Morgunblaðið - 19.01.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.01.2004, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. S amband ungra sjálfstæðismanna hóf í síðustu viku sölu á rauðum bol með mynd af einum merk- asta stjórnmálamanni síðustu aldar, Margréti Thatcher. Fyrir neðan myndina stendur með látlausu letri: „We don’t need walls to keep our people in“ eða „Við þörfnumst ekki múra til að halda okkar fólki“. Til gamans keypti ég bol handa frænda mínum, kraftmiklum ung- lingi, og hugsaði með mér að hann hefði þá eitthvað til skiptanna þegar Che Guevara- bolurinn væri í þvotti. Þegar ég rétti honum bolinn sá ég hins vegar að jafnréttis- uppeldið hafði brugðist því drengurinn svaraði að bragði: „Æi, Ásdís Halla. Ég fer ekki í bol með mynd af kellingu.“ Þar við sat. Eftir stóð að mér fannst ánægjulegt að sjá unga fólkið hjá SUS rifja upp þessa tíma og undirstrika hugmyndafræðilega muninn á hægri og vinstri bæði í nútíð og fortíð. Sem betur fer er kalda stríðinu lokið, kommúnisminn beið ósigur og Berlínar- múrinn er hruninn. Umfram allt táknaði múrinn frelsisskerðingu. Einstaklingarnir voru lokaðir inni til þess að þeir færu ekki annað. Ofríki stjórnvalda austan járntjalds- ins endurspeglaðist í vantrausti, ekki ein- ungis á borgarana heldur á eigin stjórnar- hætti. Hvaða ríki telur sig hafa svo lítið fram að færa að það þurfi að múra einstak- lingana inni til að þeir hlaupist ekki á brott? Um leið og bolurinn rifjaði upp söguna velti ég því fyrir mér hvort hann væri jafnvel allt eins að vísa í múrana sem hafa verið reistir í íslensku samfélagi og standa enn. Hinn ósýnilegi hverfamúr Umsvif sveitarfélaga nema um 35% af opinberum útgjöldum en með aukinni ábyrgð þeirra og frekari flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga munu þau velta æ stærri hluta hinna opinberu útgjalda. Vand- inn er sá að flest sveitarfélög eru rekin á grundvelli þeirrar hugmyndafræði að íbú- arnir skuli nota þjónustuna í því hverfi og í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga lögheim- ili. Fólki er úthlutað leikskólaplássum og í sumum tilvikum er það jafnvel svo að börn sem búa í sömu götunni fara hvort í sinn grunnskólann. Hverfamúrinn ósýnilegi og jafnframt órjúfanlegi ræður því. Flestir foreldrar taka þessu möglunarlaust enda eru þeir ekki vanir því að eiga val. Þeir sem eru ósáttir þurfa að taka slaginn og því mið- ur ræðst niðurstaðan of oft af þörfum kerf- isins en ekki barnsins. Þjónustan við eldri borgara er sama merki brennd. Ef þú átt rétt á niðurgreiddum heimsendum mat þá er það sveitarfélagið þitt sem ræður því hvaðan hann kemur og ef þú nýtur heima- þjónustu er það sveitarfélagið þitt sem sendir einhvern heim til þín. Þannig hafa sveitarfélögin verið nokkuð samstiga í því að reisa múra á milli hverfa, á milli sveitar- félaga og á milli þjónustu sem þau sjálf veita og þeirrar sem einkaaðilar veita. verið lítil se jöfn tækifæ ustu sem þ Ól Umræða lega skamm eru nokkra arfélögin h verkefnum grunnskóli félaga árið Í Garðabæ hafa fyrstu skrefin í átt til aukins valfrelsis íbúanna verið tekin, svo sem varðandi þjónustu leikskóla og grunn- skóla. Enn er langt í land því óhjákvæmi- legt er að sveitarfélögin vinni saman að svo umfangsmiklum breytingum, auk þess sem slíkar breytingar taka tíma. Samvinna sveitarfélaga hefur aukist mjög á undan- förnum árum t.d. á sviði almenningssam- gangna, sorphirðu og með sameiginlegu slökkviliði þar sem sveitarfélögin sameinast um tiltekinn rekstur. En samvinnan hefur Við þörfnumst Eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur ’ Öll rök mæla með því að næsta skþjónustu sveitarfélaganna sé áhers hafi jöfn tækifæri