Morgunblaðið - 19.01.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.01.2004, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 23 kosti. Ný stjórntæki, s.s. öflugra upplýs- ingastreymi sveitarfélaganna t.d. með að- stoð Netsins og nýjar reikningsskilareglur auðvelda sveitarfélögum að brjóta niður þá múra sem þau hafa reist í kringum sína þjónustu með því að láta fjármagnið fylgja þjónustuþeganum. Öll rök mæla með því að næsta skrefið í þróun á þjónustu sveitarfélaganna sé áhersla á það að íbúarnir hafi jöfn tækifæri til að velja viðurkennda þjónustu sem hent- ar þeim og börnum þeirra best óháð hinum ósýnilegu og oft ósanngjörnu múrum. Sveitarfélögin greiði hins vegar fyrir þjón- ustuna eftir fyrirfram skilgreindum við- miðum. Forystumenn sveitarfélaganna eiga að hafa frumkvæðið og segja: „Við þörfnumst ekki múra til að halda okkar fólki.“ áhersla verið lögð á sameiningu sveitarfé- laga til að efla þau og styrkja. Í þriðja lagi hefur stór hluti íslenskra sveitarfélaga átt undir högg að sækja fjárhagslega. Í fjórða lagi hefur skort þá hugmyndafræðilegu umræðu sem er forsenda allra mikilvægra kerfisbreytinga. Jafnhliða því að þróunin er hæg hjá sveit- arfélögunum verða borgararnir æ kröfu- harðari á þjónustu hins opinbera. Á sama tíma verður flóknara að koma til móts við þarfirnar vegna aukinnar menningarlegrar fjölbreytni. Fólk er af ólíkum uppruna, það hefur ólík trúarbrögð, flytur oftar en áður, býr í einu sveitarfélagi en starfar í öðru, börn eiga foreldra sem búa hvort í sínu sveitarfélaginu o.s.frv. Allt kallar þetta fram ólíkar þarfir sem eiga fullan rétt á sér. Besta leiðin til þess að koma til móts við þær er aukið valfrelsi og nú eru forsendur fyrir því að sveitarfélögin þrói slíka val- em engin þegar um er að ræða æri íbúanna til að velja þá þjón- þeir helst kjósa. líkar þarfir – ólíkt val an um valfrelsi íbúanna er sorg- mt á veg komin en ástæðurnar ar. Í fyrsta lagi má nefna að sveit- hafa verið upptekin við að taka við m frá ríkisvaldinu, s.s. þegar inn var færður frá ríki til sveitar- 1996. Í öðru lagi hefur mikil ekki múra Höfundur er bæjarstjóri í Garðabæ. krefið í þróun á sla á það að íbúarnir kennda þjónustu best óháð hinum m. ‘ lega 10 milljörðum kr. að teknu tilliti til skatta, má vera ljóst að nær helmingur alls eigin fjár sparisjóðanna er úr þessum ranni komið. Menn hljóta að þurfa að staldra við og spyrja sig hvers sparisjóðirnir væru megnugir í dag ef ekki hefði komið til eign- arhald á þessum félögum? Hinn kaldi raun- veruleiki er sá að afkoma sparisjóðanna af hefðbundinni starfsemi hefur litlum hagnaði skilað. Ég er sannfærður um að ef ekki hefði komið til hinn umtalsverði hagnaður af þessu eignarhaldi á þessum hlutabréfum væru sparisjóðirnir mun færri en þeir eru í dag. Þetta veganesti mun hins vegar ekki tryggja starfsemi þeirra til framtíðar – og allra síst þeirra sem selt hafa hluti sína á undanförnum árum. Því skil ég vel áhyggjur sparisjóðamanna. Það hjálpar hins vegar hvorki málstað þeirra né aðstöðu að tala ým- ist um að framtíðaráform SPRON séu aðför að tilvist sparisjóðanna eða að þau skipti framtíð þeirra engu máli. Hvort tveggja er nefnilega rangt, en vonandi er að sparisjóð- irnir nái að fóta sig við þær breyttu að- stæður sem blasa við. Þar reynir á forystuna að nýta krafta sína í að horfa fram á veginn og móta raunhæfar lausnir fyrir sparisjóð- ina fremur en að þyrla upp moldviðri í kring- um fyrirætlanir annarra. in var af KPMG fyrir Samband íslenskra sparisjóða. Þessar tillögur fólu í sér skipulag sem í senn var ætlað að styrkja stöðu hvers sparisjóðs og dótturfélaga þeirra og um leið að efla samstarf þeirra. Þannig hefðu þeir myndað sterka heild sem væri fær um að takast á við það harða samkeppnisumhverfi sem sparisjóðirnir standa nú andspænis. Því miður höfnuðu sparisjóðirnir þessum tillögum. Þess vegna hefur