Morgunblaðið - 19.01.2004, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 18. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Sveiflur
í atvinnulífi
Fólki fjölgar á Akranesi og víða er
verið að byggja upp Vesturland
Fasteignablaðið | Ásókn í íbúðir við Aspar- og Birkiholt Ættar-
hús við Laufásveg Áhugi á gömlum húsgögnum Íþróttir | Stóra
stundin nálgast Góð helgi hjá Arsenal Nágrannar í bikarúrslit
Fasteignir og Íþróttir í dag
KÓPAVOGSBÆR hefur tekið frá
lóð í Vatnsendalandi fyrir öldr-
unarþorp á vegum Hrafnistu. Sótt
hefur verið um leyfi heilbrigðis-
ráðherra til að byggja þar hjúkr-
unarheimili. Sjómannadagsráð
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
hefur verið í viðræðum við bæj-
aryfirvöld í Kópavogi um land til
uppbyggingar Hrafnistu þar.
Leiddi það til þess að sjó-
mannadagsráð sótti undir lok síð-
asta árs um framkvæmda- og
rekstrarleyfi fyrir 60 til 90 rýma
hjúkrunarheimili fyrir aldraða til
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra. Bæjarráð Kópavogs lýsti
yfir fullum stuðningi við umsókn-
ina og bæjarstjóri kom þeim sjón-
armiðum á framfæri við ráðherra
með bréfi fyrr í þessum mánuði.
Góð reynsla úr Hafnarfirði
Sigurður Geirdal bæjarstjóri
segir að búið sé að taka frá ákveð-
inn reit fyrir Hrafnistu í Vatns-
endalandi sem verið er að skipu-
leggja. Hann segir að
staðsetningin sé góð, þarna sé
mikið útivistarsvæði og íbúarnir
muni geta notið góðs af golfvell-
inum sem þarna er og sundlaug-
unum við Salaskóla. Hann segir
að vegna mikillar fjölgunar í
Kópavogi á undanförnum árum
vanti tilfinnanlega fleiri hjúkrun-
arrými.
Á vegum Hrafnistu er verið að
vinna úr hugmyndum um nýtingu
svæðisins. Sveinn H. Skúlason
forstjóri segir að hugmyndin sé
að bjóða upp á ýmiss konar val-
möguleika fyrir eldra fólk, svo
sem íbúðir í fjölbýlishúsum, og
litlar íbúðir í einbýlishúsum og
raðhúsum og fjölbreytta þjón-
ustu. Hugmyndin sé að þarna rísi
eins konar öldrunarþorp. Hrafn-
ista hafi byggt upp þannig starf-
semi í kringum Hrafnistu í Hafn-
arfirði og hafi töluverða reynslu
af að byggja og skipuleggja á nýj-
um stað.
Sjómannadagsráð hefur ekki
fengið svar frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu við
þeirri ósk að fá leyfi til að byggja
hjúkrunarheimili á þessari lóð.
Sveinn segir ekki loku fyrir það
skotið að unnt verði að hefja upp-
byggingu á svæðinu þótt ekki
liggi fyrir leyfi um hjúkrunar-
heimili í trausti þess að síðar yrði
hægt að byggja það.
Taka frá lóð fyrir öldrun-
arþorp í Vatnsendalandi
Kópavogsbær styður umsókn
sjómannadagsráðs um byggingu
60–90 rýma hjúkrunarheimilis
FYRSTU forkosningar demókrata í
Bandaríkjunum vegna forsetakosn-
inganna sem haldnar verða síðar á
þessu ári fara fram í Iowa-ríki í dag.
Alls berjast átta fyrir því að hljóta
útnefningu sem forsetaefni Demó-
krataflokksins en þar af eru fjórir
taldir vera um hituna í forvalinu í
Iowa. Eru úrslitin þar talin geta
skipt miklu máli um framhaldið en
demókratar í New Hampshire fylgja
í kjölfarið 27. janúar nk.
Howard Dean, fyrrverandi ríkis-
stjóri í Vermont, hefur undanfarna
mánuði haft forystu í keppninni um
útnefningu Demókrataflokksins en
ný skoðanakönnun í gær benti til að
hann ætti nú skyndilega undir högg
að sækja í Iowa. Sýndi könnun blaðs-
ins Des Moines Register, sem er
áhrifamesta blaðið í Iowa, að John
Kerry, öldungadeildarþingmaður
frá Massachusetts, hefur 26% fylgi
meðal demókrata í ríkinu, John
Edwards, öldungadeildarþingmaður
frá N-Karólínu, 23% og Dean 20%.