til að velja viðurk sem hentar þeim og börnum þeirra b ósýnilegu og oft ósanngjörnu múru Í viðtali við Jón Sólnes, stjórnar- formann Sambands íslenskra spari- sjóða (SÍSP) í Morgunblaðinu sl. sunnudag lýsir hann sínum sjón- armiðum á ýmsum þáttum SPRON-málsins svokallaða. Jón staðhæfir þar nokkur atriði sem ég mun gera hér að umfjöllunarefni en upp úr stendur þó sú yfirlýsing hans að sparisjóð- irnir myndu spjara sig vel enda þótt SPRON hyrfi úr SÍSP. Mæli Jón manna heilastur! Fáir myndu fagna því meira en stjórnendur SPRON sem síst af öllu vilja bera ábyrgð á örlögum annarra sparisjóða. Hins vegar er þessi yfirlýsing Jóns á skjön við það sem hann hefur sagt áður, þegar hann hefur tekið undir þau sjónarmið að áform SPRON séu í raun aðför að spari- sjóðakerfinu á Íslandi. Hvernig má það vera ef orð formannsins í Morgunblaðinu sl. sunnudag eru marktæk? Hvers vegna bregðast samtök sparisjóða svo hart við ef formaður þeirra er orðinn þessarar skoð- unar? Stærsti aðilinn í Sambandi íslenskra sparisjóða er SPRON, sem býr yfir ríflega fjórðungi af samanlagðri stærð sparisjóð- anna og greiðir aðildargjöld að samstarfinu í hendi. Satt því að hinn ekki áttað s Þá telur unin selji h ist í staðinn stangist á v rangt. Í gre lagt var fyr umræðu er geti komið skiptabank gerast í tilv Sparisjó góðar stofn miklum ver ilvægt að st ur sem sten hafa verið o hverfi þeirr ígrunduð ti samræmi við það. Jón Sólnes þiggur laun úr þeim sameiginlega sjóði fyrir að gæta hags- muna sparisjóðanna. Erfitt er þó að sjá að honum sé umhugað um hagsmuni SPRON miðað við hvernig hann hefur tekið mál þessa eina sparisjóðs fyrir og hvaða grund- völl hann hefur um leið skapað fyrir umræðu um málefni hans. SPRON er ekki akkur af slíkum málsvara og þykir óneitanlega að sparisjóðurinn fái lítið fyrir sinn snúð þegar um er að ræða innlegg annars vegar og hins vegar úttektir af þessum toga úr sparisjóða- samstarfinu. Í áður tilvitnuðu samtali við Jón í Morg- unblaðinu telur hann það ekki endilega í valdi einstakra hluthafa hvort þeir haldi sín- um hlutabréfum eftir að SPRON hefur verið gert að hlutafélagi þar sem stutt geti verið í að yfirtökuskylda geti skapast. Þetta er rangt. Yfirtökuskylda myndast ekki í þessu tilfelli. Til að slíkt gerist þarf sami aðili að eiga meira en 90% hlutabréfa í fyrirtækinu og fara jafnframt með atkvæðavægi í sam- ræmi við það. Samkvæmt lögum um fjár- málafyrirtæki getur enginn einn aðili farið með meira atkvæðavægi en 5% í sparisjóði, hvort heldur sem hann er hlutafélag eða ekki. Þess vegna myndast ekki yfirtöku- skylda og stofnfjáreigendur sem kjósa að eiga hlutabréf áfram í SPRON hf. geta gert það og verða ekki þvingaðir til að láta þau af Mæltu manna heilas Eftir Guðmund Hauksson ’ Spastofna mætum þeirra breytin í starfs REGLUR UM INNHERJAVIÐSKIPTI Í samtali við Morgunblaðið sl.laugardag upplýsti MagnúsGunnarsson, stjórnarformað- ur Eimskipafélags Íslands, að það sem af væri þessu ári hefðu svo- nefndir fruminnherjar í félaginu átt sex viðskipti með hlutabréf í því. Þar af hefðu fjögur verið til- kynnt fyrirfram til regluvarðar fé- lagsins. Í leiðbeinandi tilmælum Fjár- málaeftirlitsins nr.2/2001, sem voru endurskoðuð á sl. sumri segir svo: „Fruminnherjar skulu þannig hafa samráð við regluvörð áður en þeir eða aðilar fjárhagslega tengd- ir þeim, eiga viðskipti með bréf út- gefandans eða fjármálagerninga þeim tengda.“ Í ræðu, sem Páll Gunnar Páls- son, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, flutti á ársfundi stofnunarinnar í októbermánuði sl. sagði hann m.a. að hart væri lagt að útgefendum skráðra verðbréfa að skapa hjá sér umgjörð um starf sitt á verðbréfa- markaði, sem m.a. ætti að tak- marka hættu á innherjasvikum. Síðan sagði Páll Gunnar: „Treglega hefur gengið að koma þessari umgjörð á hjá öllum útgef- endum skráðra verðbréfa og hefur Fjármálaeftirlitið þurft að beita dagsektum í því skyni.