SPRON verið að efla starfsemi sína á eigin forsendum enda orðið ljóst að samstaða um aðlögun að nýju samkeppnisumhverfi myndi ekki nást. Við- ræðurnar við KB banka eru mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni stjórnar SPRON að festa rekstur hans og samkeppnishæfni í sessi til frambúðar. Eigið fé sparisjóðanna er nú um 20 millj- arðar kr. Þegar haft er í huga að eignarhald sparisjóðanna á hlutabréfum í Kaupþingi og Scandinavia Holding hefur skilað þeim tæp- t að segja á ég bágt með að trúa löglærði formaður SÍSP hafi sig á þessum einfalda sannleika. Jón að það að sjálfseignarstofn- lutabréf sín í SPRON hf. og eign- n hlutabréf í viðskiptabanka við vilja löggjafans. Þetta er líka einargerð með frumvarpinu sem rir Alþingi þegar þetta mál var til r einmitt gert ráð fyrir að þetta til við samruna sparisjóðs og við- ka sem er í raun það sem er að viki SPRON og KB banka. ðirnir á Íslandi eru vandaðar og nanir sem hafa skilað samfélaginu rðmætum. Það er þess vegna mik- tarfsemi þeirra sé fundinn farveg- nst þær miklu breytingar sem og eru að eiga sér stað í starfsum- ra. Á árinu 2001 var lögð fram vel illaga fyrir sparisjóðina sem unn- stur, Jón! Höfundur er sparisjóðsstjóri SPRON. arisjóðirnir á Íslandi eru vandaðar og góðar anir sem hafa skilað samfélaginu miklum verð- m. Það er þess vegna mikilvægt að starfsemi sé fundinn farvegur sem stenst þær miklu ngar sem hafa verið og eru að eiga sér stað sumhverfi þeirra. ‘ er svo komið að heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir gríðarlegum niðurskurði; fjöldauppsagnir blasa við á Landspítala – háskólasjúkra- húsi og rætt er um að loka ýmsum deildum, s.s. neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb nauðgana og Arnarholti sem er vistheimili fyrir geðfatlaða. Nú er rétt að taka fram að ég skyldi verða síðust til að mæla með óþarfa eyðslu í nokkru kerfi. En bent hefur verið á að útgjöld hafa aukist mest á tilteknum sviðum heilbrigðisþjónustunnar, t.d. lyfja- dreifingu og sérfræðiþjónustu, merkilegt nokk á þeim sviðum þar sem hlutverk einkaaðila er stærst. Bent hefur verið á ýmsar leiðir til að vinna gegn sívaxandi lyfjakostn- aði, t.d. með nýrri og aukinni áherslu á lýðheilsu og forvarnir. Slíkar áherslur myndu skila sparnaði til langs tíma, auk þess sem þær myndu bæta heilbrigði al- mennt sem er einmitt aðalmark- miðið. Önnur mikilvæg áhersla er ein- mitt að stunda rannsóknir og kennslu í heilbrigðisgreinum hér á landi og stuðla þannig að nýsköpun og framþróun innan greinarinnar. Það má vel vera að það kosti sitt – en um leið er unnið að framþróun læknavísindanna á alþjóðlega vísu. Og þá erum við máski komin að kjarna málsins. Svo lengi sem eingöngu er talað um heil- brigðismál í krónum og aur- um verður ekki sparað á vit- rænan hátt. Því að heilbrigðiskerfi er ekki bankastofnun – sem hefur það hlutverk að hugsa í krón- um og aurum. Heilbrigðis- kerfið snýst um fólk og eink- um fólk sem hefur misst heilsuna. Og það mætti Pétur Blöndal hug- leiða. Þeir sem tala um að hægt sé að meta mannslífið til fjár virðast hafa misst sjónar á því sem skiptir máli í þessu lífi. Kannski skilur það eng- inn betur en sá sem hefur misst heilsuna og áttað sig á því með reynslunni. Það að þeir sem eru sjúkir og þjást nóg þess vegna þurfi að auki að hlusta á umræðu sem öll gengur út á hvað þeir kosti mikið og séu þjóðfélaginu þungur baggi ættu að hugsa sig um áður en þeir ljá Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt að nýju. Og reyndar öllum þeim sem alltaf tala um nauðsyn þess að spara í heilbrigðiskerfinu. Það sem skiptir máli í heilbrigð- iskerfinu er að leggja aukna áherslu á heilbrigði og minni á sjúkdóma. Með forvörnum og upp- byggingu lýðheilsu má bæta al- mennt heilbrigði landsmanna og spara til framtíðar. En grunn- forsendan er sú að bæta heilsu landsmanna, ekki að meta heil- brigði