Fjórði er fulltrúadeildarþingmaður-
inn Richard Gephardt með 18%.
Er ljóst að Kerry og Edwards
hafa unnið mikið á undanfarna daga
en fyrir aðeins viku virtist ljóst að
baráttan um sigur í Iowa myndi
standa á milli Deans og Gephardts.
Carter hrósar Dean
Könnun Zogby-fyrirtækisins í
gærkvöldi sýndi hins vegar að Kerry
hefði aðeins eins prósentustiga for-
skot á Dean, Kerry hefur 24% fylgi
en Dean 23%, en Gephardt kemur
næstur með 19%. Edwards er fjórði,
skv. Zogby, með 18%.
Wesley Clark, fyrrv. hershöfðingi,
og Joseph Lieberman öldungadeild-
arþingmaður eygja ekki von um sig-
ur í Iowa en gætu þó blandað sér í
baráttuna um útnefninguna.
Allir frambjóðendurnir í forvalinu
voru á ferðinni í Iowa í gær en Dean
eyddi þó lunganum úr deginum í
Georgíu-ríki þar sem hann hitti
Jimmy Carter, forseta Bandaríkj-
anna á árunum 1977–1981. Carter
gekk ekki svo langt að lýsa yfir
stuðningi við Dean en hann hrósaði
frambjóðandanum hins vegar fyrir
að vera „öflugur og opinber málsvari
friðar“ en sem kunnugt er var Dean
á móti árásinni á Írak.
Hörð barátta
um sigur hjá
demókrötum
Fyrstu forkosningar vegna forseta-
kosninga í haust haldnar í Iowa í dag
Reuters
Howard Dean ásamt Jimmy Carter,
fyrrverandi forseta Bandaríkjanna,
í Plains í Georgíu-ríki í gær.
Des Moines. AP, AFP.
BANDARÍSKIR embættismenn í Bagdad sögðust í
gær telja að sprengjuárásin fyrir framan höf-
uðstöðvar Bandaríkjahers í borginni, sem kostaði 25
manns lífið, hefði verið skipulögð með það í huga að
varpa skugga á viðræður sem fram fara í New York í
Bandaríkjunum í dag milli Pauls Bremer, bandaríska
landstjórans í Írak, og Kofis Annan, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna. Þar hyggst Bremer ræða
við Annan um möguleikann á því að starfslið SÞ snúi
aftur til Bagdad og leiki lykilhlutverk í aðdraganda
valdaskipta sem Bandaríkjamenn vilja að fari fram í
sumar.
Annan kallaði allt starfslið SÞ frá Írak síðasta haust
eftir að árás á höfuðstöðvar samtakanna í Bagdad olli
dauða 22 manna og sprengjutilræðið í gær þykir sýna
að ástand öryggismála í landinu er enn afar ótryggt.
Flest fórnarlambanna Írakar
Árásin í gær átti sér stað eldsnemma um morg-
uninn og gerðist með þeim hætti að Toyota-sendi-
ferðabíl, hlöðnum sprengiefni, var ekið að innkeyrsl-
unni í höfuðstöðvar Bandaríkjahers í Bagdad.
Sprengdi ökumaðurinn sig þar í loft upp með þeim af-
leiðingum að 25 biðu bana og á annað hundrað manna
særðist. Voru flestir hinna látnu Írakar.
Á myndinni má sjá hvar íraskur maður liggur á
jörðinni nærri brennandi bifreiðum, skömmu eftir
sprengjuárásina í gær./12
Reuters
Á þriðja tug manna beið bana
Bagdad. AFP.
RÁÐIST var á Thomas Nordanstad,
listrænan stjórnanda sænska þjóð-
minjasafnsins, í gær og hann hefur
jafnframt fengið sendar hótanir vegna
listaverks í safninu sem Zvi Mazel,
sendiherra Ísraels í Svíþjóð, sá ástæðu
á föstudag til að reyna að eyðileggja.
Netútgáfa Dagens Nyheter hafði í
gærkvöld eftir Nordanstad að hann
hefði staðið efst í tröppunum við inn-
gang þjóðminjasafnsins þegar maður
kom skyndilega aðvífandi og reyndi að
ýta honum niður brattar tröppurnar í
því skyni að valda honum skaða. Nord-
anstad segir að safninu hafi borist um
400 tölvupóstsendingar vegna málsins
sem höfðu að geyma svívirðingar og
jafnvel morðhótanir.
Hótað öllu
illu vegna
listaverks
Sharon/12