“ Greiningardeildir bankanna þriggja gerðu allar fyrir helgi at- hugasemdir við viðskipti fruminn- herja í Eimskipafélaginu með hlutabréf í félaginu síðustu daga. Í Morgunblaðinu í gær segir stjórnarformaður Eimskipafélags- ins, að félagið hafi brugðizt við at- hugasemdum og gagnrýni á þessi viðskipti með því að loka fyrir við- skipti innherja þar til uppgjör verður birt í febrúar. Ennfremur hafi stjórn félagsins ákveðið sl. föstudag að fá aðstoð sérfræðinga við að setja viðbótarreglur um inn- herjaviðskipti. Samkvæmt þessu er ljóst og staðfest af félaginu sjálfu, að í tveimur tilvikum hafi leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlits um við- skipti fruminnherja í Eimskipa- félaginu verið brotin. Hins vegar bregður svo við að ómögulegt er að fá upplýsingar hjá Fjármálaeftirlitinu um hvort stofnunin mun láta þetta mál sín taka eða hvort stofnunin muni beita þeim viðurlögum sem lög kveða á um að beita megi í slíkum tilvikum. Hvað veldur? Það er skiljanlegt að Fjármála- eftirlitið geti ekki í öllum tilvikum skýrt frá aðgerðum þess og at- hugasemdum. En illskiljanlegra er ef viðkomandi félag sjálft hefur staðfest að ekki hafi að fullu verið fylgt settum reglum, að Fjármála- eftirlitið telji sig ekki geta tjáð sig um málið á einn eða annan veg. Það er einfaldlega of langt gengið. Í öllum löndum, sem við miðum okkur við í þessum efnum, er mjög hart tekið á því ef innherjar fylgja ekki í einu og öllu settum reglum um innherjaviðskipti. Brot á slík- um reglum eru alls staðar talin mjög alvarleg og þá ekki sízt í Bandaríkjunum. Reglur um innherjaviðskipti eru ekki settar til þess að þeim sé fylgt einungis að hluta til. Ef lög eða starfsreglur um Fjármálaeftirlit banna forsvarsmönnum þess að tjá sig um tilvik sem þetta sem liggur fyrir opinberlega og staðfest er ástæða til að breyta þeim lögum eða reglum. MYNDLIST OG TJÁNINGARFRELSI Sl. föstudag var sendiherra Ísr-aels í Stokkhólmi vísað á dyr í þjóðminjasafninu þar í borg. Til- efni þess var að sendiherrann hafði veitzt að listaverki, sem þar hafði verið sett upp á sýningu, sem tengist ráðstefnu um þjóðarmorð. Sendiherranum líkaði verkið ekki og taldi það móðgun við ættingja fórnarlamba sjálfsmorðsárása Palestínumanna í Ísrael. Myndlist er ákveðið tjáningar- form. Bæði í Svíþjóð og flestum ef ekki öllum löndum vesturhluta Evrópu a.m.k. ríkir tjáningar- frelsi. Það er einn af grundvallar- þáttum mannréttinda. Ísr- aelsmenn verða að viðurkenna þessi mannréttindi og horfast í augu við þau, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Ísraelsmönnum getur sviðið, hvernig átökin fyrir botni Miðjarð- arhafs koma listamönnum fyrir sjónir. En þeir geta ekki leyft sér að gera kröfu til þess, að slík verk séu fjarlægð. Þá eru þeir komnir í sömu stöðu og einræðisherrar kommúnismans, sem ýmist settu listamenn sem þeir töldu sér and- snúna í fangelsi eða flæmdu þá úr landi. Hið sama gerði Adolf Hitler og það voru ekki sízt listamenn af gyðingaættum, sem urðu fyrir barðinu á slíkum ofsóknum naz- ista. Með framkomu sinni í Stokk- hólmi er sendiherra Ísraels þar að gefa til kynna, að Ísraelsmenn þoli ekki aðrar skoðanir en þær sem þeim eru þóknanlegar. Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hellir olíu á eldinn með því að lýsa yfir stuðningi við framferði sendiherr- ans. Þeir sem ekki þola skoðanir ann- arra hafa ekki mikla trú á eigin málstað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.