til fjár og telja okkur of heil- brigð ef kerfið kostar of mikið. Þeir sem tala um eigin ábyrgð og halda því fram að fólk eigi sjálft að borga fyrir það sem það missir sjálft hljóta að fagna því að unnið sé að bættri heilsu allra landsmanna. En þeir ættu líka að átta sig á því að sjúkdómar og slys gera sjaldn- ast boð á undan sér. Við eigum að sinna þeim af hlýju og natni sem misst hafa heilsuna því að þeir hafa orðið fyrir því óláni að missa það dýrmætasta sem til er. Og með góðu kerfi er hægt að koma fjöl- mörgum þeirra aftur til heilsu. Ég öfunda þá ekki sem misst hafa heilsuna og er glöð ef mínir skatt- peningar renna til þess að gera líf þeirra bærilegra. Þetta hljómar kannski framandi í eyrum peninga- postulanna en hafið ekki áhyggjur: Það er aldrei of seint að breyta hugsunarhætti sínum. P étur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mætti í Kastljósþátt á dögunum til að ræða heilbrigðismál. Kom þar margt athyglisvert fram um skoðanir þingmannsins. Hann viðr- aði m.a. möguleikann á því að fella niður nám í heilbrigðisgreinum hér á landi og flytja námið til útlanda því að það væri of dýrt og ræddi líka að skipuleggja þyrfti betur fjármagn í heilbrigðiskerfinu – for- gangsraða þyrfti sjúklingum og ef eitthvað stæði út af væri það ein- faldlega á ábyrgð heilbrigðiskerf- isins. Fyrir utan þá tilhneigingu stjórnmálamanna að firra sig allri ábyrgð á opinberum rekstri og vísa eilíflega á embættismenn eru skoð- anir þingmannsins um margt merkilegar. Hann bergmálar há- væran hóp fólks sem þreytist ekki á að segja að heilbrigðiskerfið sé of dýrt og það megi ekki kosta neitt – en minnist aldrei á þá sem þurfa að starfa innan kerfisins og heldur ekki sjúklingana. Með öðrum orð- um: Ekki er rætt um markmið kerfisins sem er að efla heilsu fólks og lækna hina sjúku. Þessi mark- mið þarf að ræða og hvernig er hægt að ná þeim – ekki bara hvað þau kosta. Vissulega er rétt að íslenskt heil- brigðiskerfi kostar mikið. Það er einfaldlega drulludýrt að halda uppi góðu heilbrigðiskerfi. Sam- kvæmt skýrslu OECD fyrir árið 2001 er Ísland í sjöunda sæti miðað við útgjöld á mann, með 2.643 bandaríkjadali á mann. Á undan okkur eru Lúxemborg, Kanada, Þýskaland, Noregur, Sviss og Bandaríkin sem tróna á toppnum með tæplega 4.900 bandaríkjadali á mann. Ísland er hins vegar í því átt- unda ef tekin eru heildarútgjöld til heilbrigðismála sem hlutfall af þjóðartekjum en það er um 9,2%. Þegar rætt er um að heilbrigð- iskerfið þenjist út eins og óseðjandi skrímsli sem engin leið sé að tjónka við er rétt að skoða sömu tölur. Heilbrigðisútgjöld hafa aukist, miðað við sama mælikvarða, þ.e. sem hlutfall af þjóðartekjum, um 1,2 prósentustig á rúmum áratug (1990-2001), úr 8% í 9,2%. En það er ekki eins og þessir fjármunir hafa lent í botnlausri hít. Á sama tíma hefur þjónustan verið bætt á ýmsum sviðum og rannsóknir sýna að íslenskt heilbrigðiskerfi er með þeim bestu í heimi. Og þá komum við að einföldu reikningsdæmi: Við eyðum miklu í heilbrigðiskerfi. Íslenskt heilbrigð- iskerfi er gott. Ætli það geti verið að þessar tvær staðreyndir tengist og önnur sé jafnvel forsenda hinn- ar? Í mínum huga er svarið einfalt og játandi. Ljóst er hins vegar að heilbrigð- iskerfið er ekki vinsæll málstaður um þessar mundir. Á meðan heil- brigðisráðherra hefur reynt að halda uppi vörnum fyrir heilbrigð- iskerfið atast Sjálfstæðisflokkurinn í því og kvartar sáran undan því að skattar almennings renni í þetta góða kerfi. Flokksmenn á þeim bænum vilja líklega fá peninginn í hluti sem þeir telja þarfari: Hersveitir og leyni- þjónustu; sendiráð og virkjanir. Nú Verður mannslíf metið til fjár? Eftir Katrínu Jakobsdóttur ’ Svo lengi sem ein-göngu er talað um heil- brigðismál í krónum og aurum verður ekki sparað á vitrænan hátt. ‘ Höfundur er varaformaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.