannesar
í Háskólabíói NÚNA
DANSARINN og danskennarinn
Honey Daniels (Jessica Alba) er
klár og kynþokkafull og stendur á
barmi frægðarinnar þegar læri-
meistari hennar setur henni úrslita-
kosti: Ef hún ekki sofi hjá honum
komi hann henni á svarta listann.
Bille Woodruff leikstýrir Honey,
sem Sambíóin voru að frumsýna.
Dansmeyjar og duflarar
Honey er metnaðarfullur og sí-
stritandi dansari og danskennari
sem dreymir um frægð og frama og
fjármagnar það með vinnu í plötu-
búð á daginn en á kvöldin og nótt-
unni starfar hún sem barþjónn og
dansar fyrir gesti.
Einn góðan veðurdag rætist
draumurinn. Tónlistarmyndbanda-
framleiðandinn Ellis (David Mos-
cow) tekur stúlkuna upp á arma sína
og myndböndin þeirra slá í gegn.
En fleira hangir á spýtunni hjá Ell-
is, sem hyggst misnota aðstöðu sína
og komast yfir stúlkuna.
Leikstjórinn Bille Woodruff er
öllum hnútum kunnugur í gerð tón-
listarmyndbanda þar sem hann hef-
ur unnið mörg af þeim bestu fyrir
skærustu stjörnur dægurtónlistar-
innar. Hann er þekktastur fyrir frá-
bæra samvinnu við Britney Spears,
Outkast og Cèline Dion, auk fjöl-
margra annarra.
Honey inniheldur sex atriði sem
eru í raun ósvikin „tónlistarmynd-
bönd“. Þar njóta sín hæfileikar og
reynsla leikstjórans til fullnustu en
myndin er sú fyrsta sem hann gerir
í fullri lengd.
Jessica Alba er 23 ára gömul
Kaliforníumær sem hafði leikið
nokkur minniháttar hlutverk í ung-
lingamyndum er hún fékk stóra
tækifærið og sló í gegn í sjónvarps-
þáttunum Dark Angel. Hana hafði
dreymt um að gerast leikkona frá 5
ára aldri og fór fyrst á leiklistar-
námskeið 12 ára gömul. Ekki leið á
löngu áður en hún fékk sitt fyrsta
kvikmyndahlutverk sem var í ung-
lingamyndinni Camp Nowhere. Eft-
ir það lék hún í nokkrum sjónvarps-
auglýsingum og kom við sögu í
sjónvarpsþáttum eins og Beverly
Hills 90210 en fyrsta kunna myndin
sem hún var í er Never Been Kissed
með Drew Barrymore í aðalhlut-
verki.
Auk hennar fara með stór hlut-
verk leikararnir Li’l Romeo og
Mekhi Phifer.
Tónlistin er að sjálfsögðu ofarlega
á baugi í Honey, þar koma við sögu
margir af heitustu hipp-hopp-lista-
mönnum samtímans eins og Missy
Elliott, Fabolous, Sean Paul, Nate
Dogg, Tweet, Blaque o.fl.
Jessica Alba úr Dark Angel leikur aðalhlutverkið í Honey
Stóra tæki-
færið
Jessica Alba er þekkt úr sjónvarps-
þáttunum Dark Angel.
Missy Elliott á ekki bara lag
í myndinni heldur fer hún
einnig með lítið hlutverk.
saebjorn@mbl.is
Misjafnir danskennarar
Kvikmyndir þar sem danskennarar hafa verið í sviðsljósinu skipta
hundruðum. Misjafnar að gæðum, líkt og aðrar og oftar en ekki gerðar í
kringum vinsælar poppstjörnur eða nýja sveiflu sem hefur farið eins og
eldur í sinu um dansgólfin. Dæmi um eina vonda og aðra vinsæla:
Lambada. Joel Silberg (’90) J. Eddie Peck leikur mystískan dans-
kennara í Beverly Hills sem lifir tvöföldu lífi. Átti að hala inn fé á vin-
sældir lambada-æðisins en útkoman ein versta dansmynd sögunnar.
Dirty Dancing. Emile Ardolino (’87) Ástamál milladóttur (Jennifer
Gray) og danskennarablókar (Patrick Swayze), eru klisjukennd en
myndin vaknar heldur betur til lífsins á dansgólfinu og hleypti af stað
bylgju eftirlíkinga.